Morgunblaðið - 05.12.2018, Blaðsíða 32

Morgunblaðið - 05.12.2018, Blaðsíða 32
32 MENNING MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 5. DESEMBER 2018 Freyjujazz og sendiráð Þýskalands bjóða til hádegistónleika í Listasafni Íslands í dag kl. 12.10. Þar koma fram saxófónleikarinn Theresia Phil- ipp og bassaleikarinn Clara Däubler. „Clara Däubler er fjölhæf og eftir- sóttur bassaleikari og hefur leikið með Juliu Hülsmann, Angeliku Nies- cier, Nils Wogram, Heinrich Köbberl- ing, Ed Kröger og NDR Radio Phil- harmonics. Hún hefur komið fram í fjölmörgum löndum Evrópu og einn- ig Kanada og Bandaríkjunum. Árið 2017 hlaut hún Junger Münchner Jazzpreis og Jazz Prize Hannover með Fynn Großmann Quintet. Theresia Philipp er saxófónleikari og atkvæðamikill fulltrúi yngri kyn- slóðarinnar frá Köln-senunni. Hún sækir innblástur til Ornette Coleman, Chris Speed og Hayden Chisholm en einnig tónskálda á borð við Ligeti og Chin,“ segir í tilkynningu og bent á að líkt og Däubler hafi Philipp komið fram um víða veröld. Þetta er þó fyrsta Íslandsheimsókn þeirra. Með Däubler og Philipp leika Sunna Gunnlaugs á píanó og Scott McLemore á trommur. Á efnis- skránni verða frumsamin verk með- lima í bland við standarda. Ókeypis er á tónleikana sjálfa en gestir sem vilja njóta sýninga safns- ins um leið þurfa að kaupa miða á safnið. Kontrabassaleikarinn Clara Däubler. Tvær þýskar djasskonur leika í hádeginu Rannsóknastofnun í jafnréttisfræðum við Háskóla Íslands (RIKK) og Kvenréttindafélag Íslands standa fyrir mál- þingi um kvenfyrirlitningu, þöggun og tvískinnung í ís- lenskri stjórnmálaorðræðu í Veröld, húsi Vigdísar, í dag milli kl. 11.30-13.15. „Þar verður meðal annars fjallað um hæfni feðraveld- isins til þess að laga sig að nýjum tímum, birtingarmyndir kynjafordóma, fötlunarfyrirlitningu og hatursorðræðu stjórnmálamanna. Spurt verður hvort feðraveldið sé að bregðast við #metoo-byltingunni og hvort enn sé litið á konur sem aðskotahlut í stjórnmálum,“ segir í tilkynn- ingu. Málþingið hefst með röð fræðilegra ör-erinda. Að þeim loknum munu stjórnmálamenn fjalla um ofangreint ástand í pallborði. Frummælendur verða fræðimennirnir: Irma Erlingsdóttir, dósent og for- stöðumaður, Ragnheiður Kristjánsdóttir, dósent í sagnfræði, Erla Hulda Halldórsdóttir, dósent í kvenna- og kynjasögu, Ragnhildur Helgadóttir, for- seti lagadeild Háskólans í Reykjavík, Stefanía Óskarsdóttir, dósent í stjórn- málafræði, Henry Alexander Henrysson, aðjunkt við heimspeki- og sagn- fræðideild, Silja Bára Ómarsdóttir, dósent í alþjóðasamskiptum, Þorgerður Þorvaldsdóttir, doktor í kynjafræði, Eyja Margrét Brynjarsdóttir, aðjunkt í heimspeki, Hafdís Erla Hafsteinsdóttir sagnfræðingur og Dagný Kristjáns- dóttir, deildarforseti í íslensku- og menningardeild. Í pallborðsumræðum taka þátt: Svandís Svavarsdóttir heilbrigðis- ráðherra, Þorsteinn Víglundsson, alþingismaður og fyrrverandi jafnréttis- ráðherra, Helga Vala Helgadóttir, formaður stjórnskipunar- og eftirlits- nefndar Alþingis, Halldóra Mogensen, formaður velferðarnefndar Alþingis, Silja Dögg Gunnarsdóttir alþingismaður og Inga Björk Bjarnadóttir, vara- formaður ungra jafnaðarmanna. Annadís Gréta Rúdólfsdóttir stýrir pall- borðsumræðum og fundarstjóri er Tatjana Latinovic, stjórnarkona í Kven- réttindafélagi Íslands. Aðgangur er ókeypis. Málþing um kvenfyrirlitningu í dag Silja Dögg Gunnarsdóttir Norræna húsið heldur vistvæn jól með fjölbreyttum viðburðum í desember. Sett verður upp jóla- verkstæði í verslun Norræna hússins þar sem jólasveinar geta fram til 20. desember keypt plast- laust dót í skóinn. Föstudaginn 7. desember milli kl. 20 og 22 heldur Maret Ravdna Buljo námskeið í matreiðslu á hreindýrakjöti og sýnir hvernig hægt er að nýta allt af dýrinu svo engin sóun verði. Sveinn Kjart- ansson á Aalto Bistro leiðir samtal við hana um matargerð á norð- lægum slóðum sem fram fer á ensku. Uppselt er á viðburðinn, en áhugasamir geta fylgst með beinu streymi frá viðburðinum á vef Norræna hússins. Laugardaginn 8. desember fer fram námskeið í endurunnu föndri þar sem Málfríður Finn- bogadóttir kennir meðal annars hvernig hægt er að breyta gamalli bók í fallegt jólaskraut. Sunnu- daginn 9. desember verður í and- dyri Norræna hússins opnuð sýn- ingin Ég er Grýla. Þar getur að líta ólíkar túlkanir og birting- armyndir á fyrirbærinu Grýlu. Meðal listamanna sem verk eiga á sýningunni eru Gabríela Friðriks- dóttir, Egill Sæbjörnsson, Brian Pilkington og Anna Rún Tryggva- dóttir. Listakona Gabríela Friðriksdóttir er með- al þeirra sem takast á við Grýlu. Vistvæn jól og Grýla í Norræna húsinu SK kvartett, kvartett saxófónleik- arans Sigurðar Flosasonar og píanó- leikarans Kjartans Valdemarssonar, kemur fram á tónleikum Jazz- klúbbsins Múlans á Björtuloftum, á 5. hæð í Hörpu, í kvöld kl. 21. „Á tónleikunum leikur kvart- ettinn nýja og nýlega tónlist eftir Sigurð og Kjartan. Aðrir meðlimir kvartettsins eru bassaleikarinn Leif- ur Gunnarsson og trommuleikarinn Einar Scheving,“ segir í tilkynningu. Miðar eru seldir á tix.is, í miðasölu Hörpu og á harpa.is. Saxófónleikarinn Sigurður Flosason. SK kvartett á Múlanum í kvöld Anna and the Apocalypse Metacritic 72/100 IMDb 6,6/10 Bíó Paradís 22.00 Heart is not a servant Bíó Paradís 20.00, 22.10 The Guilty Morgunblaðið bbbbn Metacritic 82/100 IMDb 7,9/10 Bíó Paradís 18.00, 22.10 Svona fólk Bíó Paradís 18.00 Litla Moskva Morgunblaðið bbbbn Bíó Paradís 20.00 Cold War Metacritic 90/100 IMDb 7,9/10 Bíó Paradís 22.00 Mæri Metacritic 78/100 IMDb 7,2/10 Bíó Paradís 22.00, 22.10 Planet Single 2 IMDb 5,5910 Bíó Paradís 17.30 Erfingjarnir Metacritic 82/100 IMDb 7,3/10 Bíó Paradís 18.00, 20.00 Creed II 12 Hinn nýkrýndi heimsmeist- ari í léttþungavigt, Adonis Creed, berst við Viktor Drago, son Ivan Drago, og nýtur leiðsagnar og þjálf- unar Rocky Balboa. Metacritic 67/100 IMDb 8,0/10 Laugarásbíó 19.50, 22.30 Sambíóin Álfabakka 18.00, 20.30, 22.30 Sambíóin Egilshöll 17.20, 20.00, 22.40 Sambíóin Kringlunni 19.30, 22.10 Sambíóin Akureyri 19.30, 22.10 Sambíóin Keflavík 19.30, 22.10 Overlord 16 Metacritic 52/100 IMDb 7,0/10 Sambíóin Álfabakka 20.00 Sambíóin Egilshöll 22.40 Bohemian Rhapsody 12 Sagan um Freddie Mercury og árin fram að Live Aid tón- leikunum árið 1985. Morgunblaðið bbbbn Metacritic 49/100 IMDb 8,4/10 Laugarásbíó 19.50, 22.30 Smárabíó 17.00, 20.30, 22.40 Háskólabíó 18.00, 20.50 Borgarbíó Akureyri 17.00, 19.30, 22.00 Lof mér að falla 14 Þegar Magnea 15 ára kynnist Stellu 18 ára breytist allt. Stella leiðir Magneu inn í heim fíkniefna sem hefur al- varlegar afleiðingar fyrir þær báðar. Morgunblaðið bbbbn IMDb 8,8/10 Háskólabíó 20.40 Undir halastjörnu 16 Morgunblaðið bbbmn IMDb 6,8/10 Háskólabíó 18.30 Venom 16 Eddie er sífellt að reyna að ná sér niðri á snillingnum Carlton Drake. Árátta Eddie gagnvart Carlton hefur haft vægast sagt slæm áhrif á starfsferil hans og einkalífið. Morgunblaðið bbnnn Metacritic 35/100 IMDb 7,0/10 Smárabíó 20.00 The Girl in the Spider’s Web 16 Metacritic 48/100 IMDb 5,7/10 Háskólabíó 20.30 Ralf rústar internetinu Sugar Ruch spilasalurinn er í rúst, og Ralph og Vanellope þurfa að bregða sér á inter- netið til að endurheimta hlut sem nauðsynlegur er til að bjarga leiknum. Metacritic 71/100 IMDb 7,6/10 Laugarásbíó 17.30 Sambíóin Álfabakka 17.30, 18.00, 20.00 Sambíóin Egilshöll 17.30 Sambíóin Kringlunni 17.00 Sambíóin Akureyri 17.00, 22.20 Sambíóin Keflavík 22.20 Smárabíó 15.20, 17.50 The Grinch Trölli lætur það fara í taug- arnar á sér þegar fyrrverandi nágrannar hans byrja að skreyta fyrir jólin, kaupa gjafir og gleðjast. Laugarásbíó 17.30 Smárabíó 15.15, 17.30 Háskólabíó 18.20 Borgarbíó Akureyri 17.30 The Nutcracker and the Four Realms Það eina sem Clara vill er lykill - einstakur lykill sem mun opna kassa með ómet- anlegri gjöf frá móður henn- ar heitinni. Metacritic 39/100 IMDb 5,6/10 Sambíóin Álfabakka 17.50 Bönnuð börnum yngri en 9 ára. Morgunblaðið bbbbn Metacritic 57/100 IMDb 7,7/10 Laugarásbíó 17.00, 22.30 Sambíóin Álfabakka 17.40, 20.30, 22.15 Sambíóin Egilshöll 17.00, 20.00, 22.20 Sambíóin Kringlunni 16.45, 19.30, 22.15 Sambíóin Akureyri 16.45, 19.30 Sambíóin Keflavík 19.30 Smárabíó 16.00, 16.40, 19.10, 19.40, 22.10, 22.30 Fantastic Beasts: The Crimes of Grindelwald 12 A Star Is Born 12 Kvikmyndastjarna hjálpar ungri söngkonu og leikkonu að slá í gegn, þó svo að ferill hans sjálfs sé á hraðri niður- leið vegna aldurs og áfengis- neyslu. Morgunblaðið bbbbm Metacritic 88/100 IMDb 8,3/10 Sambíóin Álfabakka 20.40 Sambíóin Egilshöll 20.00 Sambíóin Kringlunni 16.45, 19.30 Widows 16 Fjórar konur taka á sig skuldir sem orðið hafa til vegna glæpa- verka eiginmanna þeirra og taka síðan málin í sínar hendur. Morgunblaðið bbbnn Metacritic 84/100 IMDb 7,5/10 Sambíóin Kringlunni 22.15 Smárabíó 19.50, 22.40 Háskólabíó 18.10, 21.00 Borgarbíó Akureyri 19.30, 22.00 Nánari upplýsingar um sýningar og sali má finna á heimasíðu kvikmyndahúsanna Kvikmyndir bíóhúsanna mbl.is/bio

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.