Morgunblaðið - 10.12.2018, Side 23

Morgunblaðið - 10.12.2018, Side 23
Árið 1954 fór Hrefna að vinna hjá Fiskmati ríkisins þar sem hún starf- aði til ársins 1961. Þá hafði hún kynnst Kjartani, eiginmanni sínum, og þau voru farin að búa saman. Kjartan rak teiknistofu í 43 ár og teiknaði þúsundir húsa. Árið 1969 hófu þau hjón rekstur á bílaþvottastöð, Bón- og þvottastöð- inni í Sóltúni 3, en stöðina starf- ræktu þau í 37 ár, og stjórnaði Hrefna fyrirtækinu alla tíð ásamt húsmóðurstarfinu: „Þetta var eril- samt starf, ásamt því að hugsa um heimilið. En þetta gekk allt saman prýðilega. Þótt ég segi sjálf frá þótti þetta mjög gott og vinsælt fyrirtæki og sparaði mörgum tíma og fyrir- höfn í gegnum árin, ekki síst fyrir stórhátíðir. Ég hafði gaman af að standa í þessum rekstri, en ég þurfti að fylgj- ast vel með veðurspám því bissnis- inn fór alveg eftir veðráttunni.“ Árið 2006 hættu þau hjón allri at- vinnustarfsemi, enda bæði að nálg- ast áttrætt og kominn tími til að njóta ellinnar eftir annasama ævi. Hrefna var alla ævi hinn mesti dugn- aðarforkur sama hvað hún tók sér fyrir hendur. Þau áttu lengi lítið sumarhús við Langavatn á Hólms- heiði en þar undi Hrefna sér með kettina sína: „Kjartan var nú ekki síður kattavinur en hann hafði mest 24 villiketti í föstu fæði og það var lagt á borð fyrir heimliskettina á jól- um, enda fengu þeir einnig jólarjúp- ur eins og aðrir fjölskyldumeðlimir.“ Hrefna og Kjartan fóru töluvert í laxveiði en þeirra uppáhaldsár voru Norðurá og Laxá í Kjós. Þau bjuggu lengst af á Ægisíðu 98 í Reykjavík en nú býr Hrefna í Seljahlíð, hjúkr- unarheimili í Seljahverfi. Fjölskylda Hrefna giftist 22.12. 1961 Kjartani Sveinssyni, f. 4.9. 1926, d. 27.9. 2014, byggingartæknifræðingi. Foreldrar hans voru Sveinn Jónsson, f. 3.7. 1896, d. 15.9. 1989, kaupfélagsstjóri á Ólafsfirði og síðar starfsmaður Verðlagseftirlitsins í Reykjavík, og k.h. Guðný Pálsdóttir, f. 9.2. 1906, d. 24.1. 1997, húsfreyja á Ólafsfirði en lengst af í Reykjavík. Dætur Hrefnu og Kjartans eru: Álfheiður, f. 23.10. 1963, skrifstofu- maður, búsett í Reykjavík og á hún einn son, Kjartan Guðmundsson f. 2001; Arndís, f. 7.8. 1965, aðstoðar- framkvæmdastjóri, búsett í Reykja- vík, gift Karli Demian frá Líbanon, öryggisráðgjafa, en þau eiga þrjú börn: Katrínu Hrefnu, f. 1996, Kar- enu Tinnu, f. 1998, og Alexander, f. 2006. Dóttir Hrefnu og Þóris Jónssonar er Sigfríð, f. 23.4. 1953, fyrsti dýra- hjúkrunarfræðingurinn hér á landi, iðnrekstrarfræðingur og stofnandi og eigandi fyrirtækisins Potta- galdra, en hún á einn son, Kristján Hrafn Bergsveinsson, f. 1988. Systir Hrefnu er Erna Emilía, f. 21.12. 1931, húsfreyja í San Franc- isco í Bandaríkjunum, og á hún tvo syni. Foreldrar Hrefnu voru hjónin Emma Sigfríð Einarsdóttir, f. 14.7. 1909, d. 2.12. 2000, og Kristján Guð- mundsson, f. 9.7. 1895, d. 20.11. 1958, símamaður. Úr frændgarði Hrefnu Kristjánsdóttur Hrefna Kristjánsdóttir Guðný Pétursdóttir vinnukona í Vertshúsi í Kolfreyjustaðasókn Friðrik Sörensen beykir í Kaupmannahöfn Emilía F.P. Friðriksdóttir húsfr. á Fáskúðsfirði Emma Sigfríð Einarsdóttir húsfr. í Rvík Einar Ólafur Jónsson skósmiður á Fáskrúðsfirði Elísabet Sigurðardóttir húsfr. í Núpshjáleigu og Sjólyst í Hálsaþinghá, S-Múl. Jón „yngri“ Jónsson skipstj. og b. í Núpshjáleigu Jón Jónsson tómthúsm. og stýrim. í Dúkskoti, fórst með ákarlaskipinu eykjavík 1889 h R Oddur Jónsson afnsögum. í Ráðagerði á eltjarnarnesi h S Þórður V. Oddsson héraðslæknir í Borgarfirði og heimilis- læknir í Rvík Óli H. Þórðarson fv. framkvæmdastjóri Umferðarráðs Erla Jóhanna Þórðardóttir sálfræðingur Erna Emilía Kristjánsdóttir húsfr. í San Fransisco í Bandaríkjunum uðný Elísabet Einarsdóttir húsfr, á Fáskrúðsfirði GHrefna Björnsdóttir verslunarm. í Grindavík Birna Sigurðar- dóttir auglýsinga- stjóri í Rvík Hrafn Sigurðsson fram- kvæmda- stjóri í Rvík Kristín Einardóttir fædd í Sauðanessókn, N-Þing. Jón ,,yngri“ Ögmundsson vinnum. í Desjarmýrarsókn Hólmfríður I. Jónsdóttir húsfr. á Fáskrúðsfirði Guðmundur Jónsson útgerðarm. á Fáskrúðsfirði Sigríður Þorkelsdóttir húsfr. í Dúkskoti Jón Oddsson tómthúsm. í Dúkskoti í Rvík Kristján Guðmundsson verkam. í Rvík Dugnaðarforkurinn Hrefna Krist- jánsdóttir, fv. framkvæmdastjóri. ÍSLENDINGAR 23 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 10. DESEMBER 2018 SVALALOKANIR Svalalokanir frá Glerborg eru nýtískulegar og falla vel að straumum og stefnum nútímahönnunar. Lokunin er auðveld í þrifum þar sem hún opnast inná við. Hægt er að fá brautirnar í hvaða lit sem er. Svalalokun verndar svalirnar fyrir regni, vindi og ryki og eykur hljóðeinangrun og breytir notkun svala í heilsársnotkun. Glerborg Mörkinni 4 108 Reykjavík 565 0000 glerborg@glerborg.is www.glerborg.is 2291árfregalgeps&nupílsrelg,raggulg,relG FÁÐU TILBOÐ ÞÉR AÐ KOSTNAÐAR-LAUSU Lárus Björnsson fæddist 10.desember 1889 á Réttarhóli íForsæludalskvíslum, A-Hún. Foreldrar hans voru Björn Ey- steinsson, f. 1849, d. 1939 bóndi þar en lengst af í Grímstungu og seinni kona hans, Helga Sigríður Sigur- geirsdóttir, f. 1860, d. 1906. Fjölskyldan fluttist árið 1899 að Grímstungu og varð Lárusi það snemma ljóst að þar vildi hann búa. Grímstunga er stór jörð og landmikil inn til heiðalandanna, Lárus tók við búskapnum árið 1910, fyrst ásamt bróður sínum, Þorsteini, en einn frá 1913. Hann rak eitt stærsta fjárbú á landinu og átti og rak þrjár aðrar jarðir, þó ekki samtímis. Lárus lét til sín taka í sveitar- stjórnarmálum og sat í hreppsnefnd og skólanefnd. Hann sat í stjórn Búnaðarfélags Áshrepps og var heiðursfélagi þar. Hann var refa- skytta í meira en 60 ár. Um Lárus segir í minningargrein: „Hann var mikið náttúrubarn, heiðasækinn, veiðimaður, hestamað- ur, kunni ógrynni af ferskeytlum og tildrögum þeirra. Kvæðamaður var hann góður og raddsterkur.“ Var Lárus þjóðsagnapersóna í lifanda lífi. Lárus kvæntist árið 1915 Péturínu Björgu Jóhannsdóttur, f. í Hvammi í Vatnsdal 22.8. 1896, d. 23.7. 1985. Börn þeirra voru Helga Sigríður, f. 1916, d. 1920; Björn Jakob, f. 1918, d. 2006, lengst af bóndi á Auðunar- stöðum í Víðidal; Helgi Sigurður, f. 1920, d. 1939; Helga Sigríður, f. 1922, d. 2016, húsfreyja í Þóromstungu í Vatnsdal, síðar verkakona á Blöndu- ósi; Ragnar Jóhann, f. 1924, d. 2016, verkstjóri í Kópavogi; Grímur Heið- land, f. 1926, d. 1995, bóndi í Gríms- tungu, síðar vaktmaður í Reykjavík; Kristín Ingibjörg, f. 1931, d. 2016, húsfreyja á Bakka í Vatnsdal; Egg- ert Egill fæddur 1934, d. 2007, bæjarverkstjóri á Seyðisfirði. Árið 1981 komu út æviminningar Lárusar sem Gylfi Ásmundsson tók saman. Lárus Björnsson lést 27.5. 1987. Merkir Íslendingar Lárus Björnsson 90 ára Emma Benediktsson Hrefna Kristjánsdóttir 85 ára Anne H. Jóhannsdóttir Kristín Jónsdóttir Snorri Friðriksson 80 ára Esther Valdimarsdóttir Gréta Aðalsteinsdóttir Guðný Helgadóttir Marinó Jóhannsson Þórunn Sólveig Einarsdóttir 75 ára Fanney Björk Björnsdóttir Halldóra Gróa Guðmundsd. Kolbrún Ragnarsdóttir Rögnvaldur Ólafsson 70 ára Áslaug Jónsdóttir Ásta Sylvía Rönning Dominique Pledel Jónsson Elín Bergljót Björgvinsd. Hörður Stefán Harðar Rúnar Halldórsson Svanhildur Einarsdóttir 60 ára Edward Richard Jaferian Einar Hörður Sigurðsson Finnbogi Kristjánsson Friðbjörn Björnsson Gerhild Hammer Guðmundur Guðmundsson Halldóra Viðarsdóttir Hanna Halldóra Karlsdóttir Haraldur Helgason Harpa Katrín Sigurðardóttir Hjálmar Sveinsson Iðunn Árnadóttir Jóna Margrét Guðmundsd. Kjartan Sveinn Guðjónsson Kristján Þ. Kristinsson Lára Björnsdóttir Margrét Stefánsdóttir Ólafur Tryggvi Egilsson Rannveig Runólfsdóttir Steinunn Lindbergsdóttir Valdimar Örn Ásgeirsson 50 ára Adela Halldórsdóttir Ásgerður Kristín Gylfadóttir Gunnar Rúnar Erlingsson Herbert Sizemore Laufey Guðmundsdóttir Magnús Ívar Guðfinnsson Magnús Þorsteinsson Ólafur Tryggvi Kristjánsson Snjezana Pjevic Sverrir Magnússon 40 ára Aðalheiður Ó. Guðmundsd. Ágústa Inga Hannesdóttir Dagmar Dögg Þorsteinsd. Ekaterina Shvetsova Gissur Þórhallsson Halldór Arnar Karlsson Linda Ósk Svansdóttir Mindaugas Damasevicius Oanh Tuyet Thi Ly Patrícia Garcés Da Costa Pálmi Ívar Jóngeirsson Snorri Snorrason Steinar Örn Indriðason Sölvi Tryggvason 30 ára Ásgeir Thor Johnson Berglind Tess ÓCallaghan Berglind Þrastardóttir Hildur Ýrr Aðalgeirsdóttir Jón Sindri Jónsson Jón Þór Arngrímsson Krzysztof Galan Leo Parel Alquizalas Louise Steffensen Schmidt Þorbjörg Erna Snorradóttir Til hamingju með daginn 40 ára Ekaterina er frá Yoshkarola í Rússlandi en fluttist til Íslands árið 2014 og hefur alltaf búið í Stykkishólmi. Hún er sölumaður í Vínbúðinni þar. Maki: Krzysztof Kowalski, f. 1976, frá Póllandi og vinnur hjá BB og sonum. Bæði Ekaterina og Krzysztof eru íslenskir ríkisborgarar. Börn: Ksenia Lilja, f. 2008, og Kira Íris, f. 2014. Ekaterina Shvetsova 40 ára Aðalheiður er Reykvíkingur en býr í Kópavogi. Hún er vöru- stjóri dagsferða hjá Kynn- isferðum og er viðskiptafr. með meistarapróf í ný- sköpun og viðskiptaþróun. Systkini: Vigdís, f. 1977, Lára, f. 1987, og Melitta, f. 2009. Foreldrar: Guðmundur Þór Þórðarson, f. 1948, uppfinningamaður, Vigdís Ósk Sigurjónsdóttir, f. 1954, bús. í Rvík. Aðalheiður Ósk Guðmundsdóttir 30 ára Jón Þór er Dalvík- ingur en býr á Akureyri. Hann er sjómaður á skip- inu Berlín hjá DFFU. Systkini: Bylgja Gunnur, f. 1987, Lísa Rún, f. 1992, Ingi Þór, f. 1995, og Arn- þór Ási, f. 2010. Foreldrar: Arngrímur Jónsson, f. 1960, véla- maður hjá Íslenskum að- alverktökum, bús. í Vog- um á Vatnsleysustr., og Guðný Gunnlaugsdóttir, f. 1964, bús. á Akureyri. Jón Þór Arngrímsson

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.