Morgunblaðið - 10.12.2018, Síða 32
Laugavegi 178 | 105 Reykjavík | Sími 551 3366
Opið virka daga kl. 10-18, laugardaga kl. 10-14
Misty
Perúsk bómull (peruvian pima
cotton) á engan sinn líka þegar
kemur að mýkt og endingu.
- Sérstaklega góð fyrir
viðkvæma húð
- Mjög endingagóð
- Hnökrar ekki
50%
perúsk bómull
og 50%
módal
Bolur með blúndu 6.990 kr.
Buxur með blúndu 7.990 kr.
Skyrta 7.990 kr.
Buxur 6.990 kr.
Náttfötí jólapakkann
Opið laugardaginn 15. des. til kl. 18
Tónlist Jórunnar
Viðar við Síðasta
bæinn í dalnum
eftir Óskar Gísla-
son er fyrsta kvik-
myndatónlistin
sem samin var á
Íslandi við mynd í
fullri lengd. Í til-
efni af aldar-
afmæli Jórunnar verður myndin
sýnd í Eldborg Hörpu annað kvöld,
þriðjudag, kl. 19.30 við lifandi
hljóðfæraleik Sinfóníuhljómsveitar
Íslands undir stjórn Bjarna Frí-
manns Bjarnasonar, en um einsöng
sér Hildigunnur Einarsdóttir. Þórð-
ur Magnússon tónskáld skrif-
aði tónlistina upp eftir mynd-
inni og útbjó til flutnings.
Síðasti bærinn í daln-
um í Eldborg Hörpu
MÁNUDAGUR 10. DESEMBER 344. DAGUR ÁRSINS 2018
Sími: 569 1100
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is
Í lausasölu 641 kr.
Áskrift 6.960 kr. Helgaráskrift 4.346 kr.
PDF á mbl.is 6.173 kr. iPad-áskrift 6.173 kr.
Heimir Hallgrímsson verður kynnt-
ur til leiks sem nýr þjálfari Al Arabi
á næstunni, hugsanlega þegar í
dag, samkvæmt fréttum í Katar.
Heimir var áhorfandi á leik liðsins í
katörsku „stjörnudeildinni“ um
helgina og sá liðið fagna 3:0-sigri.
Á meðal forvera hans í starfi, ef af
verður, eru Gianfranco Zola og Dan
Petrescu. » 1
Heimir fetar í fótspor
Zola og Petrescu
ÍÞRÓTTIR FÓLK Í FRÉTTUM
Valsmenn eru á toppi Olís-deildar
karla í handbolta fyrir leiki kvölds-
ins, eftir sigur á Fram í gærkvöld,
en Afturelding blandaði sér einnig í
toppbaráttuna með því að stöðva
sigurgöngu Stjörnunnar.
Afturelding er í 5.
sæti en aðeins
þremur stigum á
eftir toppliði
Vals. Á Akur-
eyri verða
gul og blá
jól eftir
sigur KA-
manna í granna-
slag erkifjend-
anna. »4
Valur á toppi en gul og
blá jól á Akureyri
Höskuldur Daði Magnússon
hdm@mbl.is
„Þetta var frábær helgi og við
þurftum meira að segja að bæta
við aukaviðburði,“ segir Sunneva
Háberg Eysturstein, veitingakona í
Þórshöfn í Færeyjum.
Sunneva er framkvæmdastjóri
Bjórkovans og Sirkuss og á fyrr-
nefnda staðnum var haldin kynning
á jólabjórum frá íslenska brugg-
húsinu Borg á dögunum. Brugg-
meistari Borgar flaug út til Fær-
eyja og hitti bjóráhugafólk þar,
sem lét vel af heimsókninni.
Parað við færeyska osta
„Við höfum verið með nokkrar
svona bjórsmakkanir síðustu tvö
árin og núna komu þeir frá Borg
með jólabjórstegundirnar sínar
fjórar. Þeir héldu kynningu og svo
vorum við að leika okkur að því að
para þá við færeyska osta og
súkkulaði auk súkkulaðis frá Om-
nom,“ segir Sunneva.
„Fólk sýnir þessum kynningum
mikinn áhuga og það er alltaf full-
setið. Núna þurftum við að vera
með aukaviðburð fyrir fólkið sem
vinnur í ríkinu. Þau voru með jóla-
partí um kvöldið en vildu koma og
ákváðu því að koma fyrir partíið.
Ég kann að meta það að starfs-
fólkið í ríkinu hafi áhuga og metn-
að til að kynna sér svona vöru. Það
er gott fyrir bjórmenninguna. Þau
eru líka með gott úrval í ríkinu hér
og standa sig vel í að leita að besta
bjórnum.“
Breyttu bjórmenningunni
Sunnevea rekur hinn fornfræga
bar Sirkus og Bjórkovin er á fyrstu
hæðinni í sama húsi. Bjórkovin var
opnaður fyrir tveimur árum og þar
er jafnan hægt að fá bjór frá Borg
og sérvalinn bjór víða að.
„Markmiðið var alltaf meðal ann-
ars að breyta og bæta bjórmenn-
inguna hér og lagt upp með að
vinna sérstaklega að því að kynna
kúnnum okkar nýjan og áhuga-
verðan bjór. Við höfum frá upphafi
unnið mikið með Borg brugghúsi
og það er alltaf gaman að halda
svona viðburði með þeim. Bjór-
umhverfið hefur breyst gríðarlega
síðan við opnuðum. Áhugi og
neysla á handverksbjór hefur auk-
ist mikið og er enn á mikilli upp-
leið. Bjórkovin var fyrsti bjórbar-
inn í Færeyjum og ári síðar var
Mikkeller opnaður. Mikkeller ætl-
aði að breyta bjórmenningunni hér
en við vorum þegar búin að því,“
segir hún í léttum dúr.
Sunneva hefur góð tengsl við Ís-
land eftir að hafa starfað hér á
landi fyrir rúmum áratug. „Ég var
dyravörður á Sirkus í gamla daga
og bjó á Íslandi í tvö ár. Ég var
ekki nema tvítug svo ég lærði mik-
ið og þroskaðist á þessum tíma.
Þetta var mjög skemmtilegt og ég
kynntist mörgum. Það er líka
ástæðan fyrir því að ég fékk að
opna Sirkus hér í Færeyjum. Sirk-
us var lokað árið 2007 á Íslandi en
við opnuðum hann aftur í Fær-
eyjum 2009. Staðurinn færði sig á
annan stað sem þurfti á honum að
halda.“
Íslenska jólabjórnum
vel tekið í Færeyjum
Ljósmynd/Finnur Justinussen
Vertinn Sunneva Eysturstein rekur Bjórkovan og Sirkus í Þórshöfn.
Sunneva Háberg rekur Bjórkovan Var dyravörður á Sirkus
Ljósmynd/Ditte M. Joensen
Kynning Vel var tekið í kynningu á bjór Borgar brugghúss á dögunum.