Fréttablaðið - 16.05.2019, Blaðsíða 50
BÍLAR
Toyota Camry hefur
snúið aftur eftir 15
ára fjarveru og leysir
af Avensis sem Toy
ota hættir að fram
leiða. Hér er kominn
ferlega fallegur bíll
sem gaman er að aka,
troðinn af búnaði og
glæsileika og eyðir
fáránlega litlu með
sinni Hybridtækni.
Það er ekki oft sem vinsælir bílar hverfa af markaði og koma svo aftur með stæl 15 árum síðar. Það á þó við Toyota Camry sem seldist
hér á landi með miklum ágætum
fram til ársins 2004, eða þangað til
Toyota tók hann af markaði í Evr-
ópu. Í kjölfar hans kom svo Toyota
Avensis og seldist einnig með mikl-
um ágætum. Toyota hefur hins vegar
ákveðið að hætta framleiðslu hans,
en ætlar að tefla Camry fram í hans
stað, en Camry hefur allan þennan
tíma verið í sölu í Bandaríkjunum
og er þar afar söluhár bíll. Hann selst
reyndar í yfir 700.000 eintökum á ári
í yfir 100 löndum. Með því er hann
söluhæsti bíll heims í D/E stærðar-
flokki bíla og Camry hefur frá upp-
hafi selst í yfir 19 milljónum eintaka.
Camry kom fyrst á markað árið
1982 og kemur nú af glænýrri 8. kyn-
slóð. Bíllinn var á dögunum kynntur
blaðamönnum í Króatíu og þar
reyndust kjöraðstæður til að prófa
hann á fáförnum en góðum vegum
í nágrenni Split.
Sérlega eyðslugrannur
Það hljómar asskoti vel að svo stór
bíll sem Camry eyði ekki nema 4,3
lítrum, mengi aðeins 98 g/km af CO2
og sé samt með 218 hestafla drifrás.
Þetta er nú samt staðreyndin með
Camry og til vitnis um hve miklum
árangri Toyota hefur náð með
Hybrid-tækni sína. Allir Hybrid-
bílar Toyota eyða fáránlega litlu og
fyrir skömmu var hér skrifað um
nýju Corolluna með Hybrid-tækni
og reyndist hún enn sparneytn-
ari, enda talsvert minni. Hafa skal
í huga að ekki er um að ræða Plug-
in-Hybrid tækni þar sem bílnum er
stungið í samband við heimilisraf-
magn, heldur eingöngu endurheimt
hemlunar- og rennslisorku.
Brunavélin í Camry er ný Dyna-
mic Force 2,5 lítra bensínvél sem svo
vel hefur heppnast með að hún nýtir
41% brunaorku bensíns, en það segja
Toyota-menn að sé heimsins besta
nýting og skýrist að hluta til með
háu 14:1 þjöppuhlutfalli. Með sín
218 hestöfl er Camry 8,3 sekúndur í
hundraðið, enda er ávallt gaman að
gefa bílnum inn.
Er fyrir augað
En að útlitinu, því nú er ekki lengur
sársaukafullt að ræða útlit nýrra
Toyota-bíla, þeir eru allir orðnir
fyrir augað og eins og nýja Corollan
er þessi nýi Camry mjög fallegur
bíll. Stærð hans færir honum að auki
virðuleika. Bíllinn er ekki ofteikn-
aður, né með of hvössum línum og
brotum. Í takt við stærð hans og tign
er hann fágaðar með hófstilltar línur
sem leika um bílinn þó framendinn
sé skemmtilega grimmur með sitt
stóra grill. Sjá má einhver líkindi í
afturhluta bílsins með BMW 5-lín-
unni, en þar er ekki leiðum að líkjast.
Að öðru leyti er útlit hans sjálfstætt,
með rétt hlutföll og hann er stað-
settur í f lokki með talsvert dýrari
lúxusbílum.
Gæðin halda svo áfram þegar inn
í bílinn er komið og aftur kemur yfir
mann lúxustilfinning. Mælaborðið
er ferlega flott með sínum sveigðu
línum, ekki of mörgum tökkum og
stafrænum skjáum, meðal annars
á bak við stýrið. Handbragðið er
sem fyrr hjá Toyota til fyrirmyndar.
Þarna eiga hlutir að endast. Sætin
eru bæði lagleg og þægileg og ekki
þarf að hafa áhyggjur af stærð aftur-
sætisfarþega í svo stórum bíl. Skottið
er líka risastórt og undir því alvöru
dekk á álfelgu.
Er orðinn fínn akstursbíll
Í reynsluakstrinum staðfestist
einkar lítil eyðsla bílsins og yfirleitt
var hann undir 6 lítrum, sem þó er
nokkru yfir 4,3 l uppgefinni eyðslu,
en hafa ber í huga að enginn dúkku-
lísuakstur fór þar fram. Iðulega var
bílnum gefið í botn, upptökunnar
notið og bíllinn látinn hafa fyrir
hlutunum í hvívetna. Því hefði mátt
búast við eyðslu langt yfir 10 lítr-
unum, en það var öðru nær og voru
bæði greinarritari og ferðafélagi
hans steini lostnir yfir lítilli eyðslu
bílsins. Það sem þó kom enn meira á
óvart var hve skemmtilegt og þægi-
legt var að keyra bílinn. Fyrir það
fyrsta er útsýnið úr honum ein-
staklega gott og eiga afar þunnur A-
póstur, lágt húdd og stórar rúður þar
mestan þátt.
Það sem enn meira máli skipti er
akstursgeta bílsins. Camry á verðuga
samkeppnisbíla í lúxusbílaflokki
sem slá honum við í aksturseigin-
leikum, en geta bílsins kom samt
á óvart. Toyota hefur náð að færa
þyngdarpunktinn neðarlega og stilla
góða fjöðrunina vel og hrósa verður
því líka hversu lítið hljóð berst inn í
bílinn, þó helst vélarhljóð við mikla
inngjöf.
Ef yfir öðru ætti að kvarta væri
það helst CVT-skiptingin sem þó er
þúsund sinnum betri en fyrstu slíkar
skiptingar Toyota. Hefðbundnar
sjálfskiptingar eru yfirleitt skemmti-
legri, en þarna fer fórnarkostnaður
fyrir litla eyðslu! Svo mætti verðið
vera lægra, en hér fer þó heilmikill
bíll, troðinn af lúxus, en samt miklu
ódýrari en ekkert betur búnir bílar í
lúxusflokki.
Góð endurkoma Camry
Laglegar línur leika um nýjan Camry, hann er tignarlegur í stærð sinni og ekki versnar það þegar inn er komið.
KOSTIR OG GALLAR
TOYOTA
CAMRY
l 2,5 LÍTRA BENSÍNVÉL
– HYBRID
l 218 HESTÖFL
l FRAMHJÓLADRIF
Eyðsla: 4,3 l/100 km í bl. akstri
Mengun: 98 g/km CO2
Hröðun: 8,3 sek. í 100 km hraða
Hámarkshraði: 180 km/klst.
Verð frá: 6.550.000 kr.
Umboð: Toyota Kauptúni
l Útlit
l Eyðsla
l Aksturseiginleikar
l Búnaður
l CVT-skipting
l Hávaði vélar á háum
snúningi
Það hljómar nokkuð vel að svo stór bíll sem Camry eyði ekki nema 4,3 lítrum, mengi aðeins 98 g/km af CO2 og sé samt með 218 hestafla drifrás.
Reynsluakstur
Finnur
Thorlacius
finnurth@frettabladid.is
IÐULEGA VAR BÍLNUM
GEFIÐ Í BOTN, UPP-
TÖKUNNAR NOTIÐ OG BÍLLINN
LÁTINN HAFA FYRIR HLUT-
UNUM Í HVÍVETNA. ÞVÍ HEFÐI
MÁTT BÚAST VIÐ EYÐSLU
LANGT YFIR 10 LÍTRUNUM, EN
ÞAÐ VAR ÖÐRU NÆR.
1 6 . M A Í 2 0 1 9 F I M M T U D A G U R30 B Í L A R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
1
6
-0
5
-2
0
1
9
0
7
:3
3
F
B
0
6
4
s
_
P
0
6
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
5
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
0
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
1
5
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 2
3
0
1
-8
7
5
C
2
3
0
1
-8
6
2
0
2
3
0
1
-8
4
E
4
2
3
0
1
-8
3
A
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
1
B
F
B
0
6
4
s
_
1
5
_
5
_
2
0
1
9
C
M
Y
K