Morgunblaðið - 05.12.2018, Qupperneq 10

Morgunblaðið - 05.12.2018, Qupperneq 10
VIÐTAL Anna Lilja Þórisdóttir annalilja@mbl.is „Ég geri mér grein fyrir því að ég lét þetta viðgangast. En á sama tíma geri ég mér fulla grein fyrir því að það er ekki á mína ábyrgð að stoppa það þegar drukknir menn tala. Ég hefði átt að fara fyrr en ég gerði. Það eru alveg ótrúlega mörg „Ég hefði“. Þetta segir Anna Kolbrún Árna- dóttir, þingmaður Miðflokksins og ein sexmenninganna úr hópi þing- manna Miðflokks og Flokks fólksins sem fóru óvarlegum orðum um sam- starfsfólk sitt og aðra á barnum Klaustri þriðjudagskvöldið 20. nóv- ember síðastliðinn en hluti samtals- ins náðist á upptöku. Þátttaka Önnu Kolbrúnar í þess- ari örlagaríku kvöldstund hennar, Miðflokksþingmannanna Gunnars Braga Sveinssonar, Bergþórs Óla- sonar og Sigmundar Davíðs Gunn- laugssonar og tveggja þingmanna Flokks fólksins, þeirra Karls Gauta Hjaltasonar og Ólafs Ísleifssonar, hófst að hennar sögn með því að hún fékk símtal þar sem henni var boðið að slást í hópinn á Klaustri. Síðan þá hafa tveir þeir fyrstnefndu farið í leyfi frá þingstörfum og þeim Karli Gauta og Ólafi var vikið úr Flokki fólksins og starfa þeir nú sem óháðir þingmenn. Var ekki drukkin „Það stóð aldrei til að ég tæki þátt í þeirri umræðu sem var í gangi þetta kvöld á Alþingi, sem var um- ræða um fjárlögin. Við í þingflokki Miðflokksins skiptum með okkur málefnum og verkum rétt eins og fólk í öðrum þingflokkum. Þegar ég kom á Klaustur var mér boðinn stór bjór og ég drakk einn lítinn bjór til viðbótar. Ég drakk þessa drykki á löngum tíma og ég var ekki drukkin, eins og haldið hefur verið fram í fjölmiðlum. Ég lagði það sem sagt var ekkert sérstaklega á minnið og ég var fyrst af þingmönnum Mið- flokksins til að yfirgefa staðinn. Þegar ég kom út sagði ég við Ólaf Ísleifsson: Þetta var of mikið.“ Hvað áttirðu við með því? „Mér fannst of mikill ákafi í mönnum. Ég upplifði þetta þannig að ég hafi ítrekað reynt að skipta um umræðu- efni, án árangurs. Ég reyndi að fara út í pælingar um að við værum öll ólík og nefndi þar að stelpur væru oftar með talnablindu og strákar oftar með lesblindu og því var snúið þannig af einum þeirra sem þarna var að þess vegna vissi kvenfólk ekki hvað það svæfi hjá mörgum. Ég benti líka á það í þessum sam- ræðum, þegar verið var að ræða út- lit Írisar Róbertsdóttur [bæjar- stjóra í Vestmannaeyjum], hvort þeir myndu tala svona um karl en þá var þaggað niður í mér. Á ég að nenna að fara út í svona rökræður við fólk sem er undir áhrifum áfengis? Ég get ekki tekið ábyrgð á annarra manna orðum.“ Sumir þeirra sem um ræðir segja að orð þeirra hafi verið slitin úr samhengi og þeim eignuð ummæli að ósekju. Meðal þeirra er Karl Gauti. Er þetta rétt? „Ég get ekki tekið ábyrgð á orðum Karls Gauta.“ Ég var konan sem þegir En hefðirðu ekki getað reynt að stoppa þessa umræðu? Eða hrein- lega yfirgefa staðinn? „Ég hef oft verið í þessum aðstæðum. Þar sem karlar eiga umræðuna, stjórna henni og ætla ekki að hleypa konum að. Það sem mér þykir kannski einna erfiðast að horfast í augu við er að ég hef svo margoft stappað stálinu í aðrar konur, sagt þeim að standa á sínu og láta ekki valta yfir sig. Ég á erfitt með að viðurkenna það fyrir sjálfri mér að ég hafi ekki gert það þetta kvöld. Að hafa verið þessi kona sem ég er alltaf að segja öðrum konum að vera ekki. Konan sem þegir.“ Anna Kolbrún segir að málið hafi tekið mjög á hennar nánustu. Hún og margir sem standa henni nærri hafi orðið fyrir talsverðu áreiti og ónæði síðan það varð opinbert. Hún segist hafa fylgst með fréttaflutn- ingi af málinu en segist ekki treysta sér til að lesa það sem skrifað hefur verið um það í athugasemdakerfum vefmiðlanna. „Öllum er sama um hvort við eigum fjölskyldur og börn. Ég hef ekki verið í þessum að- stæðum áður þannig að ég veit svo- sem ekki við hverju ég má búast. Síminn stoppar ekki hjá mér og ég hef ekki treyst mér til þess að tala við blaðamann fyrr en núna, ég hef verið svo hrædd um að brotna niður í miðju viðtali. Það er setið fyrir mér fyrir utan Alþingi. Ég treysti mér ekki til að fara neitt án fylgdar, ekki einu sinni til að fara í blóðprufu á spítalanum í [gær] morgun. Ég hef ekki tölu á þeim skilaboðum sem ég hef fengið bæði frá fólki sem ég þekki og fólki sem ég þekki ekki neitt. Mörg þeirra eru meiðandi, önnur móðgandi. Ég skil vel að fólki gjörsamlega ofbjóði þau ummæli sem höfð hafa verið eftir þeim sem voru á Klaustri þetta kvöld, en ég er samtímis leið yfir því hvað fólk get- ur verið hatursfullt. En ég hef líka fundið fyrir stuðn- ingi víða að. Bæði frá körlum og konum, fólki í Miðflokknum og fólki sem engin afskipti hefur af stjórn- málum. Suma þekki ég og aðra ekki. Eitt sem mér finnst ótrúlegt er að upplifa einstaka þingmenn sem sjá pólitískt tækifæri í þessari stöðu.“ Grét á fundi formanna Beðin um að lýsa líðan sinni í einu orði svarar Anna Kolbrún: „Illa. Mér líður mjög illa. Ég er búin að gráta svo mikið, meira en ég hef nokkru sinni gert. En ég er hætt að afsaka mig fyrir að gráta fyrir fram- an annað fólk. Ég grét þegar ég tal- aði við Steingrím J. Sigfússon for- seta þingsins, ég grét þegar ég talaði við skrifstofustjóra þingsins. Þorgerður Katrín [þingmaður Við- reisnar] kom og talaði við mig og ég grét í því samtali. Ég grét líka fyrir framan fundarmenn á fundi for- Alveg ótrúlega mörg „Ég hefði“  Anna Kolbrún þingmaður Miðflokksins hyggst ekki segja af sér þingmennsku vegna Klaustursmálsins  Erfitt að horfast í augu við að hafa verið „Konan sem þegir“  Ekki á mína ábyrgð að stoppa drukkna menn Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Á Alþingi Anna Kolbrún Árnadóttir hefur setið á þingi fyrir Miðflokkinn sem 8. þingmaður Norðausturkjördæmis í rúmt ár. Hún var í hópi þeirra sex þingmanna Miðflokks og Flokks fólksins sem komu saman á veitingastaðnum Klaustri 20. nóvember þar sem óviðeigandi ummæli voru viðhöfð. 10 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 5. DESEMBER 2018 www.skoda.is KODIAQ OG KAROQ. FYRIR FÓLKIÐ ÞITT OG NÁTTÚRUNA. Það er mikilvægt að vera í góðum tengslum við fólkið sitt og náttúruna. Hvort sem þú velur margverðlaunaðan KODIAQ eða glænýjan og snjallan KAROQ gerir þú hvort tveggja. Komdu og prófaðu jeppabræðurna frá ŠKODA. Hlökkum til að sjá þig! HEKLA · Laugavegi 170-174 · Reykjavík · Sími 590 5000 · hekla.is Höldur Akureyri · Bílasala Selfoss · Bílás Akranesi · HEKLA Reykjanesbæ · BVA Egilsstöðum ENDURNÝJAÐU TENGSLIN MEÐ KODIAQ OG KAROQ. 4.690.000 kr.5.790.000 kr.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.