Fréttablaðið - 04.04.2019, Side 2
Fjölmennasta borg
Bandaríkjanna, New York,
mun árið 2021 taka upp
veggjöld inn í þéttbýlustu
hverfi borgarinnar.
Veður Aðgerðasinnar á skilorði
Hægur vindur um austanvert
landið. Rigning eða súld með
köflum, en þurrt og bjart á
Norður- og Austurlandi. Hæg
suðlæg eða breytileg átt og víða
léttskýjað í dag, en dálítil væta
með suður- og vesturströndinni.
SJÁ SÍÐU 28
Varmadælur &
loftkæling
Verð frá aðeins
kr. 145.000 m.vsk
Midea KMB-E09
Max 3,4 kW
2,65 kW við -7° úti og
20° inni hita (COP 2,85)
f. íbúð ca 40m2.
• Kyndir húsið á veturna
og kælir á sumrin
• Fyrir norðlægar slóðir
• Fjarstýring fylgir
• Virkar niður í -30°C
Uppsetningaaðilar og umboðsmenn um allt land
Wifi búnaður
fylgir með
öllum
varmadælum
meðan birgðir
endast
Umhverfisvænn
kælimiðill
FJÖLMIÐLAR Samningar RÚV við
Sagafilm og aðra framleiðendur um
fjármögnun verkefna eru í góðum
farvegi, segir Birgir Sigfússon, fram-
kvæmdastjóri miðla hjá RÚV. Á það
einnig við um sjónvarpsþættina
Ráðherrann með Ólafi Darra Ólafs-
syni í aðalhlutverki. Samningar um
fjármögnun þáttanna af hálfu RÚV
eru nú á lokametrunum.
Greint var frá því í síðustu viku að
tökur á þáttunum væru í uppnámi
vegna samningsskilmála RÚV. Sam-
kvæmt lögfræðiáliti sem gert var
fyrir Samtök íslenskra kvikmynda-
framleiðenda og Samtök iðnaðarins
stangast skilmálarnir á við reglur um
Evrópustyrki og reglur um endur-
greiðslur á Íslandi.
Birgir segir RÚV að sjálfsögðu fara
eftir lögum og reglum. „Við kapp-
kostum að tryggja að þegar RÚV
leggur framleiðslu til fjármagn og
verkefnið skilar hagnaði erlendis, þá
renni allur ávinningur, sem RÚV á til-
kall til, til frekari framleiðslu leikins
efnis. Slíkt eflir íslenska kvikmynda-
gerð enn frekar, stuðlar að sjálfbærni
og ábyrgri meðferð á opinberu fé.“
Segir hann það rangt í lögfræði-
álitinu að framlag RÚV til kaupa
eða meðframleiðslu á efni séu opin-
berir styrkir, samkvæmt lögum hafi
RÚV ekki heimild til að veita slíka
styrki. Framlag RÚV sé undir öllum
kringumstæðum ýmist hrein kaup á
sýningarrétti eða blanda af kaupum
á sýningarrétti og frekara framlagi.
Sigríður Mogensen, sviðsstjóri
hugverkasviðs SI, segir samskiptin
við RÚV erfið. „Við höfum síðast-
liðið ár leitað eftir svörum frá RÚV
á útfærslu þeirra sem meðframleið-
anda án þess að fá fullnægjandi svör
við þeim álitaefnum sem við höfum
sett fram. Samningagerðin, sem
þjónar hagsmunum RÚV, er á kostn-
að sjálfstæðra kvikmyndafram-
leiðenda þar sem RÚV hefur krafist
stærri hlutdeildar í verkefnum en
þátttaka þeirra gefur tilefni til.“
Lögfræðiálitið sé skýrt um að
útfærsla RÚV á hlutverki sínu sem
framleiðanda geti sett fjármögn-
unarkerfi sjálfstæðra framleiðenda
í uppnám. „Þá er umhugsunarefni
hvort RÚV sé komið í auknum mæli
í samkeppnisrekstur, líkt og á aug-
lýsingamarkaði, og má því velta fyrir
sér hvort þessi angi rekstursins eigi
ekki heima í sérstöku dótturfélagi.“
RÚV fékk fimm ára frest árið 2013
til að setja samkeppnisrekstur í
dótturfélög en ekkert bólar á þeim.
Ríkisendurskoðun er nú að gera
stjórnsýsluúttekt á RÚV, þá fyrstu í
24 ár, þar verður meðal annars litið
til samkeppnisreksturs. Sigríður
staðfestir að SI hafi óskað eftir því að
þessi atriði verði tekin til meðferðar.
Samkvæmt þjónustusamningi
RÚV og menntamálaráðuneytisins
er það hlutverk RÚV að styrkja
sjálfstæða sjónvarpsþátta- og kvik-
myndagerð með því að kaupa efni
eða gerast meðframleiðandi. Á RÚV
að verja 11 prósentum af heildar-
tekjum sínum til þess í ár. Athygli
vekur að ekki er gert ráð fyrir því
að RÚV hagnist á því að gerast með-
framleiðandi, til dæmis ef þáttaröð
er seld á erlendan markað og hagn-
aður myndast.
Sigríður telur að mestu skipti að
greiða úr þeirri óvissu sem útfærsla
RÚV á þessu hlutverki hefur skapað
varðandi aðra fjármögnunarmögu-
leika sjálfstæðra framleiðenda.
„RÚV er í mjög sterkri stöðu á þess-
um markaði og teljum við hlutverk
þeirra sem meðframleiðanda ganga
of langt miðað við að um er að ræða
opinbert félag.“ arib@frettabladid.is
Ráðherrann á róli en
SI kvarta undan RÚV
Samningar milli RÚV og Sagafilm um fjármögnun þáttanna Ráðherrann eru á
lokametrum. Framkvæmdastjóri miðla segir RÚV fara eftir lögum. Sviðsstjóri
hjá SI segir samskipti erfið og RÚV í sífellt meiri samkeppni við einkamiðla.
Landsmenn geta farið að hlakka til að sjá Ólaf Darra Ólafsson í hlutverki
forsætisráðherra á skjánum innan skamms. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI
Sigríður Mog
ensen, sviðs
stjóri hugverka
sviðs SI.
Jórunn Edda Helgadóttir og Ragnheiður Freyja Kristínardóttir fengu þriggja mánaða skilorðsbundinn dóm í Héraðsdómi Reykjavíkur í gær fyrir að
hafa risið úr sætum sínum í flugi Icelandair frá Íslandi til Svíþjóðar vorið 2016. Með uppátækinu mótmæltu þær brottvísun hælisleitandans Eze Oka-
for úr landi. Senda átti hann frá Svíþjóð til Nígeríu þar sem hann hafði orðið fyrir ofsóknum hryðjuverkasamtakanna Boko Haram. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
NEY TENDUR Verðið á veitinga-
staðnum Þremur frökkum hefur
verið lækkað um 20 prósent eftir
afmælistilboð í síðasta mánuði. Í
tilefni 30 ára afmælis staðarins var
gefinn 30 prósenta afsláttur í viku
og viðtökurnar voru svo góðar að
tilboðið var framlengt út mánuð-
inn. Nú hefur verið ákveðið að
lækka verðið varanlega.
„Við gerðum þetta á svipuðum
tíma og Þórarinn [Ævarsson] í IKEA
var að tala um þetta,“ segir Stefán
Úlfarsson, matreiðslumeistari á
Þremur frökkum, og vísar til erindis
sem framkvæmdastjórinn hélt á
ráðstefnu Alþýðusambands Íslands
um verðlagningu á íslenskum veit-
ingastöðum. – bg
Lækka verðið
til frambúðar
Stefán
Úlfarsson á
Þremur
frökkum.
BA N DA R Í K I N Trav is Brouwer,
aðstoðarsamgöngumálastjóri Ore-
gonríkis, telur upptöku veggjalda í
New York til þess að létta á umferð
geta sett mikilvægt fordæmi í
öðrum stórum borgum í Banda-
ríkjunum. The New York Times
greindi frá.
Fjölmennasta borg Bandaríkj-
anna, New York, mun árið 2021
taka upp veggjöld inn í þéttbýlustu
hverfi borgarinnar. Það fjármagn
sem til verður mun nýtast í viðhald
almenningssamgangna og í átak
til að hvetja borgarbúa til að skilja
einkabílinn eftir heima.
Borgir á borð við Seattle, Los
Angeles og Portland í Oregon, þar
sem Brouwer er yfir samgöngumál-
um, íhuga nú að fara svipaða leið og
taka upp veggjöld. Fordæmið sem
New York setji nú geti skipt sköpum
í því að ná pólitískri sátt um svip-
aðar aðgerðir innan annarra stór-
borga í Bandaríkjunum. – bdj
Veggjöld í New
York skapa
fordæmi
FDR Drive á Manhattan í New York.
NORDICPHOTOS/GETTY
4 . A P R Í L 2 0 1 9 F I M M T U D A G U R2 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
0
4
-0
4
-2
0
1
9
0
9
:3
7
F
B
0
6
4
s
_
P
0
6
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
5
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
0
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
1
5
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
2
B
D
-F
2
5
C
2
2
B
D
-F
1
2
0
2
2
B
D
-E
F
E
4
2
2
B
D
-E
E
A
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
1
B
F
B
0
6
4
s
_
3
_
4
_
2
0
1
9
C
M
Y
K