Morgunblaðið - 05.12.2018, Síða 14

Morgunblaðið - 05.12.2018, Síða 14
14 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 5. DESEMBER 2018 Fjölbreytt úrval af gæða viftum frá Vent-Axia fyrir eldhúsið, baðherbergið, skrifstofuna, verkstæðið eða hesthúsið. Við aðstoðum ykkur við rétta valið. Lo-Carbon Silhouette 125 Centrif-duo Silent 12in Wall fan Hi-line Sabre Plate DALVEGI 10-14 | 201 KÓPAVOGI | SÍMI 540 7000 | FALKINN.IS Hreint loft og vellíðan Það borgar sig að nota það besta VENT–AXIA VIFTUR Sameinar það besta í rafsuðu Smiðjuvegi 66 • Kópavogi • 580 5800 • www.landvelar.isFuruvöllum 3 • Akureyri • 461 2288 „Svo samfélagið virki þarf margt að smella saman og sjálfboðið starf er þar mikilvægur þáttur. Með þátt- töku í sjálfboðastarfi er fólk að gefa til samfélagsins á sama tíma og það hlýtur einstaka menntun, sem er samfélaginu öllu til góðs,“ segir Marta Magnús- dóttir, forseti Bandalags ís- lenskra skáta. Í dag, 5. desember, er al- þjóðlegur dagur sjálfboðaliðans, en sem slíkur var hann settur á almanakið árið 1985 á vegum Sameinuðu þjóðanna. Í dagatalinu eru raunar margir dagar sem hafa sérstaka merkingu af þessum toga en misjafnt hve hátt málunum er haldið á loft. Virk þátttaka „Skátastarfinu er nánast alfarið haldið uppi af sjálfboðaliðum. Það skiptir máli að hafa slíkar fyrir- myndir því markmið skátastarfs er að hvetja ungt fólk til virkrar þátt- töku í samfélaginu, á hvaða vett- vangi sem vera kann,“ segir Marta sem tiltekur þar íþróttastarf og vel- ferðarverkefni ýmiss konar. „Störf í skátahreyfingunni eru kauplaus en einstaklega gefandi og lærdómsrík, sem eru laun á sinn hátt. Til dæmis var hér á síðasta ári haldið alþjóðlegt mót, World Scout Moot 2017, sem um 5.000 manns alls staðar að úr heiminum sóttu. Marg- ir lögðu þar hönd á plóg við und- irbúning og framkvæmd, en í þessu risavaxna verkefni voru launaðir starfsmenn skátahreyfingarinnar á Íslandi örfáir. Aðrir gáfu vinnu sína, sem gerði Íslendingum í raun mögulegt að fara í þetta risastóra verkefni sem svo sannarlega kom okkur á kortið í alþjóðlegu starfi skáta.“ Frá mörgum hliðum Marta þekkir til sjálfboðastarfs frá mörgum hliðum. Eitt er skáta- starfið og svo lauk hún nýlega grunnnámi í uppeldis- og mennt- unarfræðum við Háskóla Íslands með viðskiptafræði sem aukafag. Þar var hlutverk íslenskra fram- haldsskóla í sjálfboðaliðamenningu ungmenna verkefni hennar í loka- ritgerð. „Í tilefni dagsins vil ég hvetja alla til að að gerast sjálf- boðaliðar,“ segir Marta. Hvetur alla til sjálfboðastarfs  5. desember er dagur sjálfboðaliðans Marta Magnúsdóttir Vinnumálastofnun bárust tvær til- kynningar um hópuppsagnir í nóvember. Báðar hópuppsagnirnar voru hjá fyrirtækjum á Suður- nesjum og var samtals 233 starfs- mönnum sagt upp störfum. Í öðru tilvikinu var sagt upp 213 starfsmönnum sem vinna í flutn- ingum og einnig var sagt upp 20 manns í fiskvinnslu. Uppsagnirnar taka flestar gildi í janúar 2019, samkvæmt frétt á vef Vinnumála- stofnunar. Þar kemur einnig fram að alls hafi 595 manns verið sagt upp á tímabilinu janúar til nóvember 2018, flestum eða 244 í flutningum og 151 í fiskvinnslu. Allt árið 2017 var alls 632 sagt upp störfum. gudni@mbl.is Ljósmynd/Víkurfréttir Starfsmannafundur Airport Associates á Keflavíkurflugvelli sagði upp starfsfólki. 233 var sagt upp í hópuppsögnum Skúli Halldórsson sh@mbl.is Meðalaldur fiskiskipaflotans hefur hækkað umtalsvert og er nú hár í sögulegu samhengi. Sum skipanna eru komin á sextugsaldur og er hluti flotans því orðinn nokkuð gamall. Þetta er meðal þess sem fram kemur í nýrri skýrslu Íslands- banka um stöðu íslensks sjávar- útvegs. Bent er á að fiskiskipafloti lands- ins samanstandi af 1.621 skipum og bátum, og þar af séu 842 opnir fiski- bátar eða um 52% flotans. Um 747 vélskip séu í flotanum og 43 tog- arar. „Frá aldamótum náði fjöldi skipa hámarki á árinu 2001 þegar þau voru 2.012 talsins og hefur þeim fækkað um 391 síðan þá eða um rúm 19%. Hefur togurum fækkað um 36 og hefur þeim fækkað hlut- fallslega mest yfir tímabilið eða um 45%,“ segir í skýrslunni. Á árunum 1999-2017 hafi meðal- aldurinn hækkað um rúm tíu ár. Hann hafi á árinu 2016 verið um 30 ár. Íslenski fiskiskipaflotinn sé kominn til ára sinna. „Meðalaldur togara lækkaði þó um 5 ár á árinu 2017 og er það til marks um nýja togara sem teknir voru í notkun á árinu. Er það í fyrsta skipti síðan á árinu 2007 sem meðalaldur togara lækkar á milli ára.“ Bent er á að um þessar mundir séu talsverðar fjárfestingar í skip- um í farvatninu. Fjárfesting í grein- inni hafi verið yfir sögulegu meðal- tali undanfarin ár. „Samið hefur verið um smíði á átta togurum og ættu flestir að verða afhentir á árinu 2019. Þá eru einnig væntanleg tvö uppsjávarskip sem áætlað er að verði afhent árið 2020. Á þessu ári hafa þegar verið afhentir tveir togarar.“ Áætluð fjárfesting í íslenska fiskiskipaflotanum nemur um 30 milljörðum króna samkvæmt spá bankans, sem miðuð er við áætlanir á næstu þremur árum eins og sakir standa. Flotinn kominn til ára sinna  Ný skýrsla Íslandsbanka um stöðu íslensks sjávarútvegs  Áætluð fjárfesting í íslenska fiskiskipaflotanum nemur um 30 milljörðum króna á næstu þremur árum Ljósmynd/Þröstur Njálsson Sjávarútvegur Talsverðar fjárfestingar í skipum eru í farvatninu enda flot- inn farinn að eldast. Samið hefur verið um smíði á átta togurum á næstunni.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.