Morgunblaðið - 10.12.2018, Side 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 10. DESEMBER 2018
Fjárlög voru afgreidd á föstudagmeð þeim orðum forsætisráð-
herra að þar færu sóknarfjárlög og
átti hún við að verið væri að auka
ríkisútgjöld á ýmsum sviðum.
Oddný G.Harðar-
dóttir, þingmað-
ur Samfylkingar,
tjáði sig einnig
við fjárlaga-
afgreiðsluna og
sagði fjárlögin
svik við ýmsa
hópa, ef ekki vel-
flesta.
Þannig héldu umræðurnaráfram, stjórnarandstaðan
steig í pontu og talaði um svik og
ábyrgðarleysi ríkisstjórnarinnar og
stjórnarliðar risu upp á móti og
töldu enn lengra hafa verið gengið í
uppbyggingarátt í þessum ábyrgu
fjárlögum en lofað hefði verið fyrir
kosningar.
Allt var þetta svo sem nokkuðfyrirsjáanlegt. Því miður var
líka fyrirsjáanlegt að skattgreið-
endur ættu varla nokkurn málsvara
í þessum síðustu umræðum um fjár-
lögin á þingi.
Sá eini sem komst nálægt því varfjármálaráðherrann sem talaði
um að eitthvað hefði verið gert fyr-
ir heimilin í landinu með hækkun
persónuafsláttar. Að auki hefðu
verið lækkaðar „álögur á atvinnu-
starfsemina í landinu með því að
taka 8 milljarða og skila aftur til
fyrirtækjanna.“
Þetta teljast seint stórfelldarskattalækkanir þó að þetta séu
skref í rétta átt. En hvar voru tals-
menn skattgreiðenda í hópi þing-
manna? Hvers vegna heyrist svo
sjaldan og lítið í þeim?
Sóknarfjárlög
eða svikafjárlög?
STAKSTEINAR
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
Á flóði nú í morgunsárið verður gerð
önnur tilraun til þess að draga hol-
lenska flutningaskipið Amber af
strandstað í Hornafjarðarhöfn. Til
þess verður notaður dráttarbáturinn
Björn lóðs og úr höfnum Fjarða-
byggðar er hafnsöguskipið Vöttur
komið á vettvang. Í gærkvöldi var
gerð tilraun til þess að losa um skip-
ið sem gekk ekki, þar sem ekki
flæddi nóg að skipinu til að það losn-
aði af sandbotninum þar sem það
liggur. Vænst er að nú á nýjum degi
gangi betur.
„Skipið liggur á mjúkum og flöt-
um sandbotni. Það eru því sáralitlar
líkur á því að nokkrar skemmdir
hafa orðið, sagði Vignir Júlíusson,
forstöðumaður Hornafjarðarhafnar,
í samtali við Morgunblaðið í gær-
kvöldi. – Um borð í Amber er salt til
fiskvinnslu. Er skipið í reglulegum
ferðum til Hafnar í Hornafirði með
slíkan farm. sbs@mbl.is
Amber áfram fast í
Hornafjarðarhöfn
Ljósmynd/Sverrir Aðalsteinsson
Strand Skipið situr sem fastast á flötum sandbotni skammt frá landi.
„Íslendingarnir stóðu sig sjúklega vel
og Sigurjón Ernir Sturluson lenti í
þriðja sæti í sólarhringshlaupi í elítu-
flokki á Spartan Ultra-heimsmeist-
aramótinu sem haldið var í Hvera-
gerði um helgina,“ segir Ólafía
Kvaran, ambassador Spartan á Ís-
landi, en að hennar sögn hlupu sex Ís-
lendingar sólarhringshlaupið, um 80
Íslendingar tóku þátt í öðrum hlaup-
um og stóðu sig allir mjög vel. Er-
lendir keppendur voru um 900.
Ólafía Kvaran var sjálf fjarri góðu
gamni þar sem hún gat ekki keppt
um helgina vegna meiðsla.
„Ég gerði mitt besta í stuðnings-
mannaliðinu og er stolt af Íslending-
unum sem kepptu en ég hef sjaldan
verið eins spæld að geta ekki keppt,“
segir Ólafía sem telur að keppnin sé
komin til að vera en hún er nú haldin í
annað sinn á Íslandi.
Í Ultra-keppninni er keppt í sólar-
hringshlaupi þar sem keppendur
hlaupa um 10,6 km hring með 25 mis-
munandi þrautum, eftir hvern hring
mega keppendur hvíla sig að hámarki
í eina klst. inni í upphitaða og upp-
blásna knattspyrnuhúsinu í Hvera-
gerði.
„Fæstir hvíla sig í klukkustund,
flestir næra sig, fara í þurr og hrein
föt og halda svo áfram. Til þess að
ljúka keppni þarf keppandi að vera í
brautinni a.m.k. í 15 tíma og ná að
klára fjóra hringi minnst. Allir Ís-
lendingar sem tóku þátt kláruðu sitt.“
Að sögn Ólafíu var veðrið engin
hindrun. Það hafi verið kalt og smá
rok í fyrsta hringnum en þurrt allan
tímann. Fyrir þá sem ekki voru í stuði
að hlaupa, klifra, skríða ofl. í sólar-
hring var hægt að fara einn hring,
sem 80 Íslendingar gerðu og fóru
hringinn á 1 ½ klst. til 3 klst.
„Þetta er alveg ótrúleg landkynn-
ing og hafa Spartan-ljósmyndarar og
kvikmyndagerðarmenn verið dugleg-
ir að mynda og setja á netmiðlana,“
segir Ólafía,
Hljóp 111,21 km á sólarhring
Sigurjón Ernir Sturluson, sem stóð
sig best af íslensku keppendunum,
lenti í 3. sæti í opna Ultra-elítuflokkn-
um. Sigurjón hljóp 10 hringi, samtals
111,21 km, á 21 klst., 19 mínútum og
sex sekúndum. Katrín Sigrún Tómas-
dóttir stóð sig best íslenskra kvenna,
hún lenti í 5. sæti og hljóp 79,34 km á
21 klst. og 24 mínútum.
ge@mbl.is
Íslendingur náði
3. sæti í Spartan
1.000 manns á hlaupum í Hveragerði