Morgunblaðið - 29.01.2019, Page 14
14 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 29. JANÚAR 2019
Verið velkomin í verslun okkar
Opið virka daga kl. 8:30–17:00
Síðumúli 16 I 108 Reykjavík I Sími 580 3900 I fastus.is Veit á vandaða lausn
Fastus er aðalstyrktaraðili
Bocuse d’Or á Íslandi
fastus.is 28. JANÚAR – 1. FEBRÚAR
20-40% AFSLÁTTUR
VANDAÐAR ELDHÚSVÖRUR!
Pönnur, glös, diskar, hnífapör, kokkaföt, pottar, áhöld, hnífar, skálar o.m.fl.
VIÐTAL
Gunnlaugur Snær Ólafsson
gso@mbl.is
„Við erum að reyna að standa við
skuldbindingar okkar í samræmi við
niðurstöðu þjóðaratkvæðagreiðsl-
unnar um veru okkar í Evrópusam-
bandinu, en á sama tíma sjá til þess
að brottför okkar verði með slíkum
hætti að fyrirtæki
og einstaklingar
sem hafa byggt
lífsviðurværi sitt á
samningum sem
ná allt að fjörutíu
ár aftur í tímann
verði ekki fyrir of
miklu raski. Þetta
er augljós áskor-
un,“ segir Tom
Tugendhat, þing-
maður Íhalds-
flokksins og formaður utanríkismála-
nefndar breska þingsins.
Samkvæmt dagskrá þingsins er
gert ráð fyrir að greidd verði atkvæði
í dag á breska þinginu um breyt-
ingartillögur að Brexit-samningi
Theresu May, forsætisráðherra Bret-
lands, og hugsanlega um samninginn
í heild með þeim tillögum sem ef til
vill verða samþykktar. Verði ein-
hverjar breytingar samþykktar mun
það breyta samningnum í grund-
vallaratriðum, að sögn þingmannsins.
„Þá er þetta ekki lengur sami samn-
ingur,“ útskýrir Tugendhat.
Gagnkvæmni
„Áskorunin fyrir okkur í dag er að
við verðum að muna að samskipti
okkar til framtíðar verða að byggjast
á vináttu og stefna ber að því að
næstu sjötíu ár verði líkari undan-
förnum sjötíu árum heldur en öðrum
tímabilum sögunnar,“ útskýrir
Tugendhat. „Satt að segja er það ein-
mitt á þessu sviði sem Evrópusam-
bandið og að einhverju leyti ríkis-
stjórnin hafa gert mistök, það er að
nálgast viðræðurnar með þeim hætti
að annar sigri en hinn tapi. Stað-
reyndin er sú að annaðhvort sigra
báðir aðilar ella tapa báðir. Þessar
samningaviðræður eru ekki þannig
gerðar að annar geti unnið en hinn
tapað. Ef þetta er gert með réttum
hætti munum við yfirgefa Evrópu-
sambandið með mjúkri aðlögun að
nýrri stöðu sem sjálfstætt ríki með
mikil tengsl og gott samstarf við Evr-
ópusambandið. Takist ekki að semja
með réttum hætti mun það hafa slæm
áhrif á viðskiptatengsl okkar við Evr-
ópu, sem hafa verið undirstaða vel-
sældar okkar og hafa á sama tíma
skipt Þýskaland, Frakkland og mörg
önnur ríki verulegu máli. Hafa þarf í
huga að viðskipti hafa í för með sér
gagnkvæman ávinning.“
Samningslausir
Tugendhat segir það ljóst að út-
ganga Bretlands úr Evrópusamband-
inu án samnings við Evrópusam-
bandið sé einn þeirra möguleika sem
liggi fyrir. „Ef ekkert breytist þá er
það einmitt það sem gerist. Mörg
okkar vona að við getum fengið samn-
ing sem hlýtur meirihluta í þinginu.
Ef það gerist ekki, þá eru valkostirnir
annars vegar stefnubreyting sem
getur falið í sér að framlengja gildis-
töku fimmtugustu greinar [grund-
völlur úrsagnarinnar], hætta við
fimmtugustu greinina eða jafnvel
boða til nýrrar þjóðaratkvæða-
greiðslu eða þingkosninga. Gerist
ekkert þessara fyrrnefndra atriða
munum við yfirgefa Evrópusam-
bandið 29. mars samningslaus.“
„Af mörgum ástæðum tel ég ólík-
legt að önnur þjóðaratkvæðagreiðsla
verði haldin, jafnframt finnst mér það
slæm hugmynd. Þá tel ég einnig að
þingkosningar séu ekki líklegar á
næstunni, aldrei segja aldrei, en það
er ólíklegt. Á þessum grunni get ég
ekki útilokað að við förum án samn-
ings,“ segir nefndarformaðurinn.
„Það eru augljóslega margar
áskoranir sem blasa við, ekki bara
fyrir okkur, fyrir nágranna okkar líka
og þau ríki sem við erum í miklum
viðskiptum við. Afleiðingar þess að
ganga úr Evrópusambandinu án
samnings geta verið töluverðar fyrir
alla, jafnvel Ísland líka,“ segir
Tugendhat.
Varnagli
Spurður hvort líklegt sé að þing-
menn Íhaldsflokksins geti stutt hug-
myndir Verkamannaflokksins um að
halda Bretlandi innan tollabandalags
Evrópusambandsins segir hann það
ólíklegt. „Aðlögunarsamningur for-
sætisráðherra, samningurinn sem
var felldur í þinginu nýlega, felur í sér
áframhaldandi veru í tollabandalag-
inu í einhvern tíma sem er einmitt
það sem umdeildi varnaglinn (e.
backstop) snýst um. Þannig að það að
hafa einhvers konar tollabandalag er
gerlegt, en til lengri tíma væri það
furðulegt ef ríki á stærð við Bretland
hefði ekki stjórn á eigin viðskipta-
stefnu án fulltrúa innan bandalagsins
sem stjórnar henni,“ segir Tugend-
hat.
Reyna að lenda Brexit í dag
Nálgun ESB og breskra stjórnvalda til samningaviðræðna röng Engin eining um breytingar-
tillögur sem ræddar eru í dag Ekki hægt að útiloka samningslausa brottför Breta úr ESB
AFP
Í sjálfheldu Ekki virðist vera lausn í sjónmáli í tengslum við útgöngu Breta úr Evrópusambandinu.
Tom
Tugendhat
Lögreglumaður hjá embætti lögreglustjórans á
Suðurlandi hefur verið ákærður fyrir líkams-
meiðingar af gáleysi og brot í opinberu starfi
með því að hafa í maí í fyrra ekki gætt lög-
mætra aðferða við eftirför.
Ók lögreglumaðurinn þrívegis á afturhorn
bifreiðar, sem veitt var eftirför á Þjórsárdals-
vegi, með þeim afleiðingum að ökumaður þeirr-
ar bifreiðar missti stjórn á bifreiðinni á um 95
km/klst. hraða. Fór bifreiðin út af veginum og
valt þar tvær veltur og endaði á réttum kili.
Í ákæru embættis héraðssaksóknara kemur
fram að maðurinn sem veitt var eftirför hafi
hlotið brot á hálslið og 10 cm langt sár á
hnakka sem var opið inn að höfuðkúpu.
Að sögn lögreglu á Suðurlandi er lög-
reglumaðurinn við störf hjá embættinu.
Lögreglumaður ákærður en enn við störf
Löggæsla Lögreglumaður á
Suðurlandi hefur verið ákærður
Dómi Héraðs-
dóms Vestur-
lands, þess efnis
að lögreglustjór-
anum á Vestur-
landi væri
óheimilt að rann-
saka rafrænt
innihald farsíma
sem embættið
telur að geti varpað ljósi á meinta
líkamsárás, var snúið við í Lands-
rétti fyrir helgi þar sem rannsóknin
var heimiluð. Héraðsdómur telur
ekki rök fyrir því hvers vegna eig-
andi símans, sem talinn er hafa tek-
ið myndir af árásinni, sé grunaður
um aðild að henni.
Lögreglan má skoða
innihald farsíma
Fyrrverandi starfsmaður Fríhafn-
arinnar ehf. í Leifsstöð hefur verið
dæmdur í 45 daga skilorðsbundið
fangelsi fyrir að hafa tekið peninga
ófrjálsri hendi úr sjóðsvélum í Frí-
höfninni í apríl og maí árið 2016.
Alls dró konan sér 391.000 krónur
úr kössunum á rúmum mánuði.
Dómur í málinu var kveðinn upp í
Héraðsdómi Reykjaness 11. janúar
síðastliðinn. Í dómnum kemur fram
að konan hafi í átján skipti seilst í
sjóðsvélar Fríhafnarinnar og tekið
á bilinu 7.000-50.000 krónur úr
kassanum í hvert sinn.
Konan mætti ekki fyrir dóm, en
framlögð gögn þóttu nægileg til
sakfellingar.
Starfsmaður dró
sér fé í Fríhöfninni
STUTT
Nítján breytingartillögur við útgöngusamning Theresu May, forsætisráðherra
Bretlands, verða til umræðu á breska þinginu í dag. Erfitt getur reynst að ná
meirihluta fyrir samningnum þrátt fyrir tillögurnar, en ríkisstjórnin hefur ekki
sjálf lagt fram breytingar að svo stöddu.
Um eitt hundrað þingmenn Íhaldsflokksins sem greiddu atkvæði gegn
samningi May nýverið gerðu það meðal annars vegna andstöðu við svokallað
Backstop sem felur í sér áframhaldandi veru í tollabandalagi ESB.
Þingmenn Verkamannaflokksins sem einnig greiddu atkvæði gegn samn-
ingnum segja skilyrði fyrir stuðningi við hann felast í að tryggt verði að Bret-
land verði áfram í tollabandalaginu. Jafnframt fara þeir fram á að samþykkt
verði að útiloka Brexit án samnings, sem May segir ómögulegt þar sem það
gæti þýtt að ekki yrði staðið við niðurstöðu þjóðaratkvæðagreiðslunnar.
Líkur á því að Bretar gangi úr Evrópusambandinu án samnings eru því tald-
ar aukast með hverjum degi.
TOLLABANDALAGIÐ KJARNI MÁLSINS
Engin lausn í sjónmáli