Morgunblaðið - 05.12.2018, Side 25
Þórður var heimsborgari og varð
ég þess fljótt áskynja að bæði
starfið og ferðalögin áttu við hann.
Hann ræddi oft við mig um það
sem honum þótti áhugavert á
ferðalögum sínum erlendis enda
tók hann eftir hinu skrítna og lenti
í alls konar ævintýrum.
Síðan sú harmafregn barst mér
að Þórður væri allur hafa margar
tilfinningar sem erfitt er að koma
á prent hringsólað í höfðinu á mér.
Ég kveð ekki bara góðan vin
heldur einnig einn skemmtileg-
asta mann sem ég hef kynnst á
lífsleiðinni. Óneitanlega kemur
upp reiði þegar ég hugsa til þess
að honum hafi ekki verið úthlutað
lengri tíma við barinn. „Kvöldar,
haustar, dagar dimmra nátta“
segir Megas í textanum um Ást-
ina og örlög Eyjólfs bónda og í
þetta sinn kvöldaði alltof snemma.
Fjölskyldu Þórðar Alberts,
móður, föður og systrum, vil ég
votta mína dýpstu og innilegustu
samúð.
Valur Freyr Steinarsson.
Góður vinnufélagi er farinn frá
okkur fyrir fullt og allt. Maður á
erfitt með að skilja hvers vegna
svona ungur maður fer svona
snemma. Það er svo stutt síðan við
Þórður sátum saman á kaffistof-
unni í skýli 8 á Keflavíkurflugvelli
og rifjuðum upp skemmtilegar
sögur úr vinnunni.
Þórður Albert Guðmundsson
hóf störf hjá tækniþjónustu Ice-
landair í byrjun árs 2007 sem flug-
virki og kom það fljótlega í ljós að
hann var handlaginn og mikill fag-
maður. Viðhald og viðgerð á
hreyflum flugvéla varð sérgrein
hans og var hann orðinn mikill
sérfræðingur í þeim fræðum.
Þórður var traustur starfsmaður
og það var ávallt hægt að leita til
hans þegar vandamálin voru af
stærri gerðinni og fara þurfti í
löng ferðalög til að bjarga málun-
um. Það skipti ekki máli hvort
verkefnin voru í Tyrklandi, Rúss-
landi, Ameríku, Skotlandi eða
bara hér heima. Alltaf var auðsótt
mál að fá liðsinni Þórðar.
Það er alveg hægt að segja að
Þórður hafi talað kjarngóða ís-
lensku og lá hann ekki á skoðun-
um sínum á málefnum líðandi
stundar. Þó að hann hafi haft
hrjúfan skráp var hann sannar-
lega hjartahlýr maður.
Fyrir einu og hálfu ári var
Þórður ráðinn hópstjóri og var
hlutverk hans að leiða vinnu hóps
flugvirkja í stórskoðunum. Þessu
hlutverki sinnti Þórður af miklum
áhuga og var hann fljótur að til-
einka sér nýjungar. Það var því
mikið áfall þegar fréttir bárust af
veikindum Þórðar. Það er erfitt að
sætta sig við þetta, en við getum
engu breytt, líf okkar heldur
áfram en minningin lifir um góðan
vinnufélaga. Við samhryggjumst
fjölskyldu, aðstandendum og
vinum.
Þar sem englarnir syngja sefur þú
sefur í djúpinu væra.
Við hin sem lifum, lifum í trú
að ljósið bjarta skæra
veki þig með sól að morgni
Drottinn minn faðir lífsins ljós
lát náð þína skína svo blíða.
Minn styrkur þú ert mín lífsins rós
tak burt minn myrka kvíða.
Þú vekur hann með sól að morgni
Faðir minn láttu lífsins sól
lýsa upp sorgmætt hjarta.
Hjá þér ég finn frið og skjól.
Láttu svo ljósið þitt bjarta
vekja hann með sól að morgni.
Drottinn minn réttu sorgmæddri sál
svala líknarhönd
og slökk þú hjartans harmabál
slít sundur dauðans bönd.
Svo vaknar hann með sól að morgni
Farðu í friði vinur minn kær
faðirinn mun þig geyma.
Um aldur og ævi þú verður mér nær
aldrei ég skal þér gleyma.
Svo vöknum við með sól að morgni
(Bubbi Morthens)
Fyrir hönd vinnufélaga,
Hörður Már Harðarson.
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 5. DESEMBER 2018 25
Tilkynningar
Borgarbyggð
Skipulagsauglýsing
Sveitarstjórn Borgarbyggðar hefur á 170. fundi
sínum þann 14. maí 2018, samþykkt að auglýsa
eftirfarandi tillögur:
Skotæfingasvæði í landi Hamars
– Tillaga að breytingu á Aðalskipulagi
Borgarbyggðar 2010-2022.
Breyta á landnotkun svæðis í landi Hamars úr
landbúnaði í opið svæði til sérstakra nota. Ný
reið- og gönguleið verður lögð 400 m sunnan
við skotæfingasvæðið. Nýr aðkomuvegur verður
lagður að svæðinu, frá Bjarnhólum sunnan
efnistökusvæðis og verður samnýttur með
núverandi reið- og gönguleið. Málsmeðferð verður
samkvæmt 36. grein Skipulagslaga nr. 123/2010.
Skotæfingarsvæði í landi Hamars
– Tillaga að nýju deiliskipulagi.
Markmið deiliskipulags er að byggja upp skot-
æfingasvæði á 16, 7 ha svæði skammt norður af
Borgarnesi. Á svæðinu er gert ráð fyrir 7 bíla-
stæðum, félagshúsi, skeet-velli, riffilbraut og
göngustíg frá bílastæði að skeet-velli, og meðfram
riffilbraut að takmarki og kúlufangi. Málsmeðferð
verður samkvæmt 41. grein Skipulagslaga nr.
123/2010.
Ofangreindar skipulagstillögur liggja frammi
í Ráðhúsi Borgarbyggðar, Borgarbraut 14 í
Borgarnesi frá 10. desember til 21. janúar 2019
og verða einnig aðgengilegar á heimasíðu
Borgarbyggðar www.borgarbyggd.is.
Hverjum þeim aðila sem hagsmuna á að
gæta er gefinn kostur á að gera athugasemd
við skipulagstillögurnar. Athugasemdir og
ábendingar skulu vera skriflegar og berast eigi
síðar en mánudaginn 21. janúar 2019 í Ráðhús
Borgarbyggðar, Borgarbraut 14, 310 Borgarnesi
eða á netfangið borgarbyggd@borgarbyggd.is.
Miðvikudaginn 19. desember 2018 milli kl. 17:00 og
18:00 verða starfsmenn umhverfis- og skipulags-
sviðs Borgarbyggðar með opið hús í Ráðhúsi
Borgarbyggðar, Borgarbraut 14 í Borgarnesi þar
sem tillögurnar verða kynntar þeim sem þess óska.
Auglýsing um skipulagsmál í Rangárþingi eystra
Samkvæmt 1. mgr. 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, eru auglýstar tillögur að breytingum á aðalskipulagi
Rangárþings eystra 2012-2024.
Eystra-Seljaland – Aðalskipulagsbreyting
Breytingin tekur til um 8,6 ha lands úr jörðinni Eystra-Seljaland, Rangárþingi eystra. Gert er ráð fyrir því að núverandi
landbúnaðarsvæði (L) verði breytt í verslunar- og þjónustusvæði (VÞ). Fyrirhuguð er ferðaþjónusta á skipulagssvæðinu þar sem
gert er ráð fyrir hóteli á eystri hluta þess. Ekki liggja þó fyrir nánari hugmyndir um aðra starfsemi.
Vesturskák – Aðalskipulagsbreyting
Breytingin tekur til um 6,0 ha lands sem er upprunalega úr jörðinni Kirkjulækjarkot, Rangárþingi eystra. Gert er ráð fyrir því að
hluta af núverandi frístundabyggð (F) verði breytt í verslunar- og þjónustusvæði (VÞ). Skipulagstillagan gerir ráð fyrir því að á
umræddu svæði rísi nýbyggingar fyrir ferðaþjónustu.
Ofangreindar skipulagstillögur er hægt að skoða á heimasíðu Rangárþings eystra www.hvolsvollur.is og á skrifstofu skipulags-
og byggingarfulltrúa frá 10. desember 2018. Hverjum þeim sem telur sig eiga hagsmuna að gæta er gefinn kostur á að gera
athugasemdir við tillögurnar, og er frestur til að skila inn athugasemdum til 21. janúar 2019. Athugasemdum skal skila skriflega á
skrifstofu skipulags- og byggingarfulltrúa Rangárþings eystra, Austurvegi 4, 860 Hvolsvelli.
F.h. Rangárþings eystra
Guðmundur Úlfar Gíslason,
fulltrúi skipulags- og byggingarmála.
Félagsstarf eldri borgara
Aflagrandi 40 Opin vinnustofa kl. 9-12.30. Foreldramorgnar kl. 9.30-
11.30, allir velkomnir. Jóga með Grétu 60+ kl. 12.30. Söngstund kl.
13.45. Kaffi kl. 14.30-15.20. Bókaspjall með Hrafni Jökulssyni kl. 15.
Árbæjarkirkja Kyrrðarstund í kirkjunni kl. 12 og léttur hádegisverður
á eftir gegn vægu gjaldi. Opið hús í safnaðarheimili kirkjunnar kl. 13
til 16. Þar er boðið upp á stólaleikfimi með Öldu Maríu og jólaföndur.
Kaffi og með því í boði kirkjunnar. Allir hjartanlega velkomnir.
Árskógar Handavinna með leiðbeinanda kl. 9-16. Opin smíðastofa
kl. 9-16. Stóladans með Þóreyju kl. 10. Opið hús, t.d. vist og brids kl.
13-16. Opið fyrir innipútt. Hádegismatur kl. 11.40-12.45. Kaffisala kl.
15-15.45. Heitt á könnunni, allir velkomnir. S. 535-2700.
Boðinn Aðventukaffi Boðans hefst kl. 13.30 með harmonikkuspili og
söng. Handavinnustofa opin frá kl. 9-15. Vatnsleikfimi kl. 14.30.
Bólstaðarhlíð 43 Opin handverksstofa kl. 9-16. Morgunkaffi kl. 10-
10.30. Botsía kl. 10.40-11.20. Sala á handunnum jólavörum og harðfisk
kl. 11-15. Spiladagur, frjáls spilamennska kl. 12.30-15.50. Opið kaffihús
kl. 14.30-15.
Breiðholtskirkja Eldri borgara starf kl. 13.15, ,,Maður er manns
gaman", í dag verður jólabingó með glæsilegum vinningum. Stundin
byrjar með kyrrðarstund kl. 12. Allir hjartanlega velkomnir.
Bústaðakirkja Í dag miðvikudag höldum við áfram með föndrið,
spilað og skrafað. Sóknarprestur verður með hugleiðingu og bæn.
Anna Ragna Fossberg kemur og les upp úr bókinni sinni Auðna.
Kaffið góða frá Sigurbjörgu eins og vant er. Hlökkum til að sjá ykkur.
Starfsfólk Bústaðakirkju
Garðabær Vatnsleikfimi Sjálandi kl. 7.30/15. Kvennaleikfimi Sjálandi
kl. 9.30. Liðstyrkur Sjálandi kl.10.15. Kvennaleikfimi Ásgarðí kl. 11.30.
Gönguhópur fer frá Jónshúsi kl. 10. Brids í Jónshúsi kl. 13.
Gjábakki Kl. 9 handavinna, kl. 9 botsía, opinn tími, kl. 9.30 glerlist, kl.
13 félagsvist, kl. 13 postulínsmálun.
Guðríðarkirkja Jólabingó miðvikudaginn 5. desember kl. 12. Helgi-
stund í kirkjunni og jólasálmar sungnir. Súpa og meðlæti 700 kr.
Síðan verður spilað bingó, spjaldið kostar 250 kr. Hlökkum til að sjá
ykkur, sr. Karl, sr. Leifur, Hrönn og Lovísa.
Gullsmári Myndlist kl. 9. Postulínsmálun / kvennabridge / silfursmíði
kl. 13. Línudans fyrir lengra komna kl. 16, byrjendur kl. 17.
Hraunbær 105 Kaffiklúbbur og spjall, allir velkomnir í frítt kaffi kl. 9.
Útskurður með leiðbeinanda kl. 9-12, 500 kr. skiptið, allir velkomnir.
Opin handavinna kl. 9–14. Hádegismatur kl. 11.30.
Hvassaleiti 56-58 Félagsmiðstöðin er opin frá kl. 8-16, blöðin og
púsl liggja frammi. Morgunkaffi kl. 8.30-10.30, jóga með Carynu kl. 9,
útvarpsleikfimi kl. 9.45, zumba og leikfimi með Carynu kl. 10 og
hádegismatur kl. 11.30. Handavinna kl. 13, liðleiki á stólum og slökun
með Önnu kl. 13.15 og eftirmiðdagskaffi kl. 14.30.
Korpúlfar 8 Korpúlfar á tölvunámskeið í samvinnu við BHS, mæting
9 í Borgum, gengið saman í BHS. Stjórnar- og nefndarfundur Korpúlfa
kl. 10. Gönguhópar kl. 10, gengið frá Borgum og í Egilshöll, keilal í
Egilshöll kl. 10. Jólabingó Korpúlfa kl. 13 í Borgum í dag, margt stór-
glæsilegra vinninga. Qigong fellur niður í dag. Minnum á jólahlað-
borð Korpúlfa á morgun fimmtudaginn 6. dessember, húsið opnað kl.
18, muna aðgöngmiða.
Langholtskirkja Samverustund eldri borgara í Langholtskirkju á
miðvikudögum. Samveran hefst í kirkjunni með stuttri notalegri
bænastund kl. 12.10. Sameiginleg máltíð í safnaðarheimilinu, söngur,
spil og spjall. Umsjón er í höndum Helgu Guðmundsdóttur og
Sigríðar Ásgeirsdóttur, hópur sjálfboðaliða reiðir fram ódýra máltíð
og miðdegiskaffi. Öll velkomin.
Norðurbrún 1 Morgunkaffi kl. 8.30, trésmiðja kl. 9-12, morgunleik-
fimi 2. hæð kl. 9.45, lesið upp úr blöðum kl. 10.15, viðtalstími hjúkrun-
arfræðings kl. 10-12, bókmenntahópur kl. 11, félagsvist kl. 14, Bónus-
bíllinn kl. 14.40. Uppl. í síma 4112760.
Seltjarnarnes Gler og glerbræðsla á neðri hæð Félagsheimilisins kl.
9 og 13. Leir Skólabraut kl. 9. Botsía Skólabraut kl. 10. Kaffispjall í
króknum kl. 10.30. Kyrrðarstund í kirkjunni kl. 12. Timburmenn Val-
húsaskóla kl. 13. Jólaföndur á Skólabrautinni kl. 13. Allir velkomnir.
Vatnsleikfimi í sundlauginni kl. 18.40.
Stangarhylur 4 Göngu-Hrólfar ganga frá Ásgarði Stangarhyl 4, kl.
10. Söngfélag FEB kóræfing kl. 16.30, stjórnandi Gylfi Gunnarsson.
Aðventuhátíð félagsins fimmtudaginn 6. desember kl. 15.30, boðið
verður upp á óáfengt jólaglögg, kaffi og góðgæti. Söngur, Margrét
Helga Kristjánsdóttir syngur nokkur lög, Kór FEB syngur undir stjórn
Gylfa Gunnarssonar, hugvekja sr. Bjarni Karlsson, upplestur úr
bókum og fl.
Félagslíf
Bænasamkoma kl. 20 í
Kristniboðssalnum. Ræðumaður
Bjarni Gíslason. Allir velkomnir.
Atvinnuhúsnæði
110/220 fm lagerhúsnæði með
innkeyrsluhurð
Til leigu 110 fm / 220 fm lagerhús-
næði við Stórhöfða með innkeyrslu-
hurð og lofthæð 3,3 m.
Nánari upplýsingar:
atvinnuhusnaedi.ehf@gmail.com.
Sumarhús
Sumarhús – Gestahús –
Breytingar
Framleiðum stórglæsileg sumarhús
í ýmsum stærðum.
Tökum að okkur stækkun og
breytingar á eldri húsum.
Smíðum gestahús – margar
útfærslur.
Sjáum um almennt viðhald á
sumarhúsum og sólpöllum.
Setjum niður heita potta og
smíðum palla og skjólveggi.
Áratugareynsla –
endilega kynnið ykkur málið.
Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn,
sími 892-3742 og 483-3693,
www.tresmidjan.is
Til sölu
LOK
Á POTTA
HEITIRPOTTAR.IS
HÖFÐABAKKA 1
SÍMI 777 2000
Bílaþjónusta
GÆÐABÓN
Stofnað 1986 • Ármúla 17a
Opið mán.-fös. 8-16. S. 568 4310
Það besta fyrir bílinn þinn
Alþrif, djúphreinsun, mössun, teflon,
blettun, bryngljái, leðurhreinsun.
Smá- og raðauglýsingar 569 1100
Vantar þig
pípara?
FINNA.is
fasteignir