Fréttabréf Ættfræðifélagsins - 01.04.2015, Page 13
Fréttabréf Ættfræðifélagsins í apríl 2015
http://www.ætt.is aett@aett.is13
Páll í Auraseli
Á því hörmungasumri 1783 flýðu margir Skaftfellingar
bæi sína og byggð, er þeir höfðu misst fasteign sína og
fénað af völdum Skaftáreldanna. Héldu stórir hópar
af hungruðu og harmþrungnu fólki vestur á sveitir til
að leita sér einhverrar lífsbjargar. Einn af þeim mörgu
er gengu þessi þungu spor var Páll bóndi Nikulásson
á Núpum í Fljótshverfi. Hann var fæddur 1758 og
var ættaður frá Hlíð undir Eyjafjöllum. Hann var
kvæntur Guðrúnu Þorsteinsdóttur frá Arnbjargarlæk
í Borgarfirði. Hún var systir Þorvaldar á Botnum í
Meðallandi er fluttist í þessum eldnauðum að Alviðru
í Ölfusi og bjó þar til dauðadags og niðjar hans allt til
þessa dags.
Guðrún var ekkja er Páll gekk að eiga hana.
Fyrri maður hennar var Ögmundur Ólafsson bóndi
á Núpum í Fljótshverfi, og voru synir þeirra Daníel,
er ólst upp hjá móðurbróður sínum í Alviðru, og dó
þar 13. október árið 1800 tvítugur að aldri, og Guðni
bóndi á Arnarhóli í Landeyjum. Þau Páll og Guðrún
lögðu á Mýrdalssand seint í tuttugustu viku sumars
með fólk sitt og farangur sem var á þrem reiðings-
hestum.
Guðrún reið jarpskjóttri hryssu með folaldi og
reiddi yngsta barn sitt, dreng á öðru ári, Ögmund að
nafni. Um eldri drengina (Guðna f. 1778 og Hannes
f. 1780) (Innskot ritstjóra) var búið ofan í milli á
baggahestunum. Páll gekk. Lestin mjakaðist fót fyrir
fót út á sandinn mikla.
Veður var heitt og mollulegt og sást lítið frá sér
fyrir þoku og eldmistri. Fleira fólk var þarna á ferð
þótt eigi kunni ég að nafngreina það, en allt var það í
sömu erindagjörðum, að flýja eld og ógæfu, en leita
athvarfs og öryggis.
Guðrún veikist
Seint um kvöldið komu þau að Höfðabrekku í Mýrdal
og voru þá margir hestanna sýnilega veikir. Þar var
þeim tekið eftir beztu föngum, en margir voru þar
fleiri gestir. Daginn eftir var annar hesturinn dauður,
en hinn tók ekki jörð og var aðframkominn. Voru þau
um kyrrt þann dag í illviðri. Að áliðnum degi þar á
eftir lögðu þau af stað í sæmilegu veðri. Var nú lagður
reiðingur á skjóttu hryssuna, því tveir hestarnir voru
fallnir frá. Báru þau nú á tveimur, hjónin gengu, en
Páll bar litla drenginn.
Þegar fram kom á daginn fór Guðrún að kenna las-
Aurasel
Íslenskir sagnaþættir og þjóðsögur
Safnað hefur Guðni Jónsson
leika og þegar þau komu út í Reynishverfi, var hún
orðin veik. Þar hittu þau mann, sem bauð þeim heim
til sín og þáðu þau það með þökkum. Þar lá Guðrún
hálfan mánuð, en Páll hjálpaði bónda við húsabætur
og önnur hauststörf, því ekki vildi hann skilja konu
sína eftir. Þegar hún fór að hressast lögðu þau af stað
með folaldsmerina eina í taumi, því að nú voru all-
Síðastliðið haust barst mér í hendur einkar
ánægjulegt bréf frá Guðjóni Þór Valdimarssyni
félaga í Ættfræðifélaginu. Þar segir meðal ann-
ars:
Ég var lesa grein þína um blinda Jón, .....
Sem ég var að lesa greinina um harða lífsbar-
áttu forfeðra okkar, datt mér í hug ljósrit af grein
úr ritinu Íslenskir sagnaþættir og Þjóðsögur og
fjallar hún að hluta til um lífsbaráttu fólks á
Suðurlandi í kjölfar Skaftáreldanna 1783. Þar
koma m.a. við sögu forfeður föðurömmu minn-
ar sem byggðu sér bæ í landi Breiðabólsstaðar í
Fljótshlíð sem þau kölluðu Aurasel. Mér fannst
greinin svo athyglisverð að ég pikkaði hana inn
á tölvuna mína þar sem ljósritið sem ég fékk var
orðið snjáð og óskýrt. Ég var svo heppinn að
stuttu eftir að ég hafði komið greininni í stafrænt
form, þá fann ég í Lesbók Morgunblaðsins frá
4. janúar 1997 fallega mynd af Auraseli teikn-
aða af Ragnari Lár...... Mér datt í hug að senda
þér greinina... Ef þér dytti í hug að nota hana eða
hluta hennar í Fréttabréfið þá er það allt í lagi frá
minni hendi en ég veit ekki hvort það þarf að fá
leyfi frá þeim sem gáfu hana út eða frá ættingj-
um Ragnars, en þú veist örugglega betur um það
en ég, hvort þess er þörf.
Svo mörg voru þau orð.
Ritstjórinn tók þessari sendingu fagnandi,
ekki síst með Holuhraunið rennandi og eiturguf-
urnar svífandi yfir landinu. Haft var samband
við Bjarna Guðnason prófessor, son Guðna
Jónssonar, og veitti hann fúslega leyfi til birt-
ingar greinarinnar. Það er gaman að geta þess
að Guðni Jónsson var um árabil formaður
Ættfræðifélagsins og einn mikilvirkasti útgef-
andi ættarfróðleiks á Íslandi. Kristín Pálsdóttir,
ekkja Ragnars Lár, veitti einnig fúslega leyfi
til þess að við birtum hina fallegu teikningu
Ragnars og kann Ættfræðifélagið þeim báðum
bestu þakkir fyrir elskusemina.