Fréttablaðið - 04.04.2019, Qupperneq 16
Ingrid Kuhlman er þjálfari og ráðgjaf i og jafnframt framkvæmdastjóri Þekk-ingarmiðlunar. Hún gerði nýverið rannsókn við Buck-inghamshire háskóla í Bret-
landi meðal eldri borgara á Íslandi
um það hvað hamingja væri fyrir
þeim. Hún ræddi við 13 manns á
aldrinum 70-91 árs.
„Það var áhugavert að heyra hvað
þau höfðu að segja. Þetta er eldra
fólkið okkar, sérfræðingar í lífinu,
sem er búið að ganga í gegnum súrt
og sætt og hefur upplifað margt á
sinni lífsleið. Við getum lært fullt
af því,“ segir Ingrid. „Við þurfum
að hlúa betur að þessum hópi.
Það eru gerðar bæði miklar og
litlar væntingar til eldri borgara að
þeirra mati. Annars vegar að borga
reikninga og vera til friðs, vera ekki
baggi á samfélaginu en á sama tíma
að vera til taks og passa barnabörn,
skutla þeim og veita börnum sínum
húsaskjól. Eldri borgarar þurfa að
sitja við sama borð þannig að engar
ákvarðanir séu teknar án þeirra.
Það þarf að hlusta betur á þá og
meta verðleika þeirra og reynslu.“
Þátttakendur í rannsókn Ingrid
voru á sama máli um að hamingja
væri eitthvað sem við sköpuðum
sjálf. „Þau sögðu að maður gæti
ekki bara beðið eftir hamingjunni.
Maður þarf að vera sinn gæfusmið-
ur og vera höfundur að eigin lífi,“
segir Ingrid. „Viðmælendur mínir
ræddu einnig hvað það er mikil-
vægt að hafa jákvætt viðhorf, sætta
sig við það sem maður hefur og gera
það besta úr hlutunum. Það eru
ekki aðrir sem eiga að skapa okkar
hamingju heldur við sjálf.“
Viðmælendur sögðu það afar
mikilvægt að rækta tengsl við ást-
vini og fólkið í kring, þá sem manni
þykir vænt um. „Þau töluðu um þrjá
hópa, fjölskylduna, börn og barna-
börn og maka, svo ættingja og loks
tengslanetið.“
Ingrid segir viðmælendur
hafa verið meðvitaða um að
hópurinn í þeirra aldurs-
f lokki væri að stækka og
að þau þyrftu að huga vel
að eigin heilsu til að bæta
eigin lífsgæði.
„Það er andlegur, félags-
leg ur, og líkamleg ur
ávinningur af því að
stunda reglulega lík-
amsrækt. Hún bætir
svefn og léttir lund-
ina en eykur einnig
félagslega vellíðan,
því oft stundar fólk
líkamsrækt í hópi.
Þetta hangir allt
saman.“
Þá kom fram að
Eldri borgarar oft
sérfræðingar í lífinu
Margir sem hafa unun af því að vinna lengur
„Nú er ég að fara að hætta að
vinna, hvað gerist þá?“ Þetta er
spurning sem vaknar hjá þeim
sem eru við það að komast á
ellilífeyrisaldur. Þórunn Svein-
björnsdóttir, formaður Lands-
sambands eldri borgara, segir
að fólk þurfi að byrja að hugsa
út í það snemma hvaða þýðingu
starfslok hafi, í raun ekki seinna
en um fimmtugt.
„Flest stærri fyrirtæki halda
starfslokanámskeið fyrir
verðandi eldri borgara þar sem
kynningar fara fram en það er
oft orðið of seint. Við þurfum
að auka fræðslu um starfslok og
sérfræðingar þurfa að leiðbeina
fólki þannig að þekking verði
meiri um lífeyrissjóðina,“ segir
Þórunn, auk þess sé mikil um-
ræða um breytingar á eftirlauna-
aldri.
„Við teljum eftirlaunaaldurinn
algjörlega úreltan. Það hefur nú
þegar fallið eitthvað af dómum
erlendis um að það sé brot á jafn-
ræðisreglunni og ákveðin mann-
réttindaskerðing að banna fólki
að vinna eftir 70 ára aldur.“
Fólk á atvinnumarkaði með
sérstöðu hefur fengið undan-
þágu til atvinnuþátttöku þótt
komið sé á eftirlaunaaldur, svo
sem sérgreinalæknar sem eru
með stofu. Á almennum vinnu-
markaði og í sjálfstæðum rekstri
eru ekki jafn strangar reglur
hvað eftirlaunaaldur varðar en
starfi fólk hjá ríki eða borg er
viðkomandi bundinn við 70 ára
aldurstakmarkið.
„Það er ótrúlega mikill fjöldi
fólks sem hefur unun af því að
vinna lengur, ekki endilega fullt
starf í öllum tilvikum en vissu-
lega að vera lengur úti á vinnu-
markaði,“ segir Þórunn. „Við
viljum líka hvetja Íslendinga til
að vera duglegri í að gerast sjálf-
boðaliðar. Við erum langt á eftir
öðrum þjóðum í þeim málum. Í
Danmörku starfa um 43% eldri
borgara við sjálfboðaliðastörf en
ég giska á að á Íslandi séu þeir 10-
15%. Við ætlum að vekja athygli á
þessu á næstunni.“
Ingrid
Kuhlman,
framkvæmda-
stjóri Þekk-
ingarmiðlunar.
Það er staðreynd að samvirkni hreyfingar og hollrar nær-ingar hægir á öldrunarferl-
inu. Aukin hreyfing og þjálfun geta
seinkað því ferli að aldraðir þurfi á
þjónustu að halda.
„Fyrir hvern dag eða mánuð sem
fólk getur seinkað því að flytja inn
á hjúkrunarheimili þá er til mikils
að vinna, bæði fyrir lífsgæði ein-
staklingsins og ekki síður fyrir sam-
félagið,“ segir Pétur Magnússon, for-
stjóri Hrafnistu.
Hann segir að þegar fólk sé komið
inn á hjúkrunarheimili þurfi það
yfirleitt mikla þjónustu og margir
séu talsvert veikburða. „Þjónustan
sem við erum að veita er til að við-
halda lífsgæðum fyrir íbúana okkar
í samræmi við getu, óskir og þarfir.“
Pétur segir að vannæring sé
stærsta áskorunin í þjónustunni við
aldraða. „Stærsta vandamálið hjá
eldra fólki á Íslandi varðandi nær-
ingu er hjá þeim sem búa í heima-
húsum. Fólk sem býr við félagslega
einangrun og er ekki duglegt að elda
fyrir sjálft sig á það til að borða mat
sem er einhæfur ef það yfir höfuð
eldar,“ segir Pétur.
„Á hjúkrunarheimilum eru marg-
ir sem þyngjast eftir að hafa verið
illa nærðir á meðan þeir voru í bið-
tíma heima hjá sér.“ Aðspurður segir
Pétur að maturinn sem boðið er upp
á á Hrafnistu miðist við áhuga íbúa.
Í augum yngra fólks kunni matur-
inn stundum að hljóma gamaldags.
Taka þurfi tillit til þess að breyting-
ar geta orðið á bragðupplifun vegna
lyfja, sjúkdóma og fleira. Auk þess
glíma margir við depurð og þreytu
sem veldur því oft að matarlystin
minnki sem eykur hættuna á van-
næringu.
„Þegar einstaklingur er kominn
svo langt í lífinu þá er viðkomandi
ekki að fara að breyta um lífsstíl.
Fólk fær hér bara að njóta lífsins,
innan skynsamlegra marka auð-
vitað. En við þurfum að vera dugleg
að fylgjast með hópnum sem býr
hjá okkur og taka tillit til þarfa
fólksins enda er smekkur fólks mis-
munandi.“
Vannæring vandamál meðal margra
Pétur Magnús-
son, forstjóri
Hrafnistu.
gott væri að taka þátt í félagsstörfum
og mikilvægi þess að finna fyrir því
að hafa tilgang og merkingu í líf-
inu. „Að vera einhvers virði fyrir
annað fólk. Stuðla að vellíðan
annarra með því til dæmis að
taka þátt í sjálfboðaliðastarfi.
Vera virkur þátttakandi í sam-
félaginu og láta gott af sér
leiða,“ segir Ingrid.
„Einnig töluðu þau mörg
hver um hvað það væri gott
að halda áfram að læra og
hafa eitthvað sem fangar
hugann á hverjum degi,
huga að áhugamálum
svo sem listmálun,
lesa bækur og ferðast.
Það er svo gott að
hafa eitthvað fyrir
stafni og hlakka til
einhvers sem veitir
manni lífsfyllingu.“
Við teljum eftir-
launaaldurinn
algjörlega úreltan.
Þórunn Svein-
björnsdóttir,
formaður
Landssamtaka
eldri borgara
Hluti af því
að taka stjórn
á eigin lífi og
líðan felst í
núvitund og
æðruleysi
auk þess að
láta gott af
sér leiða sem
oftast.
Teitur Guðmundsson
læknir
Það er ljóst að öll eldumst við, en það er ekki sama hvernig við förum að því. Sumir verða gamlir fyrir aldur fram, aðrir eru alltaf ungir burtséð frá hrukkunum og hrörnuninni sem á sér stað með tímanum. Þá eru þeir sem eru
svo heppnir að halda heilsu og vera virkir, á meðan
hinir slitna og veikjast. Allt er þetta hluti af lífinu,
en það er líka val hvers og eins upp að vissu marki.
Samspil andlegrar og líkamlegrar vellíðunar er
f lestum augljóst og óteljandi atriði sem geta haft
áhrif á hvort tveggja.
Það er eitthvað fallegt við það að sjá fólk njóta
lífsins, sama á hvaða aldri það er. Því fylgir líka oft
öfund og vanlíðan hjá þeim sem annars vegar ekki
tekst það og svo hinum sem geta það ekki einhverra
hluta vegna. Svo eru það sigurvegararnir sem láta
ekki brjóta sig niður og neita að gefast upp þótt á
móti blási. Heilsan skiptir okkur öll gríðarlegu máli
og okkur hættir til að þykja það sjálfsagt að geta
gengið, borðað, talað, sofið og hugsað skýrt. Það
er ekki fyrr en við missum eitthvað sem við áttum
okkur á því hversu mikilvægt það var okkur.
Margir þeirra sjúkdóma sem valda færniskerð-
ingu eru mjög vaxandi í vestrænum samfélögum
sem sjá fram á verulega áskorun þegar kemur að
þjónustu og meðferð. Þar má telja Alzheimer, aðra
minnistruflunar- og hrörnunarsjúkdóma líkt og
Parkinson svo dæmi séu tekin. En þessir hópar
einstaklinga þurfa að horfa til þess eftir greiningu
hvað þeir geta gert og aðstandendur þeirra þar sem
augljóst er að sjúkdómurinn mun þróast.
Hluti af því að taka stjórn á eigin lífi og líðan felst
í núvitund og æðruleysi auk þess að láta gott af sér
leiða sem oftast. Það þarf ekki að vera merkilegt, oft
er nóg að sýna áhuga, spyrja spurninga, brosa, taka
utan um náungann og hrósa. Nýta þau tækifæri
sem gefast til að hlæja og varðveita barnið í sjálfum
sér. Þessi einföldu atriði skipta máli til viðbótar við
mataræði og hreyfingu að sjálfsögðu. Hluttekning
í lífi hins aldraða er mikilvæg burtséð frá því hvaða
sjúkdóm hann glímir við, nánd og nærvera ættingja
er mikilvæg í þessu tilliti og mikil næring.
Í stað þess að berjast við aldurinn ættum við að
fagna honum, nýta reynsluna sem honum fylgir og
vera vakandi yfir þeim breytingum sem eiga sér
stað með virkum forvörnum. Sinna bæði líkama og
sál, sumt þarfnast áreynslu og áræðni, en í raun eiga
sömu leiðbeiningar við um unga sem aldna. Sem
dæmi má nefna:
Hjarta-, vöðva- og jafnvægisþjálfun helst þrisvar
í viku. Dagleg samskipti við annað fólk. Hugarleik-
fimi og minnisþjálfun, lærðu helst eitthvað nýtt á
hverjum degi. Borðaðu almennt hollt en njóttu þess
að sukka af og til. Ekki nota tóbak, drekktu áfengi í
hófi og passaðu að fá þinn svefn. Stundaðu reglu-
bundið kynlíf, leitaðu aðstoðar ef þarf. Segðu frá ef
þér líður illa og leyfðu öðrum að njóta þess með þér
þegar þér líður vel. Umfram allt gefðu bros, því það
kostar ekkert!
Þú ræður því hvernig þér líður, elskaðu sjálfan þig
svo þú getir elskað aðra og vertu ekki að velta fyrir
þér á hvaða aldri þú ert. Njóttu tímans og stundar-
innar í botn, það er það sem lífið gengur út á!
Að „berjast“
við aldurinn
TILVERAN
4 . A P R Í L 2 0 1 9 F I M M T U D A G U R16 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
0
4
-0
4
-2
0
1
9
0
9
:3
7
F
B
0
6
4
s
_
P
0
6
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
4
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
0
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
1
6
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
2
B
D
-E
D
6
C
2
2
B
D
-E
C
3
0
2
2
B
D
-E
A
F
4
2
2
B
D
-E
9
B
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
1
A
F
B
0
6
4
s
_
3
_
4
_
2
0
1
9
C
M
Y
K