Víkurfréttir - 21.02.2019, Blaðsíða 13
13UMRÆÐAN Á SUÐURNESJUM f immtudagur 21. febrúar 2019 // 8. tbl. // 40. árg.
Við skulum fylgjast spennt með
Það hefur verið nánast árviss viðburður undanfarinn áratug að óánægja
sé látin í ljós þegar kemur að fjárveitingum ríkisins til þeirra málaflokka
sem ríkinu er ætlað að sinna á Suðurnesjum. Sú óánægja hefur að mestu
gengið út á að svo virðist vera sem reiknilíkan ráðuneytanna séu óháð
tíma og rúmi þar sem ekkert tillit er tekið til þeirra öru breytinga sem hér
eiga sér stað. Hvergi á landinu öllu hefur íbúafjöldi aukist meira en hér á
Suðurnesjum. Ráðuneytin virðast þó föst í því fari að engin ástæða sé til
breytinga reiknilíkana sinna. Þetta hefur gengið hingað til og hlýtur því
að ganga svona áfram.
Reiknilíkan
ráðuneytanna
Öllum er ljóst að leiðrétt-
ingar er þörf. Þingmenn
okkar og sveitarstjórnir
hafa eftir bestu getu vakið
máls á stöðunni en án ár-
angurs. „Computer says no,“
þegar kemur að líflausum
reiknilíkönunum. Þau eru
enn forrituð á þeim forsendum sem
þeim voru gefnar í upphafi, fjar-
lægðum frá Reykjavík, hæð fjallvega
og öðru í þeim dúr. Þau gera hins
vegar ekki ráð fyrir að lífið haldi
áfram eða að forsendur kunni að
breytast. Að fólkinu kunni að fjölga
sem nýta þurfi sér þjónustuna.
Óbreytt framlög
Við heyrum reglulega í ráðherrum
þeim sem með fjárveitingar til mála-
flokkanna fara svara gagnrýnis-
röddum eitthvað á þá leið að gagn-
rýnin eigi bara alls ekki rétt sér. Víst
sé aukning hvað framlögin varða. Sem
er að vissu leyti rétt en sú aukning
hefur því miður aðeins mætt verðlags-
hækkunum, auknum launakostnaði
og hækkaðri húsaleigu í mörgum
tilfellum reiknuðum af ríkinu sjálfu.
Eftir situr að raunframlög ríkisins til
þeirra málaflokka sem þeim er ætlað
að sinna á Suðurnesjum hafa lítið sem
ekkert hækkað á meðan íbúum hefur
fjölgað um hátt í 40% frá árinu 2006.
Fordæmalaus fólksfjölgun kallar á
aukna þjónustu og þar þýðir lítið fyrir
ráðuneyti og valdamenn að syngja
stöðugt sama sönginn um að Suður-
nesjamenn hafi völlinn. Þær tekjur
sem þaðan koma eru og verða ekki
eyrnamerktar til að standa undir
heilbrigðisþjónustu, löggæslu og
menntun. Þeim fjárveitingum er
ætlaður staður í fjárlögum þar sem
allir íbúar þessa lands eiga að njóta
sama réttar og sömu þjónustu. Öll
borgum við jafnt hlutfall skatta af
tekjum okkar til að standa straum af
sameiginlegum kostnaði, sama hvar
á landinu við búum.
Ábyrgð og virðing
þingmanna
Alþingi Íslendinga er æðsta
stofnun landsins. Vald al-
þingismanna er mikið, þar
geta þeir haft áhrif á jafnvel
dauðustu tölvukerfi, vilji
þeir það viðhafa. Það er á
ábyrgð þingmanna Suður-
kjördæmis að íbúum á
Suðurnesjum séu tryggðar fjárveit-
ingar til jafns við aðra íbúa þessa
lands. En til þess að breyta þá þurfa
menn að þora. Það eru þingmenn
okkar sem geta breytt stöðunni og
það geta þeir gert strax við afgreiðslu
næstu fjárlaga.
Það er í höndum okkar, kjósenda,
að veita öllum þingmönnum Suður-
kjördæmis aðhald. Hjálpa þeim að
öðlast þá virðingu gagnvart öðrum
þingmönnum, þannig að menn láti
sér ekki detta í hug að við afgreiðslu
næstu fjárlaga verði hagsmunir opin-
berrar þjónustu á Suðurnesjum fyrir
borð bornir, enn á ný. Við skulum
standa saman.
Við skulum fylgjast spennt með
Það er kominn tími til að við krefj-
umst þess að árangur náist í þessu
sjálfsagða baráttumáli. Að við sitjum
við sama borð og aðrir landsmenn.
Þingmenn okkar þurfa að sameinast
í baráttunni. Það gera þeir best með
því að að láta það berast tímanlega að
hér eftir verði engin fjárlög samþykkt
af hálfu þeirra, nema að tryggt sé að
fjárveitingar til stofnanna ríkisins
á Suðurnesjum standi undir þeirri
þjónustu sem þeim er ætlað að sinna.
Aðeins þannig mun viðhorf forritanna
breytast og computer says „Accepted“.
Við skulum fylgjast spennt með hvaða
hagsmuni þingmenn okkar setja í for-
gang við undirbúning og afgreiðslu
næstu fjárlaga.
Með bestu kveðju,
Hannes Friðriksson
Grænt ljós, gult ljós, rautt ljós
Við erum stödd í Keflavík árið 1998. Átta ungmenni (þrír bílstjórar)
leggja bílum sínum í brekku ofan við gatnamót, sem mynda kross. Á
þessum tíma voru japanskir sportbílar vinsælir: Toyota Twincam, Celica,
Honda CRX og fleiri tegundir sem ég man ekki í svipinn en það kæmi
mér ekki á óvart að þessir bílar væru enn á götunni. Parið í bílnum sem
er fyrst í röðinni hafði verið saman í mörg ár, þrátt fyrir ungan aldur.
Þau komu frá erfiðum heimilum og fátækt og ég man að þau deildu
saman samloku í bílnum (en samt sem áður áttu þau alltaf sígarettur).
Í öðrum bílnum er par
sem er nýbyrjað saman
og reykja eitrað tóbak
úr gosflösku með beygl-
uðum enda. Ég er í þriðja
bílnum ásamt þremur
öðrum sem ég þekki lítið,
nema stelpu sem ég var
að hitta. Þau reykja líka
öll úr beygluðum gos-
flöskum, með álpappír og hlusta á
hávært þungarokk.
Ég heyri varla í sjálfum mér hugsa
og set höndina mína hikandi á hún-
inn á afturhurðinni en er hræddur
um hvað þeim muni finnast ef ég læt
mig hverfa. Ég veit hvað er að fara
að gerast. Þau stunda þetta, þegar
fáir eru á ferli. Þennan leik kölluðu
þau Grænt ljós, gult ljós, rautt ljós.
Vinkona mín sem situr við hliðina
á mér fær skilaboð í símann sinn,
hlær og sýnir mér það sem stendur.
Skilaboðið er frá parinu í fremsta
bílnum. Ég sé að fremsti bíllinn er
settur í gang og reykmökkurinn
umlykur allan bílinn er hann þenur
vélina í botn og hávaðinn
eftir því.
Umferðaljósin í um 100
metra fjarlægð eru gul
og verða fljótlega græn
og bíllinn rýkur af stað.
Grænt og bíllinn kominn
hálfa leið, gult og bílinn
nálgast og verður svo
rautt – og græn Celican
flýgur yfir gatnamótin (á rauðu
ljósi) á öllum sínum 150 hestöflum.
Seinni bílinn fer af stað; grænt, gult,
rautt og hann flýgur yfir á eldrauðu
og beina leið niður á Hafnargötu.
Bílstjórinn okkar klárar síðasta
smókinn og hendir sígarettunni út
um gluggann og setur upp rúðuna.
Ég ákveð að opna og fara út en hurðin
er læst. Ég tek úr lás í flýti og fer út
úr bílnum. Stelpan sem ég var að
hitta skrúfar niður rúðuna og kallar
„Aumingi“ og bíllinn rýkur af stað.
Grænt, gult, rautt.
Guðmundur Magnússon
Aðstoðarleikskólastjóri
Tjarnarseli
Reykjanesbær auglýsir starf aðstoðarleikskólastjóra við leikskólann Tjarnarsel laust til
umsóknar frá og með 1. ágúst 2019.
Tjarnarsel er fjögurra deilda leikskóli með 80 börn staðsettur í hjarta bæjarins. Í Tjarnarseli
er lögð áhersla á útinám í náttúrulegum garði leikskólans og vettvangsferðir um nánasta
umhverfi hans. Einnig er lögð rækt við mál og læsi með áherslu á að efla orðaforða barna í
gegnum leik og starf.
Tjarnarsel er þátttakandi í verkefninu Heilsueflandi leikskóli á vegum Landslæknisembættis
Íslands. Skólinn tekur jafnframt þátt í samstarfsverkefnum með öðrum leik- og grunnskólum
hérlendis og erlendis í gegnum Erasmus+ og eTwinning. Leikskólinn hefur fimm sinnum tekið
við Grænfána viðurkenningu Landverndar.
Helstu verkefni
• Er aðstoðarmaður leikskólastjóra og ber
ásamt honum ábyrgð á rekstri leikskólans
• Er staðgengill í fjarveru leikskólastjóra og
starfar þá samkvæmt starfslýsingu hans
• Vinnur ásamt leikskólastjóra að daglegri
stjórnun leikskólans og skipulagningu
uppeldisstarfsins
• Sinnir að öðru leyti þeim verkefnum er
varðar stjórnun leikskólans sem yfirmaður
felur honum
Menntunar- og hæfniskröfur
• Leikskólakennaramenntun
• Reynsla af stjórnun æskileg
• Sjálfstæði í vinnubrögðum og góð
samskiptahæfni
• Forystuhæfileikar og góð færni í
mannlegum samskiptum
• Gott vald á íslenskri tungu
• Góð tölvukunnátta
Umsóknarfrestur er til 27. febrúar 2019.
Áhugasamir einstaklingar, án tillits til kyns, eru hvattir til að sækja um.
Umsókninni fylgi starfsferilskrá ásamt kynningarbréfi þar sem gerð er grein fyrir ástæðu
umsóknar og rökstuðningur fyrir hæfni viðkomandi í starfið.
Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og Félags stjórnenda
í leikskólum.
Umsækjendur eru beðnir að sækja um rafrænt á ráðningarvef Reykjanesbæjar,
www.reykjanesbaer.is undir Laus störf.
Nánari upplýsingar um starfið veitir Árdís Hrönn Jónsdóttir leikskólastjóri Tjarnarsels,
ardis.h.jonsdottir@tjarnarsel.is
Með erindi verða:
• Atli Kristjánsson, Forstöðumaður markaðs- og samskiptasviðs hjá Bláa Lóninu
• Theodóra Þorsteinsdóttir, verkefnisstjóri hjá Isavia
• Edda Kentish, Hugmyndasmiður og stefnumótunarráðg jafi hjá Hvíta húsinu
• Fundarstjóri er Breki Logason, Framkvæmdastjóri og eigandi Your Day Tours
Jafnframt fer fram afhending viðurkenninga
ferðaþjónustunnar á Reykjanesi 2018.
Fundurinn er öllum opinn og aðgangur ókeypis
en skrá þarf þátttöku á markadsstofareykjaness.is
eða markaðsstofa@visitreykjanes.is.
MARKAÐSSTOFA REYKJANESS OG REYKJANES UNESCO GLOBAL
GEOPARK BJÓÐA TIL MORGUNVERÐARFUNDAR Í HLJÓMAHÖLL
FIMMTUDAGINN 28. FEBRÚAR KL. 8:30-10:30.
ÁFANGASTAÐURINN
REYKJANES - TÆKIFÆRI EÐA TÁLSÝN?
Suðurnesjamagasín
alla fimmtudaga kl. 20:30 á Hringbraut og vf.is