Morgunblaðið - 05.12.2018, Blaðsíða 36

Morgunblaðið - 05.12.2018, Blaðsíða 36
ÍS LE N SK A/ SI A. IS AI C 89 54 5 11 /1 8 Jólagjafabréf Kauptu núna! Veldu upphæð, prentaðu út og jólagjöfin er klár. airicelandconnect.is/gjafabref Gefðu jólagjöf út í loftið Terry Gunnell, prófessor í þjóðfræði við Háskóla Íslands, flytur erindi um íslenska jólasiði á Bókasafni Kópa- vogs í dag kl. 12.15. Bakgrunnur og þróun jólasiða á Íslandi frá upphafi verður meðal efnis í erindi Terrys en hann mun einnig segja frá Grýlu, jólasveinunum, jólakettinum og jóla- mat í alþjóðlegu samhengi. Aðgang- ur er ókeypis. Terry Gunnell fjallar um íslenska jólasiði MIÐVIKUDAGUR 5. DESEMBER 339. DAGUR ÁRSINS 2018 Sími: 569 1100 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is Í lausasölu 641 kr. Áskrift 6.960 kr. Helgaráskrift 4.346 kr. PDF á mbl.is 6.173 kr. iPad-áskrift 6.173 kr. Keflvíkingurinn Brittany Dinkins var besti leikmaður Dominos- deildar kvenna í körfuknattleik í nóvember, að mati Morgunblaðsins, og er í úrvalsliði blaðsins annan mánuðinn í röð. „Hún er frábær leikmaður sem gerir alla í kringum sig betri,“ segir samherji hennar Bryndís Guðmundsdóttir, sem einn- ig er í úrvalsliðinu. »2-3 Hún gerir alla í kringum sig betri ÍÞRÓTTIR FÓLK Í FRÉTTUM Magnús Heimir Jónasson mhj@mbl.is Íslenskur afrekshópur í dansi, sem æfir undir stjórn breska danshöf- undarins Chantelle Carey, náði framúrskarandi árangri í viður- kenndu stöðluðu prófi Bresku dans- akademíunnar (e. British Theatre Dance Association). „Nemendurnir náðu frábærum árangri; meira en helmingurinn fékk 90% eða hærra, það sem myndi kallast A-plús, en við köllum það heiðursstjörnu. Svo fékk hinn helm- ingurinn 75% eða hærra, sem er heiðursviðurkenning hjá okkur,“ segir Carey í samtali við Morgun- blaðið. Um er að ræða próf þar sem nemendur þurfa að framkvæma ein- hvers konar sýningaratriði einir á sviði í tvær mínútur, dans, söng eða leik. Prófdómari frá Bresku dans- akademíunni kom hingað til lands til að dæma nemendur en samtökin eru ein af fjórum viðurkenndum í Bretlandi sem mega framkvæma slíkt próf. Um er að ræða við- urkenndan árangur á stöðluðu bresku prófi sem getur nýst nem- endum vel í umsókn um dans- eða leiklistarnám erlendis. Krakkarnir sem tóku þátt í dans- prófinu voru á aldrinum 10 til 18 ára og segir Carey mörg þeirra ætla að nýta árangurinn í annaðhvort háskólaumsóknir eða áheyrnar- prufur í framtíðinni. Frá West End til Íslands Carey hefur verið með annan fót- inn á Íslandi eftir að hún starfaði í kringum Billy Elliot-sýninguna hér- lendis en hún er búsett í Lundúnum. Hefur hún komið fram í fjölda söng- leikja á West End og víða um heim og starfað við listræna stjórnun í söngleikjum. Carey tók síðan að sér að vera aðaldanshöfundur fyrir sýn- ingar hérlendis og hlaut Grímuverð- launin 2017 og 2018 fyrir dans- og sviðshreyfingar í sýningunum Bláa hnettinum og Slá í gegn. „Ég hef unnið mikið með þessum nemendum í þeim sýningum sem ég hef tekið þátt í. Mörg þeirra hafa haldið áfram að æfa hjá mér og síð- an hefur bæst í hópinn. Þau hafa sum aldrei fengið tækfæri til að sýna ein og það sem mig langaði að gera var að láta þau taka þátt í þessu frammistöðuprófi,“ segir Carey. Hún er ekki með skóla hér- lendis heldur sér einungis um þenn- an afrekshóp og kennir þeim allt frá steppdansi yfir í hipphopp og nú- tímadjass. Er þetta ekki í fyrsta skipti sem hópurinn er verðlaunaður en átta ís- lenskar stúlkur úr sama afrekshópi hrósuðu einnig sigri í WLDF- danskeppninni sem haldin var í Dublin á Írlandi í sumar, þar sem um hundrað dansarar voru skráðir til leiks. Morgunblaðið/Hari Verðlaunadanshópur Krakkarnir voru afar ánægðir með heiðursskildina frá Bresku dansakademíunni. Verðlaunuð af Bresku dansakademíunni  Íslenskur afrekshópur í dansi hlaut breska heiðursskildi Fjallað er um 11. umferð Olísdeildar karla í handbolta í blaðinu í dag og birt úrvalslið umferðarinnar. Stjörnumenn hafa sótt hressilega í sig veðrið og urðu m.a. fyrstir til þess að vinna Selfossliðið á keppnistímabilinu síðasta sunnu- dag. Sigurinn sýnir að merkilega mikil seigla virðist vera komin í Stjörnuliðið; nokkuð sem oft hefur vantað í liðið í gegnum tíðina, ekki bara hjá núverandi leikmönnum liðsins. Egill Magnús- son hefur sprungið út og skor- að 72 mörk í níu leikj- um. »2-3 Merkilega mikil seigla í liði Stjörnunnar

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.