Fréttablaðið - 11.04.2019, Síða 16
Frá degi til dags
Halldór
ÚTGÁFUFÉLAG: Torg ehf. STJÓRNARFORMAÐUR: Einar Þór Sverrisson FORSTJÓRI: Ingibjörg Stefanía Pálmadóttir ÚTGEFANDI: Kristín Þorsteinsdóttir kristin@frettabladid.is
RITSTJÓRAR: Kjartan Hreinn Njálssson kjartanh@frettabladid.is, Ólöf Skaftadóttir olof@frettabladid.is, MARKAÐURINN: Hörður Ægisson hordur@frettabladid.is FRÉTTABLAÐIÐ.IS: Sunna Karen Sigurþórsdóttir sunnak@frettabladid.is.
Fréttablaðið kemur út í 85.000 eintökum og er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslun um á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum
án endurgjalds. ISSN 1670-3871 FRÉTTABLAÐIÐ Kalkofnsvegur 2, 101 Reykjavík Sími: 550 5000, ritstjorn@frettabladid.is HELGARBLAÐ: Kristjana Björg Guðbrandsdóttir kristjanabjorg@frettabladid.is
MENNING: Kolbrún Bergþórsdóttir kolbrunb@frettabladid.is LJÓSMYNDIR: Anton Brink anton@frettabladid.is FRAMLEIÐSLUSTJÓRI: Sæmundur Freyr Árnason sfa@frettabladid.is
Kolbrún
Bergþórsdóttir
kolbrunb@frettabladid.is
Það er ekki
viturlegt af
þeim að
leggjast í
útrás til að
predika að
þeir hafi verið
hafðir fyrir
rangri sök.
Ef það er
eitthvað sem
ógnar full-
veldishug-
takinu í
samtímanum
þá eru það
þær hug-
myndir að
alþjóðasam-
starf sem
Ísland tekur
þátt í skerði
fullveldið.
Um þessar mundir heyrast háværar raddir sem telja að alþjóðasamstarf sæki að fullveldinu. Þessar hugmyndir standast ekki.
Allar götur síðan 1923 hafa alþjóðadómstólar reglulega
hafnað sjónarmiðum um að líta beri á alþjóðlegar skuld-
bindingar ríkis sem skerðingu á fullveldi þess. Þeir hafa
bent á að ákvörðun um að taka á sig alþjóðlegar skuld-
bindingar feli í sér beitingu fullveldisréttar, s.s. að gerast
aðili að samningum sem setja á laggirnar alþjóðastofnanir
og að fallast á skyldubundna lögsögu alþjóðlegs dómstóls.
Grundvallarhugsunin er að fullvalda ríki getur ákveðið
að setja sér sjálft takmörk. Fullveldishugtakið er í þessum
skilningi eins og lögræðishugtakið. Þeir samningar sem
eru nú í brennidepli (EES og MSE) hafa verið innleiddir í
íslenskan landsrétt og því enn minni ástæða en ella til að
ætla að þeir fari gegn fullveldinu.
Hugtakið fullveldisframsal er oft notað í umræðunni
um alþjóðamál hérlendis um það þegar ríki tekur á sig
þjóðréttarlegar samningsskuldbindingar. Heppilegra er
að ræða um framsal valdheimilda frekar en fullveldis-
framsal þar sem það felst í fullveldi ríkja að geta framselt
ríkisvald til alþjóðastofnunar. Einn af göllum stjórnar-
skrárinnar er að hún endurspeglar ekki þennan veru-
leika. Leiðtogar Íslendinga í samningaviðræðunum við
Danmörku um sambandslögin skildu fullveldishugtakið
með þeim hætti sem að ofan greinir sem og Ólafur Jóhann-
esson fv. forsætisráðherra. Árið 1962 benti Ólafur á að
„[s]kuldbindingar ríkja gagnvart alþjóðastofnun munu því
oftast nær engu skipta um formlegt fullveldi ríkis.“ Sömu
hugmyndir sjást í mörgum kennsluritum í þjóðarétti.
Hernám Breta árið 1940 er eina tilvikið þar sem full-
veldi Íslands hefur verið skert. Vegna aðildar Íslands að
NATO og tvíhliða varnarsamnings við Bandaríkin er
slíkt utanaðkomandi inngrip í fullveldi Íslands ólíklegra
en fyrir tæplega 80 árum. Ef það er eitthvað sem ógnar
fullveldishugtakinu í samtímanum þá eru það þær hug-
myndir að alþjóðasamstarf sem Ísland tekur þátt í skerði
fullveldið. Allar tilraunir til að sneiða burt alþjóðlegar
hliðar fullveldishugtaksins eru sérlega varasamar fyrir
ríki sem reist hefur tilvist sína á milliríkjasamningum
og alþjóðlegri samvinnu. Alþjóðasamstarf er hluti full-
veldisins.
Fullveldi
Það var verulega vandræðalegt að sjá í seinni fréttatíma RÚV, síðastliðið þriðjudagskvöld, myndir af þingmanni Miðflokksins Bergþóri Ólasyni bera sakir af Klausturþingmönnunum í ræðu á sjálfu Evrópuráðsþinginu. Á þinginu
mælti Þórhildur Sunna Ævarsdóttir, formaður laga-
og mannréttindanefndar Evrópuráðsþingsins, fyrir
þingsályktun um að aðildarríki setji á fót óháða
nefnd eða stofnun sem hægt verði að leita til verði
starfsmaður þjóðþings fyrir kynferðislegu ofbeldi
eða áreitni. Áður hafði verið birt skýrsla þar sem
Klausturmálinu var lýst í einni efnisgrein. Af þessu
tilefni sá Bergþór ástæðu til að vekja athygli fulltrúa
Evrópuráðsþingsins á því sem honum finnst vera ill
meðferð á sér og félögum sínum í Klausturmálinu og
gaf í skyn að pólitískir andstæðingar nýttu sér málið í
pólitískum tilgangi.
Klausturþingmennirnir hafa undanfarið verið æði
uppteknir við að vekja athygli á máli sínu, reyndar
leggja þeir slíkt kapp á það að furðu hlýtur að vekja
því málstaður þeirra er engan veginn góður. Það er
ekki viturlegt af þeim að leggjast í útrás til að predika
að þeir hafi verið hafðir fyrir rangri sök.
Á Evrópuráðsþinginu sagði Bergþór að handrit af
upptökum af samtali þingmanna og myndir úr upp-
tökuvélum sýndu aðra mynd en haldið hefði verið að
fólki. Ekki útskýrði þingmaðurinn það nánar. Fyrst
hann var á annað borð að vekja athygli þingsins á
málinu hefði mátt ætla að hann myndi rekja hvað
það er nákvæmlega sem er svo mikið öðruvísi þar en
haldið hefur verið fram. Hvað í atburðarásinni er svo
mikilvægt að það setji orðin sem féllu á barnum í garð
kvenna í algjörlega nýtt samhengi og geri þau nánast
merkingarlaus? Hafi þingmaðurinn séð myndir úr
upptökuvélum ætti hann að eiga auðvelt með að
útskýra hvað hann á við og fræða þá Evrópuráðs-
þingið sem og íslensku þjóðina.
Þórhildur Sunna var sannur þjóðarsómi þegar
hún svaraði Bergþóri fullum hálsi og röggsamlega
með orðunum: „Kæru félagar, skýrslan er byggð
á pólitískum hvötum, en ekki til þess að ráðast á
Bergþór heldur til að ráðast á það pólitíska umhverfi
þar sem konur er hafðar út undan, þær niðurlægðar
eða hlutgerðar á grundvelli kyns. Það er pólitík sem
ég er stolt af að tala fyrir.“ Fyrir þessi orð sín uppskar
Þórhildur Sunna vitanlega mikið klapp þeirra sem
voru í salnum.
Allt frá því Klausturmálið kom upp hafa þing-
mennirnir sem voru á barnum ekki sýnt vott af iðrun.
Þeir virðast trúa því staðfastlega að þeir hafi ekki
gert neitt sérstaklega mikið af sér og sjá óvini í öllum
hornum og telja sig fórnarlömb viðamikils samsæris.
Einn í þessum hópi mætir síðan á Evrópuráðsþingið
og ber sakir af sér og félögum sínum. Þessi ferð hans
á þingið var mikil sneypuför, eins og sjá má á mynd-
bandsupptökum. Klausturþingmenn verða að láta
af hjákátlegri sjálfsvorkunn ætli þeir sér ekki að
verða enn frekar að alþjóðlegu athlægi.
Sjálfsvorkunn
Þau Aura svo á mig
Borga
Rukka
Skipta
Bjarni Már
Magnússon
dósent við
lagadeild HR
Bára í búri
Erla Hlynsdóttir, framkvæmda-
stjóri Pírata, gaf tóninn í nýjum
hlaðvarpsþáttum Pírata sem
þau kalla PírApinn en þar er
hugmyndin að hver sem vill og
telur sig geta sýni hvað í honum
býr á eigin forsendum. Erla reið á
vaðið með viðtali við hljóðritar-
ann Báru Halldórsdóttur og í
raun ekki heiglum hent að fylgja
í kjölfarið þar sem Erla var ein-
hver skarpasti og djarfasti blaða-
maður landsins áður en hún tók
að sér að halda utan um Pírat-
ana. Erla fékk það meðal annars
upp úr Báru að í sumar ætli hún
að bjóða upp á gjörning þar sem
hún ætlar að athafna sig í búri til
þess að sýna fram á þrönga stöðu
öryrkja. Áhugaverð hugmynd
en líklega hefðu Klaustursþing-
mennirnir sem Bára hljóðritaði
kosið að hún hefði læst sig inni í
búri miklu fyrr.
Endurfundir
Erla og Bára eiga sér merkilega
sögu þegar horft er til baka eftir
Klaustursfokkið en Erla tók
einmitt fyrsta viðtalið við Báru
um veikindi hennar í Frétta-
tímanum 2013. Þá höguðu
framsýnar örlaganornirnar því
þannig að Bára prýddi forsíðu
blaðsins ásamt Sigmundi Davíð
Gunnlaugssyni, æðsta kardínál-
anum af Klaustri, sem þá var
valinn maður ársins. Síðan liðu
nokkur ár og Bára var víða valin
manneskja ársins 2018.
thorarinn@frettabladid.is
1 1 . A P R Í L 2 0 1 9 F I M M T U D A G U R16 S K O Ð U N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
SKOÐUN
1
1
-0
4
-2
0
1
9
0
7
:2
7
F
B
0
5
6
s
_
P
0
4
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
4
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
1
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
1
6
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
2
C
C
-0
0
9
0
2
2
C
B
-F
F
5
4
2
2
C
B
-F
E
1
8
2
2
C
B
-F
C
D
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
2
B
F
B
0
5
6
s
_
1
0
_
4
_
2
0
1
9
C
M
Y
K