Morgunblaðið - 05.12.2018, Page 1

Morgunblaðið - 05.12.2018, Page 1
M I Ð V I K U D A G U R 5. D E S E M B E R 2 0 1 8 Stofnað 1913  286. tölublað  106. árgangur  19 dagartil jóla Jólagetraunir eru á jolamjolk.is borgarleikhus.is GJAFAKORTBORGARLEIKHÚSSINS semlifnar við Gefðugjöf TERRELLA ER KÆRLEIKSKÚLA ÁRSINS 2018 STYTTIST Í OPNUN GANGA MOSINN GEGNIR MIKILVÆGU HLUTVERKI LOKAFRÁGANGUR 15 FANN NÝJA TEGUND 12SEGULSTÁL OG JÁRNDUFT 30 Anna Lilja Þórisdóttir annalilja@mbl.is „Ég er ekki tilbúin til að taka á mig skellinn fyrir ummæli annarra. Ég get ekki tekið ábyrgð á annarra manna orðum. Það er ekki á mína ábyrgð að stoppa það þegar drukkn- ir menn tala.“ Þetta segir Anna Kolbrún Árna- dóttir, þingmaður Miðflokksins og ein úr hópi sex þingmanna sem voru á veitingastaðnum Klaustri þriðju- dagskvöldið 20. nóvember síðastlið- inn þar sem óviðeigandi orðum var farið um þingmenn og fleira fólk, en hluti samtalsins náðist á upptöku og hefur verið til umfjöllunar í fjölmiðl- um undanfarna viku. Þegar málið komst í hámæli sagðist Anna Kol- brún ætla að hugsa sinn gang og er nú komin að þeirri niðurstöðu að hún muni ekki segja af sér. Hún segir það ekki hafa verið sitt hlutverk að þagga niður í mönnum en hún hafi reynt að beina samtalinu annað. Hún segist aldrei hafa grátið jafn- mikið á ævinni og undanfarna daga og að hún hafi m.a. brostið í grát á fundi formanna þingflokkanna í fyrradag. »10-11 Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Anna Kolbrún Árnadóttir Hún var einn þeirra þingmanna sem voru á veitingastaðnum Klaustri 20. nóvember. Ég get ekki tekið ábyrgð á annarra manna orðum  Anna Kolbrún ætlar ekki að segja af sér þingmennsku  Grét á formannafundi Baldur Arnarson baldura@mbl.is Byggja á upp Reykjavíkurflugvöll á næstu árum. Framkvæmdin er liður í áformum um að stórefla varaflug- velli fyrir millilandaflug í Reykjavík, á Akureyri og á Egilsstöðum. Njáll Trausti Friðbertsson, for- maður starfshóps um framtíð innan- landsflugs, staðfestir þetta en hóp- urinn hefur skilað ráðherra tillögum. Njáll Trausti segir uppbyggingu Reykjavíkurflugvallar vera flug- öryggismál. Kerfið megi ekki veikjast meira en orðið er. Með til- lögunum séu færð rök fyrir því að hafa áfram flugvöll í Vatnsmýri. „Ég held að það sé orðið almennt samþykki fyrir því að menn sjái ekki fyrir sér að Reykjavíkurvöllur sé að fara næstu 15-20 árin.“ Lá við neyðarástandi Njáll Trausti segir innviði engan veginn hafa haldið í við margföldun flugfarþega. Hann rifjar upp að 2. apríl sl. hafi flugmenn farþegaþotu verið 8 mínútur frá því að lýsa yfir neyðarástandi vegna eldsneytis- skorts. Hafði vélinni verið beint til Egilsstaða vegna snjókomu á Kefla- víkurflugvelli. Varaflugvellir hafi aðeins rúmað fáeinar þotur. Spurður hvaða áhrif tillögurnar hafi á framtíð Reykjavíkurflugvallar segir Sigurður Ingi Jóhannsson, samgönguráðherra, stöðu flugvallar- ins „áfram í því limbói sem hún hefur verið. Það eru allir sammála um að Reykjavíkurflugvöllur verður þar sem hann er þangað til annar, eða jafn góður eða betri flugvöllur í ná- grenni Reykjavíkur finnst. Það er niðurstaðan úr síðustu skýrslum sem allir aðilar hafa skrifað undir.“ Efla flug í Vatnsmýri  Byggja á upp Reykjavíkurflugvöll  Formaður starfshóps vísar til öryggis  Völlurinn sé ekki á förum næstu 15-20 árin MByggja upp … »6 Breska þingið samþykkti í gær með 311 atkvæðum gegn 293 vítur á rík- isstjórn Theresu May fyrir að hafa ekki birt í heild sinni lögfræðilegt álit sem May fékk um möguleg áhrif Brexit-samkomulagsins. Þetta er í fyrsta sinn í sögunni sem ríkisstjórn Bretlands er vítt af þinginu, en síðast var þingmaður víttur árið 1947. Umræða um Brexit-málið hófst í gær. Þingið samþykkti ályktun í síð- asta mánuði um að ríkisstjórninni bæri að birta lögfræðiálitið, en May hélt því fram að trúnaður ríkti um það, sem óheimilt væri að aflétta. Tillaga Verkamannaflokksins um að víta ríkisstjórnina fékkst samþykkt með stuðningi sex flokka á þinginu, en athygli vakti að norð- ur-írski flokkurinn DUP, sem ver stjórn May falli, greiddi atkvæði með tillögunni. Lögfræðiálitið verður birt í heild sinni í dag. »18 AFP Brexit Niðurstaðan kynnt í gær. Ríkisstjórn- in ávítt af þinginu Einar Sveinbjörnsson veðurfræð- ingur segir í samtali við blaðið í dag að norðanvindurinn sem blés við Stjórnarráðið á fullveldisdaginn hafi líklega verið magnaður upp af mannavöldum. Það sé vel þekkt að þegar reistar séu byggingar sem séu ákveðið háar miðað við breidd aðliggjandi götu magnist upp vind- ur sem blási samsíða götunum. Lækjargatan sé nú dæmigerð fyrir slík vindgöng. »4 Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Napurt Það næddi á fullveldisdaginn. Rok í Reykjavík af mannavöldum?

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.