Morgunblaðið - 05.12.2018, Qupperneq 19
19
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 5. DESEMBER 2018
Knattleikur á ís Frá örófi alda hefur knattleikur verið iðkaður hérlendis. Á ísilagðri Tjörninni tókust sjöttubekkingar í MR hraustlega á líkt og mágarnir Gísli og Þorgrímur forðum.
Hari
„Í dag hefst nýr
þáttur í sögu þjóð-
arinnar. Hún er viður-
kend fullveðja þjóð. En
um leið áskotnast
henni skyldur, sem hún
að vísu hefir altaf haft,
að eigin áliti, en eigi
fengið færi á að rækja,
vegna forráða sam-
bandsþjóðarinnar. Í
dag stöndum vér aug-
liti til auglitis við heiminn sem Ís-
lendingar en ekki sem Danir, – á eig-
in ábyrgð, en ekki annara. Í dag fá
Íslendingar það hlutverk, að halda
uppi sæmd yngsta ríkisins í heim-
inum. Og vonandi finnur öll þjóðin til
vandans, sem þeirri vegsemd fylgir,
til ábyrgðarhlutans, sem fallinn er
oss í skaut með sambandslögunum
nýju. Það er eigi minna um vert, að
kunna að gæta fengins fjár en að afla
þess.“
Þannig sagði Morgunblaðið frá 1.
desember 1918 á forsíðu. Þá herjaði
spænska veikin á Íslendinga. Talið
er að 484 hafi látist úr veikinni, þar
af 258 í Reykjavík. En ekkert kom í
veg fyrir fullveldið – ekki Kötlugos,
vetrarhörkur eða alvarleg farsótt.
Hátíðarhöldum var stillt í hóf og
voru „engin í bænum önnur en þau,
að stjórnarráðið hefir ákveðið að
ríkisfáni Íslands skuli dreginn upp
fyrsta sinni með töluverðri viðhöfn“,
eins og sagði í Morgunblaðinu. En
bjartsýnin var mikil og vonir voru
bundnar við að nýir og betri tímar
fyrir alla alþýðu væru handan við
hornið.
Frá örbirgð til bjargálna
Varla gat nokkur látið sig dreyma
árið 1918 um að öld síðar yrði þjóðin
komin í hóp mestu velmegunarþjóða
heims. Ferðalag okkar Íslendinga
frá fullveldi hefur verið ævintýri lík-
ast, þótt oft hafi gefið á bátinn og það
hressilega. Okkur hefur tekist að
byggja upp öflugt velferðarsamfélag
en á sama tíma haldið
tryggð við menningu,
tungu og sögu.
Árið 1918 voru Ís-
lendingar aðeins um 91
þúsund en eru nú rúm-
lega 355 þúsund. Um
58% landsmanna
bjuggu í dreifbýli en
aðeins 5% í dag. Um
40% unnu við land-
búnað borið saman við
2% í dag.
Lífskjör almennings
eru allt önnur. Húsa-
kostur er með því besta sem þekkist
í heiminum en fyrir einni öld bjuggu
45% landsmanna enn í torfbæjum.
Ein fátækasta þjóð Evrópu hefur
brotist úr örbirgð til bjargálna,
byggt upp eitt öflugasta heilbrigðis-
kerfi heims, virkjað iður jarðar og
fallvötnin, komið á fót öflugu
menntakerfi og ofið öryggisnet með
almannatryggingum.
Lífslíkur eru allt aðrar en fyrir 100
árum. Á fullveldisárinu voru lífslíkur
karla 53 ár og kvenna 58 ár. Nú eru
lífslíkur karla 80,7 ár og kvenna 83,7
ár. Fyrir 100 árum lést nær tuttug-
asta hvert barn á fyrsta ári. Ung-
barnadauði er svo til óþekktur í sam-
félagi nútímans.
Þótt mörgum finnist á stundum
hægt miða í jafnréttisbaráttu hefur
okkur Íslendingum fleytt áfram. At-
vinnuþátttaka kvenna hefur tvöfald-
ast á 100 árum. Konur hafa sótt fram
á flestum sviðum. Vorið 1918 braut-
skráðust 24 karlar og tvær konur
með stúdentspróf á Íslandi eða 1,6%
af fjölda tvítugra landsmanna.
Tæpum hundrað árum síðar eða árið
2016 var hlutfallið 73,7% en það ár
brautskráðust 1.935 konur á móti
1.486 körlum, samkvæmt tölum
Hagstofunnar. Allt fram til 1928 var
Menntaskólinn í Reykjavík eini skól-
inn sem brautskráði stúdenta. Árið
2016 voru skólarnir 34.
Árið 2016 luku nær helmingi fleiri
konur háskólaprófi en karlar.
Á vef Hagstofunnar um sögulegar
hagtölur kemur fram að árið 1918 fór
stærstur hluti útgjalda íslenskra
heimila í matvæli eða um helmingur.
Hlutfall matvöru af útgjöldum heim-
ilanna er komið niður í 13%. Íslensk
heimili verja hærra hlutfalli útgjalda
í húsnæði en árið 1918 þegar helstu
útgjaldaliðir voru, auk matvöru,
fatnaður og eldsneyti. Í dag fellur
stærstur hluti útgjalda heimilanna
undir önnur útgjöld eða rúmur helm-
ingur. Önnur útgjöld eru t.d. ferðir
og flutningar, tómstundir og menn-
ing, hótel og veitingastaðir og hús-
gögn, heimilisbúnaður o.fl. Samsetn-
ing útgjalda sýnir vel hvernig lífs-
kjörin hafa gjörbreyst og batnað.
Fjárhagslegt sjálfstæði
Á forsíðu Morgunblaðsins 15.
desember 1918 var fullveldinu fagn-
að en varað við því að „vér gerumst
drembilátir og miklir á lofti, eins og
viðurkenning fullveldisins hefði gert
oss að stórþjóð“. Síðan segir orðrétt:
„Vér erum sama smáþjóðin eftir
sem áður, og verðum að gjalda var-
hug við því að „slá eigi svo um oss“,
að eftir nokkur ár verði þrotabú hjá
oss. Fullveldi er ágætt, en því aðeins
er það algert, að fjárhagslegt sjálf-
stæði fylgi. Verðum vér því að sníða
oss stakk eftir vexti og er það engin
minkun. Það verða allar smáþjóðir
að gera. Hitt er oss enginn frami, að
vera miklir á lofti, og hefnir sín
sjálft.“
Höfundurinn – Eiríkur (sem ég
þekki engin deili á) kom að kjarna
máls. Fullveldi er lítils virði ef fjár-
hagslegt sjálfstæði er ekki tryggt.
Það er einmitt þess vegna sem Ís-
lendingar hafa lagt áherslu á að
tryggja yfirráð yfir auðlindum lands
og sjávar. Útfærsla landhelginnar
fyrst í fjórar mílur og í áföngum í 200
mílur var hluti af fullveldisbaráttu og
mikilvæg forsenda fyrir efnahags-
legu sjálfstæði.
Friðsamleg og opin samskipti við
aðrar þjóðir hafa verið grunnstef í
utanríkisstefnu landsins. Og þótt
stundum hafi staðið tæpt höfum við
borið gæfu til að standa vörð um
hagsmuni okkar. Árið 1946 gerðist
Ísland aðili að Sameinuðu þjóðunum
og nokkrum árum síðar skipaði Ís-
land sér í raðir frjálsra lýðræðis-
þjóna með þátttöku í Atlantshafs-
bandalaginu og varnarsamningi við
Bandaríkin.
Fjárhagslegt sjálfstæði og efna-
hagsleg velsæld Íslendinga hefur
byggst greiðum aðgangi að erlend-
um mörkuðum. Þess vegna hafa við-
skiptasamningar við önnur lönd ver-
ið mikilvægir. Skrefin í átt að opnara
samfélagi og frjálsum viðskiptum
hafa sum verið lítil en önnur stór. Ár-
ið 1964 fékk Ísland aðild að GATT –
almenna samkomulaginu um tolla og
viðskipti. Sex árum síðar var aðildin
að EFTA tryggð og fyrir 25 árum
tók EES-samningurinn gildi. Samn-
ingurinn hefur tryggt Íslandi örugg-
an og nauðsynlegan aðgang að mikil-
vægum erlendum mörkuðum og
gefið Íslendingum tækifæri í löndum
Evrópu sem þeir annars hefðu aldrei
fengið, jafnt til mennta sem vinnu.
Farsæld en ekki án kostnaðar
Í fjórðung þess tíma sem við höf-
um búið við fullveldi hefur EES-
samningurinn verið í gildi. Í flestu
hefur hann fært okkur farsæld en
hann hefur ekki verið án kostnaðar.
Stór hluti þess kostnaðar hefur fallið
vegna okkar eigin sinnuleysis við að
gæta hagsmuna okkar í samskiptum
við Evrópusambandið í gegnum
EES.
Bjarni Benediktsson, formaður
Sjálfstæðisflokksins, hefur oftar en
einu sinni vakið athygli á nauðsyn
þess að Alþingi taki til skoðunar
stöðuna á grundvelli EES-samnings-
ins. Íslendingar standi frammi fyrir
því „í hverju málinu á eftir öðru að
Evrópusambandið krefst þess þegar
við tökum upp Evrópugerðir, tilskip-
anir eða reglugerðir, að við Íslend-
ingar fellum okkur við að sæta boð-
valdi, úrslitavaldi, sektarákvörð-
unum eða með öðrum hætti skip-
unum frá alþjóðastofnunum sem
Evrópusambandið hefur komið sér
upp en við eigum enga aðild að“. Með
þessu sé grafið undan grunnstoðum
EES-samningsins.
Í ágúst síðastliðnum hélt ég því
fram á þessum stað, að nauðsynlegt
sé að skýrt ákvæði komi í stjórnar-
skrá um framsal valds – ekki til að
útvíkka heimildir heldur til að
þrengja þær. Framsal verði að ein-
skorða við afmörkuð svið, byggja á
þeirri forsendu að íslenska ríkið hafi
jafna stöðu á við önnur ríki í alþjóð-
legu samstarfi og að framsal sé alltaf
afturkræft. Þá verði framsal að
styðjast við aukinn meirihluta Al-
þingis – a.m.k. 2⁄3 – auk þess sem
minnihluti þingsins geti vísað
ákvörðun um framsal í þjóðar-
atkvæðagreiðslu.
Á afmælisári fullveldisins er það
við hæfi að utanríkisráðherra skuli
hafa skipað starfshóp, undir forystu
Björns Bjarnasonar, fyrrverandi
ráðherra, til að vinna skýrslu um að-
ild Íslands að samningnum um Evr-
ópska efnahagssvæðið. Vegurinn
milli þess að varðveita fullveldið og
taka þátt í samstarfi Evrópuþjóða er
vandrataður. Þess vegna skiptir
miklu að varpað sé skýru ljósi á kosti
og galla aðildar að EES en ekki síður
sé mótuð stefna til lengri tíma um
hvernig við Íslendingar viljum
tryggja náið og gott samstarf við
aðrar þjóðir. Efnahagsleg velsæld
næstu 100 ár fullveldis ræðst af því
hvernig okkur tekst til. Og það er
rétt og skylt að hafa það í huga sem
„Eiríkur“ benti á fyrir einni öld; full-
veldið er því aðeins „algert, að fjár-
hagslegt sjálfstæði fylgi“.
Eftir Óla Björn
Kárason » Það er rétt og skylt
að hafa það í huga
sem „Eiríkur“ benti á
fyrir einni öld; fullveldið
er því aðeins „algert, að
fjárhagslegt sjálfstæði
fylgi“.
Óli Björn Kárason
Höfundur er alþingismaður
Sjálfstæðisflokksins.
Fullveldi og fjárhagslegt sjálfstæði