Fréttablaðið - 04.04.2019, Síða 32

Fréttablaðið - 04.04.2019, Síða 32
Elín Albertsdóttir elin@frettabladid.is Móðir Kittýar er Victoria Lockwood, fyrsta eigin-kona lávarðarins, en hún starfaði einnig sem fyrirsæta. Þær mæðgur sátu fyrir á forsíðu Harper’s Bazaar þegar Kittý var aðeins tveggja ára. Foreldrarnir skildu árið 1997 en Kittý ólst upp á Englandi með föður sínum og í Suður-Afríku með móður sinni til skiptis. Spencer lávarður og Victoria eignuðust fjögur börn saman, en hann á þrjú börn með seinni konum sínum. Kittý hefur starfað sem fyrirsæta frá árinu 2015 þegar hún birtist á forsíðu tískuritsins Tatler. Hímaritið Hello birti for- síðumynd af henni 2017 og stuttu síðar birtist hún á japanska Vogue. Kittý hefur gengið á sýningar- pöllum fyrir Dolce & Gabbana frá því í fyrra auk þess að vera skartgripamódel fyrir BVLGARI. Þá hefur hún einnig starfað fyrir hjálparsamtök sem safna fé fyrir meðal annars Save the Children og heimilislausa. Kittý stundaði háskólanám í Höfðaborg í Suður- Afríku og hélt síðan í framhalds- nám til Flórens á Ítalíu og London. Það var eftir Kittý tekið þegar hún mætti í brúðkaup Meghan og Harrys á síðasta ári og síðan hefur kastljós fjölmiðlanna fylgst með henni. Hún hefur núna upp undir hálfa milljón fylgjenda á Instagram þar sem hún er dugleg að pósta myndum, bæði af sér í glæsilegum tískufatnaði og einnig frá glitrandi einkalífi. Hún er góð vinkona frænda sinna, prinsanna Vilhjálms og Harrys. Nýlega var viðtal við Kittý í Harper’s Bazaar þar sem meðal annars var rætt um femínisma. Þótt faðir hennar sé auðkýfingur hefur Kittý kosið að vinna fyrir sínum peningum sjálf og þénar vel. Hún býr í London en ferðast oft á heimaslóðir í Suður-Afríku þar sem hún segist geta legið í leti og lesið tonn af bókum. Lafði Spencer vekur athygli Lafði Kitty Eleanor Spencer er 28 ára. Hún hefur vakið mikla athygli sem fyrirsæta og einnig vegna þess að hún er elsta barn Spencers lávarðar, bróður Díönu prinsessu. Þessi mynd var tekin nýlega á tískuviku í Mílanó þar sem Dolce & Gabb- ana voru að sýna haust- og vetrartískuna 2019-2020. NORDICPHOTOS/ GETTY Lafði Kittý kemur í brúð- kaupsveislu Meghan Markle og Harrys prins í Windsor- kastala í maí á síðasta ári. Í partíi hjá V&A í London. Þessi mynd var tekin í Royal Drury leikhúsinu í London. Skeifunni 8 • 108 Reykjavík • Sími: 517 6460 • www.belladonna.is Verslunin Belladonna NÝKOMIN FLOTT SENDING AF BUXUM FRÁ NETVERSLUN WWW.BELLADONNA.IS Buxnaleggings Kr. 6.900.- Str. S-XXL Bæjarlind 6 • S. 554 7030 Við erum á Facebook Job.is Job.isGLÆNÝ OG FERSK STÖRF Í HVERRI VIKU Þú finnur draumastarfið á Þú finnur draumastarfið á Heilbrigðisþjónusta Þú fin ur draumastarfið á Iðnaðarmenn 6 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 4 . A P R Í L 2 0 1 9 F I M MT U DAG U R 0 4 -0 4 -2 0 1 9 0 9 :3 7 F B 0 6 4 s _ P 0 4 8 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 3 3 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 1 7 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 3 2 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 2 2 B D -F 7 4 C 2 2 B D -F 6 1 0 2 2 B D -F 4 D 4 2 2 B D -F 3 9 8 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 2 A F B 0 6 4 s _ 3 _ 4 _ 2 0 1 9 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.