Fréttablaðið - 04.04.2019, Page 28

Fréttablaðið - 04.04.2019, Page 28
Fólk er kynningarblað sem býður aug- lýsendum að kynna vörur og þjónustu í formi viðtala og umfjallana. Í blaðinu er einnig hefðbundið ritstjórnarefni. Blaðið fylgir Fréttablaðinu daglega. Umsjónarmenn efnis: Sólveig Gísladóttir, solveig@frettabladid.is s. 550 5762 | Elín Albertsdóttir, elin@ frettabladid.is, s. 550 5761 | Brynhildur Björnsdóttir, brynhildur@frettabladid.is, s. 550 5765 | Starri Freyr Jónsson, starri@frettabladid.is, s. 550 5763 | Þórdís Lilja Gunnarsdóttir, thordisg@frettabladid.is s. 550 5768 Útgefandi: Torg ehf Ábyrgðarmaður: Kristín Þorsteinsdóttir Sölumenn: Arnar Magnússon, arnarm@frettabladid.is, s. 550 5652, Atli Bergmann, atli@frettabladid.is, s. 550 5657, Jón Ívar Vilhelmsson, jonivar@ frettabladid.is, s. 550 5654, Jóhann Waage, johannwaage@frettabladid.is, s. 550 5656, Ruth Bergsdóttir, ruth@frettabladid.is, s. 550 5653, Þegar ég sýndi bestu vinkonu minni samfestinginn sagði hún: „Þetta er ekki sam- festingur, Sunna. Þetta er Sunn- festingur!“ því hann er eins og klæðskerasaumaður á mig með sínum útvíðu skálmum og ermum, blómamunstri og litadýrð,“ segir Sunna sem er heilluð af klæðnaði frá hippaárunum í kringum 1970. „Ég hrífst af litum og munstrum og er sjúk í samfestinga, útvíðar buxur og loðjakka eins og söng- konurnar Janis Joplin og Joan Baez klæddust á sjöunda áratugnum. Ég elska að gramsa á f lóamörkuðum en á erfitt með að fara í búðir til þess eins að kaupa mér föt fyrir kvöldið. Því finna flíkurnar mig, en ekki öfugt, eins og guli In Wear-kjóllinn sem móðursystir mín sá í tískuversluninni Sölku í Vestmannaeyjum og sagði mér að kaupa því hann hefði augljós- lega verið sérsaumaður á mig. Mér þykir vænt um þann kjól þótt ég hafi ekki ætlað að kaupa neitt þegar ég söng þar í brúðkaupi í fyrrasumar, en fötin koma alltaf til mín þegar ég á síst peninga til að kaupa þau,“ segir Sunna og hlær. Hún spáir mikið í tísku. „Föt segja mikið um manninn. Munstrin og litagleðin láta uppi að ég sé skapandi og hugmyndarík, opin fyrir lífinu og möguleikum þess, og með djörfung og þor til að gera hlutina öðruvísi,“ segir Sunna sem gjarnan brýtur upp sæt blómaáhrifin með galla- buxum og hermannaklossum eða mótorhjólastígvélum en hún er mótorhjólakona sem nýtur þess í botn að geta skotist frjáls á hjóli sínu milli landa frá heimahög- unum í Árósum. „Ég er lítið fyrir fylgihluti og skart en á eina tösku sem ég nota næstum aldrei því mér finnst best að vera með allt í vösunum og mamma skammaði mig oft fyrir að vera með vasann framan á anó- rakknum mínum fullan af drasli eins og stóra bumbu,“ segir Sunna og skellir upp úr af minningunni. Hafði ekkert plan B Sem lítil hnáta var Sunna harð- ákveðin í að verða söngkona. „Mér líður best þegar ég stend á sviði og syng. Ég get ekki ímyndað mér skemmtilegra líf en að vakna á hverjum degi til þess eins að spila og syngja. Ég er loks að upp- lifa drauminn en þurfti í mikla sjálfsskoðun til að sjá hann rætast því á unglingsárunum fór ég að efast um sjálfa mig og sannfærðist um að ég vildi ekki vera í tón- list. Eftir alls kyns nám og vinnu, sem ég flosnaði upp úr jafnóðum, gekkst ég loks við því að ég vildi ekkert fremur en að gera tónlist að ævistarfinu,“ segir Sunna sem í haust hefur nám við ryþmíska deild tónlistarháskólans Royal Academy of Music í Árósum. „Söngurinn verður mitt aðal- hljóðfæri í náminu. Mig langar að verða betri tónlistarmaður að öllu leyti, ná betri tökum á tónfræði og hljómfræði til að hafa minna fyrir því að koma hlutunum frá mér,“ segir Sunna full tilhlökkunar að hefja námið. „Danski markaðurinn er miklu stærri en sá íslenski og hér þekki ég engan í bransanum. Því er mikil vinna að koma sér á framfæri en í skólanum læri ég líka tónsmíðar og tónlistarkennslu. Ég hef því mörg verkfæri í höndunum eftir námið og mikill léttir að komast inn. Ég var ekki með neitt plan B.“ Yrkir frá hjartanu Platan Declaration er persónuleg og frá innstu hjartarótum Sunnu. „Í laginu Sister yrki ég til litlu systur minnar en líka allra systra og kvenna um málefni sem skiptir mig miklu máli. Samfélagið ól mig upp við að vera pen dama og hef ég þurft að taka nokkra slagi til að rífa mig upp úr því og skilja að ég megi alveg hafa hátt og taka pláss. Lagið er spiladósarlag eða vögguvísa sem ætti að vera sungin fyrir allar stúlkur á kvöldin, þeim til hvatningar um að þær megi gera hvað sem þær vilja,“ útskýrir Sunna sem skilgreinir tónlist sína sem þjóðlagaskotið popp. „Ég yrki um það sem hefur persónulega áhrif á mig. Hugur minn stefndi til blaðamennsku, stjórnmálafræði eða tónlistar og ég er meðvituð um að nota tónlist til að vekja athygli á femínisma og þjóðfélagsmálum. Ég yrki því um mitt líf og annarra, eins og í laginu Watch the Water sem vísar í f lótta- mannavandann og hvernig rætist úr lífi manns eftir því hvorum megin hafsins maður fæðist,“ segir Sunna sem fær mikil viðbrögð frá fólki sem sér sig sjálft í textum hennar. „Það er mesta hrósið, finnst mér; að fólk tengi við lögin mín,“ segir Sunna. Annað lag, Hold me loose, til- einkar hún kærastanum sínum, Heimi Gústafssyni. „Það er um að treysta öðrum fyrir hjarta sínu og sjálfum sér. Tónlistarsköpun er eins og þerapía. Ég nota tónlist til að veita tilfinningum útrás og finnst hjálpa að koma þeim á blað.“ Fann ástina á vertíð í Eyjum Sunna fluttist þrettán ára til Dan- merkur með foreldrum sínum og lauk þar menntaskóla. „Eftir stúdentspróf vildi ég koma heim í eitt ár og réð mig á vertíð í Eyjum þar sem ég kynntist Vestmannaeyingnum Heimi sem nú er kærastinn minn. Hann er þrjóskur en eftir fimm ár tókst mér að fá hann til að flytja með mér út og nú höfum við keypt okkur hús í sveitinni utan við Árósa,“ segir Sunna sem kann vel við Dani og Danaveldi. „Danmörk er að öllu leyti mild- ari en Ísland; veðrið, lífsstíllinn og hugarfarið gagnvart vinnu og vinnutíma. Ég fíla það ótrúlega vel. Hér lifir fólk ekki fyrir vinnuna heldur vinnur það til að lifa og lifa lífi sínu lifandi utan vinnu sinnar,“ segir Sunna sem þó saknar fjöl- skyldu og vina heima á Íslandi. „Ég sakna líka útisundlauganna og fjallanna því mér finnst gaman að ganga á fjöll. Í stað þess fer ég á ströndina og stunda sjósund á veturna.“ Sunna er úr söngelskri fjöl- skyldu og þessa dagana eru þau þrjú að gefa út plötur. „Pabbi er pönkari í hljómsveit- inni Nýríka Nonna sem gefur út plötu á næstunni og bróðir minn, Huginn, er í hipphopp-senunni og var að gefa út sína aðra plötu með Herra Hnetusmjöri á dögunum,“ upplýsir Sunna stolt af sínum nánustu á tónlistarsviðinu. „Ég vonast til að geta sungið nýju lögin heima en það er ekki enn planað. Hver veit nema við systkinin troðum upp einn daginn þegar sólin skín en við Huginn höfum rætt um að syngja saman, þótt textarnir hans séu ekki beint fyrir stóru systur að syngja. Hann yrði þá með sitt hipphopp, ég með þjóðlagapoppið og pabbi gæti pönk ast með.“ Hægt er að hlusta á einstakar lagasmíðar og íðilfagra rödd Sunnu á plötunni Declaration á Spotify og Apple Music og nálgast hana á cd og vínyl á sunnamusic. com. Framhald af forsíðu ➛ Þórdís Lilja Gunnarsdóttir thordisg@frettabladid.is Guli kjóllinn frá In Wear hrópaði á Sunnu í gegnum móðursystur hennar sem sá hann eins og klæðskerasniðinn á Sunnu í tísku- búðinni Sölku í Vestmanna- eyjum. MYNDIR/ HEIMIR GÚSTAFSSON Samfestingur? Nei, sannkallaður Sunnfestingur af útsöluslám H&M. Sunna með bróður sínum, Hugin, og föður þeirra, Guðlaugi Hjaltasyni. Holtasmára 1 201 Kópavogur (Hjartaverndarhúsið) Sími 571 5464 FLOTTAR SÍÐBUXUR, KVARTBUXUR OG LEGGINGS NETVERSLUN WWW.TISKUHUS.IS 2 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 4 . A P R Í L 2 0 1 9 F I M MT U DAG U R 0 4 -0 4 -2 0 1 9 0 9 :3 7 F B 0 6 4 s _ P 0 4 4 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 3 7 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 2 1 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 2 8 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 2 2 B E -1 E C C 2 2 B E -1 D 9 0 2 2 B E -1 C 5 4 2 2 B E -1 B 1 8 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 6 A F B 0 6 4 s _ 3 _ 4 _ 2 0 1 9 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.