Morgunblaðið - 05.12.2018, Qupperneq 15

Morgunblaðið - 05.12.2018, Qupperneq 15
FRÉTTIR 15Innlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 5. DESEMBER 2018 Einstök minning Stúdentamyndatökur Ljósmyndir Rutar og Silju Skipholti 31 | 105 Reykjavík | Sími 568 0150 | Opið alla virka daga kl. 10-17 | www.rut.is | Ljósmyndir Rutar og Silju Guðni Einarsson gudni@mbl.is Það skýrist líklega í næstu viku hve- nær hægt verður að opna fyrir um- ferð um Vaðlaheiðargöng, að sögn Valgeirs Bergmann, framkvæmda- stjóra Vaðlaheiðarganga hf. „Við erum að ræða við verktakann um hvenær hann skilar verkinu,“ sagði Valgeir. „Þegar það liggur fyrir verður hægt að tilkynna opnun gang- anna. Þetta er allt að koma. Þeir klára væntanlega í þessari viku að steypa vegaxlirnar. Þá verða ljósin, tengingar blásara og önnur raf- magnsvinna eftir. Svo þarf að tengja ljósleiðara og prófa kerfin. Ef það gengur mjög vel verða göngin opnuð fyrr en síðar.“ Undanþága fyrir neyðarakstur Bílar í forgangsakstri hafa fengið að fara í gegn. Þannig hafa a.m.k. tveir sjúkrabílar frá Húsavík og einn frá Vopnafirði farið í gegn. Einnig hafa nokkrir björgunarsveitarbílar í útköllum farið um göngin. Þeir þurfa þá að setja bláu ljósin á og aka var- lega, því enn er mikið af vinnuvélum og tækjum á báðum akbrautum og menn víða að störfum. Hámarkshrað- inn er nú 30 km/klst. í göngunum. Valgeir sagði að starfsmenn hefðu verið látnir vita af undanþágunni sem neyðarbílarnir nytu. Mikið fannfergi er í Eyjafirði og þrýst á um að fá að fara um göngin. „Það er greinilega mikill áhugi og full þörf á þessum göngum,“ sagði Val- geir. „Ég var búinn að fá um 30 símtöl fyrir hádegið á laugardaginn var um hvort það væri hægt að hleypa í gegn. En eins og staðan er núna kappkost- um við að reyna að klára svo að hægt verði að opna fyrir jólin. Það er ekki hægt að bjóða starfsmönnum upp á að þurfa að vinna á veginum ef um- ferð er um göngin. Það myndi aldrei ganga upp.“ Ófærðin getur haft áhrif á þá vinnu sem er eftir utan jarðganganna en hefur engin áhrif á vinnuna inni í göngunum, nema síður sé. Utan ganganna er ýmsum verkefnum við jarðvinnu ólokið. Valgeir nefndi að Rafmenn, undirverktaki í rafmagn- inu, hefðu fjölgað starfsmönnum í göngunum því þeir gætu auðveldlega unnið inni í 20°C hlýjum göngunum á meðan ekki væri hægt að vinna í öðr- um verkefnum útivið vegna fann- fergis og kulda. Afslættir tengdir fjölda ferða Viðskiptavinir Vaðlaheiðarganga munu geta skráð sig í viðskipti og keypt ferðir með afslætti. Valgeir sagði að ekki yrði opnað fyrir skrán- ingu eða gjaldskrá kynnt fyrr en ljóst væri hvenær göngin yrðu opnuð fyrir umferð. „Þegar tilkynnt verður hvenær göngin verða opnuð munum við kynna gjaldskrána og hvernig fólk getur skráð sig í viðskipti. Það verða engir veglyklar heldur sjálfs- afgreiðsluþjónusta á netinu. Þú sækir app eða ferð inn á heimasíðu og skrá- ir þig þar, skráir greiðslumátann og getur skráð allt að þrjá bíla sem þú vilt borga fyrir. Það verður hægt að kaupa ferðir fyrir fram, líkt og var hægt í Hvalfjarðargöngum. Það verð- ur boðið upp á 10, 40 og 100 ferðir í pakka og afslátturinn fer eftir því hvað þú kaupir margar ferðir,“ sagði Valgeir. Myndavélar munu lesa sjálf- krafa af bílnúmeraplötum í göngun- um og rukka eftir þeim. Unnið að lokafrágangi ganganna  Það skýrist fljótlega hvenær Vaðlaheiðargöng verða opnuð  Bílar í neyðarakstri á undanþágu  Margir hringja og vilja fara í gegn  Greiðslufyrirkomulag og gjaldskrá kynnt um leið og opnunin Ljósmynd/Vaðlaheiðargöng Fannfergi Snjónum hefur kyngt niður í Eyjafirði. Margir vilja fá að fara í gegnum göngin. Ljósmynd/Vaðlaheiðargöng Vaðlaheiðargöng Fjarskiptastrengur settur upp í göngunum.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.