Fréttablaðið - 04.04.2019, Page 12

Fréttablaðið - 04.04.2019, Page 12
Of margir bíða inni á Landspítala eftir að fá viðeigandi þjónustu. Leggja þurfi áherslu á fjölmarga þætti Fjölgun aldraðra og hækkun meðalaldurs er áskorun, segir Alma Dagbjört Möller landlæknir. Hún segir að málefni aldraðra hafi verið sett í forgang og að það verði eitt af áherslumálum ársins. „Þetta er eitt af því sem ráð­ herra hyggst beita sér fyrir og gaf í fyrra út fyrirheit um upp­ byggingu hjúkrunarheimila. Við þurfum að takast á við þessa áskorun sem málefnið er,“ segir Alma. Í desember kom út hluta úttekt vegna alvarlegrar stöðu á bráða­ móttöku og kom þar fram að of margir bíði inni á Landspít­ ala eftir þjónustu. „Það er auðvitað ekki gott fyrir hinn aldraða að vera á röngum stað í kerfinu. Það er öðruvísi hugsað um aldraða á bráðasjúkrahúsi en á hjúkrunar­ heimili. Það eru miklu meiri gæði fyrir hinn aldraða að vera á hjúkrunarheim­ ili. Þetta er ekki gott fyrir kerfið í heild líkt og við bendum á og drögum fram í þessari at­ hugun.“ Eins brýnt og það er að fjölga hjúkrunarheim­ ilum þarf einnig að leggja áherslu á marga aðra þætti, líkt og heimahjúkrun og heima­ þjónustu, dagdvalar­ úrræði og samhæf­ ingu á öldrunarþjónustu almennt. Síðast en ekki síst á heilsueflingu eldri borgara. „Við hjá embættinu erum með verkefni sem nefnist Heilsu­ eflandi samfélag. Það skiptist í heilsueflandi leikskóla, grunn­ skóla, framhaldsskóla, vinnu­ markaðinn og eldri borgara. Við höfum verið að vinna það í sam­ starfi við Janus Guðlaugsson en hann er með ýmis verkefni tengd hreyfingu fyrir eldri borgara. Það er margt sem kemur út úr því, ekki bara áhrif á líkamann heldur einnig samvera. Við vitum að einmanaleiki er oft vandamál hjá eldri borgunum og því fylgir þunglyndi, kvíði og fleira. En bara það að hinn aldraði sinni líkamlegri hreyfingu viðheldur það og jafnvel eykur færni og styrk, þannig að fólk geti verið lengur heima,“ segir Alma. „En hvað þennan málaflokk varðar finnst mér vitund manna vera að vakna.“ Má l a f l o k k u r eldri borgara er f lókinn og ber þessi merki að heildarsýn hafi skort í gegnum árin. Þó að margt sé mjög vel gert eru einnig margir þættir þar sem þarf verulega að gefa í enda kerfið brotakennt og erfitt að hafa yfirsýn yfir þá þjónustu sem í boði er. Þetta segir Steinunn Þórðardóttir, öldr­ unarlæknir á Landakoti. „Það er ótvírætt að á Landspítal­ anum liggur fjöldinn allur af ein­ staklingum sem komnir eru með samþykki fyrir hjúkrunarrými en geta ekki útskrifast þangað vegna skorts á plássum og ílengjast því á spítalanum,“ segir Steinunn. Þetta sé ekki ákjósan­ leg t f y r ir þessa einstaklinga þar sem umhverfi bráðasjúk ra­ hú s s hent i þ e i m i l l a . „ Á br áð a ­ deildum er oft erill allan s ól a rh r i ng ­ i n n , f l y t j a þarf fólk milli s j ú k r a s t o f a , það er útsett fyrir spítalasýkingum o.f l. Eins er pláss á bráðasjúkra­ húsi mun dýrara úrræði en pláss á hjúkrunarheimili. Þetta veldur legurýmaskorti á sjúkrahúsinu, fólk sem þarf sannanlega innlögn getur verið fast á bráðamóttökunni dögum saman. Eins er lítið svigrúm til að taka fólk beint inn á deildir úr heimahúsi, þar með talið einstakl­ inga með heilabilun þar sem allt er komið í þrot heima.“ Steinunn segir það vel að stjórn­ völd séu áhugasöm um að gera betur í málefnum aldraðra og hafi haft vítt samráð við bæði notendur og veitendur þjónustu við þennan hóp. „Nú er í gangi vinna við stefnu í Brýnt að einfalda kerfið til muna Þurfi annað orð en flæðivanda Lega aldraðra á Landspítala hefur verið mikið í umræðunni undanfarið. Vandamálið hefur hlotið nafnið „flæðivandi“ sem Steinunn telur ekki æskilegt að nota og vill reyna að breyta. „Mér finnst óheppilegt að tala um flæðivanda þar sem um er að ræða einstaklinga sem þurfa á aðstoð heilbrigðis­ kerfisins að halda á efri árum eftir að hafa lagt sitt af mörkum til samfélagsins alla tíð. Orðið flæðivandi fær mann til að hugsa um einstaklinga sem stíflu eða hindrun á einhverju óskilgreindu færibandi og mér finnst þessi hópur ekki eiga skilið að rætt sé um hann á þann hátt.“ Í dag eru 42 einstaklingar á sjálfum spítalanum sem klárað hafa meðferð þar og eru að bíða eftir hjúkrunarrými. Þar fyrir utan eru 45 einstaklingar á biðdeild spítalans á Vífilsstöðum að bíða eftir hjúkrunarrými, þannig að þetta eru samtals 87 manns á bið á vegum spítalans. Hvað þennan málaflokk varðar finnst mér vitund manna vera að vakna. Alma Dagbjört Möller land­ læknir Þetta er frum- skógur fyrir þá sem starfa innan kerfisins alla daga, hvað þá fyrir utanað- komandi. Steinunn Þórðardóttir, öldrunarlæknir málefnum fólks með heilabilun og er það stórt skref í rétta átt. Sam­ bærileg stefnumótun þarf að eiga sér stað á f leiri sviðum málaflokks­ ins og þar þarf að taka með í reikn­ inginn fyrirsjáanlega fjölgun í elstu aldurshópunum á næstu árum.“ Verkefnið sem Steinunn telur brýnast er að stórauka þjónustu við eldra fólk í heimahúsi í samráði við heilsugæsluna, sem þyrfti að fá svig­ rúm og fjármagn til verksins. Efla þurfi heimahjúkrun verulega og einnig að bjóða fleiri dagþjálfunar­ úrræði. „Það hefur sýnt sig að kerfisbund­ in heilsuefling í elstu aldurshópun­ um skilar undraverðum árangri og eru ýmis slík tilraunaverkefni þegar í gangi hérlendis og mikil sóknar­ færi þar. Eins væri mjög æskilegt að bjóða f leiri millistig milli búsetu í heimahúsi og á hjúkrunarheimili, til dæmis að bjóða valkost um sam­ býli fyrir þá sem eru félagslega ein­ angraðir eða þurfa eftirlit en ekki mikla hjúkrun,“ segir Steinunn. Að lokum þyrfti að einfalda kerf­ ið til muna. Í dag eru ótal rekstrar­ aðilar þjónustu við aldraða, meðal annars ríki, sveitarfélög, félagasam­ tök, sjúklingasamtök og einkafyrir­ tæki. „Þetta er frumskógur fyrir þá sem starfa innan kerfisins alla daga, hvað þá fyrir utanaðkomandi. Það þarf að vera skýrt hvað er í boði, hvernig sótt er um og mikilvægt að það séu ekki margir biðlistar eftir svipuðum úrræðum í gangi. Eins er afar brýnt að bregðast við út­ skriftar vanda spítalans, því að það tapa allir á stöðunni þar eins og hún er í dag. Það þarf að koma á hvata til að fólk fái rétta tegund þjónustu á réttum tímapunkti.“ TILVERAN Eitt af stóru málum ársins Stjórnvöld standa frammi fyrir þeirri stað- reynd að meðalaldur fólks fer hækkandi með ári hverju. Mikil fjölgun hefur orðið í aldurs- flokki aldraðra og segir landlæknir málaflokk- inn vera áskorun enda hafi lengi verið vandi á Landspítala. Gunnþórunn Jónsdóttir gunnthorunn@frettabladid.is 4 . A P R Í L 2 0 1 9 F I M M T U D A G U R12 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð 0 4 -0 4 -2 0 1 9 0 9 :3 7 F B 0 6 4 s _ P 0 6 0 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 5 3 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 0 5 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 1 2 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 2 2 B E -1 4 E C 2 2 B E -1 3 B 0 2 2 B E -1 2 7 4 2 2 B E -1 1 3 8 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 5 A F B 0 6 4 s _ 3 _ 4 _ 2 0 1 9 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.