Víkurfréttir - 21.02.2019, Blaðsíða 2
2 FRÉTTIR Á SUÐURNESJUM f immtudagur 21. febrúar 2019 // 8. tbl. // 40. árg.
FINNDU OKKUR Á FACEBOOK
DAGLEGAR FERÐIR ALLA VIRKA DAGA
S U Ð U R N E S - R E Y K J A V Í K
845 0900
FERÐIR Á DAG
ALLTAF PLÁSS
Í BÍLNUM
Útgefandi: Víkurfréttir ehf., kt. 710183-0319 // Afgreiðsla og ritstjórn: Krossmóa 4a,
4. hæð, 260 Reykjanesbæ, sími 421 0000 // Ritstjóri og ábm.: Páll Ketilsson, sími
421 0004, pket@vf.is // Fréttastjóri: Hilmar Bragi Bárðarson, sími 421 0002, hilmar@vf.is
// Blaðamenn: Eyþór Sæmundsson, sími 421 0002, eythor@vf.is // Marta Eiríksdóttir,
sími 421 0002, marta@vf.is // Auglýsingastjóri: Andrea Vigdís Theodórsdóttir, sími
421 0001, andrea@vf.is // Útlit & umbrot: Jóhann Páll Kristbjörnsson, johann@vf.is //
Afgreiðsla: Aldís Jónsdóttir, sími 421 0000, aldis@vf.is, Dóróthea Jónsdóttir, dora@vf.is
// Prentun: Landsprent // Upplag: 9000 eintök // Dreifing: Íslandspóstur // Dagleg
stafræn útgáfa: vf.is og kylfingur.is
Tekið er á móti auglýsingum á póstfangið andrea@vf.is. Auglýsingar berist fyrir kl. 17:00
á mánudegi fyrir útgáfudag, sem er almennt á fimmtudögum. Móttaka smáauglýsinga er
á vf.is. Smáauglýsingar berist fyrir kl. 15:00 á mánudögum. Sé fimmtudagur frídagur þá
kemur blaðið út á miðvikudögum. Dreifing blaðsins tekur að jafnaði tvo daga og er dreift
inn á öll heimili á Suðurnesjum.
Efni til Víkurfrétta skal berast á póstfangið vf@vf.is. Aðsendar greinar birtast á vef Víkur frétta,
vf.is. Það er mat ritstjórnar hvaða greinar birtast í prentaðri útgáfu Víkurfrétta. Ekki er greitt
fyrir aðsent efni, texta eða myndir, hvort sem það birtist í blaðinu eða á vefsíðum Víkurfrétta.
VARAHLUTIR
Í FLESTA BÍLA
Á LAGER FRÁ
OPNUNARTÍMI: MÁNUDAGA TIL FÖSTUDAGA KL. 8–18
Verksmiðjuábyrgð á þínum bíl er tryggð
með vottuðum varahlutum frá Stillingu
Grófin 19, Keflavík
Símar: 456-7600 & 861-7600, bilathjonustan@bilathjonustan.is
Staðsetning nýs gervigrasvallar vestan Reykjaneshallar mun ráðast af því
hvort nýta eigi hann sem æfingavöll eða keppnisvöll. Þá má nýta Reykja-
neshöll betur, að mati Sigurbjörns Boga Jónssonar og Sverris Bollasonar
frá VSÓ. Þeir kynntu nýverið skýrslu um úttekt á fyrrgreindum íþrótta-
mannvirkjum.
Fundur Reykjanesbæjar með for-
svarsmönnum knattspyrnufélaganna
í sveitarfélaginu um úttekt VSÓ á
nýtingu Reykjaneshallar og stað-
setningu nýs gervigrasvallar fór fram
í Akademíunni í janúar. Bæjaryfir-
völd hafa á undanförnum mánuðum
hafið undirbúning að gerð nýs gervi-
grasvallar í Reykjanesbæ. Töluverð
umræða hefur verið um að Reykja-
neshöllin sé fullnýtt á bestu tímum
hallarinnar.
Í framhaldi af þeirri umræðu var
tekin sú ákvörðun að fá óháða aðila
til að gera úttekt á notkuninni. Jafn-
framt að skoða hvar vestan Reykjanes-
hallar sé best að nýr gervigrasvöllur
verði staðsettur.
Sigurbjörn Bogi Jónsson og Sverrir
Bollason frá VSÓ kynntu helstu niður-
stöður skýrslunnar. Þar kemur fram
að nýting á æfinga- og keppnistímum
hallarinnar sé nokkuð góð þó að alltaf
megi gera betur. Að auki kynntu þeir
nokkra valkosti um gerð nýs gervi-
grasvallar vestan Reykjaneshallar.
Skiptir þar miklu máli hvort rætt sé
um æfingavöll eða keppnisvöll, segir
á vef Reykjanesbæjar.
Steinsteypuverðlaunin 2019 voru veitt við hátíðlega athöfn á Steinsteypu-
deginum á Grand Hótel 15. febrúar sl. en þau eru veitt fyrir mannvirki þar
sem saman fer frumleg og vönduð notkun á steinsteypu í manngerðu um-
hverfi. Bláa Lónið Retreat, Hótel og Heilsulind, með áherslu á mynsturvegg,
hlaut verðlaunin að þessu sinni.
Í ár bárust Steinsteypufélagi Ís-
lands alls þrettán tillögur og af þeim
þrettán voru valin fimm mannvirki
til að skoða betur: Ástjarnarkirkja
– Safnaðarheimili, Bláa Lónið Ret-
reat – Hótel og heilsulind – áhersla
á mynsturvegg, Brú í mislægum
vegamótum Reykjanesbrautar og
Krýsuvíkurvegar, Búrfellsstöð II –
Stoðveggur úr vistvænni steypu og
Guðlaug við Langasand á Akranesi.
Að þessu sinni var það Bláa Lónið
Retreat, Hótel og Heilsulind, með
áherslu á mynsturvegg, sem hlaut
verðlaunin. Það er álit dómnefndar
að steinsteypa nýtur sín vel á mörgum
stöðum í byggingunni, að innan sem
utan, og einstaklega vel hafi tekist til
við framkvæmd á mynsturveggnum
sjálfum. Mikil áhersla er á frumleika
og er hönnun og framkvæmd framúr-
skarandi. Eldvörp (Bláa Lónið) er
eigandi verksins. Um hönnun sáu
Basalt Arkitektar og Efla verkfræði-
stofa, framkvæmd var í höndum JÁ-
VERK og steypan í mannvirkið kom
frá Steypustöðinni.
Stjórn Steinsteypufélags Íslands sá
um að velja mannvirkið sem hlaut
Steinsteypuverðlaunin 2019, segir í
frétt á vef Steinsteypufélags Íslands.
Konráð kveður HSS
Kvensjúkdómalæknirinn Konráð Lúðvíksson hefur látið af störfum á
Heilbrigðisstofnun Suðurnesja eftir áratuga starf. Konráð hefur á sínum
langa ferli unnið af mikilli fórnfýsi í þágu samfélagsins á Suðurnesjum,
en hann tók fyrst til starfa á HSS árið 1984. Síðan þá hefur hann starfað
sem sérfræðingur, yfirlæknir og lækningaforstjóri. Á heimasíðu HSS
þakka stjórnendur og starfsfólk Konráði fyrir ómetanlegt starf og óska
honum og fjölskyldu hans velfarnaðar.
Sveitarfélagið Vogar vinnur markvisst að undirbúningi framkvæmda
ársins. Samkvæmt samþykktri fjárhagsáætlun bæjarsjóðs fyrir árið eru
ýmsar framkvæmdir á döfinni, samkvæmt samantekt Ásgeirs Eiríkssonar,
bæjarstjóra sveitarfélagsins.
Framkvæmdir við byggingu nýrrar
þjónustumiðstöðvar sveitarfélagsins
eru þegar hafnar og er jarðvinnan vel
á veg komin. Nú er unnið að gerð út-
boðsgagna fyrir þau verk sem unnin
verða yfir sumarmánuðina. Þar má
t.a.m. nefna endurnýjun norðurhluta
götunnar Kirkjugerðis, þ.e. endur-
nýjun lagna, yfirborðs og gangstétta.
Stapavegurinn fær einnig andlits-
lyftingu, en kaflinn milli Hafnar-
götu og Iðndals fær nýtt yfirborð og
gatan verður þrengd lítillega. Með því
móti verður lagnasvæðið meðfram
götunni komið út fyrir vegstæðið,
sem munar miklu ef af einhverjum
ástæðum þurfi að komast í lagnirnar,
t.d. vegna bilana.
Vatnsveita og fráveita verða lögð inn
á tjaldsvæðið, þannig að unnt verði
að koma fyrir nýju og rúmgóðu að-
stöðuhúsi fyrir gesti svæðisins, auk
þess sem rekstraraðili þess hyggst
reisa þar nokkur smáhýsi til útleigu
fyrir ferðamenn.
Síðast en ekki síst er fyrirhugað að
ráðast í framkvæmdir við fráveit-
una, með því að byggja litla dælu-
stöð neðan við Akurgerði og leggja
s.k. þrýstilögn þaðan að útrásinni
við hafnargarðinn. Þar verður einn-
ig byggð lítil dælistöð með hreinsi-
búnaði. Loks er ráðgert að leggja
göngu- og hjólreiðastíg milli Voga
og Brunnastaðahverfis, meðfram
Vatnsleysustrandarveginum. Síðast
en ekki síst er lagning ljósleiðara í
dreifbýlinu á verkefnalista ársins.
Rýnt í nýtingu Reykjaneshallar
og gerð nýs gervigrasvallar
Vogamenn undirbúa fjöl-
margar framkvæmdir
Framkvæmdastjórn HSS, Fjölnir F. Guðmundssson, framkvæmdastjóri lækninga, Halldór
Jónsson forstjóri og Elís Reynarsson fjármálastjóri, kvaddi Konráð með virktum en
með þeim á myndinni er Ragnheiður Magnúsdóttir, eiginkona Konráðs. Á myndina
vantar Ingibjörgu Steindórsdóttur, framkvæmdastjóra hjúkrunar.
Bláa Lónið Retreat hlaut
Steinsteypuverðlaunin 2019