Morgunblaðið - 05.12.2018, Page 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 5. DESEMBER 2018
Þegar mótmæli Frakka viðhækkandi olíuverði náðu há-
marki og orðið var töluvert eigna-
tjón og nokkurt manntjón var Mac-
ron forseti staddur með öðrum
leiðtogum í Argent-
ínu.
Hann vissi að deGaulle hafði
stundum brotið mót-
mæli á bak aftur
með ávörpum.
Hann talaði því til frönskuþjóðarinnar þaðan og sagði
að með öllu væri útilokað að látið
yrði undan ofbeldi af þessu tagi.
Forsetinn virtist sannfærandi ogákveðinn þarna í Buenos Aires
(borg blíðra vinda).
Heimkominn sólarhring síðarsortnaði forsetanum fyrir
augum og hann tilkynnti að hætt
yrði við allt sem angrað hefði mót-
mælendur.
Allur vindur var úr honum eðahafði ákveðið að verða eftir
hjá góðvindunum handan hafs.
Ekki er endilega víst að þessiuppgjöf og aðrar U-beygjur
verði til þess að lappa upp á fylgi
forsetans, sem verið hefur í frjálsu
falli síðustu misserin.
Forsetinn kynnti sig til sögu semmann breytinganna sem
Frakkland þarfnaðist svo sárlega.
Þegar ístöðuleysið er auglýstmeð svo áberandi hætti sendir
það Frökkum, sem búa við ríkulega
mótmælahefð, þau skilaboð sem
þeir máttu síst við.
Emmanuel
Macron
Sneri heim og
snerist í hring
STAKSTEINAR
Jólahátíð fatlaðra verður á Hilton
Reykjavík Nordica í kvöld, miðviku-
daginn 5. desember, og hefst kl.
19.30. Húsið verður opnað kl. 18.30
og dagskrá lýkur kl. 21.30. Þetta er í
36. sinn sem hátíðin er haldin.
Á hátíðinni sér hljómsveitin Topp-
menn um undirleik og skólahljóm-
sveit Árbæjar og Breiðholts undir
stjórn Snorra Heimissonar leikur
létt lög frá kl. 18.45. Fjölmargir lista-
menn koma fram á hátíðinni og má
þar nefna Jógvan Hansen, Ingó
veðurguð, Heiðu Ólafs, Hreim
Heimisson, Dag Sigurðsson, Geir
Ólafsson, Eyjólf Kristjánsson, Jóa
Pé & Króla, Emmsjé Gauta og Mar-
íu Ólafsdóttir. Einnig stíga á svið
meðal annars Laddi, Sveppi og
Steindi. Kynnir á hátíðinni er Sig-
mundur Ernir Rúnarsson sjónvarps-
maður en heiðursgestur Dagur B.
Eggertsson, borgarstjóri í Reykja-
vík.
„Í vitund bæði gesta og þeirra sem
að hátíðinni standa er þetta hápunkt-
ur jólanna. Stemningin er ólýsanleg
og því er afar gefandi að sinna þessu
starfi,“ segir Bjarni Þór Sigurðsson,
sem er einn aðstandenda hátíðar-
innar. Hann kom fyrst að málum fyr-
ir sex árum og segir að þá hafi ekki
orðið aftur snúið. „Margir listamenn-
irnir sem koma fram hafa verið hjá
okkur ár eftir ár og meðal margra er
raunar eftirsótt að vera á þessari
samkomu, svo skemmtileg er hún.
Við reynum annars alltaf að blanda
þessu saman og taka nýja söngvara
og skemmtikrafta inn ár hvert og
þannig höldum við þessu fersku.“
Gestir á jólahátíðinni ár hver eru
oft á bilinu 1.500 til 2.200; fatlað fólk
þá oft með foreldrum, systkinum eða
hjálparfólki. Margir mæta á svæðið
með rútum utan af landi og svo bílum
frá Ferðaþjónustu fatlaðra en þetta
er annasamasti dagurinn í starfsem-
inni þar. sbs@mbl.is
Jólahátíð fatlaðra
á Nordica í kvöld
Skemmtunin haldin nú í 36. skipti
Morgunblaðið/Eggert
Skemmtun Hápunktur jólagleði
fatlaðs fólks verður í kvöld.
Björn Leví Gunnarsson, þingmaður
Pírata, hefur lagt fram á Alþingi 10
fyrirspurnir til jafnmargra ráðherra
um kærur og málsmeðferðartíma.
Hann beinir fyrirspurnum til allra
ráðherra ríkisstjórnarinnar, að Guð-
laugi Þór Þórðarsyni utanríkis-
ráðherra undanskildum.
Björn Leví vill fá upplýsingar um
þær úrskurðar- og kærunefndir sem
undir ráðherrana heyra. M.a. vill
hann vita hversu margar kærur bár-
ust á hverju ári frá árinu 2013.
Þá spyr hann: Hver var meðal-
afgreiðslutími á hverju ári? Hver var
stysti tími sem tekið hefur að af-
greiða kæru og hver var lengsti tími
á hverju ári? Hversu margar kærur
voru óafgreiddar hjá hverjum úr-
skurðaraðila 1. nóvember sl.?
Sem dæmi má taka fyrirspurn til
félags- og jafnréttisráðherra:
Hversu margar kærur bárust
eftirtöldum á hverju ári frá árinu
2013: a. kærunefnd húsamála, b. úr-
skurðarnefnd velferðarmála: al-
mannatryggingar, c. úrskurðar-
nefnd velferðarmála: atvinnuleysis-
tryggingar og vinnumarkaðs-
aðgerðir, d. kærunefnd jafnréttis-
mála, e. Félagsdómi, f. ráðherra?
Ljóst er að mikil vinna bíður ráðu-
neytisstarfsmanna að svara öllum
þessum fyrirspurnum. sisi@mbl.is
Tíu fyrirspurnir á einu bretti
Björn Leví Gunnarsson spyr ráðherra
um kærur og málsmeðferðartíma
Morgunblaðið/Eggert
Björn Leví Spyr tíu ráðherra.
Jólaföndur
ÞRÍVÍDDARPÚSL
FYRIR ALLA UM JÓLIN
augavegi 29 | sími 552 4320 | www.brynja.is | verslun@brynja.isL
Opið
virka
daga
frá 9-
18
lau fr
á 10-1
6
Ný
vefverslunbrynja.is
VERÐ FRÁ 780 KR.
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/