Fréttablaðið - 04.04.2019, Page 46

Fréttablaðið - 04.04.2019, Page 46
BÍLAR Vinsælasti rafbíllinn á Vestur-löndum, Nissan Leaf, hefur verið kjörinn bíll ársins 2019 á Kanaríeyjum, þar sem íbúar eru rúmar tvær milljónir. Nissan er eina merkið sem unnið hefur titilinn fjórum sinnum á eyjaklas- anum. Áður voru það Juke 2011, Pulsar 2014, Micra 2017 og nú Leaf 2019, sem er jafnframt fyrsti raf- bíllinn sem Kanaríeyjabúar sæma nafnbótinni. Við val á bíl ársins eru lögð saman gefin stig í átta flokkum sem taka meðal annars til öryggis, hönnunar og útlits, nýsköpunar, tækni og þjónustu framleiðandans. Að mati dómnefndar er Leaf sá bíll á markaðnum sem uppfyllir best væntingar viðskiptavina. Það var forseti hins spænska sjálfstjórnar- svæðis Kanaríeyja, Fernando Cla- vijo Batlle, sem afhenti verðlaunin við hátíðlegt tækifæri og tók Marco Toro, yfirmaður Nissan á Íberíu- skaga, við verðlaununum. Leaf er langvinsælasti rafbíllinn á Kanaríeyjum og eiga íbúar eyjanna sinn þátt í þeim áfanga sem Leaf náði nýlega, að seljast í 400 þúsund ein- tökum, en Leaf er mest seldi fimm manna 100% raf knúni fólksbíll- inn á heimsmarkaði. Samtals hafa ökumenn Leaf ekið bílunum um 10 milljarða kílómetra frá árinu 2010 þegar Leaf fór fyrst í sölu og sparað um 10 milljónir olítunna. Leaf er ekki aðeins mest seldi raf- bíll Evrópu heldur hefur hann líka náð þeim áfanga að verða vinsæl- asti bíllinn á markaðnum í Noregi, þar sem hann var söluhæsti bíllinn 2018. Leaf er einnig vinsælasti raf- bíll Spánar og á síðasta ári undir- ritaði Nissan samning við yfirvöld á Tenerife, einni eyju Kanaríeyja, um kynningarátak til að kynna umhverfisvænar samgöngur með orkuskiptum í því skyni að bæta loftgæði. Sem stendur er Leaf seldur í 50 löndum og á árinu bætast fleiri lönd við þegar hann fer í sölu á sex mörkuðum í Suður-Ameríku. Nissan Leaf bíll ársins 2019 á Kanaríeyjum Forseti hins spænska sjálfstjórnarsvæðis Kanaríeyja, Fernando Clavijo Batlle, afhendir Marco Toro, yfirmanni Nissan á Íberíuskaga, verðlaunin. Á rafbíl eins og I-Pace skila um 90% orku raf- hlöðunnar sér beint til hjólanna til að knýja bílinn áfram. Í bensín- og dísilbílum skila sér aðeins á milli 30 og 40 prósent ork- unnar til hjólanna. Framleiðslustjóri Jaguar, Giles Lenthall, hitti nýlega bílablaðamanninn og sjónvarpsþáttastjórn-andann Jonny Smith hjá BBC til að ræða kosti raf- bíla og hvernig best sé að umgangast þessa nýju tækni sem ryður sér sífellt meira rúm á hinum alþjóðlega bíla- markaði þar sem orkuskiptin í sam- göngum bera hæst. Þegar Jonny og Giles hittust hafði Jonny haft fjór- hjóladrifna rafbílinn Jaguar I-Pace að láni í sólarhring og vildi fræðast um það hjá Giles hvernig hann gæti nýtt sér kosti bílsins til hins ítrasta með sem hagkvæmustum hætti. Eftir níu mánaða reynslu af notkun I-Pace hafði Giles ýmis ráð og heil- ræði til að gefa Jonny, ráð sem nýtast öllum sem vilja kynna sér kosti raf- bíla. Heimahleðslustöð besti kosturinn Til að byrja með ráðleggur Giles raf bílaeigendum að fá sér heima- hleðslustöð til að hlaða bílinn í rólegheitum þegar heim er komið. Hann segir notkun og umgengni við heimahleðslustöðvar ekki ólíka umgengni okkar við snjallsíma sem við setjum gjarnan í hleðslu þegar heim er komið að loknum vinnu- degi. Þessi venjubundna hegðun er af sama meiði: Að morgni er raf- bíllinn fullhlaðinn, rétt eins og snjallsíminn. Kostur heimahleðslu- stöðvarinnar umfram hleðslu við venjulega heimilisinnstungu er m.a. sá að heimahleðslustöðin er mun fljótari að hlaða bílinn og í ljósi dag- legra nota þar sem flestir ökumenn fara fremur stuttar vegalengdir dag hvern eru kostir hennar ótvíræðir. Ók 3.000 km fyrir 4.000 krónur Þegar Giles og fjölskylda ráðgera helgarferð úr fyrir borgina skipu- leggja þau ferðalagið með tilliti til þess hvar orkusölustöðvar eru á leiðinni og athuga einnig hvort hægt sé að hlaða bílinn á gististöðunum. Slík skipulagning hefur þó sífellt minna vægi eftir því sem hleðslu- stöðvum fjölgar í Evrópu og það er að gerast mjög hratt. Giles hefur ekið bílnum sínum mikið, hann fer m.a. reglulega í heimsókn til foreldra sinna sem búa í München og aldrei lent í vandræðum. Sömu sögu er að segja af samstarfskonu hans sem fór í sumarfrí um Evrópu sl. sumar og ók meira en 3.000 km án nokkurra vandræða í daglegum akstri á alla þá áfangastaði sem hún hafði ráðgert. Á ferðalaginu eyddi hún einungis sem svarar 25 sterlingspundum í raf- orkukaup. Það svarar til um fjögur þúsund króna. Góð drægni I-Pace Uppgefið drægi rafhlöðu I-Pace er um 470 km samkvæmt WLTP staðl- inum. Fjölmargir utanaðkomandi þættir ráða þó rauneyðslu raf bíla rétt eins og þegar skoðuð er raund- rægni bíla með sprengihreyfli. Þar ræður t.d. aksturslag ökumannsins miklu og í tilfelli I-Pace, sem er um 400 hestöfl og innan við 5 sekúndur að ná 100 km hraða úr kyrrstöðu, getur það reynst sumum erfitt að aka bílnum þannig að orkan nýtist sem best. Giles segir að veðurfarið hafi líka áhrif, eftir því sem kald- ara sé styttist drægið. Einnig hefur notkun mismunandi búnaðar áhrif á eyðsluna, svo sem sætis- og rúðu- hitarar, miðstöðin og fleira auk þess sem farangursmagn og farþegafjöldi, loftþrýstingur í dekkjum og annað hafa líka áhrif rétt eins og í öllum tegundum ökutækja óháð orkugjafa. Að teknu tilliti til ytri áhrifaþátta á drægi rafbíla segir Giles þó að öku- menn Jaguar I-Pace geti almennt treyst því að komast að um 230 km á hleðslunni óháð ökulagi, hleðslu, veðri og vindum. 90% orkunnar skila sér til hjólanna Einn eðliseiginleika rafbíla er skil- virkni orkunnar. Á raf bíl eins og I-Pace skila um 90% orku raf- hlöðunnar sér beint til hjólanna til að knýja bílinn áfram. Í tilfelli bensín- og dísilbíla skila sér aðeins á milli 30 og 40 prósent orkunnar til hjólanna. Afgangurinn eyðist í viðnámi vélarhlutanna, bæði í ein- stökum mótorhlutum en líka í loft- og olíusíu auk þess sem lausagangur vélar í kyrrstöðu eyðir mikilli orku. Þessi atriði eiga ekki við um rafbíla. Samsetning rafbíla lýtur allt öðrum lögmálum, slit- og viðnámsfletir eru mjög fáir og afköstin að sama skapi margföld á við sprengihreyfil. Giles segir reynsluna af rafbílum almennt þá að þegar fólk hafi einu sinni reynt rafbíl til lengri tíma sé mjög fátítt að hinir sömu vilji skipta aftur yfir í bíl með sprengihreyfli. Þeir sem aka rafbíl vilja almennt ekki aftur bíl með sprengihreyfli Finnur Thorlacius finnurth@frettabladid.is Á rafbíl eins og I-Pace skila um 90% orku rafhlöðunnar sér beint til hjólanna til að knýja bílinn áfram. Í tilfelli bensín- og dísilbíla skila sér aðeins á milli 30 og 40 prósent orkunnar til hjólanna. Þau Aura svo á mig Borga Rukka Skipta 4 . A P R Í L 2 0 1 9 F I M M T U D A G U R30 B Í L A R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð 0 4 -0 4 -2 0 1 9 0 9 :3 7 F B 0 6 4 s _ P 0 4 6 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 3 5 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 1 9 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 3 0 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 2 2 B E -0 B 0 C 2 2 B E -0 9 D 0 2 2 B E -0 8 9 4 2 2 B E -0 7 5 8 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 4 A F B 0 6 4 s _ 3 _ 4 _ 2 0 1 9 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.