Fréttabréf Félags íslenskra sjúkraþjálfara - 20.11.1996, Qupperneq 12
Enn af Veronicu Sherborne
Þori
ég að
prófa?
Rúlla, rugga, velta,
draga, bera, lytta,
halda, slaka.
Þctta voai aðalviðfangsefni 12 sjúkraþjálfara í
þrjá eftirmiðdaga í byrjun nóvembcr. Allar
mögulegar hreyfingar voru prófaðar; slerkar,
veikar, frjálsar, bundnar, hraðar, hægar, vt'ðar,
beinar og í atlar áttir.
Nanna Hauksdóuir sjúkraþjálfari frá Noregi
hélt námskeið um hreyfingakerfi Veronicu
Shcrbome (V.S.) en hún þróaði það upp úr
hreyfingakerfi Labans. Mest hefur kerfið
verið notað fyrir böm og þá aðallega þroska-
heft böm en möguleikar þess eru miklir.
Allar æfingamar em gerðar í samvinnu.
Mismunandi margir vinna saman í hvert
skipti; tveir, þrír, fjórir, allur hópurinn cða
hvemig sem passaði best.
Kenning V.S. er sú að með því að cíla
hrcyfiþroska bamsins eflist allur annar þroski
og að með því að vinna saman að öllum
æfingum cílist hæfni viðkomandi til sam-
skipla við aðra. Bamið eða sá scm gerir
æfingamar upplifir iíkama sinn á mismunandi
hátt og eykur þannig líkamsvitund sína.
Engin keppni á scr stað. Ekkert eiu er réu og
Fréttctbréf FÍSÞ
Bœtir, hressir
ogkœtir
annað rangt. Enginn vinnur eða tapar
heldur em allir að vinna saman að því
að gera skemmtilegar æfingar og
hugmyndafluginu og sköpunargáfunni
ergefinn laus taumur.
Æfingamar
Eyrstu tvo dagana prófuðum við æfing-
amar. Síðasta daginn settum við upp
æfingaprógrömm fyrir tvo mismunandi
hópa, böm og fullorðna, og prófuðum
að keyra þau í gegn. Eftir það vom
umræður um notagildi kerfisins.
Auðveldast er að sjá fyrir sér notkun
þess hjá börnum en einnig er spenn-
andi möguleiki að koma því að í
almennri hópþjálfun hjá fullorðnum.
Margir fullorðnir hafa þéirf fyrir að
auka liKamsvitund sína, upplifa sjáifa
sig á annan hátt en þeir áður hafa
þekkt, þora að vinna með öðmm og
gefa hugmyndafluginu aðeins lausan
tauminn. hetta er spennandi mögu-
leiki sem vert er að huga að.
A þessari og næstu siðu em nokkur
dæmi um æfingar Veronicu ásamt
skýringartextum.
Ragnheiður Yr Grétarsdóttir,
sjúkraþjálfari.
Ýta á móti hvomm öðmm, hendur
hvíla á öxlum mótherjans.
Ýta mjöðmum á móti hvomm öðmm.
3 saman, tveir halda styðja við hendur
og handakrika þess þriðja sem hoppar
upp í loftið.
a) Hnipraðu þig saman svo þú verðir
að ptnulitlum punkti.
b) Gerðu þig eins langa(-n) og þú
getur.
12
Fréttabréf Félags íslenskra sjúkraþjálfara - áttundi árgangur