Fréttablaðið - 04.04.2019, Page 52
Tilboðsblöð og nánari upplýsingar má finna á reykjavik.is/lodir
Bergþórugata 18
Lóð til sölu
Reykjavíkurborg óskar eftir kauptilboðum í byggingarrétt við Bergþórugötu 18,
samtals 216 m2.
Gamall virðulegur hlynur
Við lóðarmörk stendur gamall
og virðulegur hlynur með hátt
varðveislugildi og er hann mikilvægur
hluti af ásýnd götunnar. Tréð skal
standa og við framkvæmdir á lóðinni
skal tryggja að tréð beri ekki skaða af.
Skilafrestur tilboða til þjónustuvers Reykjavíkurborgar að
Borgartúni 12-14, er til kl. 14:00 þann 10. apríl 2019.
FA
R
04
19
-0
4
KVIKMYNDIR
Us
Leikstjórn: Jordan Peele
Aðalhlutverk: Lupita Nyong’o,
Winston Duke , Shahadi Wright
Joseph, Evan Alex
Hálf heimsbyggðin og jafn-vel gott betur virðist ekki geta haldið vatni yfir hryll-
ingsmyndinni Us, sem má teljast
undarlegt þar sem slík er hún heldur
bragðdauf og lítt spennandi.
Huggulegt sumarleyf i ósköp
venjulegrar kjarnafjölskyldu snýst
snarlega upp í martröð þegar illir
tvífarar f jölskyldumeðlimanna
banka upp á með illt eitt í huga.
Jordan Peele grautar hér saman
mörgum helstu yrkisefnum hryll-
ingsmyndanna, sundrung kjarna-
fjölskyldunnar, tvífaraminninu og
ýmsu öðru og vísar, oft skemmti-
lega, í klassískan hrylling.
Myndin fer feikivel af stað og ekki
verður af leikstjóranum tekið að
hann nær oft upp býsna drungalegri
stemningu með tónlist, útpældu
myndmáli og fimleikum með töku-
vélina.
Stóri gallinn er bara hversu
losaralegt þetta allt saman er og
grunnsagan er í raun veik og að
manni læðist sá grunur að öll
athyglin og hrifningin séu í raun
eftirskjálftar frá síðustu mynd hans,
þeirri stórgóðu Get Out.
Síðan eru vitaskuld ótal túlkun-
armöguleikar í boði og hægt að lesa
alls konar hyldjúpa samfélagsgagn-
rýni út úr þessu. Þá vitaskuld margt
sem er ákaf lega brýnt í Banda-
ríkjum Trumps. Þessar pælingar
enda því miður líka úti í móa vegna
ómarkviss hálfkáks.
Us er full af frábæru hráefni en
úrvinnslan er ekki betri en svo að
hún verður fljótt langdregin og það
sem verra er, leiðinleg.
Þórarinn Þórarinsson
NIÐURSTAÐA: Spennusnauð og
hryllingslaus hryllingsmynd sem þvælist
stefnulaust í ýmsar áhugaverðar áttir
og verður ekki, þrátt fyrir góða viðleitni,
neitt sérstaklega hvöss samfélagsádeila.
Lágspennufall
Lupita Nyong’o kemst í hann krappann þegar hún mætir illum tvífara sínum.
US ER FULL AF FRÁBÆRU
HRÁEFNI EN ÚRVINNSL-
AN ER EKKI BETRI EN SVO AÐ
HÚN VERÐUR FLJÓTT LANG-
DREGIN.
Gaslýsing in er t il dæmis talin ein-kenna stjórnunar-stíl Donalds Trump Bandaríkjaforseta og nægir í því sam-
bandi að nefna bókina Gaslighting
America: Why We Love It When
Trump Lies to Us, eftir Amöndu
Carpenter.
Og þótt gaslýsing hljóti að hljóma
nokkuð einkennilega í okkar raf-
lýsta samfélagi þá stunda íslenskir
stjórnmálamenn hana af allnokkru
kappi. Þórður Snær Júlísson, rit-
stjóri Kjarnans, gastengdi íslenska
pólitík í leiðara í september 2017
þar sem hann sagði meðal annars:
„Tæknin sem beitt er kallast á
ensku „gaslighting“, eða gaslýsing,
og er þekkt pólitískt bragð. Í henni
felst að neita stanslaust allri sök,
afvegaleiða, setja fram mótsagnir,
ljúga upp á fólk afstöðu, hengja
sig í öll aukaatriði og hanna nýja
atburðarás eftir á sem hentar mál-
stað þess sem er að verja sig.“
Kunnuglegt en ennþá fyrirfinnst
ekki betri útskýring á eðli gas-
lýsingar en sjálf uppsprettan, kvik-
myndin Gaslight frá 1944. Hún er að
vísu byggð á samnefndu leikriti frá
1938, var áður kvikmynduð 1940.
Þekktasta útgáfan er þó sú frá
1944, með Ingrid Bergman og Charl-
es Boyer í aðalhlutverkum. Frábær
mynd sem eldist vel og kallast í nýju
gasljósi skemmtilega átakanlega á
við samtímann.
Í Gaslight leikur Bergman unga
konu sem giftist ósköp ljúfum
manni sem byrjar f ljótt að grafa
undan sjálfsöryggi hennar og geð-
heilsu. Hann klifar stöðugt á því
að hún sé gleymin og alltaf að týna
hlutum sem væri rétt ef hann sjálfur
væri ekki á fullu í því að fela hluti
og skamma hana síðan fyrir að hafa
glatað þeim.
Hún verður í raun stofufangi á
eigin heimili enda karlinn búinn
að sannfæra hana um að hún sé of
heilsutæp til þess að vera að spóka
sig á almannafæri. Á kvöldin heyrir
hún brölt og bank í veggjum hússins
og gaslýsingin dofnar kerfisbundið
fyrir augum hennar en allt á þetta
víst bara að vera ímyndun í henni.
Gaslýsingin er þannig ekki
bundin við stjórnmálamenn og í
upphafi var hún kynnt til leiks sem
kúgunartæki innan veggja heim-
ilisins, en einræðisherrar og leið-
togar sértrúarsafnaða hafa einnig í
gegnum tíðina sýnt fram á nokkra
leikni í gaslýsingum.
Kjarninn í hugtakinu eins og
það birtist í bíómyndinni er að
einn lýgur ítrekað að öðrum af svo
mikilli sannfæringu að nánast er
um heilaþvott að ræða og sá sem
beittur er blekkingunni endar með
að efast um eigin geðheilsu. Þróar í
raun með sér einhvers konar Stokk-
hólmsheilkenni og endar með að
trúa og treysta í algerri blindni á
gaslýsarann. Kunnuglegt?
Í því þrúgandi pólitíska and-
rúmi vorra tíma sem er hlaðið fals-
fréttum, lygum, hálfsannleik og
útpældum blekkingum er óhætt
að mæla með því við allt hugsandi
fólk og ekki síður þá sem eru þegar
blindaðir af gasljósunum að drífa
sig í að horfa á Gaslight frá 1944.
thorarinn@frettabladid.is
Gaslýsing þá og nú
Gaslýsing er stunduð grimmt í samtíma-
pólitík en hugtakið má rekja til Gaslight
frá 1944 sem öllum væri hollt að horfa á.
Ingrid Bergman er stórkostleg í hlutverki ungrar eiginkonu sem eigin-
maðurinn tekur á taugum með markvissri gaslýsingu.
Charles Boyer leikur sikkópatískan eiginmanninn sem kynnir gaslýsinguna til leiks sem stjórnunartæki.
4 . A P R Í L 2 0 1 9 F I M M T U D A G U R36 BÍÓ
0
4
-0
4
-2
0
1
9
0
9
:3
7
F
B
0
6
4
s
_
P
0
6
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
5
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
0
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
1
3
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 2
2
B
E
-0
6
1
C
2
2
B
E
-0
4
E
0
2
2
B
E
-0
3
A
4
2
2
B
E
-0
2
6
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
3
B
F
B
0
6
4
s
_
3
_
4
_
2
0
1
9
C
M
Y
K