Fréttablaðið


Fréttablaðið - 04.04.2019, Qupperneq 48

Fréttablaðið - 04.04.2019, Qupperneq 48
Menjar eftir Rósu Ómarsdóttur flutt í Tjarnarbíói. Hefur verið sýnt víða í Evrópu við góðar viðtökur. Dagana 4.-7. apríl verður h a l d i n d a n s h á t í ð Tjarnarbíós og Reykja-vík Dance Festival undir nafninu Vorblót og þar verða könnuð mörkin milli dans, leiklistar og tónlistar. Meðal verka sem sýnd verða er verk eftir Rósu Ómarsdóttur, Menjar (Traces). Einungis verður ein sýning, í kvöld, fimmtudaginn 4. apríl kl. 20. Verkið var frumsýnt í nóvember 2017 í leikhúsinu Beursschouwburg í Brussel. Síðan þá hefur það verið sýnt í stórum leikhúsum og á hátíð- um víðsvegar um Evrópu, í Stokk- hólmi, Noregi, Belgíu, Hollandi og Grikklandi, og hlotið mjög góðar viðtökur og gagnrýni. Frumskógarleg stemning „Verkið er dansverk en tónlist og sviðsmynd leika þar stórt hlut- verk,“ segir Rósa. „Umhverfisvitund brann á listræna hópnum sem vann að verkinu. Í daglegu lífi erum við að velta því fyrir okkur hvernig við hegðum okkur og hvaða ummerki við skiljum eftir okkur í náttúrunni. Við vildum taka þennan hugsunar- hátt inn í æfingarferlið og sýning- una. Í verkinu er verið að skoða samband manns við umhverfi sitt, en það er eins og maðurinn líti svo á að hann standi fyrir utan nátt- úruna. Hann gleymir því að hann er hluti af henni. Verkið er samspil dansara og sviðsmyndar og saman mynda þau ákveðið landslag eða náttúru sem tekur sífelldum breytingum. Áhorfendur sitja í kringum sviðið og á sviðinu er lítil tjörn, gras og plöntur og loðin efni. Lýsingin varp- ar skuggum þannig að stemningin verður frumskógarleg. Við notum röddina til að framkalla hljóð og munnhljóð verða til dæmis að rigningarhljóðum. Allt fær líf fyrir framan augu áhorfenda.“ Sveinbjörn Thorarensen, einnig þekktur sem Hermigervill, sér um hljóð og tónlist. „Hann setur hljóð- nema á raddbönd okkar dansarana og hljóðnemar eru einnig í rýminu og úr þessu skapar hann mjög fal- lega hljóðmynd,“ segir Rósa. Sviðs- mynd er eftir verðlaunahönnuðinn Rögnu Þórunni Ragnarsdóttur. Dansarar eru: Rósa Ómarsdóttir, Inga Huld Hákonardóttir, Jeanne Colin og Siet Reaymeakers. Lýsing er í höndum Elke Veraktert. Dansborgin Brussel Rósa lærði dans í P.A.R.T.S. dans- skólanum í Brussel og eftir fjögurra ára nám kaus hún að búa áfram í borginni og einbeitir sér að því að semja dansverk. „Brussel er mikil dansborg. Þar er mikið um tilrauna- starfsemi. Mörkin milli leikhúss og dans hafa máðst út og einnig mörk- in milli leikhúss og myndlistar, en dans er líka að færast inn í söfn og gallerí. Ég held að það sé jafnvel meiri dans en leikhús í Brussel,“ segir hún. Rósa byrjaði í fimleikum og ball- ett. „Þegar ég var unglingur áttaði ég mig á því að ballettinn var ekki fyrir mig og byrjaði í Listdansskólanum á nútímadansbraut. Ég var alltaf leitandi að möguleikum í dansinum og þegar Erna Ómarsdóttir kom til landsins þá sá ég að það var hægt að gera svo ótal margt. Svo fór ég til Brussel og þar opnuðust allar dyr. Í dansverkum mínum hef ég ekki mikinn áhuga á mannslíkamanum einum og sér heldur vil ég vinna með hann í samtali við ýmislegt annað. Ég blanda venjulega saman dansi, tónlist og sviðsmynd. Þetta verk er upplifunarverk, það er fyrir öll skilningarvitin. Áhorf- endur sitja í kringum sviðið og hver og einn fær sitt sjónarhorn á verkið. Það er engin ein leið til að horfa á verkið. Þetta er dálítið eins og þegar maður horfir á náttúruna, þú tekur eftir einhverju einu og ég eftir öðru. Þetta er þannig verk og áhorfendur ættu að koma og njóta og upplifa.“ Dansverk um samband manns við umhverfið „Ég blanda venjulega saman dansi, tónlist og sviðsmynd,“ segir Rósa. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN Kolbrún Bergþórsdóttir kolbrunb@frettabladid.is Umfjöllunarefni verksins er ekki síst maðurinn í náttúrunni. MYND/STANISLAV DOBAC VIÐ NOTUM RÖDDINA TIL AÐ FRAMKALLA HLJÓÐ OG MUNNHLJÓÐ VERÐA TIL DÆMIS AÐ RIGNINGAR- HLJÓÐUM. ALLT FÆR LÍF FYRIR FRAMAN AUGU ÁHORFENDA. Brynjar Sigurðarson og Veron-ika Sedlmair sýna verk sín á sýningunni Fyrirvari sem nú stendur yfir í Hafnarborg. Verk þeirra taka á sig margar myndir og þar er að finna teikningar, ljós- myndir, myndbönd, hljóð og hluti. Samband mannsins við umhverfi sitt er sterkur þráður í verkum þeirra. Segja má að sýningin miði að því að þýða eða tengja saman hluti í umhverfinu við hugmyndir og hugleiðingar að nýjum hlutum, en á sýningunni er sköpunarferlið sjálft sýningarefnið. Listamennirnir sjá vinnu sem röð af möguleikum og uppsprettu fyrir nýja hluti. Þann- ig verður hljóð kveikja að hlut og ljósmynd spinnur jafnvel af sér formæfingu í teikningu. Markmið sýningarinnar er að nýta og sýna öll þessi stig og miðla eða setja fram eins konar kortlagningu á tenging- um milli hluta og viðfangsefna, að leggja fram og myndgera ferli, hug- myndir og uppsprettur. Vinna allt saman „Við höfum flakkað nokkuð mikið milli miðla og hugmynda. Við stunduðum bæði hönnunarnám og þar lærir maður að vinna með efni og eiginleika þeirra og fer um leið að velta fyrir sér áferðum og hvernig mismunandi efni vinna saman,“ segir Brynjar. „Rannsóknarvinna er hluti af listsköpun okkar, það að skoða hluti og æfa sig í því að horfa á þá. Þessar æfingar eru mikilvægur hluti af vinnu okkar. Við æfum okkur í því að horfa, hlusta, skapa tónlist og teikna. Þetta skilar sér, ef maður tekur nokkra daga í að teikna þá skapast eins konar næmni fyrir formum eða litum sem skilar sér í listsköpunina. Við vinnum allt saman. Við erum nýgift og höfum unnið saman í fimm ár og reynum að virða og rækta mismunandi eiginleika í samvinnunni.“ Verkin á sýningunni eru afar fjölbreytt og þar á sannarlega við að sjón sé sögu ríkari. „Þetta er umhverfi, fullt af hlutum og pæl- ingum. Við erum að kortleggja þessa hluti og það má sjá einhvers konar tengingar milli þess sem við gerum,“ segir Brynjar. Alls kyns spennandi efni „Við fundum alls kyns spennandi efni, eins og til dæmis steina sem við söfnuðum,“ segir Veronika. „Ég er heilluð af sérstæðum hlutum og ég vona að fólk heillist sömuleiðis af þeim.“ Þau búa í Suður-Frakklandi en bjuggu áður í fjögur ár í Berlín og segjast leggja ríka áherslu að heim- sækja Ísland reglulega og vera þá í nokkrar vikur. Saman standa þau að íslensk-þýsku hönnunarstof- unni Studio Brynjar & Veronika. Þau hafa unnið margvísleg verkefni fyrir fyrirtæki og gallerí og hlotið ýmis verðlaun og viðurkenningar fyrir hönnunarstörf sín. kolbrunb@frettabladid.is Kortlagning hluta Brynjar Sigurðarson og Veronika Sedlmair sýna í Hafnarborg. Rann­ sóknar vinna hluti af listsköpuninni. Brynjar og Veronika hafa hlotið verðlaun fyrir hönnun. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN „Þetta er umhverfi, fullt af hlutum og pælingum,“ segir Brynjar. RANNSÓKNARVINNA ER HLUTI AF LIST- SKÖPUN OKKAR, ÞAÐ AÐ SKOÐA HLUTI OG ÆFA SIG Í ÞVÍ AÐ HORFA Á ÞÁ. 4 . A P R Í L 2 0 1 9 F I M M T U D A G U R32 M E N N I N G ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð MENNING 0 4 -0 4 -2 0 1 9 0 9 :3 7 F B 0 6 4 s _ P 0 4 8 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 3 3 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 1 7 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 3 2 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 2 2 B D -F 7 4 C 2 2 B D -F 6 1 0 2 2 B D -F 4 D 4 2 2 B D -F 3 9 8 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 2 A F B 0 6 4 s _ 3 _ 4 _ 2 0 1 9 C M Y K
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.