Fréttabréf Ættfræðifélagsins - 01.04.2015, Page 3

Fréttabréf Ættfræðifélagsins - 01.04.2015, Page 3
Fréttabréf Ættfræðifélagsins í apríl 2015 http://www.ætt.is aett@aett.is3 Uppruni – nafngift – uppvöxtur Þorkell Eyjólfsson fæddist í Elliðaey á Breiðafirði 6. júní 1815. Foreldrar hans voru Guðrún ljós- móðir Jónsdóttir prests Þorlákssonar á Bægisá og séra Eyjólfur sonur séra Gísla á Breiðabólstað á Skógarströnd, sonar Ólafs Skálholtsbiskups Gíslasonar; oft kölluð Miðfellsætt. Rekja mætti ætt Þorkels Eyjólfssonar á ýmsa vegu, líkt og ann- arra, en þessi ættleggur valinn þar eð einkenni hans virðist hversu margir þar hafa áhuga á fræðslumálum og kennslu. Ekki er þó unnt að geta þess nema takmarkað þar eð frásögnin er einkum bundin ævi einnar persónu. Til gamans má rekja hvernig nafn hans er tilkom- ið. Þorkell Eyjólfsson hét í höfuð afabróður síns, Þorkels gamla Ólafssonar officialis á Hólum (þ.e. aðstoðarmaður biskups) syni Ólafs Gíslasonar bisk- ups í Skálholti og Margrétar Jakobsdóttur, sem var orðlagður skörungur. En hjá henni hafði vitjað nafns Þorkell prestur Oddsson í Gaulverjabæ, en sá bar nafn Þorkels prests og læknis Arngrímssonar, lærða Jónssonar í Görðum á Álftanesi (1629 – 1677) föður Jóns biskups Vídalín. Séra Þorkell læknir í Görðum bar nafn Þorkels Gamlasonar Hólaráðsmanns og sá bar nafn Þorkels Hallgrímssonar á Egilsstöðum í Vopnafirði er hét eftir Þorkeli presti Guðbjartssyni í Laufási og mætti væntanlega lengur rekja. Guðrún, móðir Þorkels Eyjólfssonar, var sögð fyr- irtaks gáfukona og orðlögð yfirsetukona en aftur á móti ekki búkona. Hún tók allan arf eftir móður sína Margréti Bogadóttur, er bjó í Galtardal á Fellsströnd, og var vel efnuð kona. Séra Jón, faðir Guðrúnar, tók við Bægisárprestakalli árið 1788 er hann endurheimti prestskap sinn, en hún og Margrét móðir hennar bjuggu áfram í Galtardal, var Guðrún þá 14 ára. Það var ákvörðun hans að allar eignirnar félli til dótturinn- ar, en hvorki Guðrún né séra Eyjólfur voru hagsýnt búskaparfólk og gengu efni af þeim. Drykkjuskapur hans, er mun hafa verið allnokkur, hefur án efa flýtt þeirri þróun. Galtardalstófan Geta má þess að í þjóðsögum eru sagnir um mann er vildi fá Margrétar Bogadóttur meðan hún var í föð- urgarði, en var synjað hennar. Sá hafi þá haft í heit- ingum að hún skyldi ekki njóta farsældar í hjónabandi síðar og magnað á hana tófu og sent að Galtardal. Tveggja alda afi Þorkell 1815 – 1891 Einar 1867 – 1945 Björg 1925 – Dýrið hlaut nafnið Galtardalstófa og einstaka afkom- endur telja sig verða hennar varir. Hins vegar brosti Þorkell jafnan að öllu tali um fylgju af því tagi. Þorkell Eyjólfsson hefur greint frá atviki úr æsku sinni: Þegar hann var um 14 ára hefði hann verið far- inn að drekka, því að mikið hefði hann séð fyrir sér af drykkjuskap bæði af bæ og á. Kvaðst hann einn sunnudag hafa legið úti í hlaðvarpa svo ofurölvi þeg- ar fólk var að koma til kirkju, að komumenn höfðu á orði að drykkjuskapurinn úrættaðist ekki. Þótti hon- um svo mikil óvirðing í þessu og hugsaði með sér að menn skyldu hafa annað að tala um eftirleiðis en drykkjuskap sinn og upp frá því bragðaði hann ekki vín til æviloka. Skólaganga – starfsval Séra Eyjólfur hafði oftsinnis sótt um skólavist fyr- ir Þorkel son sinn en ekki fengið. Bessastaðaskóli rúmaði 30 til 40 nemendur og voru þeir þar í mikl- um þrengslum. Margir nemendur voru þar allt að sex vetur og endurnýjunin því hæg. Skólinn starfaði við góðan orðstír þar eð sumir kennaranna voru miklir lærdómsmenn og námi í íslensku gert hátt undir höfði samhliða fornmálunum. Lærður skóli var á Bessastöðum í um 40 ár, frá hausti 1805 til vors 1846. Sem dæmi um hvernig nem- endahópurinn var samsettur má tiltaka að um 1840 voru 23 piltar synir embættismanna en 15 synir bænda og handiðnaðarmanna og tveir kaupmannasynir. Þorkell Eyjólfsson kom tvítugur í Bessastaðaskóla og útskrifaðist þaðan 1841. Hann kunni því illa í fyrstu að vera neðarlega í bekk og tók að rísa snemma úr rekkju er eldaði af morgni og las þá af kappi og varð þegar fram liðu stundir með þeim er efstir voru. Þorkell og vinur hans Vilhjálmur Finsen, síðar dóm- ari (1823 – 1892) voru jafnan efstir í bekk tvö sein- ustu árin. Síðari ár Þorkels í skóla gerði hann að vana sínum að kenna þeim skólabræðra sinna sem voru laklega að sér svo þeir næðu að útskrifast. Sjálfur fékk hann besta vitnisburð við útskrift 1841 sem fyrirmynd annarra um iðni og háttprýði og hlaut verðlaun fyrir premium industriæ (verðlaun fyrir iðni) að líkum Græsk-dansk Ordbog, útg. í Khöfn 1830, höf. Páll Árnason. Franskur greifi Þorkell var latínumaður mikill og kunni utanbókar margt eftir latínuskáldin svo sem úr Hómer og eftir Hóraz og hafði oft yfir vísur af því tagi. Hann var viss

x

Fréttabréf Ættfræðifélagsins

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttabréf Ættfræðifélagsins
https://timarit.is/publication/885

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.