Morgunblaðið - 05.12.2018, Side 33

Morgunblaðið - 05.12.2018, Side 33
MENNING 33 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 5. DESEMBER 2018 emmessis.is ICQC 2018-20 Það virðist nokkuð samdómaálit fólks, ekki síst skrifandiog hugsandi fólks, að ansihreint margt í nútímanum, í hversdagslegum veruleika okkar allra, ekki síst í forréttindakima vest- ræns millistéttarfólks, sé af hinu illa. Mannskemmandi og sálarmyrðandi. Þegar verst lætur ríða hvunndags- raunirnar okkur á slig, eins og Megas orðaði það svo eftirminnilega á Drög- um að sjálfsmorði árið 1979. Þetta var sem sagt orðið svona þá, þó engir væru samfélagsmiðlarnir, hvað þá Snapchat-stjörnur á borð við ferla- fræðinginn Júlíu sem bakar bollakök- ur við mikinn fögnuð sinna níu þús- und fylgjenda. Hvað nákvæmlega setur hana út af sporinu, spillir tengslum hennar við mann, barn og vinkonur og kippir hennar sjálfs- öruggu og afskaplega dæmigerðu fótum undan henni kýs Sóley Ómars- dóttir að hafa nokkuð óljóst. Enda væri eitthvað bogið við að benda af öryggi og sannfæringu á eitthvað eitt. Það er nefnilega svo margt í nú- tímanum sem er sennilega óhollt fyr- ir okkur, jafnvel einkum það sem okkur finnst hvað skemmtilegast og við getum síst hugsað okkur að vera án. Einmitt það verður okkur fjötur um fót. Það virðist allt leika í lyndi hjá Júl- íu og Berki þegar þau koma heim af fæðingardeildinni með Þórdísi litlu. Samhent og glöð, en auðvitað líka dá- lítið stressuð og fyrstu mánuðirnir taka sinn toll. Nokkrum árum síðar er Börkur á leið í framhaldsnám er- lendis og er farinn á undan með barn- ið meðan Júlía hnýtir lausa enda í fyrirtækinu. Hún hefur líka tekið að sér að skipuleggja endurfundapartí fyrir grunnskólabekkinn sinn með bestu vinkonunni Hrefnu, sem hefur dvalið langdvölum erlendis, farið allt aðra leið í lífinu en ferlafræðingurinn en er komin í stutta heimsókn vegna veikinda móður sinnar. En það leikur ekki allt í lyndi eins og smám saman kemur í ljós. Ákvörðun Sóleyjar að setja hrun Júlíu ekki upp sem endapunkt skýrs og vandlega útmálaðs orsaka- samhengis hefur óneitanlega veikj- andi áhrif á dramatískan áhrifamátt sýningarinnar, sérstaklega þegar á líður og ljóst verður að líf litlu fjöl- skyldunnar er að liðast í sundur, móðirin og eiginkonan við það að segja sig úr lögum við hana. Líklega hjálpar ólínulegur frásagnarhátt- urinn heldur ekki til, en á móti kem- ur að hann olli heldur ekki alvar- legum ruglingi, enda ágætlega skýrt haldið utan um framvinduna og tíma- flakkið í handriti og í vinnu leikstjór- ans, Árna Kristjánssonar. Seint í verkinu, en snemma í sög- unni, verður atvik sem mögulega má skilja sem upphaf endalokanna, en því er engu að síður haldið nokkuð óljósu, en þó einkum nákvæmlega hvernig það geti hafa sett hrunið af stað þremur árum síðar. Til þess að gera það hefði Sóley þurft að leggja mun meiri rækt við að sýna okkur samspil, tilfinningatengsl og valda- togstreitu hjónanna ungu. Sá þráður er of vannærður í textanum, það er næstum eins og hafi verið tekin ákvörðun að taka Börk „út fyrir sviga“ í sögunni. Hann er meira og minna í Noregi alla sýninguna og hlustar á undanbrögð og hálfsann- leik eiginkonunnar í gegnum Skype. Langþreyttur en skilningsríkur, og varla þátttakandi í atburðarásinni sem er erindi sýningarinnar. Og án mótspils og samhengis verða örlög Júlíu illsýnanleg. Þetta er helsta brotalöm verksins. Öðru máli gegnir um hinn megin- þráðinn, samband vinkvennanna sem endurnýja kynnin eftir langan að- skilnað í tilefni af fyrirhuguðu partíi sem gefur verkinu nafnið. Í senum Júlíu og Hrefnu tekst Sóleyju að búa til sannfærandi dramatísk samtöl sem afhjúpa persónurnar, sérstak- lega þegar þær reyna að fela eitthvað eða ota tilbúinni framhlið hvor að annarri. Upprifjanir á fortíðinni eru skemmtilegar, sem og allir litlu árekstrarnir sem verða við það þegar þær uppgötva hversu ólíkar þær eru orðnar, og ólíkar þeim sem þær voru. Þessar senur eru helsti styrkur verksins. Sóley ofgerir þessum and- stæðuleik aldrei, né heldur gengur hún of langt í að láta stallsysturnar vera fulltrúa ólíkra lífsviðhorfa eða gilda, þó þess sjáist vissulega stað. Það dregur úr slagkraftinum en eyk- ur trúverðugleika sálræna raunsæis- ins sem hér er unnið með. Þegar á heildina er litið gengur Sóley of langt í að halda öllu opnu og bæta of litlu eldsneyti á bálið, á því tapar fjöl- skyldudramað en vinkvennasenurnar græða. Þær bara geta ekki verið aðalatriðið, ekki þegar vanræksla barns og sambandsslit móður við það er hinn þráðurinn. Með svoleiðis efni í bakgrunninum mun bakgrunnurinn krefjast aðalhlutverks í huga áhorf- andans, sama hvað. Að þessu öllu sögðu þarf ekki að koma á óvart að Sólveig Guðmunds- dóttir og Sara Martí Guðmundsdóttir njóta sín talsvert betur á þessu Rej- úníoni en Orri Huginn Ágústsson, sem vinnur þó mjög snyrtilega og áreynslulaust úr rýrum efnivið í hlut- verki Barkar. Flökkueðlið og nútíma- legt frjálslyndi Hrefnu verður alveg sannfærandi hjá Söru Martí og niðurbrot Júlíu verður að teljast á heimavelli Sólveigar Guðmunds- dóttur, sem virðist vera sú leikkona sem helst er hringt í ef konur á barmi taugaáfalls birtast í handritinu. Hún gerir þetta næsta óaðfinnanlega en þarf að fara að fá hlutverk af öðrum toga í bland. Samleikur þeirra Sól- veigar og Söru er fallegur og áreynslulaus og fínlegar tímasetn- ingar vöktu oft hlátur. Umgjörð Fionu Rigel og hljóð- mynd Hörpu Fannar Sigurjóns- dóttur eru þénugar og uppsetningar- vinna Árna honum til sóma. Gaman hefði verið að Skype-samtölin hefðu fengið aðeins raunsæislegri umgjörð en míkrófón fyrir Börk á hliðarpalli, svona í ljósi þess að skjávarpi og tjald eru til staðar og gegna veigamiklu hlutverki við að sýna okkur Snapp-- drottninguna að störfum, sem var skemmtilega gert hjá Inga Bekk. Rejúníon hélt athygli minni allan tímann og bestu sprettirnir eru höf- undi, leikstjóra og leikendum til sóma. Þegar á heildina er litið hefði samt þurft meiri kraft og einurð og skýrari stefnu um hvað verið væri að segja, hvernig og hvers vegna mál þróast svona hjá litlu læknis- og ferlafræðingsfjölskyldunni. Hvunndagsraunir Ljósmynd/Julie Rowland Afhjúpun „Í senum Júlíu og Sólveigar tekst Sóleyju að búa til sannfærandi dramatísk samtöl sem afhjúpa persónurnar,“ segir í rýni um Rejúníon. Tjarnarbíó Rejúníon bbbnn Eftir Sóleyju Ómarsdóttur. Leikstjórn: Árni Kristjánsson. Hreyfileikstjórn: Vala Ómarsdóttir. Leikmynd og búningar: Fiona Rigler. Tónlist og hljóðmynd: Harpa Fönn Sigurjónsdóttir. Lýsing: Halldór Örn Óskarsson. Myndband: Ingi Bekk. Leikarar: Sólveig Guðmunds- dóttir, Sara Martí Guðmundsdóttir og Orri Huginn Ágústsson. Leikhópurinn Lakehouse frumsýndi í Tjarnarbíói föstudaginn 30. nóvember 2018. ÞORGEIR TRYGGVASON LEIKLIST Kammerkór Seltjarnarneskirkju heldur sína árlegu jólatónleika í Seltjarnarneskirkju í kvöld kl. 20 undir stjórn Friðriks Vignis Stefánssonar, organista Seltjarnarneskirkju. „Á efnisskránni er bæði kórsöngur og ýmsir kórfélagar munu einnig syngja einsöng. Flutt verða jólalög og önnur tónlist frá ýms- um tímum,“ segir í tilkynningu og á það minnt að venju samkvæmt er aðgangur ókeypis. Kammerkór Seltjarnarneskirkju fagnar Friðrik Vignir Stefánsson. Aðalheiður S. Eysteins- dóttir opnar málverkasýn- ingu í Kompunni í Alþýðu- húsinu á Siglufirði á morgun, fimmtudag, kl. 16. „Verkin eru unnin í vinnustofudvöl í Svorbæk í Danmörku á haustdögum og bera yfirskriftina frjó. Ár hvert hefur skapast sú hefð að Aðalheiður setur upp nýjustu verk sín í gall- eríinu sem eru þá oft á til- raunastigi. Þannig gefur hún áhorfendum innsýn í þróunarferli listsköpunar og um leið opnar hún fyrir samtal um það efni,“ segir í tilkynningu frá sýningar- stað. Aðalheiður lýsir verkunum svo: „Undanfarin ár hef ég hugsað töluvert um fegurðina sem fylgir hverju lífi sem kviknar og frjósemina sem ber það síðan áfram blóm frá blómi, mann fram af manni. Blóm birtast okkur í öll- um regnbogans litum og ótrúlegustu formum, og gefa sköpunarkraftinum byr undir báða vængi. Í þessum tilraunum um málverk flæða litir og form í frjálsum farvegi og mynda frjósemi og erótík sem er undirrót alls lífs.“ Aðalheiður opnar sýningu í Kompunni Frjó Ein þeirra mynda sem sjá má á sýningunni.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.