Fréttablaðið


Fréttablaðið - 16.05.2019, Qupperneq 59

Fréttablaðið - 16.05.2019, Qupperneq 59
Liðsmenn Hatara fengu verð-skuldaðan frídag í gær og nutu lífsins í Tel Avív. Flestir í faðmi fjölskyldu og ástvina sinna. Klem- ens, Matthías og Gimpið þurftu reyndar að vakna eldsnemma til að mæta í viðtal hjá BBC og Piers Morgan, en aðrir sváfu út og reyndu að safna orku fyrir komandi átök. Það var spenna í lofti þegar keppnisdagurinn rann loks upp. Útsendarar Fréttablaðsins skelltu sér í svokallað Eurovision Fanzone. Stemningin yfir íslenska laginu var slík, að þegar fyrsti tónninn kom fögnuðu nánast allir af þeim tug- þúsundum sem þarna var saman- komin af lífs og sálar kröftum. Sumir hreinlega spruttu upp og dönsuðu allan tímann með. Þegar laginu lauk trylltist mann- skapurinn og þó ég sé vissulega hlutdrægur, þá fullyrði ég að fagn- aðarlætin eftir Hatara voru langtum meiri en eftir önnur lög. Eftir að Ísland komst áfram, fóru þreyttir en glaðir liðsmenn Hatara heim á hótel þar sem fjölskyldur þeirra tóku á móti þeim. Var haldið upp á sundlaugargarð þar sem kampavínsflöskur voru opnaðar og skálað fyrir árangrinum. Ástralska sendinefndin gerði slíkt hið sama en frændur vorir Finnar drekktu sorgum sínum á neðstu hæð hót- elsins. Hatari skálaði í kampavíni í sundlaugargarðinum Íslensku keppendurnir eru eftir- sóttir af fjölmiðlum. FRÉTTABLAÐIÐ/ INGÓLFUR GRÉTARSSON SKRIFA FRÁ TEL AVIV EUROVISION Benedikt Bóas benediktboas@frettabladid.is Ingólfur Grétarsson ingolfurg@frettabladid.is Munur á tíunda og ellefta sæti einungis tvö stig Jon Ola Sand, framkvæmdastjóri Eurovision-keppninnar, opin- beraði á Twitter-aðgangi sínum að einungis tveimur stigum stigum hefði munað á lögunum í tíunda og ellefta sæti. Það verður þó ekki opin- berað hvaða tvö lönd það voru fyrr en eftir að úrslitakvöldið er liðið. Sama hvernig fer á laugardaginn þá verður vafalaust gaman að sjá hvar í röðinni Hatari var á undanúrslita- kvöldinu. Samkvæmt tölum frá Twitter var mest talað um íslenska atriðið af öllum þeim sautján sem stigu á svið þriðjudagskvöldið. Var fólk hvatt til að nota myllumerkið og ISL til að tjá sig um frammistöðu íslenska lagsins. Þó nokkrir höfðu orð á því á samskiptamiðlinum að þetta myllumerki væri nú þegar notað. Það vill nefnilega svo til að unnendur íþróttarinnar lacrosse, eða kylfuknattleiks eins og það gæti íslenskast, nota stafina ISL þegar þeir ræða hana sín á milli. Það er því aldeilis munur orðinn á færslunum sem tengjast merkinu síðan Hatari vann forkeppnina hér heima. Það kemur ekki í ljós fyrr en á sunnudaginn í hvaða sæti Hatari var í undanúrslitunum í Tel Avív. Justin Roiland og Dan Harmon á góðri stundu, en þeir gera þættina. NORDIPHOTOS/GETTY Hakkarar trufluðu Euro vision Ísraelsk vef út sending af fyrri undan- riðli Euro vision í gær kvöldi var hökk- uð og sáust því gervi sprengingar í Tel Avív, en þetta kemur fram á vef BBC. Ísraelska ríkis út varpið KAN greindi frá því að tölvu á rásin væri á vegum Hamas-samtakanna en þau hafa ekki tjáð sig um á rásina. Mynd skeið birtist í út sendingunni þar sem á horf endur voru varaðir við árás á borgina, sem sýndi tölvu gert mynd band af sprengingum og hljóð í loft varna flautum. Tals menn KAN gerðu lítið úr mynd skeiðinu sem sýnt var í rúmar 10 mínútur áður en út sendingin var stöðvuð. „Við vitum að á á kveðnum tíma punkti var til- raun gerð, að því er virðist af Hamas, til að hafa á hrif á net út sendinguna okkar, en okkur tókst hins vegar að ná tökum á á standinu innan ör- fárra mínútna,“ segir fram kvæmda- stjórinn Eldad Koblenz. Rick and Morty snúa aftur Teiknimyndaþættirnir Rick and Morty snúa aftur á skjá Comedy Central í nóvember. Þetta mun vera fjórða sería þáttanna sem koma úr smiðju Justins Roiland og Dans Harmon. Endurkomu þáttanna hefur verið beðið með mikilli eftir- væntingu, en þeir eiga sér stóran hóp aðdáenda, sem margir ræða fram- vindu þeirra í þaula á alnetinu. Þætt- irnir hafa einnig hlotið einróma lof gagnrýnenda. Þeir fjalla um dreng- inn Morty, fjölskyldu hans og afa, en hann er vísindamaður. Ferðast Morty ásamt afa sínum um geiminn, tíma og rúm. L Í F I Ð ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð 39F I M M T U D A G U R 1 6 . M A Í 2 0 1 9 1 6 -0 5 -2 0 1 9 0 7 :3 3 F B 0 6 4 s _ P 0 5 9 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 5 4 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 0 6 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 1 1 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 2 3 0 1 -A E D C 2 3 0 1 -A D A 0 2 3 0 1 -A C 6 4 2 3 0 1 -A B 2 8 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 5 B F B 0 6 4 s _ 1 5 _ 5 _ 2 0 1 9 C M Y K
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.