Morgunblaðið - 09.01.2019, Síða 16
16 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 9. JANÚAR 2019
SKRIFSTOFUHÚSGÖGN
Síðumúli 35 | 108 Reykjavík | S. 568 2828 | www.holmris.is
Bjóðum uppá húsgögn
eftir marga fræga
húsgagnahönnuði.
Mörg vörumerki.
Skannaðu kóð-
ann til að sjá
gengið eins og
það er núna á
BAKSVIÐ
Pétur Hreinsson
peturhreins@mbl.is
Sjálfsafgreiðslukassar eru orðnir
algeng sjón í verslunum landsins
og sífellt fleiri kjósa að skanna inn
vörur sínar sjálfir. Af 23 verslunum
Krónunnar eru sjö þeirra búnar
sjálfsafgreiðslukössum en stefnt er
að því að slíkir kassar verði í öllum
Krónuverslunum á næstu 18 mán-
uðum. Af 33 verslunum Bónuss eru
fimm með slíka kassa og hyggst
fyrirtækið tvöfalda þann fjölda á
þessu ári. Allir þessir sjálfsaf-
greiðslukassar voru settir upp á
nýliðnu ári en það var IKEA sem
reið á vaðið árið 2010.
„Þetta er rétt að byrja“
Guðmundur Marteinsson, fram-
kvæmdastjóri Bónuss, segir allt að
45% viðskiptavina velja sjálfs-
afgreiðslu fram yfir þá hefðbundnu
en hún sé fyrst og fremst hugsuð
fyrir verslunarkörfur. „Þetta hefur
farið yfir 45%. En þetta fer líka eft-
ir búðunum. Sumar þeirra eru með
fleiri kúnna en minni körfu. Þetta
er vinsælla þar. Þetta er hugsað
fyrst og fremst sem afgreiðsla fyrir
fáa hluti,“ segir Guðmundur í sam-
tali við Morgunblaðið. „Þetta er
rétt að byrja. Við stefnum á að tvö-
falda fjöldann í ár.“
Í minni verslunum Krónunnar
kýs meira en helmingur fólks
sjálfsafgreiðslu fram yfir hefð-
bundna afgreiðslu með starfs-
manni. Fyrsti sjálfsafgreiðslukass-
inn kom í verslun Krónunnar í
mars á síðasta ári og hafa viðtök-
urnar verið afar góðar að sögn
Grétu Maríu Grétarsdóttur, fram-
kvæmdastjóra Krónunnar. Að-
spurð hvort þau sjái einhverja
breytingu hvað viðkemur stuldi úr
versluninni segir Gréta María ekki
komna nægilega reynslu á kassana.
„Við segjum alltaf að þeir sem ætla
að stela stela. En við erum með
vigt á kassanum þannig að þegar
þú skannar hlut þarftu að leggja
hann niður á vigtina sem þekkir
þyngdina. Ef eitthvað óeðlilegt á
sér stað þarf starfsmaður að
koma,“ segir Gréta María.
Munu meira og minna hverfa
IKEA er með átta sjálfs-
afgreiðslukassa í boði og segir Þór-
arinn Ævarsson framkvæmdastjóri
að hlutfall þeirra sem nota þá fari
allt úr 70% þegar minna er að gera
í búðinni og fólk er með færri vörur
niður í 20% á háannatíma og í stór-
innkaupum. Reynsla IKEA af
sjálfsafgreiðslukössum er töluverð
og segir Þórarinn rannsókn hafa
sýnt að kassastarfsmaður í IKEA
sé ekki ólíklegri til að gera mistök
við afgreiðslu á vörum en við-
skiptavinur í sjálfsafgreiðslu og að
rýrnun hafi ekki aukist. Að sögn
Þórarins er sjálfsafgreiðsla fram-
tíðin en í IKEA og öðrum versl-
unum hafa verið gerðar tilraunir
með rafaldskenni í vörum sem lesin
eru sjálfvirkt þegar gengið er í
gegnum svæði og ekkert nema
greiðslan eftir. „Á næstu 10 árum
munu hefðbundnir afgreiðslukass-
ar meira og minna hverfa. Sem er
ekki slæmt því þetta er ekki starf
sem þú vilt vinna við lengi. Það er
ekki verið að taka atvinnu af fólki
heldur er verið að gera það sjálf-
virkt sem á að vera sjálfvirkt,“ seg-
ir Þórarinn.
Hefðbundnir afgreiðslu-
kassar hverfa á næstu árum
Morgunblaðið/Eggert
Sjálfsafgreiðsla Meira en helmingur viðskiptavina í smærri verslunum
Krónunnar kýs sjálfsafgreiðslu fram yfir hefðbundna afgreiðslu.
Sjálfsafgreiðslukassar í allar Krónuverslanir borgarinnar á næstu 18 mánuðum
Sjálfsafgreiðsla
» Sjálfsafgreiðslukassar voru
teknir í notkun í sjö verslunum
Krónunnar á síðasta ári.
» Sjálfsafgreiðslukassar voru
teknir í notkun í fimm versl-
unum Bónuss, sem hyggst tvö-
falda þann fjölda á árinu.
» IKEA reið á vaðið á Íslandi
árið 2010 og er með átta
sjálfsafgreiðslukassa. Fram-
kvæmdastjóri segir sjálfs-
afgreiðslu vera framtíðina.
unum á Norður-
löndunum.
„Það eru gríð-
arleg tækifæri
fyrir Advania í
Finnlandi. Við
höfum verið að
breikka þjón-
ustuframboð
okkar undan-
farið á þeim
mörkuðum þar sem það hefur verið
mjög sérhæft. Sem dæmi gerðum
við það í Noregi á síðasta ári þegar
við keyptum félag sem er allt öðru-
vísi en Advania í Noregi var. Þetta
gengur mjög vel,“ segir Ægir Már.
Hann segir að Advania eigi nú
þegar finnska viðskiptavini sem
eigi viðskipti við Advania í Svíþjóð.
„Svo er einn af stjórnarmönnum
okkar finnskur og við erum með
mjög góðar tengingar inn í landið.
Við lítum finnska markaðinn mjög
björtum augum og það er margt að
gerast þar.“
Tuttugu starfa hjá Vintor og
stefnan er að sögn Ægis að vaxa
töluvert en á skynsamlegum hraða.
Ægir segir að Vintor sérhæfi sig
í lausnum fyrir stærri fyrirtæki
sem reka stór og mikil þjónustuver.
„Þau hafa þörf fyrir að fanga sam-
skipti úr öllum áttum á einn stað, úr
Facebook, Twitter, SMS og símtöl-
um, til dæmis.“
Að sögn Ægis var árið 2018 besta
rekstrarár Advania-samstæðunnar
frá upphafi. Árangur hafi náðst á
öllum mörkuðum sem fyrirtækið
starfar á. tobj@mbl.is
Upplýsingatæknifyrirtækið Advan-
ia hefur fest kaup á finnska félag-
inu Vintor. Kaupverð er trúnaðar-
mál. Um er að ræða fyrstu skref
Advania inn á finnska markaðinn,
en landið var eina landið á Norður-
löndum þar sem Advania var ekki
með starfsemi. Ægir Már Þórisson,
forstjóri Advania á Íslandi, segir í
samtali við Morgunblaðið að félagið
muni taka upp nafn Advania og
hugmyndin sé að breikka út vöru-
framboð fyrirtækisins í takt við
þjónustu Advania á hinum lönd-
Advania á Finnlandsmarkað
Hyggst breikka út vöruframboðið í takt við aðra markaði 2018 besta árið
Ægir Már Þórisson
● Sparisjóður Höfðhverfinga hefur
kært dóm Landsréttar í hinu svokallaða
RB-máli til Hæstaréttar og óskað eftir
leyfi Hæstaréttar til að áfrýja dóminum,
að því er heimildir Morgunblaðsins
herma.
Landsréttur staðfesti í desember sl.
dóm Héraðsdóms Reykjavíkur um að
eignarréttur Mentis, sem er í eigu Gísla
K. Heimissonar, að 7,2% hlut í Reikni-
stofu bankanna (RB), væri viður-
kenndur. Tekist hefur verið á um þenn-
an hlut, og tímasetningu á nýtingu
forkaupsréttar, frá því kaupin voru gerð
árið 2016, en fljótlega eftir kaupin lýsti
Sparisjóður Höfðhverfinga því yfir að
hann hygðist neyta forkaupsréttar
samkvæmt ákvæði í samþykktum RB.
tobj@mbl.is
Vilja fá að áfrýja RB-
máli til Hæstaréttar
9. janúar 2019
Gengi Kaup Sala Mið
Dollari 117.91 118.47 118.19
Sterlingspund 150.16 150.9 150.53
Kanadadalur 88.21 88.73 88.47
Dönsk króna 18.052 18.158 18.105
Norsk króna 13.741 13.821 13.781
Sænsk króna 13.179 13.257 13.218
Svissn. franki 119.97 120.65 120.31
Japanskt jen 1.088 1.0944 1.0912
SDR 164.11 165.09 164.6
Evra 134.82 135.58 135.2
Meðalgengi/Viðskiptavog þröng 162.1241
Hrávöruverð
Gull 1291.5 ($/únsa)
Ál 1878.5 ($/tonn) LME
Hráolía 57.41 ($/fatið) Brent
● Hagar lækkuðu
um 6,1% í 130
milljóna króna við-
skiptum í Kaup-
höllinni í gær.
Lækkun félagsins
kemur í kjölfar
uppfærðrar af-
komuspár fyrir-
tækisins frá því á
mánudag. Í áætl-
unum Haga var
gert ráð fyrir að EBITDA, hagnaður
fyrir fjármagnsliði, afskriftir og skatta,
yrði 5 milljarðar króna að undan-
skildum kostnaði við sameiningu
Haga. Samkvæmt bráðabirgðauppgjöri
félagsins fyrir fyrstu 9 mánuði rekstr-
arársins er ljóst að afkoma verður
undir því markmiði, eða á bilinu 4,6 til
4,7 milljarðar króna.
Hagar lækka í kjölfar
uppfærðrar afkomuspár
Verslun Hagar
lækka í verði.
STUTT