Fréttabréf Ættfræðifélagsins - 01.04.2015, Qupperneq 23
Fréttabréf Ættfræðifélagsins í apríl 2015
http://www.ætt.is aett@aett.is23
Aðalfundur
Ættfræðifélagsins
Aðalfundur Ættfræðifélagsins var haldinn fimmtudaginn
26. febrúar sl. Formaðurinn, Guðjón Ragnar Jónasson,
gerði grein fyrir starfi félagsins á liðnu ári og Kristinn
Kristjánsson gjaldkeri sagði frá fjárhagnum. Ákveðið
var að árgjaldið á komandi ári verði 5800 kr., sem er
hækkun með 300 kr. frá fyrra ári. Ný stjórn var kosin,
hana skipa Guðjón Ragnar Jónasson, sem verður áfram
formaður, Kristinn Kristjánsson, Arnbjörn Jóhannesson
og Ragnar Ólafsson, sem allir voru í stjórn síðasta árs.
Auk þeirra Anna Guðrún Hafsteinsdóttir fyrrum for-
maður félagsins, Jón Sævar Baldvinsson bókasafns-
fræðingur og Rúna Þráinsdóttir fornleifafræðingur.
Skoðunarmenn reikninga verða Olgeir Möller og Ólafur
Pálsson. Fundarstjóri minntist látinna félaga.
Guðfinna Ragnarsdóttir verður áfram ritstjóri
Fréttabréfsins.
EFNAHAGSREIKNINGUR 31. desember 2014
EIGNIR:
Bókabirg ir og bla a 2,267,653
Bankainnistæ ur:
Netreikningur 200231 8,650
í Íslandsbanka
Tékkareikningur 71774 15,703
í Arionbanka
Tékkareikningur 8050
Í Íslandsbanka 182,703 207,056
2,474,709
SKULDIR:
Vir isaukaskattur 2160
Höfu stóll 1.1. 2,549,674
- Halli 77,125 2,472,549
2,474,709
REKSTRARREIKNINGUR 1. janúar - 31. desember 2014
TEKJUR:
Bókasala 66,200
Vir isaukaskattur -5,978
60,222
Bókabirg ir 1.1. 2,338,945
- Birg ir 31.12. 2,267,653 68,483
Brúttóhagna ur af bókasölu -8,261
Félagsgjöld
309x5500 2014 1,705,000
14 x 5900 2014 82,600
Eldri árgjöld 69,760 1,857,360
Gjafir frá Gu jóni Óskari 100,000
Vextir 6,439
Brúttóhagna ur alls 1,955,538
GJÖLD:
Fréttabréf:
Prentun og umbrot 579,274
Bur argjöld og umbú ir 264,675 843,949
Húsaleiga 824,499
Internet jónusta 87,707
Sími 47,928
óknun til banka 60,046
Váryggingar 18,727
Kaffistofa 21,525
krans 27,000
Heimasí a afskrifu 100,000
Fjármagnstekjuskattur 1,282 2,032,663
Halli (77,125)
1,955,538
félagar hafa bæst við á liðnu ári. Meðalaldur félagsmanna
er hár og margir falla frá á ári hverju. Með söfnunarátak-
inu hefur okkur þó tekist að halda í horfinu, en betur má
ef duga skal. Félagið nýtur engra styrkja hvorki frá hinu
opinbera né frá einkaaðilum. Víða hefur þó verið leitað
fanga. Félagið vill geta þess að Guðjón Óskar Jónsson,
sem féll frá nýlega, heiðursfélagi í Ættfræðifélaginu, gaf
félaginu 100.000 kr. á síðast liðnu ári.
Mikil vinna er lögð bæði í rekstur félagsins,
skipulagningu félagsfundanna og útgáfu Frétta-
bréfsins. Það væri því afar ánægjulegt ef okkur tæk-
ist að fjölga félagsmönnum svo fleiri gætu notið þess
efnis sem fram er borið bæði á fundum og í blaðinu.
Það er mjög kostnaðarsamt að auglýsa og framboð-
ið á afþreyingu og fróðleik hefur aldrei verið meira.
Það er barist um tíma og áhuga fólks. Það er því mik-
ilvægt að við höldum uppi merkjum ættfræðinnar og
kynnum starfsemina fyrir vinum og ættingjum.
Ég vil að lokum þakka öllum sem hafa lagt hönd
á plóginn bæði utan stjórnar og innan á liðnu ári og
legg störf stjórnarinnar í hendur aðalfundarins.