Fréttablaðið - 11.04.2019, Blaðsíða 4
Fáðu blað dagsins í tölvupósti
kl. 5.00 á morgnana.
Skráðu þig á póstlista Frétta-
blaðsins á www.frettabladid.is/
nyskraning. Það kostar ekkert.
Vertu fyrst/ur
að lesa blaðið
HEILBRIGÐISMÁL „Á síðustu þremur
árum höfum við séð styrkinn fara
upp á við og þróunin á f leiri ára
tímabili er upp á við,“ segir Valþór
Ásgrímsson, verkefnastjóri hjá
Rannsóknastofu Háskóla Íslands
í lyfja- og eiturefnafræði (RLE) um
þau sýni af haldlögðu kókaíni sem
stofnunin fær til rannsóknar. Þró-
unin sé sambærileg á heimsvísu,
framboðið mikið og styrkleikinn
að aukast. Dómar sem fallið hafa
í smyglmálum sýna að nær hreint
kókaín er að koma til landsins.
Undanfarin ár hafa tollverðir
lagt hald á tugi kílóa af kókaíni í
Leifsstöð og varð sprenging í þeim
efnum árið 2017. Aukið framboð og
eftirspurn er að mati sérfræðinga til
vitnis um góðæri undangenginna
ára enda notkun kókaíns gjarnan
beintengd efnahagsaðstæðum
hverju sinni. Fréttablaðið hefur
áður fjallað um metinnf lutning á
kókaíni á liðnum árum og lögreglan
staðfest að þar á bæ taki menn eftir
sífellt meira af efninu í umferð. Í
síðasta mánuði hafði RÚV eftir sér-
fræðingum RLE að magn kókaíns
hefði nærri fjórfaldast í frárennslis-
vatni frá Reykjavík á tveimur árum
ef marka má rannsókn á sýnum úr
tveimur hreinsistöðvum.
Önnur heimild um magnið og
styrkleika efnanna er í dómskjöl-
um hér á landi. Fréttablaðið fór í
gegnum alla kókaíntengda dóma
sem féllu í fyrra, þar sem efnin voru
ýmist haldlögð við innflutning eða
í stærri húsleitum. Í fimmtán dóms-
málum var um að tefla alls 11 kíló
af haldlögðu kókaíni. Í tólf þessara
mála var styrkleiki efnanna birtur í
dómnum og reyndist hann að með-
altali 66 prósent. Styrkleikinn var
allt frá 31 prósenti upp í 86 prósent
og verður vart meiri en það.
Athygli vekur að í tvígang mæld-
ist styrkleiki kókaíns svo hár. Í öðru
málinu var um að ræða smygl á 2,1
kílói frá Barcelona á Spáni en í því
síðara var um 141 gramm sem var
að koma frá Amsterdam í Hollandi.
Frá Zürich í Sviss kom svo rúmt kíló
að 84 prósenta styrkleika.
Til að setja hreinleika efnis að 86
prósenta styrkleika í samhengi þá
fengust þær upplýsingar frá RLE að
það sé svo gott sem hreint kókaín.
Fræðilega geti gildið ekki orðið
hærra en 89 prósent, sem væri sam-
svarandi hreinu – eða 100 prósent
kókaínklóríði.
Þessi aukni styrkleiki efna er
áhyggjuefni. Árið 2017 gerðist það
í Bretlandi að lögregluyfirvöld í
Eastbourne sáu sig tilneydd til að
vara sérstaklega við sérlega hreinu
kókaíni í umferð þar enda notendur
líklega vanari vægari skömmtum og
neysla sama magns af hreinu kóka-
íni gæti endað með ósköpum.
Því sterkara sem kókaínið er
þeim mun meiri líkur eru á eitr-
unareinkennum, vægari jafnt sem
alvarlegum, en við þær aðstæður er
leitað á bráðamóttökuna.
Jón Magnús Kristjánsson, yfir-
læknir bráðalækninga á Landspítal-
anum, segir fjölgun á komum vegna
fíkniefna almennt.
„En það er klár aukning frá því
sem var fyrir fimm árum,“ segir Jón
Magnús um kókaínið sérstaklega.
mikael@frettabladid.is
Kókaínið hér á landi verður
sífellt hreinna og hættulegra
Rannsóknastofa Háskóla Íslands í lyfja- og eiturefnafræði merkir aukningu í styrkleika kókaíns sem
haldlagt hefur verið hér á landi síðustu ár. Það magn hefur aukist verulega. Í fyrra féllu tveir dómar þar
sem reynt var að smygla nær hreinu kókaíni. Fleiri leita á bráðamóttöku Landspítalans vegna eitrunar.
Framboð kókaíns og styrkur hefur aukist síðustu ár. NORDICPHOTOS/GETTY
Það er klár aukning
frá því sem var fyrir
fimm árum.
Jón Magnús Krist-
jánsson, yfirlæknir
bráðalækninga á
Landspítalanum
86%
var styrkleiki kókaíns sem
smyglað var til landsins og
dæmt fyrir í fyrra. Sérfræð-
ingar segja þetta nær hreint
efni.
UMBOÐSAÐILI JEEP® Á ÍSLANDI • ÞVERHOLT 6 • 270 MOSFELLSBÆR • S. 534 4433
WWW.ISBAND.IS • ISBAND@ISBAND.IS • OPIÐ VIRKA DAGA 10-18 • LAUGARDAGA 12-16
jeep.is
NÝR JEEP CHEROKEE
PÁSKATILBOÐ
®
JEEP® CHEROKEE LONGITUDE LUXURY VERÐ FRÁ: 7.990.000 KR.
JEEP® CHEROKEE LIMITED VERÐ FRÁ: 9.580.000 KR.
Aukahlutir að verðmæti 730.000 kr.
fylgja öllum nýjum Jeep® Cherokee út apríl.
30” breyting sem innifelur 3,5cm upphækkun,
30” Cooper heilsársdekk og aurhlífar. Losanlegt
dráttarbeisli, gúmmímottur framan og aftan og málmlitur.
ALVÖRU JEPPI - ALVÖRU FJÓRHJÓLADRIF
SAMFÉLAG Úthlutanir Fjölskyldu-
hjálpar Íslands færast til um einn
dag fyrir páska. Þannig verður
úthlutun fyrir einstaklinga næst-
komandi mánudag, 15. apríl, milli
klukkan 12 og 14 í Iðufelli 14 í
Reykjavík.
Út hlut u n f y r ir f jölsk yldu r
verður á sama stað þriðjudaginn
16. apríl milli klukkan 12 og 14. Þá
verður úthlutun að Baldursgötu 14
í Reykjanesbæ miðvikudaginn 17.
apríl milli klukkan 15 og 17. – sar
Úthlutanir fyrir
páska færast til
UMHVE RFISMÁL Umhverf isráð-
herrar Norðurlandanna samþykktu
á fundi sínum í Reykjavík í gær
yfirlýsingu þar sem kallað er eftir
alþjóðlegum samningi til að draga
úr plastmengun í hafinu.
Aukin plastmengun í hafi sé
vandamál á heimsvísu og alvarleg
ógn við lífríkið. Ráðherrarnir leggja
áherslu á að frekari aðgerða sé þörf
til að draga úr þessari mengun.
Ekkert eitt ríki geti leyst vandann
heldur þurfi samvinnu.
„Með yfirlýsingunni í dag [í gær]
styrkjum við stöðu okkar sem leið-
andi afl á alþjóðavísu við að takast
á við þetta brýna úrlausnarefni,“
er haft eftir Guðmundi Inga Guð-
brandssyni umhverfisráðherra. – sar
Yfirlýsing vegna
plastmengunar
KJARAMÁL Atkvæðagreiðslur um
lífskjarasamninginn sem undir-
ritaður var í síðustu viku eru nú
að hefjast. Kosning meðal félags-
manna VR hefst í dag og stendur til
hádegis næstkomandi mánudags.
Hjá aðildarfélögum Starfsgreina-
sambandsins hefst atkvæðagreiðsla
klukkan 13 á morgun og stendur til
klukkan 16 þriðjudaginn 23. apríl.
Viða r Þor steinsson, f r a m-
kvæmdastjóri Eflingar, segir að vel
hafi verið mætt á kynningarfund
félagsins sem haldinn var á þriðju-
dagskvöld. „Það var almennt gerður
mjög góður rómur að þessari kynn-
ingu að því er ég gat best séð. Það
voru auðvitað líf legar umræður og
við reyndum eftir megni að svara og
skýra hluti,“ segir Viðar.
Í gærkvöldi fór fram kynning
á ensku og í kvöld verður samn-
ingurinn kynntur á pólsku. Viðar
segir að félagið vilji tryggja að fólk
þekki inntak nýs kjarasamnings svo
að það geti tekið upplýsta afstöðu.
„Fólk er forvitið um þessar nýju
heimildir til kaffitímasölu og vinnu-
tímastyttingar. Eins er fólk að spá í
hluti eins og þessar nýju hugmyndir
í húsnæðismálum. Okkur hefur
gengið ágætlega að útskýra margt af
þessu sem er nýlunda eins og þessar
hagvaxtartengdu launahækkanir.“
Á næstu dögum verða samn-
ingarnir kynntir fyrir aðildar-
fyrirtækjum SA en haldnir verða
kynningarfundir í Reykjavík og á
Akureyri. Halldór Benjamín Þor-
bergsson, framkvæmdastjóri SA,
segist gera ráð fyrir að atkvæða-
greiðsla hefjist um eða eftir helgi.
Niðurstöðurnar verða birtar mið-
vikudaginn 24. apríl en um alls-
herjar atkvæðagreiðslu er að ræða
þar sem atkvæðafjöldi er veginn
eftir stærð fyrirtækja.
„Það verða greidd atkvæði sam-
eiginlega um samningana enda
marka þeir launastefnu fyrir allan
almenna vinnumarkaðinn,“ segir
Halldór. – sar
Atkvæðagreiðslur um lífskjarasamninginn eru að hefjast
Fólk er forvitið um
þessar nýju heim-
ildir til kaffitímasölu og
vinnutímastytt-
ingar.
Viðar Þorsteins-
son, fram-
kvæmdastjóri
Eflingar
1 1 . A P R Í L 2 0 1 9 F I M M T U D A G U R4 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
1
1
-0
4
-2
0
1
9
0
7
:2
7
F
B
0
5
6
s
_
P
0
5
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
4
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
0
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
1
3
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
2
C
C
-0
A
7
0
2
2
C
C
-0
9
3
4
2
2
C
C
-0
7
F
8
2
2
C
C
-0
6
B
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
3
B
F
B
0
5
6
s
_
1
0
_
4
_
2
0
1
9
C
M
Y
K