Fréttablaðið - 11.03.2019, Qupperneq 2
Veður
Áfram dálítil él austan til en
rigning eða slydda sunnan til og
þurrt norðan- og vestanlands.
SJÁ SÍÐU 16
Aðalfundur landsamtakanna Spítalinn okkar
verður haldinn þriðjudaginn
12. mars 2019 kl. 16.00 á Icelandair Hótel Natura Víkingasal 7.
Dagskrá aðalfundar
1. Kosning fundarstjóra og fundarritara
2. Skýrsla stjórnar lögð fram
3. Reikningar lagðir fram til samþykktar
4. Lagabreytingar
5. Ákvörðun félagsgjalds
6. Kosning stjórnar og tveggja skoðunarmanna reikninga
7. Önnur mál.
Gestur fundarins verður
Henrik Eriksen framkvæmdastjóri nýbygginga
við Ríkisspítalann í Kaupmannahöfn.
Hann flytur erindi um byggingaverkefnið, áskoranir,
lærdóm sem draga má af framkvæmdunum.
Stjórnin.
AÐALFUNDUR
Það var fullt út fyrir dyrum á Laugardalsvelli frá morgni til kvölds í gær þar sem lokadagur Bókamarkaðarins fór fram. Þúsundir titla leituðu að
eigendum og bókaþjóðin svaraði kallinu í leit að bókstaf legum reyfarakaupum. Bókaþjóðin hefur nóg að lesa næstu daga. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK
K JARAMÁL Talningu í atkvæða-
greiðslu um verkföll hjá tilteknum
hópum félagsmanna í Ef lingu
lauk um hádegi í gær. Félagsmenn
Eflingar samþykktu með yfirgnæf-
andi meirihluta greiddra atkvæða
boðun verkfalla meðal starfsfólks á
hótelum, í rútufyrirtækjum og hjá
Almenningsvögnum Kynnisferða,
en þetta kemur fram í tilkynningu
frá Eflingu.
Af 1.263 greiddum atkvæðum í
öllum 7 atkvæðagreiðslunum voru
1.127 sem samþykktu boðanir, 103
greiddu atkvæði gegn og 33 tóku
ekki afstöðu. Um 92 prósent þeirra
sem afstöðu tóku samþykktu því
verkfallsboðanirnar þegar allar
atkvæðagreiðslurnar eru lagðar
saman.
Á kjörskrá voru samtals 1.710 ein-
staklingar. Heildarkjörsókn nam
um 35 prósentum og náði í öllum
tilfellum 20 prósenta lágmarks
þátttökuþröskuldi, að því er fram
kemur í tilkynningunni.
Sólveig Anna Jónsdóttir, formað-
ur Eflingar, segir niðurstöðuna ekki
koma á óvart.
„Við erum afar ánægð með þátt-
töku og framkvæmd atkvæða-
greiðslunnar. Félagsmenn okkar
eru á einu máli um að aðgerða sé
þörf. Kröfur okkar eru sanngjarnar
og félagsmenn eru tilbúnir að fylgja
þeim eftir af krafti.“
Verk fa llsboðanir verða nú
afhentar Samtökum atvinnulífsins
og Ríkissáttasemjara. – oæg
92 prósent
vilja verkfall
Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður
Eflingar. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK
UM HVE RFISM ÁL Fossvogsskóla
verður lokað eftir að skóladegi
lýkur á miðvikudag. Farið verður
í framkvæmdir vegna umfangs-
mikilla skemmda af völdum lang-
varandi leka. Fram kemur í til-
kynningu frá Reykjavíkurborg að
um sé að ræða varúðarráðstöfun
á meðan gerðar verða endurbætur
vegna loftgæðavandamáls. Kennsla
fellur niður á fimmtudag og föstu-
dag.
Tólf vikur eru eftir af skólaárinu
og er nú unnið að því að finna pláss
fyrir alla 352 nemendur skólans.
Fjórði bekkur verður í lausum
kennslustofum á lóðinni, reynt er
að finna húsnæði í Fossvogi fyrir
yngri börnin en ekki er hægt að
útiloka að útvega þurfi skólaakstur
fyrir eldri nemendur. Búist er við
því að opna skólann aftur í haust.
„Þetta er aðeins gert til að f lýta
fyrir framkvæmdum. Sumarið
mun ekki duga í að gera allt,“ segir
Helgi Grímsson, sviðsstjóri skóla-
og frístundasviðs Reykjavíkur-
borgar, í samtali við Fréttablaðið.
Bæði starfsfólk og nemendur
hafa kvartað undan einkennum af
völdum myglu. Helgi segir að lokun
skólans á þessum tímapunkti sé
ekki vegna þess að nemendur séu
að veikjast. „Það er mismunandi
hvort fólk f innur einkenni eða
ekki. Þetta er gert til að hægt sé að
vaða í verkið og þá er langbest að
nemendur séu ekki í húsnæðinu.“
Í minnisblaði Verkís segir að þörf
sé á að sótthreinsa vesturbyggingu
skólans. Gamalt ryk eigi leið inn í
kennslustofur, þar að auki séu leka-
skemmdir.
Skipta þarf um þak á miðbygg-
ingunni vegna leka. Í austurbygg-
ingunni hefur lekið með fram
gluggum og þarf því að fjarlægja
klæðningu og skemmdir.
Í reglubundnu eftirliti heilbrigðis-
eftirlitsins síðasta haust voru engar
athugasemdir gerðar við hús-
næðið. Í september gerði Mannvit
úttekt á hluta húsnæðisins og voru
sýni send á Náttúrufræðistofnun
Íslands. Sveppagró fundust í þrem-
ur kennslustofum af fjórum ásamt
leifum smádýra sem eru merki þess
að sveppavöxt megi finna í umhverf-
inu. Í niðurstöðum Mannvits sagði
að ekki væri hægt að fullyrða um
rakaskemmdir í húsnæðinu.
Helgi segir að túlkunin í skýrslu
Mannvits hafi ekki verið nógu mark-
viss en skýrslan hafi þó orðið til þess
að byrjað var á afmörkuðum fram-
kvæmdum í skólanum. „Auðvitað
hefði verið betra að hafa þetta allt
fyrr, en maður spólar ekki aftur á
bak.“ arib@frettabladid.is
Mörg hundruð nemar
flýja myglaðar stofur
Fossvogsskóla verður lokað á miðvikudag. Leitað er nú að húsnæði fyrir
meira en 300 nemendur. Sviðsstjóri skóla- og frístundasviðs segir best að
nemendur séu ekki í húsnæðinu á meðan framkvæmdir standa yfir.
Nemendur skólans eru á aldrinum 6 til 12 ára. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI
Það er mismunandi
hvort fólk finnur
einkenni eða ekki. Þetta er
gert til að hægt sé að vaða í
verkið og þá er langbest að
nemendur séu ekki í hús-
næðinu.
Helgi Grímsson,
sviðsstjóri skóla-
og frístundasviðs
Reykjavíkurborgar
SAMGÖNGUR Rekstur Faxaf lóa-
hafna sf. skilaði rúmlega 1,7 millj-
arða hagnaði á síðasta ári. Hluta
þess má rekja til sölu lands í Sævar-
höfða fyrir 624 milljónir til Reykja-
víkurborgar. Þetta kemur fram í árs-
reikningi félagsins sem samþykktur
var fyrir helgi.
Hagnaðurinn í fyrra var nærri
þrefalt meiri en árið 2017. Í fjár-
hagsáætlun ársins hafði verið gert
ráð fyrir 727 milljóna hagnaði.
Af ársreikningnum má einnig sjá
að laun til stjórnarmanna og hafn-
arstjóra hafi dregist saman milli ára
um tæp tvö prósent. – jóe
1,7 milljarða
afgangur
Faxaflóahafna
91
°C
3-5
°C
30
°C 43°C
121
°C
Gísli Gíslason,
hafnarstjóri
Faxaflóahafna.
Örtröð á bókamarkaðinum
1 1 . M A R S 2 0 1 9 M Á N U D A G U R2 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
1
1
-0
3
-2
0
1
9
0
4
:3
2
F
B
0
4
0
s
_
P
0
3
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
0
2
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
2
8
7
-D
8
A
C
2
2
8
7
-D
7
7
0
2
2
8
7
-D
6
3
4
2
2
8
7
-D
4
F
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
1
B
F
B
0
4
0
s
_
1
0
_
3
_
2
0
1
9
C
M
Y
K