Morgunblaðið - 09.01.2019, Blaðsíða 31

Morgunblaðið - 09.01.2019, Blaðsíða 31
MENNING 31 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 9. JANÚAR 2019 Þrátt fyrir að manneskjan ísamnefndu ljóði Sigur-bjargar Þrastardótturvirðist ekki sterkleg, fljótt á litið ekki mikið „meir en safn af / stökkum beinum, / næfur / pappírs- barki og hálfpottshjarta / sem má ekki við miklu / má ekki út úr húsi / í golu“, þá finnst ljóðmælandanum rétt að taka fram – og talar af reynslu, segir hún – „að það er / tals- vert verk / að murka lífið úr mann- eskju“. Þetta er kostuleg lýsing á manneskju, sem er furðu viðkvæm og þó sterk, en má þó teljast dæmi- gerð fyrir persón- urnar og mynd- irnar sem mæta lesendum nýrrar og áhugaverðrar ljóðabókar Sigur- bjargar. Þetta mun vera áttunda frum- samda ljóðabók skáldsins, sem einnig hefur sent frá sér sögur og leikverk á undan- förnum tveimur áratugum. Og hér eru ein 55 ljóð og skiptist bókin í fimm hluta. Ef reynt er að lýsa við- fangsefnunum þá má nefna mann- inn, tilvistina, hversdagslífið, skáld- skapinn – það hljómar svosem hefðbundið og almennt en rödd skáldsins er svo sérstök, sýnin á líf- ið, hlutina og uppákomurnar svo persónuleg, ísmeygileg, fyndin og iðulega óvænt að hversdagslífið í verkum Sigurbjargar verður oft safn lítilla ævintýra, forvitnilegra ör- mynda og bráðskemmtilegra upplif- ana. Hún hefur þann hæfileika að geta sýnt lesandanum hversdags- leikann í alveg nýju ljósi og skapað svo óvæntar tengingar að heimurinn tekur einhverjum smávægilegum breytingum – og þá er mikið unnið. Því eins og segir réttilega í fyrsta ljóðinu, „Urrabíta og drottningin“: „vort dýra líf / er bakkafullt af undr- um“. Lengsta ljóð bókarinnar er „Ávarp fjallkonu 2017“ og hún mælir þar sem hún stendur „staðkyrr“ á miðjum vegi með tertu í höndum, spyr bláklukku hvað tímanum líði, „það er byrjandi vetur / það er blás- andi vor // en fast uppi við brjóstið / er / blævalogn“. Þá vekja sérstaka athygli tvö vel mótuð, tregafull og falleg minningaljóð um skáld- bræður. Í „Við gluggann, það sunnu- dagskvöld“ er hugsað til Þorsteins frá Hamri og er tileinkun í ljóð eftir hann: Birtið sjón minni / breytileik alls. Ljóðið er svona: Þá ertu farinn og ég forakta tunglið fyrir að falla ekki af himni horfinn og ég dreg mig að þöglum ofni í þinn stað strokinn burt og ég læt vötnin leka á hvítleita kistu, mái í mistur spegilmynd mína og man engin orð í svipinn, svipinn – Hitt, „Græna vatnið og við og hann“, er falleg minning um Jónas Þorbjarnarson, tregafull og sár. Annars eru ljóð bókarinnar mörg afar kátleg og skemmtileg, og mótuð meðal annars af þeirri frumlegu orðasmíð og orðaleikjum sem eru eitt einkenni á skáldskap Sigur- bjargar, hvort sem ort er um munst- ur á lopapeysum sem eru „regluleg / hjartalínurit yfir brjóst“, óttann við rótdauða trjástofna sem kemur úr erlendri barnabók eða óþol fyrir kyrralífsmótívum í málverkum. Með meðmælum um þessa fínu bók lætur rýnir þessum skrifum lokið og vonar að það fari ekki fyrir honum eins og þeim sem minnst er á í ljóðinu „Gaddakylfur“, að skáldinu finnist hann ekki hafa sagt „eitthvað sér- staklega rangt“, og það einmitt í jan- úar, því þá, eins og þar segir: sé ég mig nauðbeygða til að slá hann í eggslétt andlitið með tröllaskaganum sem í mér býr Hvaða sómakær gagnrýnandi vill verða fyrir því að fá heilan Trölla- skaga í andlitið? Vort dýra líf er bakkafullt af undrum Morgunblaðið/Golli Skáldið „… hversdagslífið í verkum Sigurbjargar verður oft safn lítilla æv- intýra, forvitnilegra örmynda og bráðskemmtilegra upplifana,“ segir rýnir. Ljóð Hryggdýr bbbbn Eftir Sigurbjörgu Þrastardóttur. JPV forlag, 2018. Kilja, 80 bls. EINAR FALUR INGÓLFSSON BÆKUR kæruleysis fyrri kynslóða hvað varð- ar notkun á plasti og fékk val um að taka þátt í því að halda áfram að sóa lífsins gæðum fyrir stundargróða eða eiga það á hættu að vera kastað í hættulega holu. Þar sem rýni fannst hvorugur kosturinn góður fór hann á vit annarra ævintýra á næstu síðum. Ævar Þór kemur miklum fróðleik fyrir í bókinni á skemmtilegan og spennandi hátt. Hann útskýrir hvað orðatilæki sem hann notar þýða og bætir svo við aukafróðleik í lok bók- arinnar. Rýnir er mjög hrifinn af að- ferðafræði hans við að miðla fróðleik til barna og ungmenna og á hann heiður skilinn fyrir það. Það er greinilegt að mikill metn- aður er lagður í verkið og má segja að bókarkápan og snilldarlega gerð- ar myndir Evönu Kisu séu punkt- urinn yfir i-ið á vel skrifaðri barna- bók, bók sem endalaust er hægt að lesa. Morgunblaðið/Hari Fróður „Ævar Þór [Benediktsson] kemur miklum fróðleik fyrir í bókinni á skemmtilegan og spennandi hátt,“ segir í rýni um Þitt eigið tímaferðalag. Nýleg rannsókn sem gerð var í Bret- landi leiddi í ljós að regluleg upplifun fólks yfir fimmtugt af menningar- viðburðum minnkar líkur á þung- lyndi á efri árum. Rannsóknin var birt í British Journal of Psychiatry. Rannsóknin náði til fleiri en 2.000 einstaklinga og kom í ljós að þeir sem fóru að lágmarki einu sinni í mánuði í leikhús, á myndlistarsýningu eða í kvikmyndahús, voru 48% ólíklegri til að upplifa þunglyndi en þeir sem nutu ekki menningarviðburða. Þeir sem upplifðu slíka viðburði sjaldnar eða á nokkurra mánaða fresti voru engu að síður 32% ólík- legri til að upplifa þunglyndi á efri árum en hinir sem upplifðu ekkert slíkt. Í The Independent er haft eftir prófessor við University College í London að fólk sé almennt meðvitað um mikilvægi þess fyrir andlega og líkamlega heilsu að njóta reglulegra máltíða á dag og þess að hreyfa sig, en fólk sé hins vegar ekki meðvitað um að menningarleg virkni hafi einn- ig góð áhrif á heilsu þess Rannsóknin byggðist á annarri af- ar umfangsmikilli sem yfir tíu ára tímabil kannaði líkamlega heilsu, fé- lagsleg gæði og andlega velferð þús- unda fullorðinna Breta. Menning gegn þunglyndi Elly (Stóra sviðið) Lau 12/1 kl. 20:00 188. s Lau 19/1 kl. 20:00 191. s Fös 25/1 kl. 20:00 194. s Sun 13/1 kl. 20:00 189. s Sun 20/1 kl. 20:00 192. s Lau 26/1 kl. 20:00 195. s Fös 18/1 kl. 20:00 190. s Fim 24/1 kl. 20:00 193. s Stjarna er fædd. Ríkharður III (Stóra sviðið) Fim 10/1 kl. 20:00 4. s Fim 17/1 kl. 20:00 7. s Fim 31/1 kl. 20:00 10. s Fös 11/1 kl. 20:00 5. s Mið 23/1 kl. 20:00 8. s Mið 16/1 kl. 20:00 6. s Sun 27/1 kl. 20:00 9. s 5 stjörnur - ÞT. Morgunblaðið / 5 stjörnur - SJ. Fréttablaðið Allt sem er frábært (Litla sviðið) Fös 18/1 kl. 20:00 27. s Fim 24/1 kl. 20:00 28. s Fös 1/2 kl. 20:00 29. s Gleðileikur um depurð. Kvenfólk (Nýja sviðið) Fös 11/1 kl. 20:00 16. s Sun 20/1 kl. 20:00 aukas. Lau 2/2 kl. 20:00 27. s Lau 12/1 kl. 20:00 17. s Fös 25/1 kl. 20:00 24. s Fös 8/2 kl. 20:00 28. s Fös 18/1 kl. 20:00 aukas. Lau 26/1 kl. 20:00 25. s Lau 9/2 kl. 20:00 29. s Lau 19/1 kl. 20:00 20. s Fös 1/2 kl. 20:00 26. s Drepfyndin sagnfræði með söngvum. Núna 2019 (Litla sviðið) Fös 11/1 kl. 20:00 Frums. Lau 12/1 kl. 17:00 2. s Sun 13/1 kl. 17:00 3. s Núna er ekki á morgun, það er NÚNA Kvöldvaka með Jóni Gnarr (Litla sviðið) Fim 17/1 kl. 20:00 3. s Fös 25/1 kl. 20:00 5. s Lau 2/2 kl. 20:00 7. s Lau 19/1 kl. 20:00 4. s Lau 26/1 kl. 20:00 6. s Sun 3/2 kl. 20:00 8. s Athugið. Aðeins verða átta sýningar. Ég dey (Nýja sviðið) Fim 10/1 kl. 20:00 Frums. Mið 16/1 kl. 20:00 3. s Fim 24/1 kl. 20:00 5. s Sun 13/1 kl. 20:00 2. s Fim 17/1 kl. 20:00 4. s Sun 27/1 kl. 20:00 6. s Trúir þú á líf fyrir dauðann? Fólk, staðir og hlutir (Litla sviðið) Mið 13/2 kl. 20:00 33. s Mið 20/2 kl. 20:00 37. s Mið 27/2 kl. 20:00 41. s Fim 14/2 kl. 20:00 34. s Fös 22/2 kl. 20:00 38. s Fim 28/2 kl. 20:00 42. s Fös 15/2 kl. 20:00 35. s Lau 23/2 kl. 20:00 39. s Fös 1/3 kl. 20:00 43. s Lau 16/2 kl. 20:00 36. s Sun 24/2 kl. 20:00 40. s Lau 2/3 kl. 20:00 44. s Lífið er ekki nógu ávanabindandi BORGARLEIKHÚSIÐ Kynntu þér nýjan tapas-matseðil Leikhúsbarsins á borgarleikhus.is Miðasala | 568 8000 | borgarleikhus.is Ronja Ræningjadóttir (Stóra sviðið) Sun 13/1 kl. 13:00 30.sýn Sun 3/2 kl. 16:00 37.sýn Sun 17/3 kl. 13:00 Aukas. Sun 13/1 kl. 16:00 31.sýn Sun 10/2 kl. 13:00 38.sýn Sun 17/3 kl. 16:00 48.sýn Lau 19/1 kl. 13:00 Aukas. Sun 10/2 kl. 16:00 39.sýn Sun 24/3 kl. 13:00 Auka Lau 19/1 kl. 16:00 Aukas. Sun 17/2 kl. 13:00 40.sýn Sun 24/3 kl. 16:00 Auka Sun 20/1 kl. 13:00 32.sýn Sun 17/2 kl. 16:00 41.sýn Sun 31/3 kl. 13:00 Auka Sun 20/1 kl. 16:00 33.sýn Sun 24/2 kl. 13:00 42.sýn Sun 31/3 kl. 16:00 49.sýn Lau 26/1 kl. 13:00 Auka Sun 24/2 kl. 16:00 43.sýn Sun 7/4 kl. 13:00 50.sýn Lau 26/1 kl. 16:00 Auka Sun 3/3 kl. 13:00 44.sýn Sun 7/4 kl. 16:00 51.sýn Sun 27/1 kl. 13:00 34.sýn Sun 3/3 kl. 16:00 45.sýn Sun 14/4 kl. 13:00 52.sýn Sun 27/1 kl. 16:00 35.sýn Sun 10/3 kl. 13:00 46.sýn Sun 14/4 kl. 16:00 53.sýn Sun 3/2 kl. 13:00 36.sýn Sun 10/3 kl. 16:00 47.sýn Stórskemmtilegur og æsispennandi söngleikur fyrir alla fjölskylduna! Einræðisherrann (Stóra Sviðið) Fös 11/1 kl. 19:30 5.sýn Fim 24/1 kl. 19:30 9.sýn Fös 8/2 kl. 19:30 Auka Lau 12/1 kl. 19:30 6.sýn Fös 25/1 kl. 19:30 10.sýn Lau 9/2 kl. 19:30 12.sýn Fim 17/1 kl. 19:30 7.sýn Fös 1/2 kl. 19:30 Auka Lau 16/2 kl. 19:30 13.sýn Fös 18/1 kl. 19:30 8.sýn Lau 2/2 kl. 19:30 11.sýn Lau 23/2 kl. 19:30 14.sýn Siggi Sigurjóns mætir Charlie Chaplin! Jónsmessunæturdraumur (Stóra sviðið) Fös 22/2 kl. 19:30 Frums Fös 1/3 kl. 19:30 3.sýn Fös 15/3 kl. 19:30 5.sýn Fim 28/2 kl. 19:30 2.sýn Fim 7/3 kl. 19:30 4.sýn Lau 16/3 kl. 19:30 6.sýn Fyndinn og erótískur gamanleikur Fly Me To The Moon (Kassinn) Lau 19/1 kl. 19:30 23.sýn Lau 26/1 kl. 19:30 24.sýn Nýtt verk eftir höfund hins geysivinsæla leikrits Með fulla vasa af grjóti Þitt eigið leikrit (Kúlan) Fös 25/1 kl. 18:00 Frums. Fim 14/2 kl. 18:00 6.sýn Lau 2/3 kl. 15:00 12.sýn Fim 31/1 kl. 18:00 2.sýn Fös 15/2 kl. 18:00 7.sýn Lau 9/3 kl. 15:00 14.sýn Lau 2/2 kl. 15:00 3.sýn Lau 16/2 kl. 15:00 8.sýn Lau 9/3 kl. 17:00 Auka Fim 7/2 kl. 18:00 Aukas. Fim 21/2 kl. 18:00 9.sýn Sun 17/3 kl. 15:00 15.sýn Fös 8/2 kl. 18:00 4.sýn Lau 23/2 kl. 15:00 10.sýn Lau 23/3 kl. 15:00 16.sýn Lau 9/2 kl. 15:00 5.sýn Fös 1/3 kl. 18:00 11.sýn Lau 23/3 kl. 17:00 17.sýn Það er þitt að ákveða hvað gerist næst! Velkomin heim (Kassinn) Lau 2/2 kl. 19:30 Frums Lau 9/2 kl. 19:30 3.sýn Fös 15/2 kl. 19:30 5.sýn Sun 3/2 kl. 19:30 2.sýn Sun 10/2 kl. 19:30 4.sýn Insomnia (Kassinn) Lau 12/1 kl. 19:30 7.sýn Fim 17/1 kl. 19:30 8.sýn Fös 18/1 kl. 19:30 9.sýn Brandarinn sem aldrei deyr Improv Ísland (Þjóðleikhúskjallari) Mið 16/1 kl. 20:00 Mið 30/1 kl. 20:00 Mið 13/3 kl. 20:00 Mið 23/1 kl. 20:00 Mið 6/2 kl. 20:00 Spunasýningarnar vinsælu snúa aftur - engin sýning eins! Mið-Ísland (Þjóðleikhúskjallarinn) Fös 11/1 kl. 20:00 Fös 18/1 kl. 20:00 Fös 25/1 kl. 20:00 Fös 11/1 kl. 22:30 Fös 18/1 kl. 22:30 Fös 25/1 kl. 22:30 Lau 12/1 kl. 20:00 Lau 19/1 kl. 20:00 Lau 26/1 kl. 20:00 Lau 12/1 kl. 22:30 Lau 19/1 kl. 22:30 Lau 26/1 kl. 22:30 Fim 17/1 kl. 20:00 Fim 24/1 kl. 20:00 Bara Góðar - Uppistandssýning (Þjóðleikhúskjallarinn) Sun 20/1 kl. 20:00 Sun 27/1 kl. 20:00 leikhusid.is | midasala@leikhusid.is | 551 1200

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.