Víkurfréttir


Víkurfréttir - 21.02.2019, Blaðsíða 16

Víkurfréttir - 21.02.2019, Blaðsíða 16
Krossmóa 4a, 4. hæð, 260 Reykjanesbær Sími: 421 0000 Póstur: vf@vf.is Auglýsingasími: 421 0001 Afgreiðslan er opin virka daga kl. 09:00 - 17:00 facebook.com/vikurfrettirehf twitter.com/vikurfrettir instagram.com/vikurfrettir MUNDI S T Æ R S T A F R É T T A - O G A U G L Ý S I N G A B L A Ð I Ð Á S U Ð U R N E S J U M Það er ekki alltaf hægt að vera ljónheppinn! Við leitum af kraftmiklum einstaklingum til starfa í verslanir okkar á Keflavíkurflugvelli. Um er að ræða sumarstörf. Nánari upplýsingar veitir Ólöf K. Sveinsdóttir hjá olof@rammagerdin.is umsóknarfrestur er til og með 15. mars 2019 ATVINNA! Njarðvíkingar biðu lægri hlut gegn Stjörnunni í bikarúr- slitum karla í körfubolta í Laugardalshöll á laugardag. Stjarn- an byrjaði betur og eftir að Njarðvík komast yfir 9:6, tóku Garðbæingar völdin og létu aldrei af forystu sinni og höfðu 84:68 sigur. Lykilmenn Njarðvíkinga náðu sér alls ekki á strik í leiknum og voru Garðbæingar öflugri á öllum sviðum. Njarðvíkingar héngu þó lengst af inn í leiknum þrátt fyrir slæma hittni og fáar ferðir á vítalínuna. Njarðvíkingar virtust ætla að hleypa spennu í leikinn undir lok þriðja leikhluta en Stjörnumenn slökktu fljótlega í þeim glæðum og gengu á lagið. Mario Matasovic var nánast sá eini sem sýndi sitt rétta andlit hjá grænklæddum og hélt þeim á floti lengi vel. Elvar Már Friðriksson átti sinn slakasta leik í vetur sóknarlega og hitti úr aðeins 14% skota sinna. Jeb Ivey átti sömuleiðis dapran dag, hitti aðeins úr þremur af tólf skotum sínum. Hvítu ljónin voru áberandi í stúkunni í Laugardalshöllinni en Eyþór Sæmundsson tók meðfylgjandi mynd af græna hafinu á meðan úrslitaleiknum stóð. BIKARBLÚS NJARÐVÍKINGA

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.