Morgunblaðið - 29.01.2019, Page 8

Morgunblaðið - 29.01.2019, Page 8
8 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 29. JANÚAR 2019 TUDOR rafgeymar TUDOR TUDOR Er snjósleðinn tilbúinn fyrir vetrarkuldann? Bíldshöfða 12 • 110 Rvk • 577 1515 • skorri.is Mikið úrval - Traust og fagleg þjónusta Veldu öruggt start með TUDOR Sigurður Hannesson, talsmaðurSamtaka iðnaðarins, segir að skattpíning sveitarfélaga á atvinnu- fyrirtækjum sé „yfirleitt í toppi, meðaltalið hjá sveitarfélögunum er rétt undir hámark- inu. Það munar langmest um Reykjavík, stærsta sveitarfélagið þar sem álagningin er í toppi þar sem er vel á annan tug millj- arða í fasteignagjöldum á atvinnu- húsnæði fyrir utan íbúðarhúsnæði. Þetta eru háar fjárhæðir.    Þó að sveitarfélög hafi lækkaðprósentuna á milli ára á at- vinnuhúsnæði þá er það samt hækkun í krónum talið af því að stofninn hækkar svo mikið.    Þetta kemur til viðbótar við þaðað skattar á Íslandi eru háir í alþjóðlegu samhengi.    Það er auðvitað ekki hægt aðbjóða fyrirtækjum upp á þetta til viðbótar við sveiflur, óstöðug- leika og innlendar kostnaðarhækk- anir.    Við sjáum það að laun eru líka háí alþjóðlegum samanburði.    Allt leggst þetta á eitt, á samatíma og hægir á vextinum þá eru sveitarfélögin að taka meira til sín.    Gjöldin eru að hækka um 14% ámilli 2018 og 2019.“    Gjöld sem hækka um 14% á milliára í 3% verðbólgu eru merki um rán en ekki heilbrigða gjald- töku fyrir þjónustu. Sigurður Hannesson Skattpíningin skaðar alla STAKSTEINAR Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar- greinum Morgunblaðsins á slóðinni http://mbl.is/mogginn/leidarar/ RÚV hefur verið gert að greiða eina milljón króna í stjórnvaldssekt vegna brota á lögum um Ríkis- útvarpið, að því er kemur fram í ákvörðun fjölmiðlanefndar vegna kostunar Golfsambands Íslands á þáttaröðinni Golfið sem var á dag- skrá RÚV síðasta sumar. Síminn hf. kvartaði til fjölmiðla- nefndar 23. maí 2018 og taldi fyrir- tækið að RÚV hefði brotið gegn lög- um með því að leyfa Golf- sambandinu að kosta sjónvarps- þáttinn Golfið sem sýndur var 22. maí. Samkvæmt lögum er RÚV ein- göngu heimilt að kosta stóra dag- skráliði og útsendingar innlendra íþróttaviðburða og umfjöllun um þá. „Kvað Ríkisútvarpið umfjöllun þáttanna ótvírætt falla undir heim- ildir 7. gr. laga um Ríkisútvarpið […] til að afla tekna með kostun við útsendingu innlendra íþróttavið- burða og umfjöllunar um þá. Í þátt- unum væru helstu mótum sumars- ins gerð skil,“ segir í ákvörðun fjölmiðlanefndar um afstöðu RÚV. Hvatti Síminn til þess að RÚV yrði beitt hámarkssektum og að sal- an yrði stöðvuð „án tafar til að Ríkisútvarpið ylli ekki frekari skaða á samkeppnismarkaði í skjóli ríkis- styrkja.“ RÚV sektað um eina milljón króna  Kostun á sjónvarpsþættinum Golfið braut gegn lögum um Ríkisútvarpið Morgunblaðið/Eggert RÚV Kostun á þættinum Golfið braut gegn lögum um stofnunina. Kristján H. Johannessen khj@mbl.is „Við erum í grunninn mjög hlynnt svona breytingum,“ segir Ragnheið- ur Tryggvadóttir, framkvæmda- stjóri Rithöfundasambands Íslands (RSÍ), í samtali við Morgunblaðið. Vísar hún í máli sínu til þess að fjármála- og efnahagsráðuneytið áformar að breyta skattalögum. Með frumvarpinu verða lagðar til breyt- ingar sem fela það í sér að gerður verður greinarmunur í skattalegu tilliti á höfundarlaunum annars veg- ar og tekjum af höfundarréttindum hins vegar þar sem lagt verður til að hvers konar endurgjald til höfunda og rétthafa fyrir afnot af hugverki, að undanskildum höfundarlaunum, teljist til eignatekna/fjármagns- tekna. Fram kom í Morgunblaðinu í gær að lausleg áætlun gerir ráð fyrir að tekjutap ríkisins vegna þessa nemi allt að 100 milljónum króna. Vonast eftir samráði Ragnheiður segist ekki vita ná- kvæmlega útfærsluna á þessum fyrirhuguðu breytingum. „Þetta er í sjálfu sér alveg óunnið. Þarna segir bara að áformað sé að höfundargreiðslur sem „viðurkennd rétthafasamtök“ innheimta verði skattlagðar sem eignatekjur. Maður á því eftir að sjá útfærsluna á því. Þannig myndi þetta til að mynda ekki taka til þess þegar við- komandi selur kvikmyndarétt því það er nokkuð sem maður inn- heimtir sjálfur. Við myndum því gjarnan vilja sjá þetta tekið enn lengra og væntanlega verðum við kölluð til samráðs í þessari vinnu,“ segir Ragnheiður. Þá segir Ragnheiður breyting- arnar að líkindum koma tónlistar- mönnum mjög til góða. „Helsta ástæða þess er sú að stór hluti af þeirra tekjum fer í gegnum STEF [Samband tónskálda og eigenda flutningsréttar]. Í ritlistinni er aftur á móti ekki til sambærilegt fyrirbæri þannig að við myndum gjarnan vilja sjá frekari útfærslu á þessu þegar kemur að okkar fólki. Og á ég þá meðal annars við þegar verk eru seld til þýðingar erlendis, þegar kvikmyndaréttur er seldur eða leik- gerð unnin út frá verki.“ Ragnheiður Tryggvadóttir Huga þarf að rit- list í frumvarpinu  RSÍ „í grunninn“ hlynnt breyttum lögum

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.