Fréttablaðið - 16.05.2019, Side 46
Ástkær eiginkona mín, móðir,
tengdamóðir,
amma og langamma,
Guðbjörg Elentínusdóttir
Espigerði 4,
lést á hjúkrunarheimilinu Droplaugar-
stöðum þriðjudaginn 7. maí. Útförin fer
fram frá Fossvogskirkju mánudaginn 20. maí klukkan 15.
Sigurjón Sigurðsson
Rafn Sigurjónsson Elísabet Skúladóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
Elsku eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir, afi og langafi,
Jón Karl Sigurðsson
frá Ísafirði,
lést laugardaginn 27. apríl. Útförin fer
fram frá Digraneskirkju föstudaginn
17. maí kl. 13. Blóm og kransar
vinsamlega afþakkaðir en þeim sem vilja minnast hans er
bent á Styrktarsjóð langveikra barna.
Steingerður Gunnarsdóttir
Ragnhildur Jónsdóttir Ingvar Einarsson
Gunnar Þorsteinn Jónsson Helle Lund Jensen
Þórdís Jónsdóttir Sindre Stöer
barnabörn og barnabarnabörn.
Hjartkær móðir okkar, tengdamóðir,
amma og langamma,
Sigrún Jóhannesdóttir
áður Byggðavegi 88,
andaðist aðfaranótt 9. maí á
dvalarheimilinu Hlíð. Útförin verður
gerð frá Akureyrarkirkju föstudaginn
17. maí kl. 13.30. Blóm og kransar afþakkaðir.
Guðrún Bjarnadóttir Björn Sigmundsson
Jóhannes Bjarnason Þórey Edda Steinþórsdóttir
Unnur Bjarnadóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
Guðrún Margrét Guð-mundsdóttir, mannfræð-ingur og verkefnastjóri hjá Rauða krossinum, er á leið út á Keflavíkur-f lugvöll þegar ég næ
sambandi við hana. Hún er að ná í hóp
sem að stærstum hluta eignast heimili
á Blönduósi og brunar beint þangað, en
ein fjölskylda ætlar að setjast að í Árborg
því þar hefur hún tengsl. Fyrsti hópur-
inn er kominn norður á Hvammstanga.
Síðar bætist ein sex manna fjölskylda
við á Blönduós.
„Við erum búin að standsetja níu
íbúðir, fjórar á Blönduósi og fimm á
Hvammstanga, þannig að það er búið að
vera nóg að gera,“ segir Guðrún Margrét
glaðlega en tekur fram að hún sé aldeilis
ekki ein í þessu. „Við fáum íbúðirnar frá
bænum og vinnan við að standsetja þær
hefur mikið lent á sjálfboðaliðum Rauða
krossins fyrir norðan, þetta er búin að
vera heilmikil vinna fyrir þá.“
Guðrún Margrét hóf störf við verk-
efnið 1. apríl. „Ég bý á Hvammstanga í
ár og hef mest unnið þar, því við höfum
haft dúndur sjálf boðaliða á Blönduósi,
konu sem hefur búið í Gambíu og Haítí,
verið sendifulltrúi og tekið þátt í alls
konar verkefnum.“
Nú er Guðrún Margrét á ferð með
Valdimari O. Hermannssyni, bæjar-
stjóra á Blönduósi, Þórunni Ólafsdóttur,
sem ráðin var verkefnastjóri bæjarins
vegna komu flóttamannanna, og Kinan
Kadoni, túlki og menningarmiðlara.
Guðrún Margrét kann arabísku og
kveðst hafa verið túlkur á Vestfjörðum
í fyrravetur þegar þar var tekið á móti
f lóttamönnum á Flateyri, Ísafirði og
Súðavík. „Ég er svo hamingjusöm að
þurfa ekki að vera túlkur núna, heldur
bara geta talað arabísku en þurfa ekki að
vita hvernig á að segja allt undir sólinni.
Aröbum finnst alltaf fyndið þegar ljós-
hært fólk talar arabísku!“
Hún býst við að hópurinn verði seint
kominn norður um kvöldið. Samt ætli
stuðningsfjölskyldur f lóttafólksins að
bíða eftir því og bjóða það velkomið.
Það sé mikilvægt. Þá verði tilfinningin
betri fyrstu nóttina. „Ég tók viðtöl við
allt f lóttafólkið sem kom til Vestfjarða
í fyrra og því fannst svo yndislegt að sjá
vingjarnleg andlit strax og það kom í
nýju heimkynnin.“
Stór matarveisla verður á mánudag-
inn fyrir f lóttafólkið, sjálf boðaliðana
og bæjarbúa, að sögn Guðrúnar. „Bær-
inn sér um veisluna og fékk sýrlenskan
kokk til að sjá um hana. „Nú er föstu-
mánuðurinn ramadan hjá aröbunum og
hún er þeim svo þýðingarmikil, þeir eru
vanir að vera með fjölskyldunni sinni
þá. Þetta er eins og fyrir okkur að mæta
einhvers staðar á aðfangadagskvöld.
Rauði krossinn útbjó gjafakörfur til að
gefa fjölskyldunum, með alls konar mat
sem fólkið kannast við og er úr arabísku
búðunum, Istanbúl Market og Jerusalem
Market.“
Nú nálgast Guðrún f lugvöllinn og
brátt hefst móttakan þar. „Við viljum
vanda okkur,“ segir hún. „Nína Helga-
dóttir, verkefnastjóri hjá Rauða kross-
inum, og Linda Rós Alfreðsdóttir, sér-
fræðingur hjá félagsmálaráðuneytinu,
verða við landganginn að fagna fólkinu.
Þær fóru einmitt til Líbanon að hitta það
og taka viðtöl við það, þannig að fyrstu
andlitin sem það sér þegar það kemur
til Íslands verða kunnugleg. Það skiptir
miklu máli.“ gun@frettabladid.is
Við viljum vanda okkur
Hátt í 50 sýrlenskir flóttamenn eru að flytja til Íslands þessa dagana. Þeir koma í þrem-
ur hópum, tveir eru lentir og flestir þeirra fá ný heimkynni norður í Húnavatnssýslu.
Nú er föstumánuðurinn ramadan hjá aröbunum og bærinn fékk sýrlenskan kokk til
að sjá um veislu, að sögn Guðrúnar Margrétar. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK
Liljana Milankoska er hjúkrunar-fræðingur og verkefnisstjóri Húna-þings vestra í málefnum f lótta-
manna. Hún er búin að heimsækja nýju
íbúana fyrsta dag þeirra á Hvamms-
tanga. „Þetta eru fimm fjölskyldur,
samtals 23 manneskjur, tíu fullorðnar
og þrettán börn á aldrinum 0 til 10 ára.
Elstur er 39 ára karlmaður, hitt fólkið
er undir 31 árs aldri og allt að koma frá
Líbanon. Ég veit ekki hversu lengi það
dvaldi þar, það eru þrjú til fimm ár. Þar
bjó það við mjög kröpp kjör og í lélegu
húsnæði, var án atvinnu og hafði ekkert
hlutverk í samfélaginu, var bara utan-
veltu, eins og það væri ekki til.“
Liljana segir f jölskyldurnar hafa
fengið gott húsnæði á Hvammstanga.
„Fólk hér var tilbúið til að leigja íbúðir
sem það átti en hafði ekki verið með á
almennum leigumarkaði. Í haust verð-
ur svo byggð hér blokk og líka raðhús,
þannig að það opnast f leiri möguleikar
ef fólkið vill skipta.“
Hún talar við nýju íbúana með hjálp
túlks. „Sumir tala ensku en við erum
með þrjá túlka sem hjálpa okkur þessa
fyrstu daga og einn þeirra verður með
okkur næstu sex mánuði. Hann er félags-
ráðgjafi og verður með samfélagsfræðslu
fyrir hópinn. Svo verður dagskrá í skól-
anum fyrir sýrlensku börnin í sumar og
þau ættu að geta byrjað nám þar í haust.
Börnin eru svo örugg hér, þau geta labb-
að í skólann, enda fékk fólkið strax góða
tilfinningu fyrir bænum okkar og virðist
mjög ánægt. Það geislar alveg og finnst
það komið heim, sem er yndislegt.“
Sjálf f lutti Liljana til Íslands frá Make-
dóníu fyrir tíu árum. Hún hefur lokið
hjúkrunarnámi við Háskólann á Akur-
eyri og er í meistaranámi. „Lokaverkefni
mitt mun fjalla um sálræna líðan flótta-
barna á Íslandi,“ segir hún og heldur
áfram:
„Ég er gift Íslendingi og við búum
hér á Hvammstanga. Þetta er þægi-
legur staður að aðlagast og ég vona að
nýju íbúunum gangi það vel. Það er líka
góður tími fyrir þá að koma núna, sum-
arið fram undan og þá er fólk meira úti
við svo það verður auðveldara fyrir þá
og heimafólk að kynnast.“
gun@frettabladid.is
Fékk strax góða tilfinningu fyrir bænum
„Lokaverkefni mitt mun fjalla um sál-
ræna líðan flóttabarna á Íslandi.“
1457 Björn ríki Þorleifsson á Skarði á Skarðsströnd er aðlaður og
gerður að hirðstjóra.
1702 Uppsalabruninn mikli á sér stað í Svíþjóð.
1757 Magnús Gíslason er skipaður amtmaður yfir Íslandi, fyrstur
Íslendinga.
1929 Óskarsverðlaunin eru veitt í fyrsta sinn.
1952 Fimm manns farast er bandarísk flugvél brotlendir í norðan-
verðum Eyjafjallajökli.
1966 Verslunin Karnabær er opnuð í Reykjavík og hefur mikil áhrif
á tísku og klæðaburð ungs fólks á Íslandi.
1974 Helmut Schmidt er kjörinn kanslari Vestur-Þýskalands.
1983 Vikublaðið Andrés önd kemur út á íslensku í fyrsta sinn og
þar með hætta Íslendingar að lesa það á dönsku.
1985 Rannsóknarráðið British Antarctic Survey kynnir rannsóknir
sem sýna gat í ósonlaginu yfir Suðurskautslandinu.
1993 Fyrstu kosningar til Samaþingsins í Svíþjóð fóru fram.
2002 Haraldur Örn Ólafsson nær á tind Everestfjalls og hefur þá
klifið hæstu tinda allra heimsálfanna og komist á bæði skautin.
2009 Jóhanna Guðrún nær öðru sæti í Söngvakeppni evrópskra
sjónvarpsstöðva með laginu Is it true. Hinn norski Alexander Rybak
sigrar með laginu Fairytale.
Jóhanna Guðrún Jónsdóttir, Eurovisonfari.
Merkisatburðir
1 6 . M A Í 2 0 1 9 F I M M T U D A G U R26 T Í M A M Ó T ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
TÍMAMÓT
1
6
-0
5
-2
0
1
9
0
7
:3
3
F
B
0
6
4
s
_
P
0
4
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
3
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
1
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
3
0
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 2
3
0
1
-A
0
0
C
2
3
0
1
-9
E
D
0
2
3
0
1
-9
D
9
4
2
3
0
1
-9
C
5
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
4
A
F
B
0
6
4
s
_
1
5
_
5
_
2
0
1
9
C
M
Y
K