Fréttablaðið


Fréttablaðið - 04.04.2019, Qupperneq 6

Fréttablaðið - 04.04.2019, Qupperneq 6
DÓMSMÁL „Ég er saklaus,“ sögðu fjórmenningarnir kenndir við Sigur Rós hver á fætur öðrum þar sem þeir tóku afstöðu til ákæranna á hendur sér í Héraðsdómi Reykjavíkur í gær. Þeir neita allir sök, ákærðir af hér­ aðssaksóknara fyrir meiri háttar skattalagabrot og gefið að sök að hafa komið sér hjá að greiða hátt í 300 milljónir króna vegna tekna og arðgreiðslna frá félögum í þeirra eigu. Snillingar á sínu sviði, bara ekki fjármálasviðinu eins og þeir hafa sjálfir sagt. Við erum tónlistar­ menn en ekki sérfróðir í bókhaldi eða alþjóðlegum viðskiptum. Hvað þá í framtalsgerð og skattaskilum, hafa þeir sagt. Jón Þór Birgisson, Georg Holm, Orri Páll Dýrason og Kjartan Sveinsson segjast hafa falið fagmönnum að höndla með sín mál og því verði héraðssaksóknari nú að færa sönnur á að fjórmenn­ ingarnir hafi sjálfir gerst sekir um stórfellda vanrækslu á framtals­ skyldu sinni. Þeir mættu allir saman í héraðs­ dóm í gær og gengu fylktu liði inn í dómsal. Einn af öðrum voru þeir kallaðir upp til að taka afstöðu til ákærunnar á hendur sér. Fyrst Orri, svo Georg og Kjartan en hlé var gert áður en Jón Þór, betur þekktur sem Jónsi, gat lýst sinni afstöðu. Með­ ákærði í hans tilfelli, endurskoð­ andinn Gunnar Þór Ásgeirsson, var staddur erlendis og bíða þurfti eftir verjanda hans. Sigurrósarmenn urðu afslappaðri í dómsal eftir því sem á leið. Það var ekki nýtt fyrir þeim að tekið væri á móti þeim með f lassandi mynda­ vélum. Það sem var nýtt var að það væri fyrir dómstóli. Á þá bornar sakir sem varða allt að sex ára fang­ elsi. Hléið varð nokkuð langt. Í því slaknaði á fjórmenningunum sem spjölluðu saman, slógu jafnvel á létta strengi í þrúgandi þögn dóms­ salarins og ræddu úrslit í enska bolt­ anum og komandi verkefni Liver­ pool í Evrópu. Jónsi sat að mestu hljóður allan tímann. Einn félaga hans færði honum vatnsglas meðan beðið var og á einum tímapunkti tók Georg, sessunautur hans, hughreistandi utan um hann og klappaði honum á bakið. Málið virtist leggjast þungt á söngvarann. Eins og fjallað hefur verið um voru það að mestu eignir Jónsa sem kyrrsettar voru vegna skatta­ rannsóknarinnar í fyrra sem varð grunnur að ákæru héraðssaksókn­ ara nú. Útlitið varð brátt svartara fyrir Jónsa. Að loknu hléi var upplýst að bætt hefði verið við ákæru á hendur Jónsa og Gunnari Þór. Í henni er honum gefið að sök samkvæmt RÚV að hafa komið sér hjá að greiða 146 milljónir í tekjuskatt í félaginu Frakkur slf. til viðbótar við þær 44 milljónir sem fyrri ákæran kvað á um. Jónsi lýsti yfir sakleysi sínu gagnvart báðum ákærum sem sam­ einaðar verða í eina. Gunnar Þór mun taka afstöðu til ákæranna á föstudag. Fyrirtaka verður 20. maí. Að lokinni þingfestingu gáfu fjór­ menningarnir ekki kost á viðtölum. Þeir gengu sem fyrr fylktu liði út um dyr héraðsdóms, féllust í faðma og hurfu loks saman niður Austur­ strætið. Bjartsýnir, eftir allt annað en ágætis byrjun. mikael@frettabladid.is Sigurrósarmenn á sakamannabekk Fyrrverandi og núverandi meðlimir Sigur Rósar eru sakaðir um að koma sér hjá því að greiða hátt í 300 milljónir króna í skatta. Bætt við stórri ákæru á hendur Jónsa við þingfestingu málanna í gær. Lýstu allir yfir sakleysi sínu. Jón Þór Birgisson, Georg Holm, Orri Páll Dýrason og í fjarska glittir í Kjartan Sveinsson. Núverandi og fyrrverandi meðlimir Sigur Rósar mættu fyrir dóm í gær. Þeir lýstu allir yfir sakleysi sínu. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI Hittingur hjá Heldri Fáksfélögum, 60 ára og eldri, verður 5. apríl klukkan 12:00 í salnum á efri hæð TM-Reiðhallarinnar. Á boðstólnum verður súpa, brauð og kaffi og er verðið 1.000.- krónur. Sérstakur gestur verður Þormar Ingimarsson og mun hann segja frá hestaferð og fleiru áhugaverðu. Hestamannafélagið Fákur www.fakur.is Stundum er gott að gera sér dagamun LANDBÚNAÐUR Landgræðslustjóri segir land hér ónýtt og rofið og að lausagöngu búfjár ætti að taka af með öllu. Íslenskur jarðvegur losaði frá sér kolefni sem væri óásættanlegt í baráttu okkar gegn hlýnun jarðar af völdum gróður­ húsalofttegunda. „Ég er svo sem ekkert að segja neinar nýjar fréttir en það hefur legið fyrir lengi að við eigum mikið af ónýtu og rofnu landi sem gras­ bítar eiga ekki heima á og beit á þannig landi er ósjálf bær,“ segir Árni. „Stór svæði hér á landi eru ekki hæf til beitar og við ættum að sjá sóma okkar í að banna beit á slíku landi.“ Þetta kom fram í máli hans á fagráðstefnu um skógrækt. Árni nefndi dæmi um að Bárðdælaaf­ réttur og Biskupstungnaafréttur væru í raun óbeitarhæfir. Hann vill banna beit á slíkum svæðum. „Það er alveg rétt að land er á mörgum stöðum í framför,“ segir Árni. „Hins vegar er það svo að við ættum að banna lausagöngu búfjár hér á landi því eigandi búf jár verður að bera ábyrgð á því fé sem hann á.“ Á tímum loftslagsbreytinga væri mikilvægt að átta sig á því að það jarðrask sem hefur átt sér stað í aldanna rás er ekki eðlilegt og að landið væri svona vegna beitar. Mætti sjá gríðarlega framför á stórum svæðum lands þar sem kindum hafi fækkað mikið síðustu ár. „Það sem verra er að rofið land er að skila frá sér kolefni. því skiptir það miklu máli að við hættum að reka fé á óbeitarhæft land,“ segir Árni ennfremur og bætir við: „Það sem skiptir líka svo miklu máli að landið eins og það er núna er ekki náttúrulegt. Það að sjá ekki stingandi strá á stórum svæðum er vegna beitar í langan tíma. Sá gróður og sá jarðvegur sem var áður er fokinn í burtu.“ sveinn@frettabladid.is Segir afrétti ónýta og vill banna lausagöngu búfjár Árni Bragason, fyrrverandi for- stjóri Náttúru- verndar ríkisins. VIÐSKIPTI „Ég mun þurfa að lifa með þeim á kvörðunum sem ég tók alla tíð en það sem mér þykir verst er að hafa brugðist öllu því fólki sem stóð með mér og barðist fram í rauðan dauðann við að bjarga fé­ laginu,“ segir í yfirlýsingu sem Skúli Mogen sen, stofnandi og for stjóri f lug fé lagsins WOW air, sendi frá sér í gær. Hann segist á vallt hafa verið sann færður um að WOW yrði öfl­ ugt f lug fé lag. Það sjáist einna best í fjár festingum hans í fé laginu, upp á fjóra milljarða frá stofnun þess. „Núna er ljóst að ég mun fá lítið sem ekkert af því til baka,“ segir Skúli og bætir við að auð velt sé að vera vitur eftir á. Meðal mis taka fé lagsins hafi verið að á kveða að f ljúga til fjar­ lægari staða og taka í notkun 350 Skúli segir auðvelt að vera vitur eftir á Skúli Mogensen á lokametrum WOW. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK sæta Air bus A330 breið þotur. „Þetta var há leit sýn og mark mið sem við höfðum fulla trú á en þetta reyndist því miður ó hemju dýrt og f lókið verk efni og við van mátum hversu al var legar af leiðingar breið­ þoturnar myndu hafa á rekstur fé lagsins, sér stak lega eftir að olíu verð fór að hækka hratt á haust­ mánuðum 2018.“ Í öðru lagi hafi fé lagið fjar lægst lág gjalda stefnuna og bætt við við­ skipta far rými og annarri þjónustu sem átti ef til vill ekki heima í slíku módeli. Skúli vísar til f leiri samverkandi þátta en sem stofnanda og forstjóra félagsins sé ábyrgðin hans. „Ég hef aldrei skorast undan þeirri á byrgð né reynt að koma sökinni á aðra.“ – aá Fleiri myndir af meðlimum Sigurrósar í héraðsdómi eru á +Plús síðu Fréttablaðsins. Fréttablaðið +Plús er eingöngu í Fréttablaðs-appinu eða í PDF-útgáfu blaðsins sem er aðgengileg á frettabladid.is. +PLÚS 4 . A P R Í L 2 0 1 9 F I M M T U D A G U R6 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð 0 4 -0 4 -2 0 1 9 0 9 :3 7 F B 0 6 4 s _ P 0 5 9 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 5 4 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 0 6 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 1 1 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 2 2 B E -1 9 D C 2 2 B E -1 8 A 0 2 2 B E -1 7 6 4 2 2 B E -1 6 2 8 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 5 B F B 0 6 4 s _ 3 _ 4 _ 2 0 1 9 C M Y K
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.