Fréttablaðið - 16.05.2019, Blaðsíða 60

Fréttablaðið - 16.05.2019, Blaðsíða 60
SÍMAR AUGLÝSINGADEILDIR – AUGLÝSINGASTJÓRI: Jóhanna Helga Viðarsdóttir johannahelga@frettabladid.is ALMENNAR AUGLÝSINGAR: SÍMI 550 5050: Gústaf Bjarnason gustaf@frettabladid.is, Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is, Sigfús Örn Einarsson sigfus@frettabladid.is, Svava O’Brien svava@frettabladid.is, Örn Geirsson orn.geirsson@frettabladid.is FÓLK/SÉRBLÖÐ SÍMI 550 5077: Atli Bergmann atli@frettabladid.is, Arnar Magnússon arnarm@frettabladid.is, Jóhann Waage johannwaage@frettabladid.is, Jón Ívar Vilhelmsson jonivar@frettabladid.is, Ruth Bergsdóttir ruth@frettabladid.is. FÓLK OG SÉRBLÖÐ EFNI: Benedikt Bóas Hinriksson benediktboas@frettabladid.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 550 5056: Hrannar Helgason hrannar@frettabladid.is, Viðar Ingi Pétursson vip@frettabladid.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 550-5055: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@frettabladid.is, Guðrún Inga Grétarsdóttir gudruninga@frettabladid.is FYRIR FJALLA- HJÓLAFÓLK OAKLEY HJÁLMAR Karl Olgeirsson stendur fyrir tón- leikum annað kvöld í Þjóðleikhúskjallar- anum. Þar verður flutt plata hans Mitt bláa hjarta í lág- stemmdari útgáfu. Karl mun giftast unnustu sinni, Sig- ríði Eyrúnu, í sumar. Þau eignuðust sam- an dóttur í febrúar. Tónlistarmaðurinn ást-sæli Karl Olgeirsson mun f lytja plötuna sína Mitt bláa hjarta á tónleikum í Þjóð-leik húsk jallaranum annað kvöld. Honum til halds og trausts verður einvalalið tónlistar- manna, Jóel Pálsson saxófónleikari og Toggi Jóns á kontrabassa en Sig- ríður Thorlacius sér um sönginn. Platan var valin djassplata ársins á Íslensku tónlistarverðlaununum og Karl lagasmiður ársins. Uppselt var á útgáfutónleikana sem haldnir voru í Björtuloftum í Hörpu. Nú gefst þeim sem frá urðu að hverfa það skiptið færi á að sjá og heyra plötuna f lutta á ný, en þó með nokkuð ólíkum brag. „Ég gaf út plötuna Mitt bláa hjarta síðasta haust. Á henni voru 14 frumsamin djasslög sungin af 12 mismunandi söngvurum. Svo fékk ég 8 frábæra tónlistarmenn til liðs við mig. Núna annað kvöld flytjum við samt plötuna í aðeins öðrum stíl og ólíkum útsetningum, aðeins lágstemmdari útgáfu,“ segir Karl. „Þetta er svona næs djass, alls ekki hættulegur,“ bætir hann svo við hlæjandi. Honum finnst Þjóðleikhúskjall- arinn hin fullkomna staðsetning fyrir tónleikana, það sé glæsilegur staður sem sé allt of lítið nýttur í svona viðburði. Karl hefur verið að vinna í Þjóðleikhúsinu undanfarið þar sem hann sér um tónlistina í nokkrum sýningum. „Ég er núna að klára að sýna Ein- ræðisherrann sem hefur fengið góðar undirtektir. Næst tekur við 10 daga ferð til Hong Kong þar sem Vesturport sýnir Í hjarta Hróa hattar. Í henni er ég tónlistarstjóri en Salka Sól samdi alla tónlistina. Sýning var líka sett upp í Banda- ríkjunum og það er sá leikarahópur sem sýnir í þetta skiptið, en íslenska tónlistarteymið sér um músíkina.“ Karl eignaðist dóttur nú í febrúar en hann og unnusta hans, Sigríður Eyrún, stefna á að giftast nú í lok júlí í sumar. „Svolítið fyndið, Salka Sól og Arnar eru einmitt að fara að gifta sig sama dag og við. Nú er er maður bara byrjaður að reyna að sannfæra sameiginlegu gestina með mútum svo þeir mæti frekar til okkar,“ segir Karl kíminn en bætir hlæjandi svo við: „Nei, þau eru gott vinafólk okkar, við myndum ekki gera svo- leiðis. Þau koma einmitt líka með til Hong Kong svo við verðum að halda samskiptunum góðum.“ Tónleikarnir eru sem áður segir í Þjóðleikhúskjallaranum og hefjast klukkan 21. „Vonandi mæta sem flestir annað kvöld, ég lofa góðri stemningu og skemmtilegum tónleikum,“ segir Karl að lokum. Plötuna Mitt bláa hjarta er hægt að nálgast á f lestum streymisveit- um en hún er uppseld á vínyl. Miðar á tónleikana fást á tix.is og við innganginn. steingerdur@frettabladid.is Karl Olgeirs spilar Mitt bláa hjarta í Þjóðleikhúskjallaranum Karl er á leiðinni til Hong Kong, þar sem hann sér um tónlistina í verkinu Í hjarta Hróa Hattar. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN KARLSSON 1 6 . M A Í 2 0 1 9 F I M M T U D A G U R40 L Í F I Ð ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð 1 6 -0 5 -2 0 1 9 0 7 :3 3 F B 0 6 4 s _ P 0 6 0 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 5 3 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 0 5 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 1 2 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 2 3 0 1 -A 9 E C 2 3 0 1 -A 8 B 0 2 3 0 1 -A 7 7 4 2 3 0 1 -A 6 3 8 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 5 A F B 0 6 4 s _ 1 5 _ 5 _ 2 0 1 9 C M Y K
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.