Morgunblaðið - 05.12.2018, Side 31
MENNING 31
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 5. DESEMBER 2018
Arna Kristín Einarsdóttir, fram-
kvæmdastjóri Sinfóníuhljómsveitar
Íslands, hefur verið ráðin fram-
kvæmdastjóri kanadísku þjóðar-
hljómsveitarinnar í Ottawa (Ca-
nada’s National Arts Centre
Orchestra) og tekur við því starfi 1.
maí næstkomandi.
Arna hefur gegnt stöðu fram-
kvæmdastjóra Sinfóníuhljómsveitar
Íslands frá árinu 2013 en stjórn
hljómsveitarinnar framlengdi samn-
inginn í fyrra til 2021. Áður var Arna
tónleikastjóri hljómsveitarinnar.
Samkvæmt tilkynningu frá Sin-
fóníuhljómsveit Íslands mun Arna
Kristín gegna starfi framkvæmda-
stjóra hennar fram á vor.
„Ég hef verið svo heppin að fá að
starfa með frábæru fólki í framvarð-
arsveit Sinfóníuhljómsveitar Íslands
frá árinu 2007, fyrst sem tónleika-
stjóri og síðar sem framkvæmda-
stjóri,“ segir hún. „Nú er stefnan
tekin vestur um haf. Ég er full til-
hlökkunar að fá tækifæri til að vinna
með nýrri og afar virtri hljómsveit,
þjóðarhljómsveit Kanada, og því
sterka teymi sem að baki henni
stendur.“
Stýrir hljómsveit í Kanada
Morgunblaðið/Ómar
Ný staða Arna Kristín verður fram-
kvæmdastjóri kanadísku þjóðar-
hljómsveitarinnar í Ottawa.
Ein af áhugaverðustu ogskemmtilegustu útgáfumþessarar bókavertíðar erfimm bóka stafli höfund-
arins Sverris Norland. Um er að
ræða eina ljóðabók, eitt smásagna-
safn og þrjár stuttar skáldsögur (í
raun langar smásögur), eða eins og
tekið er fram á kápunum: Skáldsaga í
hæfilegri lengd. Enda eru þetta litlar
kiljur, 10,5x15,8 cm, og seldar sem
einn pakki og brúnu snæri brugðið
utan um. Þetta eru því afar með-
færileg verk, þegar leyst hefur verið
utan af bókunum, og auðvelt er að
renna þeim í vasa og taka með sér
hvert sem er til lestrar; rýnir hefur
borið sumar bókanna með sér og til
að mynda tekið þær upp og lesið í
hléi á tónleikum og meðan auglýs-
ingaflóði var hellt yfir gesti í kvik-
myndahúsi áður en sýning hófst.
Á kynningarspjaldi sem fylgir bók-
unum fimm segir að í þeim tvinni höf-
undurinn saman „marglaga ástar-
bréf til íslenskunnar og listarinnar –
og ekki síst listsköpunar á íslensku.
Sögusviðið er Evrópa og Bandaríkin
og söguhetjurnar leitandi fólk sem
tilheyrir smáþjóð, talar örtungu og
lifir í heimi sem verður sífellt sam-
tengdari, rótlausari og alþjóðlegri.“
Lýsingin er góð og rétt farið með
en um leið og hver bókanna fimm er
sjálfstætt verk eiga þær sameigin-
legt að höfundurinn leikur sér fim-
lega og á meðvitaðan hátt með bók-
menntaformin. Honum liggur oft
mikið á hjarta, til að mynda þegar
staða íslenskunnar er til umræðu og
framtíð bókmennta, en hér er þó eng-
in prédikun. Þvert á móti ráða lögmál
skáldskaparins ferðinni og þótt les-
andinn finni iðulega vel fyrir meðvit-
uðum söguhöfundinum, sem í sumum
verkunum vísar markvisst til lífs og
upplifana höfundarins sjálfs – auk
þess sem Sverrir Norland kemur fyr-
ir sem persóna – þá eru verkin öll at-
hyglisverð, vel skrifuð og sum
skemmtilega galsafengin.
Hið agalausa tívólí (Skáldsaga í
hæfilegri lengd) bbbmn
Eftir Sverri Norland. AM forlag, 2018.
Kilja, 144 bls.
Hið agalausa tívolí er glæpasagan í
bunkanum en leikið er með þetta vin-
sæla sagnaform á ýktan og fjörmik-
inn hátt – andi
kvikmyndaleik-
stjórans Davids
Lynch svífur yfir
vötnum í absúrd
atburðarás og
persónusköpun.
Lögreglukon-
urnar Elísabet og
Lotta reyna að
leysa subbulegt
morð á þekktum manni sem framið
er á Kaffi Best í Vesturbænum. Ráð-
gátan er svo snúin að hinn dularfulli
og djúpvitri yfirmaður þeirra, Sverr-
ir Norland, á jafnvel í basli við að
leysa málið en sagan er vel skrifuð og
fléttuð, snörp og bráðskemmtileg.
Fallegasta kynslóðin er alltaf sú
sem kemur næst (Skáldsaga í
hæfilegri lengd) bbbnn
Eftir Sverri Norland. AM forlag, 2018.
Kilja, 91 bls.
Þetta er ævintýraleg frásögn um
hóp ungmenna sem verða fyrir svo
miklum áhrifum af lestri ljóðabókar
einnar að þau ger-
ast öll skáld, með
misgóðum ár-
angri þó. Skáldin
stefna að því að
bjarga íslenskum
bókmenntum en
hætta öll smám
saman að skrifa,
utan sögumaður-
inn einn sem rek-
ur fjörmikla frásögnina af kynnum
og samskiptum ungu skáldanna.
Manneskjusafnið (Skáldsaga
í hæfilegri lengd) bbbbn
Eftir Sverri Norland. AM forlag, 2018.
Kilja, 71 bls.
Hér er leikið á fallegan hátt með
klassískt tvíburaþema; annar er stór
og fagur, hinn lítill og magur, og eftir
dauða foreldr-
anna alast þeir
upp hjá ömmu
sinni og afa. Sá
stóri er vinsæll og
ætlar sér að sigra
heiminn en sá litli
er innhverfur og
hændur að afa
sínum, sem kenn-
ir honum að móta
fólk úr leir. Af
þolinmæði og þrjósku heldur sá litli,
eftir að amma hans og afi eru látin,
áfram að móta fólk í kjallara húss
þeirra og tekst á hendur verkefni
sem kallast á við ævintýralega sagna-
heima Borgesar hins argentínska, en
það er að gera nákvæmar eftir-
myndir allrar þjóðarinnar, undur-
samlegt Manneskjusafn.
Heimafólk (Sögur) bbbbn
Eftir Sverri Norland. AM forlag, 2018.
Kilja, 128 bls.
Í þessu safni eru sjö mislangar
smásögur sem sýna vel að fjölhæfur
höfundurinn hefur góð tök á þessu
formi – enda
skáldsögurnar
þrjár í þesum
bókapakka í raun
líka smásögur.
Hér eru nokkrar
þriðju persónu
sögur í klassísku
formi, sem lýsa
atburðum í lífi
fólks, eins og
„Samlokan“ sem lýsir ungu pari sem
fer í kvikmyndahús í New York og
„Hinir sönnu leyndardómar Parísar-
borgar“ sem lýsir ástarævintýri
stúlku í París en þessar sögur og
fleiri stefna með markvissri upp-
byggingu að óvæntum hvörfum eða
vel mótaðri upplifun undir lokin.
Áhrifamest er þó lengsta sagan,
„Ruggustóllinn“, fyrstu persónu frá-
sögn um líf ungs fólks í New York og
samleigjanda sem er saknað, en sú
saga er með því allra besta í þessu
safni Sverris.
Erfðaskrá á útdauðu tungumáli (Ljóð)
bbbnn
Eftir Sverri Norland. AM forlag, 2018.
Kilja, 74 bls.
Þetta er ljóðabók í fimm hlutum
og umfjöllunarefnið einkum hugleið-
ingar ljóðmælanda um íslenskan
bakgrunn – hún
hefst á línunum
„Alltaf skal ég
rogast / með upp-
runann / í far-
teskinu“ – og ís-
lenska tungu. Í
lokaljóðinu, „Síð-
ustu glæring-
arnar“, ávarpar
ljóðmælandinn ís-
lenskar bókmenntir og kveðst ætla
að njóta þess að nota þetta litla
tungumál „rétt meðan það er að
brenna út“.
tuttir prósar bera uppi tvo af hlut-
unum fimm og sýna vel hvað höfund-
urinn leikur sér lipurlega með stutta
sagnaformið. Einn er sjö gönguljóð
ort í New York, heimaborg höfund-
arins, og er það sísti hlutinn, en
bestu ljóðin fjalla um stöðu ljóðmæl-
andans í lífinu. Gott dæmi er upp-
hafsljóðið, „Heimsálfur í New York“,
um upprunann í farteskinu en það
endar svona:
Og alltaf er sama hvert ég hossast
með strætóum og lestum
–Brooklyn, Manhattan, Queens,
Bronx, Long Island –
þegar ég lít út um gluggann sé ég
ekkert nema Vesturbæinn, Hlíðarnar,
Breiðholtið, Grafarholt,
Kjalarnes
Morgunblaðið/Eggert
Fjölhæfur Fimm bóka pakki Sverris
Norland er vel skrifaður og bráð-
skemmtilegur aflestrar.
Litla tungumálið notað
rétt meðan það brennur út
EINAR FALUR
INGÓLFSSON
BÆKUR
Elly (Stóra sviðið)
Fim 6/12 kl. 20:00 178. s Fim 13/12 kl. 20:00 181. s Sun 30/12 kl. 15:00 aukas.
Fös 7/12 kl. 20:00 179. s Lau 15/12 kl. 20:00 182. s Sun 30/12 kl. 20:00 aukas.
Sun 9/12 kl. 20:00 180. s Sun 16/12 kl. 20:00 183. s
Stjarna er fædd.
Allt sem er frábært (Litla sviðið)
Fös 7/12 kl. 20:00 23. s Fös 14/12 kl. 20:00 24. s Sun 30/12 kl. 20:00 25. s
Gleðileikur um depurð.
Kvenfólk (Nýja sviðið)
Fös 7/12 kl. 20:00 7. s Fim 20/12 kl. 20:00 aukas. Fös 4/1 kl. 20:00 aukas.
Lau 8/12 kl. 20:00 8. s Fös 21/12 kl. 20:00 aukas. Lau 5/1 kl. 20:00 aukas.
Fim 13/12 kl. 20:00 9. s Fös 28/12 kl. 20:00 12. s Sun 6/1 kl. 20:00 15. s
Fös 14/12 kl. 20:00 10. s Lau 29/12 kl. 20:00 13. s Fös 11/1 kl. 20:00 16. s
Sun 16/12 kl. 20:00 11. s Sun 30/12 kl. 20:00 14. s Lau 12/1 kl. 20:00 17. s
Drepfyndin sagnfræði með söngvum.
Tvískinnungur (Litla sviðið)
Fim 6/12 kl. 20:00 7. s Sun 16/12 kl. 20:00 Lokas.
Aðeins þrjár sýningar eftir!
Jólaflækja (Litla sviðið)
Lau 8/12 kl. 13:00 5. s Lau 15/12 kl. 13:00 7. s Lau 22/12 kl. 15:00 aukas.
Lau 8/12 kl. 15:00 aukas. Sun 16/12 kl. 13:00 8. s
Sun 9/12 kl. 13:00 6. s Lau 22/12 kl. 13:00 9. s
Aðeins sýnt á aðventunni.
Ríkharður III (Stóra sviðið)
Lau 29/12 kl. 20:00 Frums. Sun 6/1 kl. 20:00 3. s Fös 11/1 kl. 20:00 5. s
Fim 3/1 kl. 20:00 2. s Fim 10/1 kl. 20:00 4. s Mið 16/1 kl. 20:00 6. s
Ég, tveggja stafa heimsveldi
Rocky Horror (Stóra sviðið)
Lau 8/12 kl. 20:00 70.s Fös 14/12 kl. 20:00 Lokas.
Allra síðustu sýningar!
Fólk, staðir og hlutir (Litla sviðið)
Mið 13/2 kl. 20:00 33. s Mið 20/2 kl. 20:00 37. s Mið 27/2 kl. 20:00 41. s
Fim 14/2 kl. 20:00 34. s Fös 22/2 kl. 20:00 38. s Fim 28/2 kl. 20:00 42. s
Fös 15/2 kl. 20:00 35. s Lau 23/2 kl. 20:00 39. s Fös 1/3 kl. 20:00 43. s
Lau 16/2 kl. 20:00 36. s Sun 24/2 kl. 20:00 40. s Lau 2/3 kl. 20:00 44. s
Lífið er ekki nógu ávanabindandi
BORGARLEIKHÚSIÐ
Kynntu þér nýjan tapas-matseðil Leikhúsbarsins
á borgarleikhus.is
Miðasala | 568 8000 | borgarleikhus.is
Ronja Ræningjadóttir (Stóra sviðið)
Sun 9/12 kl. 14:00 Auka Lau 19/1 kl. 16:00 Aukas. Sun 24/2 kl. 13:00 42.sýn
Sun 9/12 kl. 17:00 25. s Sun 20/1 kl. 13:00 32.sýn Sun 24/2 kl. 16:00 43.sýn
Lau 29/12 kl. 13:00 Auka Sun 20/1 kl. 16:00 33.sýn Sun 3/3 kl. 13:00 44.sýn
Lau 29/12 kl. 16:00 Auka Sun 27/1 kl. 13:00 34.sýn Sun 3/3 kl. 16:00 45.sýn
Sun 30/12 kl. 13:00 26. s Sun 27/1 kl. 16:00 35.sýn Sun 10/3 kl. 13:00 46.sýn
Sun 30/12 kl. 16:00 27. s Sun 3/2 kl. 13:00 36.sýn Sun 10/3 kl. 16:00 47.sýn
Sun 6/1 kl. 13:00 28.sýn Sun 3/2 kl. 16:00 37.sýn Sun 17/3 kl. 13:00 Aukas.
Sun 6/1 kl. 16:00 29.sýn Sun 10/2 kl. 13:00 38.sýn Sun 17/3 kl. 16:00 48.sýn
Sun 13/1 kl. 13:00 30.sýn Sun 10/2 kl. 16:00 39.sýn Sun 31/3 kl. 16:00 49.sýn
Sun 13/1 kl. 16:00 31.sýn Sun 17/2 kl. 13:00 40.sýn
Lau 19/1 kl. 13:00 Aukas. Sun 17/2 kl. 16:00 41.sýn
Stórskemmtilegur og æsispennandi söngleikur fyrir alla fjölskylduna!
Samþykki (Stóra sviðið)
Fös 7/12 kl. 19:30 10.sýn
Kraftmikið, splunkunýtt verk sem sló í gegn í Breska þjóðleikhúsinu.
Einræðisherrann (Stóra Sviðið)
Mið 26/12 kl. 19:30 Frums Fös 11/1 kl. 19:30 5.sýn Fim 24/1 kl. 19:30 9.sýn
Fim 27/12 kl. 19:30 2.sýn Lau 12/1 kl. 19:30 6.sýn Fös 25/1 kl. 19:30 10.sýn
Fös 28/12 kl. 19:30 3.sýn Fim 17/1 kl. 19:30 7.sýn Lau 2/2 kl. 19:30 11.sýn
Lau 5/1 kl. 19:30 4.sýn Fös 18/1 kl. 19:30 8.sýn
Siggi Sigurjóns mætir Charlie Chaplin!
Fly Me To The Moon (Kassinn)
Fös 7/12 kl. 19:30 20.sýn Lau 19/1 kl. 19:30 23.sýn
Nýtt verk eftir höfund hins geysivinsæla leikrits Með fulla vasa af grjóti
Þitt eigið leikrit (Kúlan)
Fös 25/1 kl. 18:00 Frums. Lau 9/2 kl. 15:00 5.sýn Lau 23/2 kl. 15:00 10.sýn
Fim 31/1 kl. 18:00 2.sýn Fim 14/2 kl. 18:00 6.sýn Fös 1/3 kl. 18:00 11.sýn
Lau 2/2 kl. 15:00 3.sýn Fös 15/2 kl. 18:00 7.sýn Lau 2/3 kl. 15:00 12.sýn
Fim 7/2 kl. 18:00 Aukas. Lau 16/2 kl. 15:00 8.sýn Fös 8/3 kl. 18:00 13.sýn
Fös 8/2 kl. 18:00 4.sýn Fim 21/2 kl. 18:00 9.sýn Lau 9/3 kl. 15:00 14.sýn
Það er þitt að ákveða hvað gerist næst!
Leitin að jólunum (Leikhúsloft)
Lau 8/12 kl. 11:00 324.s Lau 15/12 kl. 11:00 331.s Lau 22/12 kl. 13:00 338.s
Lau 8/12 kl. 13:00 325.s Lau 15/12 kl. 13:00 332.s Lau 22/12 kl. 14:30 339.s
Lau 8/12 kl. 14:30 326.s Lau 15/12 kl. 14:30 333.s Sun 23/12 kl. 11:00 340.s
Sun 9/12 kl. 11:00 327.s Sun 16/12 kl. 11:00 334.s Sun 23/12 kl. 13:00 341.s
Sun 9/12 kl. 12:30 328.s Sun 16/12 kl. 13:00 335.s Sun 23/12 kl. 14:30 342.s
Fös 14/12 kl. 17:30 329.s Sun 16/12 kl. 14:30 336.s
Fös 14/12 kl. 19:00 330.s Lau 22/12 kl. 11:00 337.s
Grímuverðlaunasýningin Leitin að jólunum.
Insomnia (Kassinn)
Lau 12/1 kl. 19:30 7.sýn Fim 17/1 kl. 19:30 8.sýn Fös 18/1 kl. 19:30 9.sýn
Brandarinn sem aldrei deyr
Improv Ísland (Þjóðleikhúskjallari)
Lau 12/1 kl. 19:30 7.sýn Fim 17/1 kl. 19:30 Fös 18/1 kl. 19:00 9,sýn
Spunasýningarnar vinsælu snúa aftur - engin sýning eins!
leikhusid.is | midasala@leikhusid.is | 551 1200
Matur