Morgunblaðið - 10.12.2018, Qupperneq 14
14 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 10. DESEMBER 2018
VARÐANDI
„AVIVA INSURANCE LIMITED“
-og-
VARÐANDI
FRIENDS FIRST LIFE ASSURANCE COMPANY DAC
-og-
VARÐANDI
LÖG UM FJÁRMAGNSÞJÓNUSTU OGMARKAÐI 2000
HÉR MEÐ TILKYNNIST að þann 16. október
2018 lagði Aviva Life & Pensions UK Limited
(áður Norwich Union Life & Pensions Limited)
(„UKLAP“) og Friends First Life Assurance
Company dac (áður Friends Provident Life
Assurance Company Limited og Friends First Life
Assurance Company Limited) („FFLAC“) umsókn
fyrir hjá hæstarétti (Her Majesty’s High Court of
Justice) um skipun samkvæmt hluta VII í lögum
um fjármagnsþjónustu og markaði frá árinu 2000
(„lögin“) til að fá samþykkta áætlun („áætlun“)
um yfirfærslu á: (i) öllum viðskiptum sem tengjast
UKLAP og/eða UKLAP hefur umsjón með gegnum
útibú UKLAP í Belgíu, Frakklandi og Írlandi og (ii)
öðrum tilteknum viðskiptum sem tengjast UKLAP
og/eða UKLAP hefur umsjónmeð sem beint var til
tryggingataka utan Bretlands.
Hægt er að fá afrit af eftirfarandi skjölum
án endurgjalds þar til sett hefur verið fram
tilskipun sem heimilar áætlunina: Skjalið sem
sýnir áætlunina í heild sinni, heildarskýrsla um
skilmála áætlunarinnar sem Tim Roff („óháður
sérfræðingur“,enskipanhansvarsamþykktafPRA
eftir samráð við FSA) vann í samræmi við kafla 109
í lögunum, samantekt á skýrslu óháðs sérfræðings,
bréf semsendvoru til hagsmunaaðila og
bæklingar tryggingataka með samantekt yfir
áætlunina, ásamt öðrum viðeigandi upplýsingum.
Hafið samband við UKLAP eða FFLAC eins og fram
kemurhér fyrir neðan.
Ráðgerteraðdómariviðdómstólinn„Businessand
Property Court “, Rolls Building, 7 Rolls Buildings,
Fetter Lane, London, EC4A 1NL, taki umsóknina
fyrir hinn 13. febrúar 2019. Ef umsóknin verður
samþykkt mun yfirfærslan taka gildi á gildistíma
(eins og skilgreint er í áætluninni), sem áætlað er
að verði kl. 22:59 (samkvæmt tíma í London) þann
29. mars 2019. Hver sá sem telur að framkvæmd
áætlunarinnar gangi gegn hagsmunum sínum
hefur rétt á að andmæla áætluninni við
fyrirtökuna. Farið er fram á að hver sá sem telur
að yfirfærslan gangi gegn hagsmunum sínum
veiti rökstuðning þess efnis og láti vita skriflega
eða símleiðis með að minnsta kosti fimm daga
fyrirvara ef viðkomandi hyggst vera viðstaddur
fyrirtökuna. Upplýsingar um pósthólf sem útbúið
var í þeim tilgangi, sem og símanúmer, má finna
hér fyrir neðan. Hver sá sem telur að framkvæmd
áætlunarinnar gangi gegn hagsmunum sínummá
vera viðstaddur fyrirtökuna í eigin persónu eða
senda lögmann fyrir sína hönd.
Póstfang: Aviva Transfer Mailing (BAU J)
Customer Services Department
PO Box 3661
NORWICH
NR1 3JF
Símanúmer: +44 (0) 1603 606388
Vefsíða: https://transfer.aviva.com/life
Samskiptaupplýsingar UKLAP:
Póstfang: Customer Services Department
(Transfer Mailing)
Friends First House
Cherrywood Business Park,
Loughlinstown
Dublin 18, Ireland
Símanúmer: +44 (0) 1603 606388
Vefsíða: https://transfer.aviva.com/life
10. desember 2018
Gengi Kaup Sala Mið
Dollari 121.32 121.9 121.61
Sterlingspund 154.63 155.39 155.01
Kanadadalur 90.52 91.06 90.79
Dönsk króna 18.462 18.57 18.516
Norsk króna 14.192 14.276 14.234
Sænsk króna 13.44 13.518 13.479
Svissn. franki 121.98 122.66 122.32
Japanskt jen 1.0746 1.0808 1.0777
SDR 167.9 168.9 168.4
Evra 137.81 138.59 138.2
Meðalgengi/Viðskiptavog þröng 169.8742
Hrávöruverð
Gull 1236.45 ($/únsa)
Ál 1943.0 ($/tonn) LME
Hráolía 60.25 ($/fatið) Brent
● Matsfyrirtækin S&P Golobal og Fitch
Ratings staðfestu bæði á föstudagskvöld
óbreytta lánshæfiseinkunn ríkissjóðs Ís-
lands. Fitch gefur langtímaskuldum ríkis-
sjóðs í erlendum gjaldmiðli einkunnina A
með stöðugum horfum en S&P Global
gefur einkunnina A/A-1 fyrir langtíma- og
skammtímaskuldbindingar í erlendum og
innlendum gjaldmiðli, einnig með stöð-
ugum horfum.
Segir S&P Global að ytri staða og ríkis-
fjármál hafi styrkst á undanförnum árum
en smæð og samþjöppun íslenska hag-
kerfisins geri það viðkvæmara fyrir ytri
þáttum og mögulegri ofhitnun vegna innri
þátta. Fitch segir lánshæfiseinkunnina
endurspegla háar þjóðartekjur, gott við-
skiptaumhverfi og sterkar stofnanir, en að
hagkerfið sé mjög háð hrávöruútflutningi
og næmt fyrir ytri áföllum. ai@mbl.is
Lánshæfismat óbreytt
STUTT
FRÉTTASKÝRING
Ásgeir Ingvarsson
ai@mbl.is
Vikulækkun helstu hlutabréfavísi-
talna Bandaríkjanna í síðustu viku
var sú mesta síðan í mars. Eru það
einkum hlutabréf net- og tæknifyr-
irtækja sem hafa verið á niðurleið og
er þróunin m.a. rakin til áhyggja
fjárfesta af spennu í samskiptum
Bandaríkjanna og Kína og óvissu um
mögulega hækkun stýrivaxta síðar í
þessum mánuði.
Huawei-málið skemmir fyrir
Greina mátti merki um bjartsýni í
byrjun vikunnar, eftir að bráða-
birgðasamkomulag náðist á milli
leiðtoga Bandaríkjanna og Kína um
að gera vopnahlé í tollastríði land-
anna, en taugaveiklunin virðist hafa
náð yfirhöndinni þegar fréttist að
stjórnvöld í Kanada hefðu, að beiðni
Bandaríkjastjórnar, handtekið
fjármálastjóra kínverska fjarskipta-
tæknirisans Huawei þar sem hún var
í heimsókn í Vancouver. Stafar hand-
takan af grunsemdum um að Huawei
hafi brotið gegn viðskiptabanni sem
Bandaríkin og Evrópuþjóðir lögðu á
Íran.
Óttast fjárfestar að handtakan
torveldi tolla- og viðskiptaviðræður
Bandaríkjanna og Kína en löndin
sammæltust um 90 daga samnings-
tímabil þar sem leysa á úr ýmsum
deilum. Takist samningar ekki fyrir
þann tíma má vænta þess að ríkis-
stjórn Donalds Trumps hækki tolla á
kínverskan innflutning enn meira en
hún hefur nú þegar gert.
Þá hafa stjórnendur bandarískra
fyrirtækja áhyggjur af að kínversk
stjórnvöld freistist til að gjalda líku
líkt með því að handtaka fulltrúa
bandarísks fyrirtækis. Segir Reu-
ters að mörg bandarísk fyrirtæki
vilji hafa allan vara á; þau muni forð-
ast að senda starfsmenn til Kína
nema brýna nauðsyn beri til, og láta
fundi með kínverskum samstarfsað-
ilum fara fram í öðrum löndum sé
þess kostur.
Dow Jones-vísitalan lækkaði um
2,24% á föstudag, og 4,5% yfir vik-
una og S&P 500 lækkaði um 2,33% á
föstudag en 4,6% yfir vikuna. Mest
lækkaði Nasdaq-vísitalan: 3,05% í
viðskiptum föstudagsins og 4,9% yfir
vikuna.
Markaðsgreinendur segja þró-
unina undanfarið gefa tilefni til að
vænta þess að hlutabréfaverð haldi
áfram að lækka á næstunni en að
markaðurinn rétti svo úr kútnum áð-
ur en langt um líður.
Erfið vika að baki á Wall Street
AFP
Tap Það er orðið jólalegt í kauphöllinni í New York en óvíst hvort þar eru margir í jólaskapi eftir síðustu viku.
Handtaka fjármálastjóra Huawei veldur titringi Bandarísk fyrirtæki líkleg
til að forðast að senda starfsmenn til Kína á næstunni Nasdaq lækkaði mest
Bandaríska skutlfyrirtækið Uber
hefur hafið undirbúning skráningar
á hlutabréfamarkað. Reuters grein-
ir frá þessu og segir að Uber hafi
skilað inn fyrstu útboðsgögnum á
fimmtudag. Athygli vekur að Lyft,
helsti keppinautur Uber, tilkynnti
sama dag að fyrirtækið hefði sótt
um skráningu.
Verði af frumútboði Uber og
Lyft á næsta ári gæti það reynst
mikil lyftistöng fyrir bandarískan
hlutabréfamarkað en Wall Street
Journal segir Lyft stefna að skrán-
ingu í mars eða apríl næstkomandi.
Er von á að af skráningu Uber
verði um svipað leyti.
Að sögn Reuters var Uber metið
á 76 milljarða dala í síðustu fjár-
mögnunarlotu og gæti félagið
reynst allt að 120 milljarða dala
virði í frumútboði.
Uber hefur mjög sterka stöðu á
fjölda markaða en hægt hefur á
vexti fyrirtækisins að undanförnu
og var það rekið með ríflega eins
milljarðs dala tapi á síðasta árs-
fjórðungi. Þá hefur gustað um fé-
lagið, m.a. vegna árekstra við
stjórnvöld í mörgum borgum, og
vegna uppátækja Travis Kalanick,
stofnanda og fyrrverandi stjórn-
anda fyrirtækisins, en hann rétti
Dara Khosrowshahi stjórnartaum-
ana fyrir rösku ári og hefur meiri
friður ríkt síðan þá.
Félagið heldur áfram að þróa
nýjar vörur og kynnti t.d. í síðustu
viku til sögunnar Uber-strætis-
vagnaþjónustu í Kaíró. Munu not-
endur í höfuðborg Egyptalands
geta pantað far með smárútu og sér
forrit Uber um að smala saman í
eina rútu fólki sem er á sömu leið
með það fyrir augum að fækka
stoppum og aka farþegum rakleiðis
þangað sem þeir þurfa að komast .
ai@mbl.is
AFP
Veldi Uber verður tíu ára á næsta ári en er þegar orðið að risafyrirtæki.
Uber á leiðinni á
hlutabréfamarkað
Gæti verið um 120 milljarða dala virði