Morgunblaðið - 29.01.2019, Page 12

Morgunblaðið - 29.01.2019, Page 12
12 DAGLEGT LÍF MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 29. JANÚAR 2019 STOFNAÐ 1956 Glæsileg íslensk hönnun og smíði á skrifstofuna Bæjarlind 8–10 201 Kópavogur Sími 510 7300 www.ag.is ag@ag.is Fyrir Á. Guðmundsson starfa íslenskir, vel menntaðir arkitektar sem hafa þróað húsgögn og hönnunargripi sem skapa notalegt andrúmsloft. Hver hlutur ber einkenni klassískrar hönnunar en er einnig fallegur smíðisgripur sem er þægilegt að nota og sómir sér vel á skrifstofunni. Dímon Hönnuður: Erla Sólveig Óskarsdóttir Flex skrifstofuhúsgögn Hönnuðir: Guðrún Margrét Ólafsdóttir og Oddgeir Þórðarson Sigurður Bogi Sævarsson sbs@mbl.is Í Danmörku var þjóðhátíðar- stemning á sunnudaginn eftir að karlalandslið Dana í handknattleik hafði lagt Norðmenn að velli í úrslita- leik HM í handbolta. Leikurinn var háður í Herning á Jótlandi og urðu lokatölur 31:22. Danir brostu breitt að leik loknum, svo sem Friðrik krónprins sem með sinni fjölskyldu kom á leikinn og hafði gaman af. Sætir sigrar í íþróttum eru vítamín- sprauta nú um hávetur, auk heldur sem þeir vekja heilbrigt þjóðarstolt. Í vöggu heimsmenningar Stundum er sagt að vagga heimsmenningarinnar sé í Egypta- landi. Þar má víða sjá og finna mörg þúsund ára gamlar menningar- minjar, sem vekja með fólki mun fleiri spurningar en nokkru sinni verður svarað. Emmanuel Macron Frakklandsforseti er þessa dagana á ferðinni í Egyptalandi og skoðaði þá meðal annars pýramídana í Giza; þau undraverðu mannvirki sem eng- inn veit hvernig reisa mátti. Í er- lendum fréttaskeytum er tekið fram að þarna hafi Macron verið á meðan bullsýður á öllu í Frakklandi – og gulvestungar krefjast réttlætis. Austur í Rússlandi sýndi herinn mátt sinn og megin um helgina, og þar var efnt til sýningar í tilefni af því að 75 ár voru liðin frá því umsátr- inu um Leníngrad lauk. Í dag er reyndar talað um St. Pétursborg, sem er vinsæll áfangastaður ferða- langa frá Íslandi. Áhrifamikill páfi Að lokum segir hér af ferðum Frans páfa, sem var í Panama til þess að kynna sér kristindóminn þar í landi. Sannarlega er páfinn ekki valdamaður en um áhrifamátt hans á mannlíf og málefni verður þó ekki deilt. Er þekktur fyrir að tala beint inn í aðstæður á hverjum stað og tíma – og blanda geði meðal al- þjóðar. Í Panama heimsótti páfinn meðal annars heimili fyrir HIV- smituð ungmenni. Vakti þessi hús- vitjun hans heilagleika mikla athygli, meðal annars hjá ljósmyndurum fréttaveitunnar AFP en myndirnar hér á síðunni eru úr þeirra ranni. AFP Fróðleiksfús Hinn franski Macron og Brigitte kona hans kynntu sér menningarminjar í Egyptalandi um helgina. AFP Stemning Ekki síður en Íslendingar gera gjarnan voru Danir fagurlega farðaðir í fánalitum á úrslitaleik HM í handbolta. AFP Kóngabolti Friðrik, danski krónprinsinn, mætti auðvitað á úr- slitaleikinn í HM í handbolta þar sem Danir sigruðu með stæl. Páfinn í Panama og Macron í Giza Heimur á fleygiferð! Marserandi hermenn í St. Pétursborg minntust tímamóta í stríðssög- unni. Hans heilagleiki er hins vegar friðelsk- andi maður, og sama gildir um Friðrik krón- prins og Frakklands- forseta. AFP Heilagt Páfinn mætti með veldi sínu til Panama og kynnti sér meðal annars aðstæður eyðnisjúkra. Í ferðalok brá hann á leik svo eftirtekt vakti. AFP Rússland Umsátrið um Leníngrad var langt og strangt og tímamótamál í seinna stríði. Að 75 ár eru liðin frá lokum þess var minnst með hersýningu. Um 2.500 keppendur taka þátt í Reykjavíkurleikunum, Reykjavik International Games, sem nú eru haldnir í tólfta sinn. Keppnisdag- skráin skiptist á tvær helgar, 24.-27. janúar og svo verður keppt um næstu helgi, 30. hanúar til 3. febrúar. Flest besta íþróttafólk landsins tekur þátt í mótinu og á sjöunda hundrað alþjóðlegir keppendur. Keppnin fer að mestu fram í Laugardalnum en einnig í Egilshöll, á Skólavörðustíg og víðar. Íþrótta- greinarnar sem keppt er í eru mjög fjölbreyttar og verður meðal annars í fyrsta sinn efnt til keppni í raf- íþróttum. Í tengslum við Reykjavíkurleikana verður einnig efnt til alþjóðlegrar ráðstefnu sem ber yfirskriftina Eru íþróttir leikvangur ofbeldis? Ráð- stefnan er haldin í samvinnu Reykja- víkurborgar og ÍBR ásamt Íþrótta- og Ólympíusambandi Íslands, Ung- mennafélagi Íslands, Háskólanum í Reykjavík og menntamálaráðuneyti og verður í húsnæði HR miðvikudag- inn 30. janúar. Vinnustofur um sama málefni verða svo 31. janúar í Íþrótta- miðstöðinni í Laugardal. 2.500 keppendur á fjölmennu íþróttamóti Rafíþróttir ryðja sér mjög til rúms á Reykjavíkurleikunum Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Keppni Tölvuspil eru áhugaverður leikur sem reynir á skerpu og eftirtekt.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.