Fréttablaðið - 04.04.2019, Side 30
UPPBYGGJANDI
RITMENNSKA
AÐ SKRIFA SIG ÚR SKUGGANUM Í LJÓSIÐ
Innifalið:
Gisting í fjórar nætur, ljúffengur og hollur
matur, aðgangur að sundlaugum, baðhúsinu
Kjarnalundi og líkamsrækt, hóptímar, fræðsla
og slökun.
Umsjón:
Steinunn Sigurðardóttir rithöfundur.
Verð með gistingu frá miðvikudegi
til sunnudags er 69.000 kr. pr. einstakling.
Steinunn Sigurðardóttir rithöfundur leiðbeinir þátttakendum við að skrifa sig
frá erfiðum tilfinningum
Berum ábyrgð á eigin heilsu www.heilsustofnun.is
Námskeið um páska, 17.-21. apríl 2019
Unnið verður með texta sem þátttakendur
skrifa í dvölinni ásamt texta eftir aðra
höfunda. Ætlunin er að nálgast skapandi
skriega lýsingu á vanlíðan og depurð og
reynt verður að skoða þessa líðan utanfrá
með textann sem kíki.
Hópeið og ritmennskuaðferðin eru notuð
sem tæki til þess að stuðla að bættri líðan og
skapa uppbyggjandi kraft fyrir þá sem glíma
við óyndi, áhyggjur, kvíða o..
Unnið verður með texta sem þátttakendur skrifa
í dvölinni. Leitað verður skapandi skriflegra leiða
til þess að tjá tilfinningar eins og vanlíðan og sorg.
Reynt verður að skoða þessa líðan utan frá með
textann sem kíki.
Ritmennskuaðferðin, með hópeflinu, er notuð
sem tæki til þess að stuðla að betri líðan og skapa
uppbyggjandi kraft fyrir þá sem glíma við óyndi,
áhyggjur, kvíða.
Á seinni stigum námskeiðs verður áherslan á
að þjálfa þátttakendur í að tjá skriflega jákvæðar
og uppbyggjandi tilfinningar.
Skráning í síma 4830300
eða heilsa@heilsustofnun.is
Sýningin Endurkoma var einn fjölmargra skemmtilegra við-burða á HönnunarMars, sem
lauk í Reykjavík síðasta sunnudag.
Um var að ræða samstarfsverkefni
Felds verkstæðis og fatahönnuðar-
ins Mörtu Heiðarsdóttur, þar
sem sýnt var safn gamalla pelsa
sem hafði fylgt fjölskyldunni til
margra ára en nú fengið breytt
útlit. „Foreldrar mínir reka Feld
verkstæði og þar hef ég starfað frá
því ég útskrifaðist úr fatahönnun
frá Design School Kolding í Dan-
mörku árið 2016. Við höfum breytt
f líkum á verkstæðinu í mörg ár en
algengt er að konur komi hingað
með gamla erfðagripi sem þær
vilja laga eða breyta. Sjálf fann ég
pelsa frá foreldrum mínum fyrir
nokkru síðan sem ég breytti og
bjó til eins konar uppskriftir að
breytingum. Þannig byrjaði þetta
eiginlega hjá mér.“
Samhliða starfi sínu hjá Feldi er
Marta einnig að vinna að ýmsum
verkefnum sem oft tengjast
skinnum. „Ég v r til dæmis að
hanna inniskó með Valdísi í @10
design studio. Hú hefur verið
að vinna með hrosshúðir og ég
með lambaskinn og þannig urðu
til mjúkir og loðnir inniskór sem
við vorum með til sýnis og sölu
í versluninni Akkúrat í miðborg
Reykjavíkur meðan Hönnunar-
Mars stóð yfir.“
Tilfinningaleg tengsl
Hún segir marga eigendur pelsa
hafa tilfinningaleg tengsl við þá
og það sé ein af ástæðum þess að
þeim sé nær aldrei hent. „Á sýn-
ingunni gaf ég hverjum og einum
pels nafn og tilvitnun til að gefa
þeim sterkara tilfinningalegt gildi.
Ég tók fjóra pelsa sem ég breytti í
sex flíkur og töskur. Hver og einn
pels er einstakur og því þurfti að
sjá möguleikana sem hver og einn
pels hafði. Flesta pelsana stytti ég
en aðallega af því að þeir voru svo
þungir og stórir, en þá gat ég nýtt
neðri hlutann í aðra flík. Til að
Hver og ein flík verður einstök
Fatahönnuðurinn Marta Heiðarsdóttir og Feldur verkstæði sýndu safn gamalla pelsa á Hönn-
unarMars um síðustu helgi sem allir höfðu fengið nýtt og skemmtilegt hlutverk.
Fatahönnuðurinn Marta Heiðarsdóttir sýndi pelsa á HönnunarMars sem
höfðu fengið nýtt líf. Hún útskrifaðist úr fatahönnun frá Design School
Kolding, í Danmörku árið 2016.
Í bakgrunni má sjá jakka sem Marta saumaði úr neðri partinum af annarri
flík. Bleikt litað lambaskinnið setur svo mjög skemmtilegan svip á jakkann.
Það var gaman
að skoða
gamlar flíkur
lifna við á ný.
Marta nýtti kraga sem fannst inni á lager á verkstæðinu. Hún saumaði
kraga og ermar fyrir jakka sem hægt er að taka af og setja á að vild.
Sýningin var vel sótt á HönnunarMars um síðustu helgi en hún var haldin í
húsakynnum Felds verkstæðis, að Snorrabraut 54 í Reykjavík.
Starri Freyr
Jónsson
starri@frettabladid.is
gera pelsana meira eftir mínu höfði
bætti ég við bleiku lambaskinni og
gömlum pelsatölum sem eru búnar
að liggja í skúffu í mörg ár.“
Meiri meðvitund
Henni finnst fólk almennt vera
mun meðvitaðra en áður um
nýtingu fatnaðar. „Það var gaman
að sjá áhuga fólks á sýningunni
enda er þetta mikið í umræðunni
í dag og margar konur eiga pelsa
sem hanga inni í fataskáp. Það sem
mér finnst einstakt við pelsa er það
hvernig fólk passar upp á flíkina
og vill geyma hana í stað þess að
henda henni. Við ættum að hugsa
um allar f líkur eins og við hugsum
um pelsana okkar, þ.e. vanda valið,
fara vel með og ef eitthvað kemur
fyrir að fara þá beinustu leið á
saumastofu.“
4 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 4 . A P R Í L 2 0 1 9 F I M MT U DAG U R
0
4
-0
4
-2
0
1
9
0
9
:3
7
F
B
0
6
4
s
_
P
0
4
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
3
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
1
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
3
0
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
2
B
E
-0
B
0
C
2
2
B
E
-0
9
D
0
2
2
B
E
-0
8
9
4
2
2
B
E
-0
7
5
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
4
A
F
B
0
6
4
s
_
3
_
4
_
2
0
1
9
C
M
Y
K