Morgunblaðið - 29.01.2019, Page 4

Morgunblaðið - 29.01.2019, Page 4
4 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 29. JANÚAR 2019 Veður víða um heim 28.1., kl. 18.00 Reykjavík -6 léttskýjað Hólar í Dýrafirði 1 skýjað Akureyri -4 snjókoma Egilsstaðir -4 skýjað Vatnsskarðshólar -2 heiðskírt Nuuk -7 snjóél Þórshöfn 0 snjókoma Ósló -4 snjókoma Kaupmannahöfn 2 þoka Stokkhólmur -2 snjókoma Helsinki -6 snjókoma Lúxemborg 2 snjóél Brussel 3 skúrir Dublin 5 rigning Glasgow 4 léttskýjað London 4 léttskýjað París 5 skýjað Amsterdam 4 léttskýjað Hamborg 3 súld Berlín 4 rigning Vín 3 heiðskírt Moskva -7 snjókoma Algarve 16 skýjað Madríd 13 léttskýjað Barcelona 13 léttskýjað Mallorca 15 léttskýjað Róm 8 rigning Aþena 13 léttskýjað Winnipeg -18 snjókoma Montreal -20 léttskýjað New York -3 heiðskírt Chicago 1 rigning Orlando 10 alskýjað  29. janúar Sólarupprás Sólsetur REYKJAVÍK 10:18 17:05 ÍSAFJÖRÐUR 10:41 16:52 SIGLUFJÖRÐUR 10:25 16:34 DJÚPIVOGUR 9:52 16:30 VEÐUR KL. 12 Í DAG Á miðvikudag Norðlæg átt 5-13 m/s, en heldur hvassari með A-ströndinni. Él um norðanvert landið, en léttskýjað sunnan heiða. Frost 2 til 15 stig, kald- ast inn til landsins. SPÁ KL. 12.00 Í DAG Norðaustlæg átt 3-10 m/s, en 10-18 á Vestfjörðum og SA-til. Víða él eða snjókoma, en léttskýjað sunnan heiða. Frost 1-10 stig, en kólnandi veður, einkum inn til landsins. Matsnefnd eignarnámsbóta úr- skurðaði eigendum Torfastaða í Bláskógabyggð tæplega 8 milljóna króna bætur fyrir land úr jörðinni sem fer undir Reykjaveg við endurbætur á veginum, auk máls- kostnaðar. Er það hærra verð en Vegagerðin hafði boðið en aðeins lítið brot af kröfum eigendanna. Ólafur Einarsson, annar eigandi Torfastaða, á ekki von á því að eig- endurnir muni una úrskurðinum. Enn hafi þó ekki verið ákveðið að leggja málið fyrir dómstóla. Vegagerðin er að undirbúa endurbætur á Reykjavegi í Blá- skógabyggð, gömlum malarvegi. Verður hann breikkaður og mal- bikaður. Vegagerðin náði ekki samningum við eigendur Torfa- staða sem eiga hluta af landinu og var það tekið eignarnámi. Kröfðust 87 milljóna Vegagerðin bauð landeigendum 650 þúsund kr. á hektara. Eig- endur Torfastaða kröfðust 4,7 milljóna á hektara, samtals 39 milljóna kr. fyrir þeirra land og spildu sem ágreiningur ríkir um eignarhald á. Miðaðist krafan við söluverð sumarbústaðalands úr jörðinni. Auk þess kröfðust eig- endurnir 2,5 milljóna í bætur fyrir tímabundið rask og ónæði vegna framkvæmdanna og nýtingu á veg- slóða. Þá yrði Vegagerðinni gert að greiða 46 milljónir kr. vegna nýtingar jarðefna úr landi Torfa- staða. Krafan hljóðaði samtals upp á 87,5 milljónir kr. Matsnefndin bendir á að landið sé beitarland í um 100 metra hæð yfir sjávarmáli. Ekki verði séð að lagning vegar hafi neikvæð áhrif á sumarhúsa- byggð. Telur nefndin að hæfilegar bæt- ur fyrir hvern hektara lands séu 800 þúsund krónur, eða alls rúmar 6 milljónir fyrir 7,67 hektara úr landi Torfastaða og tæpar 2 millj- ónir fyrir 2,18 hektara í hinu um- deilda landi. Bætur fyrir rask og ónæði og afnot af vegslóða eru metnar 1,5 milljónir kr. Nefndin bendir á að þegar ríkið seldi núverandi eigendum Torfa- staða jörðina hafi það haldið eftir rétti til efnistöku umfram heim- ilisþörf. Ríkiseignir hafi heimilað Vegagerðinni efnistökuna. Er því kröfu um gjald fyrir efnistöku hafnað. helgi@mbl.is Fengu brot af kröfum sínum  Matsnefnd úrskurðar um bætur fyrir eignarnám vegna Reykjavegar Ljósmynd/Vegagerðin Malarvegur Rykstrókur stendur aftur úr bíl á Reykjavegi. Stefán Gunnar Sveinsson sgs@mbl.is Fundað var í gær hjá ríkissátta- semjara, þar sem fulltrúar VR, Efl- ingar, Verkalýðsfélags Grindavíkur og Verkalýðsfélags Akraness ræddu þar við fulltrúa Samtaka at- vinnulífsins. Gekk fundurinn vel að sögn Bryndísar Hlöðversdóttur ríkissáttasemjara, en til stóð að funda einnig á miðvikudag og föstu- dag í þessari viku. Vilhjálmur Birgisson, formaður Verkalýðsfélags Akraness, segir að fundurinn hafi verið eins og búist var við. „Við vorum að kasta á milli okkar atriðum sem lúta að kröfu- gerðinni og velta ýmsum hlutum fyrir okkur í þeim efnum. Fundur- inn var svo sem ágætur hvað það varðar, en það er ljóst að það er heilmikil vinna eftir ennþá,“ segir Vilhjálmur. Viðræður á hraða snigilsins Spurður um gang viðræðnanna segir Vilhjálmur það alveg ljóst að þær séu á hraða snigilsins. „Við verðum að átta okkur á því að þessi mánuður er að verða liðinn og það er aldrei gott þegar kjaraviðræður dragast svona.“ Segir Vilhjálmur að það virðist vera lenska hér að kjaraviðræður taki nokkra mánuði á hinum almenna vinnumarkaði, sem sé óþolandi staða. „En menn eru að tala saman og meðan það er verðum við að eygja einhverja von.“ En hvernig sér Vilhjálmur fyrir sér gang viðræðnanna á næstu dögum? „Það er ljóst að því fleiri fundir sem haldnir eru, því nær komumst við að endamarkinu. Hvort endamarkið verður með þeim hætti að menn komist ekki lengra og allt fari í strand verður að koma í ljós, en til að tikka í öll boxin verða menn að funda ótt og títt,“ segir Vilhjálmur og bætir við að á endanum komi einhver niður- staða í viðræðurnar hvort sem hún verði í formi kjarasamnings eða samningsslita. Tíminn einn muni leiða í ljós hvort verði. Vilhjálmur segir að lokum ljóst að aðkoma stjórnvalda muni vega þungt í því hvort samningar náist. „Það er hægt að auka ráðstöfunar- tekjur lágtekjufólks, verkafólks og millitekjufólks með margvíslegum hætti, meðal annars með breyting- um á skattkerfi, okurvöxtum, verð- tryggingu og svo framvegis.“ Hann bætir við að tillögur átaks- hópsins í húsnæðismálum sem lagðar voru fram í síðustu viku yrðu mjög jákvætt skref, en að það þyrfti að bíða og sjá hvernig stjórnvöld vilji afgreiða þær 40 til- lögur sem þar voru lagðar fram. Þá muni skattamálin einnig skipta máli. Vinnan er í gangi Halldór Benjamín Þorbergsson, framkvæmdastjóri Samtaka at- vinnulífsins, segir að fundurinn í gær hafi verið ágætis vinnufundur. „Við fórum yfir mörg mál sem til- heyra endurnýjun kjarasamning- anna, og að því leytinu til er ég ánægður með að samtalið sé komið á ágætis rekspöl.“ Halldór segir það mikilvægt að búið er að boða til tveggja funda í vikunni til við- bótar. „Á meðan við erum að tala saman, þá er gangur í viðræðum, en þetta þarf einfaldlega að taka sinn tíma.“ Samtök atvinnulífsins eru einnig í viðræðum við Starfsgreinasam- bandið, iðnaðarmannafélögin og Landssamband verslunarmanna, en þær viðræður eru ekki á borði ríkissáttasemjara. Halldór Benja- mín segir að fundað verði með þeim öllum í vikunni, til dæmis hafi hann hitt fulltrúa Starfsgreinasambands- ins og iðnaðarmanna í gær og muni hitta þá aftur í dag. Það sé því þétt dagskráin hjá Samtökum atvinnu- lífsins næstu daga. „Vinnan er í gangi.“ Morgunblaðið/Hari Kjaraviðræður Fundað var hjá Ríkissáttasemjara í gærmorgun. Á myndinni sjást meðal annars þau Vilhjálmur Birgisson, Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður Eflingar, og Ragnar Þór Ingólfsson, formaður VR. „Heilmikil vinna“ eftir í kjaraviðræðum  Fundað aftur hjá ríkissáttasemjara á morgun og föstudag Vilhjálmur Birgisson Halldór Benjamín Þorbergsson Tveir fulltrúar af þremur sem sitja í siðanefnd Alþingis hafa óskað eftir því að fjalla ekki um hið svonefnda Klausturmál. Hafsteinn Þór Hauks- son, dósent við lagadeild Háskóla Ís- lands, hefur ákveðið að hætta í nefndinni, en sú ákvörðun tengist málinu ekki. Hinn fulltrúinn, Salvör Nordal, ákvað að koma ekki að mál- inu vegna anna í embætti sínu sem umboðsmaður barna. Steingrímur J. Sigfússon, forseti Alþingis, staðfesti þetta í samtali við mbl.is í gær, en fyrst var greint frá ákvörðununum í hádegisfréttum Ríkisútvarpsins í gær. Ljóst er að Margrét Vala Kristjánsdóttir, vara- maður Hafsteins, tekur sæti hans í siðanefndinni. Þá liggur fyrir tillaga um staðgengil Salvarar en forsætis- nefnd Alþingis mun ræða hana á fundi sínum í dag. Ásta Ragnheiður Jóhannesdóttir, fyrrverandi forseti Alþingis, mun áfram sitja sem formaður siða- nefndarinnar og fjalla sem slíkur um Klausturmálið þegar því verður vís- að til nefndarinnar. Tveir víkja sæti í siðanefnd Alþingis  Tillaga um staðgengil rædd í dag

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.