Morgunblaðið - 05.12.2018, Page 17

Morgunblaðið - 05.12.2018, Page 17
FRÉTTIR 17Erlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 5. DESEMBER 2018 Það hefur sýnt sig að íslenska þjóðin stendur saman, sýnir stuðning og samhug eftir bestu getu. Hægt er að leggja framlög inn á reikning nr. 0101-26-35021, kt. 470269-1119 S. 551 4349, 897 0044, maedur@simnet.is 90 ára afmæli Mæðrastyrksnefndar Reykjavíkur JÓLASÖFNUN Bogi Þór Arason bogi@mbl.is Édouard Philippe, forsætisráðherra Frakklands, tilkynnti í sjónvarps- ávarpi í gær að franska stjórnin hefði ákveðið að fresta hækkun skatta á bensín og dísilolíu um hálft ár til að reyna að binda enda á götumótmæli og óeirðir í París og fleiri borgum landsins síðustu vikur. Ekki var ljóst í gær hvort tilslökun stjórnarinnar nægði til að lægja öld- urnar. Skipuleggjendur mótmælanna og leiðtogar stjórnarandstöðunnar á þinginu sögðu að ákvörðun stjórnar- innar dygði ekki. Hún vonar þó að til- slökunin verði til þess að stuðningur- inn meðal almennings við mótmælin minnki og þau hjaðni. Stjórnmálaskýrendur segja að stjórn Emmanuels Macrons, forseta Frakklands, hafi verið í kreppu vegna mótmælanna. Þetta er í fyrsta skipti sem hún neyðist til að gefa eftir vegna mótmæla og er það álitið mikið áfall fyrir Macron því að hann hefur sagt að hann sé staðráðinn í að láta ekki götumótmæli og verkföll hindra um- bætur sem hann telur nauðsynlegar, ólíkt mörgum forvera hans. Macron hafði þvertekið fyrir að breyta stefn- unni, sagt að nauðsynlegt væri að hækka skattana á bensín og dísilolíu til að flýta fyrir skiptum yfir í um- hverfisvænni orku í samgöngum. Með því að hætta við skattahækkunina myndi hann grafa undan umhverfis- stefnu stjórnar sinnar. Sagður úr tengslum við fólkið Macron var kjörinn forseti Frakk- lands með rúmlega 66% atkvæða í maí á síðasta ári eftir að hafa lofað umbótum á efnahag landsins og flokkur hans fékk meirihluta á þinginu. Macron tókst að knýja fram breytingar á vinnulöggjöfinni þrátt fyrir mótmæli, ólíkt hægrisinnuðum forverum hans sem höfðu neyðst til að falla frá slíkum breytingum vegna verkfalla og mótmæla. Meginmark- miðið með efnahagsaðgerðum hans var að hvetja fyrirtæki til að fjárfesta og fjölga störfum. Hann lækkaði einnig skatta á athafnamenn og há- tekjufólk fljótlega eftir að hann komst til valda. Vinsældir Macrons hafa dvínað mjög síðustu mánuði ef marka má skoðanakannanir og í einni þeirra sögðust aðeins 26% styðja forsetann. Mótmælendurnir hafa verið kallað- ir „gulvestungar“ með skírskotun til gulra vesta sem skylt er að hafa í öll- um bílum í Frakklandi í öryggisskyni og nota þegar leggja þarf þeim á vegarkanti vegna bilunar eða til að skipta um hjólbarða. Mótmælahreyf- ingin er án leiðtoga og varð til á sam- félagsmiðlum í október vegna óánægju með hækkun skatta á dísil- olíu, einkum á landsbyggðinni þar sem bílaeign er hlutfallslega algeng- ari og tekjur íbúanna lægri en í borg- unum. Gulvestungar segja áformin um skattahækkunina sýna að Macron og ráðherrar hans séu úr tengslum við dreifbýlisfólk. Mótmælin urðu seinna að baráttu gegn efnahags- stefnu stjórnarinnar almennt og upp- reisn gegn Macron sem gulvestungar saka um að þjóna yfirstéttinni í París og vera úr tengslum við almenning. Mótmælendurnir krefjast nú m.a. þess að lágmarkslaun verði hækkuð og skattar á hátekjufólk verði hækk- aðir að nýju. Sumir þeirra hafa krafist þess að Macron láti af embætti. Á meðal gulvestunganna er fólk úr öllu pólitíska litrófinu, m.a. anarkist- ar, þjóðernissinnar og fólk sem hefur stutt hefðbundna vinstri-, mið- og hægriflokka. Stjórnin hefur lýst mót- mælendunum sem öfgamönnum en skoðanakannanir benda til þess að um 72% franskra kjósenda styðji gul- vestungana. Gamlar styttur skemmdar Nær 300.000 manns tóku þátt í fyrstu mótmælunum í öllu landinu og um 106.000 manns viku síðar. Hermt er að um 136.000 manns hafi tekið þátt í götumótmælunum á laugardag- inn var þegar óeirðir blossuðu upp í miðborg Parísar. Fjórir menn hafa beðið bana vegna mótmælanna, þeirra á meðal áttræð kona sem lést á sjúkrahúsi eftir að hafa orðið fyrir gashylki sem lögreglan skaut vegna óeirðanna í París. Lögreglan sagði að rúmlega 400 manns hefðu verið handtekin í París á laugardag. Mótmælendurnir kveiktu í meira en 200 bílum í höfuðborginni og skemmdu gamlar styttur við Sigurbogann. Áætlað er að tjónið af völdum skemmdarverka á strætis- vagnabiðskýlum, bekkjum og öðrum utanstokksmunum í eigu borgarinnar hafi numið sem svarar allt að 560 milljónum króna. Óeirðaseggir brutu einnig rúður verslana til að láta greip- ar sópa um þær. Mótmælendurnir máluðu vígorð gegn Macron á Sigurbogann og brutu styttu af Marianne, persónugervingi franska lýðveldisins. „Það gengur al- gerlega fram af okkur að óeirðasegg- irnir skuli ekki aðeins hafa ráðist á eignir fólks heldur einnig á tákn franska lýðveldisins,“ sagði Anne Hidalgo, borgarstjóri Parísar. Stjórnmálaskýrendur í Frakklandi hafa líkt mótmælunum og óeirðunum í miðborg Parísar við námsmanna- uppreisnina þar árið 1968. Charles de Gaulle, þáverandi forseti, þurfti að verða við nokkrum af kröfum náms- mannanna og lét af embætti árið eftir. Macron gaf eftir vegna mótmæla  Óljóst hvort tilslökunin dugar til að binda enda á götumótmæli í Frakklandi  Mikill stuðningur verið við mótmælin en það gæti breyst  Skemmdir unnar á minnismerkjum, m.a. um tákn lýðveldisins AFP Íkveikjur Brunninn bíll í miðborg Parísar eftir mótmæli um helgina þegar óeirðaseggir kveiktu í meira en 200 bílum og lögðu eld að verslunum. Fjölmennustu mótmælin um liðna helgi He imi ld i r : AF P, f rön s k y fir völd, M ap s 4 n e ws.com/©HE RE PARÍS Marseille Bordeaux Toulouse Strassborg Nantes Dijon Mótmæli í Frakklandi Calais Narbonne Arles Puy en Velay Sᵗ Etienne Pouzin Bourg en Bresse Nice Avignon Tours Albi Charleville Mezieres Tarbes Ökumaður beið bana þegar fólks- bíl var ekið á vörubíl við vegartálma Lofar að minnka skuldir » Bruno Le Maire, fjármála- ráðherra Frakklands, sagði í gær að stjórn landsins myndi standa við loforð sín um að draga úr ríkisútgjöldum og minnka skuldir ríkisins þrátt fyrir þá ákvörðun hennar að fresta hækkun skatta á elds- neyti um hálft ár. » Gert er ráð fyrir því að frest- un skattahækkunarinnar minnki tekjur ríkisins um tæpa tvo milljarða evra, jafnvirði 280 milljarða króna. Sérsveit ítölsku lögreglunnar hand- tók í gær Settimo Mineo, áttræðan skartgripasala sem hermt er að hafi verið kjörinn guðfaðir mafíunnar á Sikiley fyrr á árinu. 45 samstarfs- menn hans voru einnig handteknir í áhlaupi sérsveitarinnar í Palermo, höfuðborg Sikileyjar, sakaðir um fjárkúgun, brot á skotvopnalöggjöf- inni, íkveikjur og fleiri glæpi. Ítalskir fjölmiðlar segja að Mineo hafi verið kjörinn guðfaðir mafí- unnar, eða „foringi foringjanna“, á fundi í maí. Þeir lýsa honum sem eftirmanni guðföðurins Totos Riina sem lést í fangelsi í fyrra. Mineo er sagður hafa stjórnað starfsemi mafíunnar í einu hverfa Palermo. Hann var dæmdur í fimm ára fangelsi 1984 og afplánaði ell- efu ára fangelsisdóm frá 2006. ÍTALÍA Guðfaðir mafíunnar á Sikiley handtekinn AFP „Foringi foringjanna“ Settimo Mineo í fylgd lögreglumanna eftir handtökuna.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.