Fréttablaðið - 16.05.2019, Qupperneq 19
Stokkhólmi – Það var í stjórnar-myndunarviðræðum fyrir all-mörgum árum að það byrjaði
skyndilega að braka í faxtækinu í
fundarherberginu. Faxið reyndist
geyma fyrirmæli um ákvæði sem
standa skyldu í stjórnarsáttmál-
anum. Faxið var sent úr Eimskipa-
félagshúsinu.
Fyrir allra sjónum
Það var ekki eins og eitthvað þessu
líkt hefði aldrei gerzt áður. Drög að
fyrstu kvótalögunum voru samin á
skrifstofum LÍÚ og föxuð þaðan eins
og Halldór Jónsson félagsfræðingur
lýsti í ritgerð sinni „Ákvarðanataka
í sjávarútvegi og stjórnun fiskveiða“
(Samfélagstíðindi 1990, bls. 99-141).
Æ síðan hefur Alþingi setið og staðið
fyrir allra sjónum eins og útvegs-
menn hafa boðið. Og þó, samt ekki
alveg. Útvegsmenn lögðu til að fisk-
veiðistjórnarlögin kvæðu á um að
nytjastofnar á Íslandsmiðum séu
eign íslenzkra útvegsmanna, en því
fengu þeir ekki að ráða þótt þeir hafi
eigi að síður fengið að hirða frá önd-
verðu nær allan arðinn af sameignar-
auðlindinni í sjónum í boði Alþingis.
Hér birtist ein af ráðgátum okkar
samfélags. Spillingin æðir áfram og
dylst engum sjáandi manni lengur
eins og rannsóknir Gallups, Trans-
parency International o.fl. erlendra
stofnana staðfesta rækilega. Samt
hvílir ennþá þykkur leyndarhjúpur
yfir ýmsu sem ætti að vera uppi á
borðum. Eftirlaunagreiðslum úr
opinberum sjóðum til fv. þingmanna
og ráðherra er haldið leyndum.
Lánum gömlu bankanna til þing-
manna sem skulduðu bönkunum
minna en 100 m.kr. hver við hrun
er haldið leyndum. Innlögnum á og
skattameðferð Panama-reikninga
tveggja flokksformanna á Alþingi er
haldið leyndum þótt þrjú ár séu liðin
frá birtingu Panama-skjalanna. Hægt
væri að lengja þennan lista. Fólkið í
landinu stendur ráðalaust og lamað
frammi fyrir spillingu og meintum
lögbrotum sem látin eru fyrnast í
hrönnum. Svipuð staða er nú uppi í
Bandaríkjunum nema munurinn er
sá að stjórnarandstaðan á Banda-
ríkjaþingi, saksóknarar og dómstólar
leitast við að koma lögum yfir Trump
forseta.
Í fyrstu grein fiskveiðistjórnarlag-
anna frá 1990 segir að nytjastofnar á
Íslandsmiðum séu „sameign íslensku
þjóðarinnar“. Þetta ákvæði hefur
ekki dugað betur en svo í reynd að æ
síðan hafa útvegsmenn látið eins og
tillaga þeirra um að þeir eigi fiskinn
í sjónum hafi orðið að lögum. Þess
vegna m.a. sagði fólkið í landinu
eftir hrun: Hingað og ekki lengra.
Það hafði horft á Alþingi afhenda
útvegsmönnum ókeypis aðgang að
sameigninni í sjónum. Það hafði horft
á Alþingi hafa svipaðan hátt á einka-
væðingu gömlu bankanna. Fólkið í
landinu heimtaði nýja stjórnarskrá
til að rétta kúrsinn. Alþingi brást í
byrjun vel við kalli almennings. Þús-
und manna þjóðfundur 2010 ítrekaði
kröfuna um nýja stjórnarskrá með
ákvæði um auðlindir í þjóðareigu.
Margar skoðanakannanir stað-
festu að mikill hluti þjóðarinnar var
hlynntur slíku ákvæði.
Þjóðaratkvæðagreiðslan 2012
leiddi í ljós stuðning 83% kjósenda
við auðlindaákvæðið í frumvarpi
Stjórnlagaráðs frá 2011.
Þrjú lykilatriði
Auðlindaákvæðið í frumvarpi Stjórn-
lagaráðs kveður á um þrjú grund-
vallar atriði.
(1) Auðlindir í náttúru Íslands, sem
Sæmd Alþingis: Eitt faxið enn?
ekki eru í einkaeigu, eru „sameiginleg
og ævarandi eign þjóðarinnar“.
(2) Leyfi til afnota eða hagnýtingar
auðlinda skal veita „gegn fullu gjaldi
og til tiltekins hóflegs tíma í senn“.
(3) „Slík leyfi skal veita á jafnræðis-
grundvelli og þau leiða aldrei til
eignarréttar eða óafturkallanlegs
forræðis yfir auðlindunum.“
Orðalag ákvæðisins er reist á skýr-
um greinarmun á „þjóðareign“ og
„ríkiseign“. Þjóðareign sameiginlegra
náttúruauðlinda er ætlað að skylda
núlifandi fólk til að varðveita þær af
virðingu fyrir komandi kynslóðum.
Ríkiseign veitir enga slíka tryggingu.
Þjóðin er yfirboðari ríkisins. Með
„fullu gjaldi“ er átt við fullt markaðs-
verð, þ.e. niðurfellingu þeirra forrétt-
inda sem Alþingi hefur hingað til fært
útvegsmönnum.
Ítrekuð ósvinna
Katrín Jakobsdóttir forsætisráð-
herra hefur nú lagt fram tillögu að
auðlindaákvæði sem klúðrar öllum
þessum lykilatriðum. Orðin „sam-
eiginleg og ævarandi eign þjóðar-
innar“ hafa verið felld burt. Orðin
„gegn fullu gjaldi og til tiltekins hóf-
legs tíma í senn“ hafa verið felld burt.
Orðin „Slík leyfi skal veita á jafn-
ræðisgrundvelli og þau leiða aldrei
til eignarréttar eða óafturkallanlegs
forræðis yfir auðlindunum“ hafa
verið felld burt. Í staðinn er bætt inn
veiklulegu orðalagi: „gæta skal jafn-
ræðis og gagnsæis“. Einnig er svo bætt
inn í textann skírskotun til ríkiseign-
ar líkt og í rússnesku stjórnarskránni.
Þessari tillögu forsætisráðherra um
auðlindaákvæði er greinilega ætlað
að löghelga óbreytt ástand gegn skýr-
um vilja fólksins í landinu. Þau hafa
reynt þetta áður. Það var þegar stjórn-
skipunar- og eftirlitsnefnd Alþingis
fól lögfræðingum að fara yfir orða-
lag auðlindaákvæðisins í frumvarpi
Stjórnlagaráðs án þess að breyta því
efnislega enda hafði þjóðaratkvæða-
greiðslan 2012 þá þegar farið fram.
Lögfræðingarnir sneru ákvæðinu
samt á hvolf líkt og þeir hefðu fengið
eitt faxið enn frá LÍÚ. Þingnefndin
sá í gegnum ósvinnuna og setti upp-
haflegt orðalag Stjórnlagaráðs aftur
á sinn stað. Þessi nýja tillaga þarf að
hljóta sömu afgreiðslu. Auðlinda-
ákvæði nýrrar stjórnarskrár á ekki
að vera bara til málamynda.
Þorvaldur
Gylfason
Í DAG
Tilboð gilda til 31. maí 2019 eða á meðan birgðir endast.
Smith & Norland er bæði Siemens- og Bosch-umboðið á Íslandi og sinnir
varahluta- og viðhaldsþjónustu af faglegum metnaði á eigin verkstæði.
Kæli- og frystiskápar á
einstöku tilboðsverði
í maí.
Kæli- og frystiskáparnir frá Siemens og Bosch eru einstaklega vel hannaðir, jafnt að innan sem utan.
Í innréttingunum eru stillanlegar hillur, sérlega björt LED-lýsing og mikið rými.
Með því að velja skáp með noFrost sleppurðu alveg við að affrysta frystirýmið!
Kæli- og frystiskáparnir frá Siemens og Bosch nýta orkuna mjög vel.
Þeir eru annaðhvort í orkuflokki A++ eða A+++.
Kæli- og frystiskáparKæli- og frystiskápar Kæli- og frystiskápar
Fullt verð: 113.900 kr.
Fullt verð: 164.900 kr.
Fullt verð: 159.900 kr.
Fullt verð: 149.900 kr.
Tilboðsverð (hvítur):
Kynningarverð (hvítur):
Tilboðsverð (stál):
Kynningarverð (stál):
Tilboðsverð (stál):
Tilboðsverð (hvítur):
KG 33VXW30
KG 39EVW4A
KG 33VVI31
KG 39EVI4A
KGN 36XI35
KGN 36XW35
87.900 kr.
123.900 kr.
117.900 kr.
114.900 kr.
Orkuflokkur A++. Ein hyperFresh-skúffa
fyrir grænmeti og ávexti.
H x b x d: 176 x 60 x 65 sm.
Orkuflokkur A+++. Ein pressa, tvö
kælikerfi. Ein hyperFresh-skúffa fyrir
grænmeti og ávexti og ein sem hentar
fyrir kjöt og fisk, sem endist allt að
tvisvar sinnum lengur.
H x b x d: 201 x 60 x 65 sm.
Orkuflokkur A++. Ein pressa, tvö
kælikerfi. Ein VitaFresh-skúffa fyrir
grænmeti og ávexti og tvær sem henta
fyrir kjöt og fisk. NoFrost-tækni.
H x b x d: 186 x 60 x 66 sm.
NÝIR
S K O Ð U N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð 19F I M M T U D A G U R 1 6 . M A Í 2 0 1 9
1
6
-0
5
-2
0
1
9
0
7
:3
3
F
B
0
6
4
s
_
P
0
4
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
3
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
1
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
3
0
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 2
3
0
1
-A
0
0
C
2
3
0
1
-9
E
D
0
2
3
0
1
-9
D
9
4
2
3
0
1
-9
C
5
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
4
A
F
B
0
6
4
s
_
1
5
_
5
_
2
0
1
9
C
M
Y
K