Fréttablaðið - 16.05.2019, Blaðsíða 16
OPEL MOKKA X
Nýskráður: 2018 / Bensín
Sjálfskiptur / Ekinn: 35.000 km.
* B
irt m
eð fyrirvara um
m
ynda- og textabrengl.
Kíktu í sýningarsali okkar
Reykjanesbær
Njarðarbraut 9
Sími: 420 3330
Reykjavík
Krókháls 9
Sími: 590 2035
Opnunartímar:
Virka daga 9-18
Laugardaga 12-16
Tilboð: 1.490.000 kr.Verð: 3.990.000 kr.
OPEL ASTRA NOTCHBACK
Nýskráður: 2016 / Bensín
Beinskiptur / Ekinn: 60.000 km.
Verð: 1.990.000 kr.
SSANGYONG REXTON HLX
Nýskráður: 2018 / Dísel
Sjálfskiptur / Ekinn: 29.000 km.
Verð: 5.590.000 kr.
TOYOTA LANDCRUISER 150 VX
Nýskráður: 2012 / Dísel
Sjálfskiptur / Ekinn: 168.000 km.
Verð: 4.990.000 kr.
Rað.nr. 150430Rað.nr. 445649Rað.nr. 445570Rað.nr. 445632
Gott úrval notaðra bíla benni.is
4X
4
TI
LB
OÐ
4X
4
Verð: 4.190.000 kr.
OPEL INSIGNIA SPORTS TOURER
Nýskráður: 2018 / Bensín
Sjálfskiptur / Ekinn: 30.000 km.
Rað.nr. 150432
Glæsilegt 214 fm einbýlishús við Ólafsgeisla 55 í Grafarholti. Eignin skiptist í 3-4 svefnherbergi, tvö baðherbergi, geymslur, stofur, eldhús, sjónvarpsherbergi, þvottahús, bílskúr og fallegan garð
með heitum potti. Stór lóð sunnan megin við húsið. Rúmgott bílaplan með hita í plani. Stutt er í grunnskóla, leikskóla og verslun. Golfklúbbur Reykjavíkur og Básar í göngufæri.
Fasteign vikunnar úr Fasteignablaði Fréttablaðsins
Bruni í Seljaskóla og
hluti þaks féll niður
Slökkviliðsmenn af öllu höfuð-
borgarsvæðinu voru kallaðir út
aðfaranótt sunnudags vegna elds-
voða í Seljaskóla. Mikinn reyk lagði
yfir hverfið og náði hann langt inn
í Kópavog. Eldurinn kom upp í þaki
byggingarinnar og er mikið tjón
á einni álmu þar sem þakið féll.
Alls eru níu kennslustofur og þrjú
fundarherbergi eyðilögð. Snar-
ræði slökkviliðs kom í veg fyrir
að eldurinn bærist á fleiri staði í
húsinu.
Allt skólastarf féll niður á mánu-
daginn á meðan unnið var að
hreinsun. Rúmlega 660 nemendur
eru í skólanum. Hátt í 300 þeirra
þurfa að mæta í aðra stofu en sína
eigin það sem eftir er af skólaár-
inu. Fá þeir inni meðal annars í
félagsmiðstöðinni Hólmaseli og í
Seljakirkju.
Ný lög um þungunarrof
taka gildi á Alþingi
Fagnaðarlæti brutust út á þing-
pöllum Alþingis í gær þegar ný lög
um þungunarrof voru samþykkt
með 40 atkvæðum gegn 18 á
mánudagskvöldið. Lögin taka gildi
1. september næstkomandi, þá
munu konur hafa fullt ákvörðun-
arvald um hvort þær ala barn fram
að lokum 22. viku meðgöngu.
Málið var mjög umdeilt á þingi og
voru mörg stór orð látin falla áður
en frumvarpið var samþykkt.
Svandís Svavarsdóttir heil-
brigðisráðherra sagði að um væri
að ræða löngu tímabæra breyt-
ingu sem snúi að öryggi og frelsi
Vikan
Það mikilvægasta í
vikunni var líklega það
að hetjurnar okkar í
Hatara komust áfram í
undankeppni Eurovisi-
on. Eitt framsæknasta
frumvarp heims var
samþykkt hér á landi
og eldsvoði varð í Selja-
skóla.
kvenna. Athygli vakti að Bjarni
Benediktsson fjármálaráðherra
kaus gegn lögunum, en fáheyrt er
að ráðherra kjósi gegn stjórnar-
frumvarpi.
Í könnun Zenter rannsókna fyrir
Fréttablaðið sem birt var á þriðju-
daginn kom í ljós að meirihluti
landsmanna styður þungunarrof
fram að lokum 22. viku. Greini-
legur kynslóðamunur er á afstöðu
til málsins, ungt fólk er almennt
hlynnt en meirihluti eldra fólks á
móti.
Hatrið mun mögulega
sigra í Eurovision
Augu landsmanna voru límd við
sjónvarpsskjái á þriðjudagskvöld
þegar hljómsveitin Hatari flutti
framlag Íslands í Söngvakeppni
evrópskra sjónvarpsstöðva,
Hatrið mun sigra. Flutningurinn
var frábær að margra mati og eru
margir á því að við eigum jafnvel
möguleika á sigri. Þetta er í fyrsta
sinn síðan 2014 sem við komumst
upp úr undankeppninni og er
eftirvæntingin í samfélaginu eftir
því.
Á blaðamannafundi eftir und-
anúrslitin sögðu meðlimir Hatara
allt ganga eftir áætlun og þökkuðu
þeir McDonald’s, Deutsche Bank
og Domino’s fyrir stuðninginn
á sinn einstaka kaldhæðnislega
máta. Hefur þeim tekist að skauta
fram hjá því að tala um samband
Ísraels og Palestínu eftir að Jon
Ola Sand, yfirmaður Eurovision,
kallaði þá á teppið.
Hatari stígur aftur á svið í Tel
Avív á laugardagskvöldið. Kemur
þá í ljós hvort hatrið muni í raun
sigra.
TILVERAN
1 6 . M A Í 2 0 1 9 F I M M T U D A G U R16 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
1
6
-0
5
-2
0
1
9
0
7
:3
3
F
B
0
6
4
s
_
P
0
6
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
4
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
0
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
1
6
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
3
0
1
-8
2
6
C
2
3
0
1
-8
1
3
0
2
3
0
1
-7
F
F
4
2
3
0
1
-7
E
B
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
1
A
F
B
0
6
4
s
_
1
5
_
5
_
2
0
1
9
C
M
Y
K