Morgunblaðið - 09.01.2019, Page 19
19
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 9. JANÚAR 2019
Gripið í tafl Skákíþróttin höfðar til fólks á öllum aldri og þessir ferðamenn í miðbæ Reykjavíkur létu rigninguna ekki stoppa sig í því að taka eina skák þar sem útitafl varð á vegi þeirra.
Kristinn Magnússon
Það er langt í frá
sjálfgefið eða sjálfsagt
að stjórnmálaflokkur
lifi og starfi í 90 ár. Til
þess þarf stöðugt að
hlúa að rótunum – hug-
myndafræðinni – að-
lagast samtímanum,
skynja undirstrauma
samfélagsins og hafa
kjark og þor til að tak-
ast á við áskoranir
framtíðarinnar.
Í maí næstkomandi verður haldið
upp á 90 ára afmæli Sjálfstæðis-
flokksins. Stjórnmálaflokkur er
mannanna verk, „skapaður fyrir þá
sem fylkja sér um sameiginlega
hugsjón og stefnu. Hann er ekki til
fyrir sjálfan sig og ef hann höfðar
ekki til fólksins í landinu á hann
engan tilverurétt,“ sagði Davíð
Oddsson, þáverandi formaður Sjálf-
stæðisflokksins, í viðtali við Morg-
unblaðið 25. maí 2004 þegar 75 ára
afmæli flokksins var fagnað.
Tilvera Sjálfstæðisflokksins bygg-
ist á því að fólkið finni „til sam-
kenndar með grundvallaratriðum
stefnu hans um frelsi og sjálfstæði“.
Stjórnmálaflokkur sem ekki hefur
burði til að sameina í hugmynda-
fræði sinni ólíka hagsmuni – smíða
brú milli launafólks og atvinnurek-
enda, milli ungs fólk og þeirra sem
eldri eru, milli landsbyggðar og höf-
uðborgar – verður lítið annað en
bandalag sérhagsmuna eða fámenn-
ur en oft hávær hópur sem er líkari
sértrúarsöfnuði en stjórnmálaflokki.
Stjórnmálaflokkur sem er þess ekki
umkominn að mynda farveg fyrir
samkeppni hugmynda og skoðana
mun hægt en örugglega veslast upp,
missa þróttinn og deyja. Slíkur
flokkur á ekki erindi við framtíðina.
Flokkur
tækifæranna
„Við höfum byggt
allt okkar starf á
trúnni á frelsi ein-
staklingins,“ sagði
Bjarni Benediktsson,
formaður Sjálfstæðis-
flokksins, í setningar-
ræðu á landsfundi í
mars á síðasta ári.
„Ég stend hér og
segi ykkur að stefna
Sjálfstæðisflokksins
hefur gert lífið betra fyrir Íslend-
inga í gegnum tíðina.“
Rauði þráðurinn í hugmyndabar-
áttu þeirra sem fylgt hafa Sjálfstæð-
isflokknum að máli er frelsi ein-
staklingsins og að eitt megin-
hlutverk stjórnvalda sé að hvetja og
styðja við framtakssemi fólks.
Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfa-
dóttir undirstrikaði í framboðsræðu
á landsfundi, þegar hún var kjörin
varaformaður, að Sjálfstæðisflokk-
urinn væri flokkur tækifæranna –
tækifæra hins venjulega manns:
„Við sjálfstæðismenn eigum er-
indi við framtíðina af því að við skilj-
um hvers hún krefst af okkur. Hún
krefst þess að einstaklingsfrelsi og
athafnafrelsi blómstri sem aldrei
fyrr, í allra þágu. Því að þannig nær
venjulegt fólk óvenjulegum ár-
angri.“
Orð Þórdísar Kolbrúnar kallast á
við skoðanir hugsjónamannsins
Birgis Kjaran, sem var þingmaður
Sjálfstæðisflokksins. Birgir lagði
áherslu á að einstaklingurinn nyti
mannhelgi og að frelsi væri frum-
réttur hvers og eins, jafnt andlegt
sem efnahagslegt frelsi.
„Æðsta takmark samfélags á því
að vera að veita einstaklingunum
allt það frelsi sem þeir þarfnast til
þess að fá að fullu notið hæfileika
sinna og mannkosta, án þess að
þrengja eða óvirða rétt annarra ein-
staklinga eða tefla öryggi þjóð-
arheildarinnar í hættu,“ skrifaði
Birgir Kjaran um sjálfstæðisstefn-
una fyrir nær 60 árum.
Það var á grunni hugsjóna um
frelsi einstaklingsins og mannhelgi
hans sem Bjarni Benediktsson eldri
minnti á að þjóðfélagi „verður ekki
stjórnað með oflæti eða orðaskaki“.
Í áramótagrein í Morgunblaðinu
1965 greindi hann hlutverk stjórn-
valda og ríkisstjórna ágætlega og sú
greining á vel við í dag:
„Oft er sagt, og vissulega með
réttu, að veðurfar, gróður og fiski-
göngur séu ekki að þakka ríkis-
stjórn. Gamalkunnugt er, að jafnt
rignir á réttláta sem rangláta. En
ríkisstjórn ræður því, hvernig hún
bregst við atburðunum. Treystir
hún eingöngu á forsjá sína og bann-
ar þegnunum að bjarga sér eftir því,
sem þeirra eigið vit og þroski segir
til um? Eða treystir hún fyrst og
fremst á frumkvæði, manndóm og
dug borgaranna og telur skyldu sína
að greiða fyrir framkvæmdum
þeirra, en leggur ekki á þær hömlur
og hindranir?“
Ekki okkar frelsi
Það hefur aldrei vafist fyrir sjálf-
stæðismönnum að svara þeim
spurningum sem Bjarni Benedikts-
son spurði fyrir nær 54 árum. Frá
fyrstu tíð hefur Sjálfstæðisflokkur-
inn barist fyrir að frelsi einstakl-
ingsins verði aukið á öllum sviðum í
þeirri fullvissu að þannig farnist
samfélaginu best. Keppikeflið „er
frelsi fyrir alla, ekki frelsi fyrir fáa,
stóra og sterka, sem nota afl sitt og
auð til að troða miskunnarlaust á
öðrum,“ sagði Davíð Oddsson í ræðu
í tilefni af 75 ára afmæli:
„Það er ekki okkar frelsi. Við trú-
um á þau grundvallaratriði sem í
frjálshyggjunni búa. Við trúum á
þau vegna þess að við vitum að fólk-
ið sjálft á markaðnum, með undra-
skjótum og einföldum hætti, finnur
lausnir á vandamálum sem fjögur
þúsund stjórnskipaðar nefndir
myndu ekki finna heldur flækja.
Við trúum á lausnir markaðarins
en þær leysa ekki allan vanda.
Leikreglurnar verða að vera skýrar,
ljósar og klárar og sanngjarnar og
það verða allir að lúta þeim. Líka
þeir sterku. Sjálfstæðisflokkurinn
vill sjá um það.“
Þegar sjálfstæðismenn halda upp
á 90 ára afmælið í maí komast þeir
vart hjá því að svara spurningum
um framtíð flokksins. Á landsvísu á
flokkurinn töluvert í land að endur-
heimta fyrri styrk. Margir leita
skýringa til hruns fjármálakerfisins
og eftirleiks þess. Ekki skal gert lít-
ið úr því en þróunin hófst miklu fyrr.
Höfuðvígi flokksins – Reykjavík –
féll löngu áður. Þótt tekist hafi að
spyrna nokkuð við fótum í síðustu
borgarstjórnarkosningum er fylgið
langt undir sögulegu meðaltali.
Staða meðal ungs fólks – ekki síst í
Reykjavík – hefur aldrei verið veik-
ari. Það er af sem áður var þegar
ungir kjósendur löðuðust að Sjálf-
stæðisflokknum, kannski ekki síst
vegna þess hve mikil áhrif ungt fólk
hafði á störf og stefnu flokksins –
allt frá hugmyndum um valddreif-
ingu, opna stjórnsýslu og upplýs-
ingafrelsi, til raunverulegs valfrelsis
til menntunar, búsetu og starfa.
Eitt er víst. Sjálfstæðisflokknum
hefur ekki tekist að nýta sér góðan
árangur sem náðst hefur í efnahags-
málum frá árinu 2013, þegar flokk-
urinn myndaði ríkisstjórn með
Framsóknarflokknum. Skuldir ríkis-
ins hafa snarlækkað og þannig er
hætt að ganga á lífskjör komandi
kynslóða. Við erum þvert á móti far-
in að byggja aftur upp. Erlend staða
þjóðarbúsins hefur aldrei verið
betri. Kaupmáttur hefur aldrei verið
meiri, atvinnuleysi er lítið og verð-
lag hefur verið stöðugt.
Lífskjör eru með þeim bestu sem
þekkjast í heiminum. Ísland er eitt
opnasta hagkerfi heims í vöru-
viðskiptum samkvæmt úttekt
Alþjóðaviðskiptastofnunarinnar.
Á 90 ára afmælinu verðum við,
sem skipum sveit kjörinna fulltrúa
flokksins á þingi og í sveitarstjórn-
um, að viðurkenna að okkur hefur
ekki tekist að endurnýja sambandið
við marga kjósendur. Ástæðurnar
eru margar eins og ég hef raunar
fjallað um áður.
Hlutverk Sjálfstæðisflokksins er
að rækta sambandið við kjósendur –
slípa og móta hugsjónir. Þróa hug-
myndir í takt við nýja tíma og nýjar
áskoranir, án þess að hverfa frá
grunngildi um frelsi einstaklingsins.
Það þarf hins vegar að fylgja hug-
myndunum eftir af ástríðu og sann-
færingu. Og þá er gott að hafa í
huga orð Bjarna Benediktssonar í
áramótaávarpi í Ríkisútvarpinu
1968:
„Engin skömm er að því að falla
vegna þess að maður fylgir sannfær-
ingu sinni. Hitt er lítilmótlegt að ját-
ast undir það sem sannfæring,
byggð á bestu fáanlegri þekkingu,
segir að sé rangt.“
Eftir Óla Björn
Kárason » Sjálfstæðisflokkur-
inn hefur barist fyrir
að frelsi einstaklingsins
verði aukið á öllum svið-
um í þeirri fullvissu að
þannig farnist samfélag-
inu best.
Óli Björn Kárason
Höfundur er alþingismaður fyrir
Sjálfstæðisflokkinn.
Að eiga erindi við framtíðina