Morgunblaðið - 05.12.2018, Síða 18

Morgunblaðið - 05.12.2018, Síða 18
18 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 5. DESEMBER 2018 Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á http://www.mbl.is/mogginn/leidarar/ Fyrirkomulagmakríl-veiða er í ólestri. Evrópu- sambandið, Nor- egur og Færeyjar hafa þingað um veiði á makríl und- ir merkjum svo- kallaðs strandríkjahóps og á fimmtudag í liðinni viku var tilkynnt nýtt samkomulag þeirra, sem gilda á til 2020. Ís- lendingum hefur verið haldið markvisst utan þess samninga- borðs og varð engin breyting á því þegar þeir sem við borðið sitja ákváðu sameiginlegan heildarkvóta í makrílveiðum. Makrílveiðar hafa undan- farin ár verið langt umfram ráðgjöf Alþjóðahafrannsókna- ráðsins, ICES, og á því verður engin breyting nú. Heildar- kvótinn var reyndar minnk- aður um 20%, en er engu að síður tvöfalt meiri en kvað á um í ráðgjöf ICES. Með þessu framferði er ýtt undir rán- yrkju á makrílstofninum. Af kvótanum fá ríki utan strandríkjahópsins, Ísland, Grænland og Rússland, rúm 15%. Það er naumt skammtað og ósvífið að ætlast til þess að ríkin utan samningsins haldi sig á mottunni á meðan þau sem sömdu skammta sér ríf- lega og láta sér á sama standa um ráðgjöf. Í raun er þeim ýtt út í einhliða aðgerðir. Ísland þrýsti sérstaklega á um að komast að borð- inu að þessu sinni þar sem samn- ingar ESB, Nor- egs og Færeyja voru að renna út, eins og kom fram í fréttaskýringu í Morgun- blaðinu á laugardag. Tókst Ís- lendingum að koma sjónar- miðum sínum rækilega á fram- færi, eins og það er orðað í fréttaskýringunni, þótt ekki væri samningamönnum Ís- lands hleypt að borðinu. Óbilgirni Norðmanna þarf ekki að koma á óvart þótt hvimleið sé. Hún er hins vegar í litlu samræmi við þann þrýst- ing, sem norskir ráðamenn hafa beitt íslensk stjórnvöld um að samþykkja þriðja orku- pakkann vegna þess hvað hann skipti miklu máli fyrir Norð- menn. Það er undarlegt að Norðmenn ætlist til þess að Ís- lendingar taki þeirra hags- muni fram yfir sína eigin í orkumálum, en vilja ekki einu sinni hleypa Íslendingum að samningaborðinu um makríl- inn. Þá er rétt að halda því til haga að Íslendingar voru ekki að biðja Norðmenn að setja sína hagsmuni til hliðar í mak- rílmálinu, bara að Ísland fengi að taka þátt í samningum í stað þess að standa utan við þá. Norðmenn vilja að Íslendingar standi með þeim um orku- pakkann en vilja ekki sjá þá við samningaborðið} Makríll og orkupakkar Eftir viku verð-ur því svarað hvort útgöngu- samningur Ther- esu May við ESB fær framhaldslíf, eftir þá fjölbreyttu dauðadóma sem fallið hafa. Verði honum hafnað vakna ótal spurningar um framhaldið og fá svör liggja enn á lausu. Nú telja flestir að samn- ingnum verði hafnað með nokkrum yfirburðum. And- staðan hefur harðnað dag frá degi. Nú síðast gaf hinn hóf- sami fyrrverandi seðlabanka- stjóri Bretlands, Mervyn King, allri samningagerðinni fall- einkunn með einkar afgerandi hætti. King líkti samningi Theresu May við afurð Chamb- erlains í aðdraganda síðari heimsstyrjaldar þegar hann sneri heim frá München og boð- aði frið „um okkar tíma“. Sagði King samning May vera verstu samningsniðurstöðu sem hægt hefði verið að ímynda sér og setti Bretland í stöðu hjálendu Evrópusambandsins. Mervyn King sagði stjórn- málamennina hafa brugðist þjóðinni með sama hætti og gert var með fyrrnefndum samningi Chamb- erlains og aftur þegar breska þjóð- in féll inn í efna- hagslegt öngþveiti á áttunda áratug síðustu aldar. Þjóðin þarfnaðist nýrrar ríkisstjórnar sem hefði styrk til að sópa burt villuráfandi stjórnmálamönn- um og tryggja nýja og betri tíma fyrir Bretland. Hann sagði útgöngusáttmál- ann að nokkru vandlega samda diplómatíska málamiðlun en að mestu væri hann þó vitnis- burður um vanhæfni í hæstu hæðum. King bætti því við að í vinahópi sínum væru margir miklir ákafamenn um áfram- haldandi veru í ESB og þar væru jafnframt margir ákafir útgöngumenn. Þeir ættu þó það sameiginlegt að telja að ekki væri nokkurt minnsta vit í fyrirliggjandi samningi. Hugsa yrði samninginn upp á nýtt og fyrsta skref þess væri að „hafna fyrirliggjandi samningi, sem er langversti kostur sem völ er á“. Aðvörunarorð Mervyns Kings hafa vakið athygli á lokasprettinum} Klukkan tifar og King varar við Í liðinni viku opnaðist ormagryfja sem enn er verið að grafa í: Umræða sex þingmanna sem sátu á bar í miðborg- inni og tjáðu sig um menn og málefni með slíkum hætti að fréttnæmt þykir. Þingmenn sem og aðrir borgarar sem áttu sér einskis ills von máttu sæta níði, vanvirðandi ummælum og klúrnum aðdróttunum frá þess- um hópi. Frá því umræða hópsins varð okkur kunn hefur ítrekað verið spurt hvort umræddir þingmenn eigi að segja sig frá þingmennsku. Áður en við svörum þessari spurningu er vert að spyrja: Geta þau sinnt störfum sínum? Þingmönnum ber að sækja þing- og nefndar- fundi. Þeim ber að rækja eftirlitshlutverk sitt gagnvart framkvæmdarvaldinu, þar á meðal ráðherrum landsins. Þeim ber að vanda sig við lagasetningu, kynna sér þingmál, hlusta á þá gesti sem mæta fyrir nefndir og eiga í samstarfi og sam- skiptum við aðra þingmenn og eftir atvikum ráðherra. Hópur fólks, aðallega konur, en einnig fatlaðir og sam- kynhneigðir, mátti þola níð af hálfu þessa þingmannahóps. Einstaka þingmaður, en sá hópur fer þó sístækkandi, varð skotmark hópsins. Máttu þau ýmist þola gróft níð, að- dróttanir, rangar sakargiftir, sem er lögbrot í sjálfu sér, og vanvirðandi hegðun af hálfu þessara einstaklinga sem tóku þátt ýmist með eigin orðum eða hlustun. Nú skal tek- ið fram að enn höfum við bara fengið að heyra ummæli er beindust gegn opinberum persónum en ekki öðrum og því vitum við í raun ekki hvað sexmenningarnir sögðu um annað fólk þetta kvöld. Má þar nefna starfsfólk þingsins sem aðstoðar þingmenn alla daga við gerð þingmála, vinnu í nefndum og veitir hvers kyns stoðþjónustu. Þá vitum við heldur ekki hvaða áhrif þetta hefur á aðra þá sem taka málið til sín, eins og til að mynda þolendur sem greint hafa frá kynferðisofbeldi en upplifa nú vanvirðingu vegna háðungar þingmannanna gagnvart Metoo-byltingunni sem þau virðast telja hið mesta skaðræði. Því er eðlilegt að spyrja: Geta þau sinnt starfi þingmanna? Telja þau sig geta sinnt eftirlitshlutverki gagnvart framkvæmdarvald- inu? Telja þau sæmandi að beina fyrirspurn að menntamálaráðherra á sama tíma og svívirð- ingar um hana berast frá þeim? Telja þau sæmandi að sitja í fastanefndum Alþingis og taka á móti gestum sem beint eða óbeint máttu þola ýmiss konar níð, vanvirðingu eða beinar svívirðingar af þeirra hálfu? Telja þau samþingmenn sína eiga að þola það að starfa með þeim áfram? Átta þau sig ekki á að þau hafa valdið slíku tjóni hjá saklausu fólki að þau mega búast við að umrætt fólk kæri sig ekki um nein samskipti við þau? Starf þingmannsins er fjölbreytt og þarfnast margvís- legrar aðkomu þess sem starfinu gegnir. Þingmennirnir sex verða að svara því hvort þeir geti geti sinnt því eins og til er ætlast. helgavala@althingi.is Helga Vala Helgadóttir Pistill Geta þau sinnt starfi sínu? Höfundur er þingman Samfylkingarinnar. STOFNAÐ 1913 Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík. Ritstjóri: Davíð Oddsson Aðstoðarritstjóri: Karl Blöndal Ritstjóri og framkvæmdastjóri: Haraldur Johannessen FRÉTTASKÝRING Guðni Einarsson gudni@mbl.is Það er gleðilegt að ríkið skuliáfram ætla að styðja viðtónlistarkennslu á fram-haldsstigi, auk þeirrar kennslu sem fer fram í Menntaskóla í tónlist (MÍT) en hann er fjármagn- aður sérstaklega á fjárlögum,“ sagði Júlíana Rún Indriðadóttir, skólastjóri Tónskóla Sigursveins og formaður Samtaka tónlistarskólastjóra. Hún sagði að engin stórkostleg breyting fylgdi framlengdu samkomulagi ríkisins og sveitarfélaganna um stuðning við tónlistarnám. Það kvæði á um 545 milljóna króna stuðning á ári til 2021. Júlíana sagði að þetta samkomulag hefði upphaflega verið gert árið 2011 og framlengt síðan. Því væri ætlað að jafna aðstöðumun nem- enda til tónlistarnáms á framhalds- stigi og styðja við söngnám á mið- og framhaldsstigi. Framlag ríkisins greiðist til Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga sem ann- ast úthlutanir. Á móti skuldbinda sveitarfélögin sig til að taka tíma- bundið yfir verkefni frá ríkinu sem nema 230 milljónum kr. á ári og sjá til þess að framlag renni til kennslu nemenda sem innritaðir eru í viður- kennda tónlistarskóla án tillits til bú- setu. Stjórnarráðið segir í frétt að margir tónlistarskólar hafi búið við viðvarandi rekstrarvanda 2014-2016. Á sama tíma var unnið að hug- myndum um MÍT sem hóf göngu sína 2017 á grundvelli þjónustusamnings við mennta- og menningarmálaráðu- neytið. Nemendur sem stunda nám við MÍT eru um 200 og falla utan samkomulagsins. Þá segir Stjórn- arráðið að vegna þess að fækkað hafi í hópnum sem fellur undir samkomu- lagið og að tryggt sé að það taki al- mennum verðlagsuppfærslum fjár- laga sé grundvöllur tónlistarfræðslu á framhaldsstigi betur tryggður nú en áður. Júlíana sagði að styrkur ríkisins kæmi t.d. söngnemum til góða en stór hluti af öllu söngnámi væri á mið- og framhaldsstigi og fjármagnað úr Jöfnunarsjóði. Hún sagði að það skipti einnig máli að nemendum í kerfinu sem samkomulagið nær til hefði fækkað þegar MÍT var stofn- aður og tók við um 200 nemendum. Samkvæmt lauslegri talningu eru 80-90 tónlistarskólar í landinu. Júlíana sagði að rúmlega þriðjung- urinn af þeim væri með nemendur á framhaldsstigi eða í söngnámi sem félli undir samkomulagið. Sveitar- félögin leggja fé til grunn- og mið- stigs í tónlistarkennslu. Borgin mætti gera betur „Það er mjög misjafnt eftir sveitarfélögum hve mikil framlögin eru til tónlistarskólanna,“ sagði Júl- íana. „Sveitarfélögin reka víðast hvar tónlistarskólana, nema í Reykjavík þar sem framlög til skólanna hafa í raun verið skorin niður miðað við það sem áður var. Reykjavíkurborg spar- aði líka mikið þegar framlög Jöfn- unarsjóðs til tónlistarkennslu á fram- haldsstigi komu til árið 2011. Þá fóru svo margir tónlistarnemendur í Reykjavík yfir í þann pakka. Borgin jók hins vegar ekki við grunn- og mið- námið heldur skar hún kennslu- kvóta niður um 2% árið 2016. Reykjavík mætti alveg gera betur,“ sagði Júlíana. Hún sagði að mikil að- sókn væri í tónlistarnám í Tónskóla Sigursveins og margir á biðlista. „Við vild- um gjarnan geta kennt fleirum og vonum að borgin gefi aðeins í varðandi tónlistar- kennsluna.“ Áfram verður stutt við tónlistarskólana Samkomulag ríkisins og sveitarfélaganna um stuðning við tónlistarnám var undirritað í Söngskólanum í Reykjavík 3. desember. Lilja Alfreðsdóttir, mennta- og menningarmála- ráðherra, Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahagsráðherra, og Sigurður Ingi Jóhannsson, samgöngu- og sveitarstjórnar- ráðherra, undirrituðu sam- komulagið af hálfu ríkisins og Aldís Hafsteinsdóttir, formaður Sambands íslenskra sveitar- félaga, og Karl Björnsson fram- kvæmdastjóri fyrir hönd sveitarfélaganna. Samkomulagið snertir 33 viðurkennda tónlistar- skóla, en þar stunda nú um 600 nemendur nám á fram- haldsstigi. Það gild- ir til ársloka 2021. Snertir um 600 nema RÍKI OG SVEITARFÉLÖG Júlíana Rún Indriðadóttir Morgunblaðið/Hari Tónlist Sveitarfélögin styðja kennslu á grunnstigi en ríkið styður við kennslu tónlistarskóla á framhaldsstigi. Myndin er úr safni.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.